Vísir - 06.05.1914, Blaðsíða 1
?E»œæffl*KawMWHíB8æfflRSffi»a^aaaiœiírt
—2|« erelsta— besta — út-
V Í5»ll breiddasti og ódýrasta
dagblaðið áíslandi.
&
£íf8B
Vísir er blaði? þitt.
Hann áttu að kaupa fyrst og fremst.
Keimir út aila daga. Sími 400. Afgr.
Austurstr. 14., opin kl. 1 lárd.til 8 siðd.
Kostar 60 au. um mánuðinn. Kr. 1,75
ársfj. Kr. 7,00 árið (380—400 tbl.).
Skrifstofa í AusturstrætiU. (uppi),
opin kl. 12—3, Sími 400.
Langbesti augl.staður í bænum. Augl.
sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtlngu
Miðvkud. 6. maf 1914.
Háflóð kl. 2,27' árd.og kl.2,52’síðd.
>
A morgun:
Afmœli-.
Frú Halldóra Hinriksdóttir.
Sigríður Guðjónsdóttir, sauma-
kona.
Reykjavíku
310GRAPH
THEATER
Sími 475.
agisrga 'Ss&sti
r
Otrú eiginkona.
I Nútúðarsjónleikur í 2 þáttum
1 um auðvald og kvennavald.
IAðalhlutverkið leikur
Lili Beck.
Áhyrgðarbrjefið.
Gamanmynd. |
8
‘ú *ási venjuiega tiibúnar
B á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
ga-ði undir dómi almennings. —
Sími 93. — Helqi Helgason.
Vöruhusið.
B« únn skinnkragi hefur tapast
í miðbænum. Finnandi beðinn að
skila til Th. Th. Ingólfshvoli.
K. F. U. M
Kl. 8V2. Fundur í U.— D.
Gísli Guðmundson gerlafræð-
ingur segir ferðasögu frá Wien,
París og víðar. Upptaka nýrra
meðlima.
Allir piltar, 14--17 ára, mega
koma.
Prófessor
Haraldur Níelsson
endurtekur erindi sitt í Iðnaðar-
mannahúsinu íimmtudag 7. maf,
kl. 9 e. h.
Efni: Getur lifandi maður
farið úr likama sinum i bili?
Inngangseyrir 25 au.
stúkunnar Einingin nr. 14
verður ekki í kveld heldur næsta
laugardagskveld kl. 81/*.
Barnaskólinn.
Sýning: fimtud. 7 mai kl. 4-7 ( kólaeldhús); föstud. 8. mai
kl. 4-7 (hannyrðir, teikningar, skólaeldhús...); laugard. 9. mai kl. 1--j
og 4-7 (hamiytðir, teikningar, skólaeldhús...); sunnud 10. maí k'. 1-3
og 4 — 7 (hannyrðir, teikningar...). Allir ve’komni'-.
og öll önnur nauðsynjavara er að vanda óiiýrast og hest
í versiuu
>
Asgríms Eyþórssonar,
Austurstræti 18.
Diiglegur kvenmaður
getur fengið atvinuu nú þegar. Afgr. v. á.
Ávextir
og öll niðursuða í dcsui
er best í verslun
Ásgríms Eyþórssonar,
Austurstræti 18.
ÖR BÆNOM
rtc
Maðurinn, sem drukknaði af
„Helga Magra“, og getið var um
í Vísi í gær, hjet Stefán Bergs-
son og var frá Siglufirði.
Sterling kom í gærkveld kl.
11. Farþ gar: Frú Sophía Bjarnar
son, Frk. Guðrún Hafliðadóttir,
Sveinn Oddsson bifreiðarstjóri
með frú, Geir Zoega verkfræð-
ingur, Debell Kreyns stórkaupr.i.,
Mr. Hay, 2 frakklendingar ofl. ofl.
Botnia kom í gær kl. 1 frá fsa-
firði. Megal faþega voru: E. Ker-
úlf lænir, Halldór Bjarnason versl-
unarmaður, Páll Snonason skrifari,
Björgvin Hermannsson trjesmíða-
meistari. Frú N:kolína ÞorIák;dót(ir,
Ólafur Jónsson frá Oarðsstöðum, P.
A. Óiafsson consul Palreksfirði með
frú, ungfrú Svafa Þorleifsdótiir
kennari.
Flora fór á sunnudagskveldið
austur, áleiðis til útlanda, Meðal
farþega voru: Guðm. Stefánsson
versiunarstjóri, frú Sniith (móðirsím-
stjórans), Carl Sæmundsen umbofts-
sali, Ólsen trúboði, skólapiltar margir
og skólameyar.
Hjálp! Áður auglýstar kr. 9,00
Kona — 1,00
G. G. — 1,00
t — 10,00
Afhent læknlnum í gær kr. 21,00
Úr axlarlið fór í fótboltaleik
í gærkveldi austur á melum Sig-
urjón Lárusson, íþróttamaður.
þorvaldur læknir Pálsson var á
ferð þar og og kipti þegar í lið-
inn.
íslands-pósturinn sem kom-
inn var til Edinborgar 30. f. m.
var í ógáti sendur allur með
Vestu.
Beiðni.
það*er mín innileg bón til allra
góðra Dagsbrúnarmanna að þeir
bregði nú drengilega við og út-
vegi mjer einhverja mannhjálp
á nóttunni til að vaka yfir einum
meðlim fjelagsins Magnúsi Bjarna-
syni, sem liggur þungt haldin.
Guðrún Finnsdóttir,
Nýlendugötu 16.
IPIFRÁ OTLðNDQMglÍ
Bretar á Sndlandi.
Einatt bryddir á rólgrónu hatri
Indverja gegn Brelum jjar eystra.
Ber það oft við, að enskir ntenu
eru niyrtir, niannvirki sprengd í loft
upp o. s. frv. »Kosningardaginn«
(íslenska), 11. apríl, skaut indversk-
ur þjónn sex skammbyssuskotuin á
húsbónda sinn enskan og gesti hans
og feiigu fimm þeirra bana, en
hinn sjötti særðist, Fjórir þessara
manna voru yfirmenn í hernum.
Skærur
verða enn annað veifið með Aröb-
3
VI s eMiuf &\$s
fást með ágætu verði í
GLASGOWGRl.JNNINUM.
um og íiölurn í Afriku. Á langa-
frjádag rjeðust 600 Arabar á setu-
lið ítala í Bugazal náiægt Benghazi.
Fengu þeir harða viðtöku og urðu
frá að hverfa eftir snarpart bardaga.
ítalir voru miklu betur vopnum
búnir og höfðu got: vígi. Fjell
hundrað manna af Aröbum, en ítalir
misstu þrjá nienn og sjö særðust
af þeirra liði.
Stjórníeysingjar
af Englandi, Skotfandi og írlandi
hjeldu ársfund sinn í Newcastle 13.
—14. f. m. Umræöuefni: Hversu
verður hugsjónum vorum best unn-
ið fylgi?
Danmörk og England
ræða um utanríkismál.
Blaðið »Statidard« í Lundúnum
gat þess í t. tn„ að þegar Dana-
konungur kæmi ti! Englati;'s í sum-
ar, heíði hann með sjer eimi af
heistu mönnum uíanríkisráðuneyt-
iSins og muni það vera vegna þess,
að þá eigi að ræða meðal annars
um nýlendumál. — Norsk blöð
segja, aþ vera megi, að umræðu-
efnið sje það, hvort Danmörk skuli
láta af hendi við Kanada Vest-ir.d-
isku-eyarnar eða Grænland, eður
og um aukinn rjett Enlendinga til
fiskveiða við Færeyar ,eða ísland
eða Grænland.
Verkveitendur í
Pjetursborg.
hafa átt í brösum við vinnulýð-
inn og tóku það til bragðs að
segja þeim upp atvinnu um pásk-
ahelgarnar til þess að spara kaup-
ið við lýðinn þann tímann. Sjö-
tiu þúsundum manna var sagt
upp í einu og urðu af því áhöld
og barsmiðir, áður lögreglan fjekk
fulla yfirhönd.
Harðstjórn Serba.
í fylki því, er Kossovo heitir í
Serbíu býr margt Albana. Serb-
ar hafa ráðist á þá, brytjað niður
jafnt fullvaxna menn og börn hund-
ruðum saman, og brennt meir en
þúsund bæi. það veldur hryðju
verkum þessum, að Albanar höfðu
krafist þess, að albanska skyldi
vera skólamál í albönskum byggð-
arlögum,, en þa ð. þoldu Serbar
ekki og vildu kúga þá með valdi
til þess að kenna á serbneskri p
tungu. ®
Porskfiski á Mæri.
Um páskaleytið höfðu veiðst
19 milj. þorska í Masrafylki í
Noregi frá byrjun vertíðar; þar
af 12 milj. á Norðmæri. Fiskur-
inn er talinn 9 milj. kr. virði. :
Þórarinn Guðmundsson endurtekur FIÐLUSPIL sitt í Templarahúsinu í kvöld kl. 9. Aðgöngumiðar seldir í Templarahúsinu á 1 kr., standandi 50 aura.