Vísir - 27.05.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 27.05.1914, Blaðsíða 2
V 1 S 1 R er nú komin og tæst hjá bóksölunum í Reykjavi Bókaverslun Slgfúsar Eymundssonat. £eu- aUwdvu- dúiSltv \ y ola$w\&\ hefur fengið miklar birgðir af LEIR- og GLERVÖRU, GLÖSUM, ÖSKUBIKURUM, BLÓMSTURPOTT A, allar stærðir, o. fl. o. fl. Allt eftir nýjustu tísku. Verðið þekkja allir, að það er hið besta í borginni. V I S I R. otœrsía blað á íslcnska tungu. Argangurinn (400—5' 0 blöð) kostar erlenáis kr. 9 00 eða 2V, dollars, innan- lands kr.7 00. Ársfj.kr. 1,75, mán kr-0,60. Skrifstofa og afgreiðslustofa í Austur- ‘træti 14 opin kl. 8 árd. til kl. 9 síðd. Sími 400. Pósthólf A. 26. Ritstióri Einar Gunnarsson vcniulega til viðtals kl. 5—7. iSenoisveinastööin (*;ími 444) annast út- i ur.i um austurbæínn nema Laugaveg. mgreiösla til . tanbæarka penda er í Ht-rgstaðastræti 6 C (Sitni 144, Póst- hólf A. 35)]. um æsingum. — þenna umrædda dag, 5. maí, var efnt til samskota i öllum verksmiðjum handa „járn- sjóðnum“ svo nefnda, en hann á að styrkja blöð og rit verkamanna. Helguðu þeir daginn þessari fjár- söfnun og kölluðu hann „dag verkmannablaðanna“. Var til ætl- ast, að verkmenn gæfu sjóðnum eins dags kaup sitt og tókst furðu rel að fá því framgengt. Safnaðist stórfje, og voru þó tug- ir forgöngumannanna hneptir í varðhald. Meðal kjarnyrða þeirra, er hrutu af vörum jafnaðarmanna þenna dagáþingimánefnaþessi: „Nú er stjórnin skipuð æfintýramönnum og fjárdráttarburgeisum“. „Stjórn- in notar þingið aðeins sem stimp- il til þess að hafa betra traust í erlendum bönkum og það hefur látið hana hafa sig að leiksoppi í sjö ár“. „Meiri hluti þingsins hefur sýnt sig albúinn til þess að fleygja frá sjer rjettindum sínum, en meiri hluti þjóðarinnar stend- ur að málum með vinstri mönn- um“. „Ofbeldið getur hrósað sigri um sinn, en frelsið verður langgæðara®. Harðstjórar þeir, er hjer sitja“ o. s. frv. o. s. frv. þegar fregnirnar af þihgróst- unum bárust verkmönnum til eyrna, hjeldu þeir múgafundi um kveldið og sungu byltlngar- ljóð. Lögreglan skarst í leikinn og gerði marga hahdtekna. Knattspymn- kappleikurinn. Eins og til stóð, var hann háð- ur sunnudaginn 24. þ. m., þó ekki á tilteknum tíma. Fimm mínútum eftir hinn ákveðna tíma voru allir komnir á leikvöllinn nema einn, (sem er ný trúlofáð- ur). Dómarinn flautar og allir keppendurnir af stað, nema mark- mennirnir. Tíu mínútum seinna var Skúli nokkur Jónsson ekki nógu fótalangur til þess, að geta fylgstmeð Gunnari Halldórssyni, og tók því í öxl Gunnars til þess að halda honum aftur, en slíkt er lagabrot og kostaði Reykja- víkurfjelagið vítisspyrnu. þá er knötturinn settur beint fyrir fram- an markið, 12 fet fyrir framan það, og aðeins einn maður má verja. Pjetur'Magnússon, einn af berserkjum Frammanna sparkar þá þegar er dómarinn flautar, og knötturinn þýtur eins og fall- byssukúla inn um mark Reykja- víkurmanna, rjett við stöngina aðra, mátulega langt frá mark- manninum til þess, að hann náði knettinum ekki. í annað sinn er mönnum skipað niður á víg- vellinum og dómarinn gefur merki að hefja leikinn að nýju. Leik- urinn berst nú til og frá um völl- inn og hvorugur má betur um stund, þar til Tryggvi Magnússon, minsti knattspyrnumaðurinn, sem nokkru sinni hefur komið op- inberlega fram í þessari íþrðtt, sparkar knettinum 50 hæðir sín- og 150 lengdir sínar áleiðis á mark Reykjavíkur, samt var þetta ekki nóg, því knötturinn lendir niður á að giska 20 álnir fyrir framan mark Reykjavíkurmanna, en þá var Magnús Björnsson þar fyrir og án þess, að Reykjavík- Urmenn gætu nokkuð að gjört, hafði hann sett knöttinn af svo miklu afli i mark Reykjavíkur- manna, að brakaði í netinu og vallargirðingin og skúrar allir skulfu af lófataki áhorfendanna. þetta þoldu Reykjavíkurmenn ekki, og hrópuðu á hefnd (í hljóði). Er nú mönnum skipað til orustu í þriðja sinn. þá sá maðurfljót- lega, að Reykjavíkurmenn voru í vígahuga. Hlaupa þeir með knött- inn upp að marki Frammanna, og eru þeir komnir fram hjá for- vörðunum og eiga nú að eins eftir að komast fram hjá bakvörð- unum. þeir vissu hvorumegin garðurinn var lægri og rjeðust auðvitað þar á hann, þeim veittist afar hægt að komast þeim meg- in í gegn, því sá, sem þar átti að verja er viðvaningur, ogskeikaði auðvitað þessvegna, og höfðu þá Reykjavíkurmenn eigi annað eftir en aðeins að koma knettinum innum markið, en það var nú hægra sagt en gjört, því Jensen vinur vor er langur og snar í hreyfíngum öllum, en samt sem áður tókst Kjartani Konráðs- syni að koma knettinum inn, en hvernig hann fór að því, þaðveit enginn nema hann einn, ogham- ingjan veit hvort hann sjálfur veit, hvernig hann fór að því. Nú er mönnum enn að nýju raðað upp til orustu, var nú vígahugur í báð- um. Nær nú Ólafur Magn. til- vonandi „Kongelihoff“ í knöttinn, hleypur með hann eins og eld- ing upp með línunni, því að hann er frár á fæti; þegar hann er kominn mátulega langt að sínum dómi, þeytir hann knettinum þvert yfir völlinn til Pjeturs bróður síns, en hann var ekki alveg við því búinn, svo Hinrik nokkur berserkur mikill Thorarensen æð- ir með knöttinn á mark Reykja- víkurmanna og áður en Jón á gull- skónumogmarkmaður Reykjavík- urmanna vissu af var knötturinn kominn inst inn í hornið á mark- netinu. Var nú leikurinn hafinn aftur án afláts, og eftir örfáar sekúndur glumdi við lófatak áhorf- endanna, þvi knötturinn var kom- inn í fjórða sinn í mark Reykja- víkurmanna. Nú voru aðeins eft- ir nokkrar mínútur af hálfleikn- um, liðu þær án nokkurra nýj- unga og á ákveðnu augnabliki flautar dómarinn og hálfleikurinn var á enda. Hafði þá „Fram“ unnið 4 mörk en „Fótboltafjelag Reykjavíkur" aðeins eitt. Eftir fimm mínútur flautar döm- arinn aftur, í líkum tón og Völ- undur, þjóta þá keppendurnir út úr skúrnum fram á völlinn, hver með stærðar appelsínu (heila) í munninum. Leikurinn hefst af mikilli grimd, verður mjer á að segja, frá báð- um hliðum, líður svo hálf klukku- stund að hvorugur sá betur. Voru nú aðeins eftir fimmtán mínútur af leiknum. Gerðu núFrammenn ekkert annað en verjast enReykja- víkurmenn sóktu því harðara. Gerðu nú Reykjavíkurmenn sein- ustu árásina á kastalann og árang- urinn varð sá, að þeir unnu ann- að markið. Áhorfendurnir þökk- uðu þeim rösklega sókn með glymjandi lófataki,sem hættir ekki, fýrr en Frammenn gjörðu fimmta markið, en af því að það var Magnús Björnsson sem gjörði það, þá gaus lófatakið upp að nýju án efa fimm sinnum hljómsterkara en áður. Leikurinn var nú rjett á enda, og var því út sjeð um árangurinn, sem varð vinningur fyrir „Fram“ 5 mörk gegn 2. Dómarinn var Skafti Davíðsson, gamall knattspyrnumaður hjeðan úr Reykjavík, var hann í alla staði hinn ákjósanlegasti, rjett- sýnn og fljótur til, ef eitthvað var á seyði. Leikurinn fór í alla staði ágæt- lega vel fram frá báðum fjelög- unum, nema kvað Kjartan var eitthvað að siinnast á harðindin í Borgarfirðinum. Viðurkenningu fyrír vaska fram- göngu fengu tveir Frammenn frá Reykjavíkurfjelaginu, þeir Magnús Björnsson og Brynjólfur Kjartans- son, sitt glóðaraugað hver. Annan í hvítasunnu hrópa Reykjavíkurmenn á hefnd. H r a f n. Prjönagarn langstærst urval í öllum litum og tegundum og lang ódýrast í Vöruhúsinu. s^ómexuv vanfar á þilslcip á Vesttirlandi. Upplýsingar á Bjargárstíg 15 kí: 4—5 siðd. Kex •« kökur borgarinnar mesta og besta úrval, yfir 40 teg., fást ávalt í LIVEEPOOL. Kaviar Egta rússneskur, fæst í Nýhöfn. Qstav os nýkomiö í £\Qetpool ,,---------------------------i i Ritvjel óskast til kanp5. Tilboð, sem tilgreinir tegund og verð, sendist á afgr. Vísis fyrir laugardag. Vindlar og vindlingar, hvergi betra úral • en í NÝHÖFN. A. V. Tulinius. Miðstr. 6. Tals. 254. Brunabótafjel. norræna. Sæábyrgðarfjel. Kgl. oktr. Skrifstofutími 9—3. _______ ._________| ^

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.