Vísir - 06.06.1914, Blaðsíða 3

Vísir - 06.06.1914, Blaðsíða 3
V ISIR YASABIBLIAK er nú komin og fæst hjá bóksölunum í Reykjavík. - Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Með „Hólum“ hefur undirritaður fengið mikið úrval af meðal annars alveg nýjustu gerð. R.vík Vc ’14. Br. Ifielsen i| H -• Eimskipafjelag 9 Islands. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að þeir, sem skrifa sig fyrir hlutum í fjelaginu fyrir 1. júlí uæstk. verða aðnjótandi sömu rjettinda sem stofnhiuthafarnir. Umboðsmenn Qelagsins taka enn við áskriftum fyrst um sinn til þess tíma. Hlutabrjefin munu verða tilbúin í 'júlímánuði þ. á. Reykjavík 28. maí 1914, Fjelagsstjórnin. Til sölu. Nokkrar góðar húseignir hjer í bæ eru til sölu nú þegar með mjög lágu verði og ágætum borgunarskilmálum. — Lysthafcndur snúi sjer sem fyrst til yfirrjettarmálafim. Boga Brynjólfssonar, Hótel ísland, herbergi 26. — Sími 250. — ÞAKJÁRN, allar stærðir og lengdir, miklar birgðir nýkomnar. Hvergi eins ódýrt. Einnig miklar birgðir af þakpappa. Laugaveg 31. JÖNATAN ÞORSTEINSSON. fór fyrir Dr. Kafka sem ætlaði f við eina tilraunina að hrifsa í þetta efni. Hann varð slippi- fengur en miðillinn hnje í ómeg- in, var veikur nokkra daga á eft- ir og meira og minna tregur að framleiða nokkuð í hálft ár eða meira. Aftur á móti var hægt að taka myndir af þessum efnis flyksum frá mörgum hliðum í einu, því að þótt þær hyrfu venju- lega samstundis er ljósið bloss- aði upp, þá var þó myndin fljót- ari að festast á plötuna. Frh. Kngttspyrnu- kappleikurinn. ---Niðurl. Eftir fimm mínútna hvíld flautar dómarinn Skafti sá er seinast var dómari. Keppendur þjöta fram úr skúrunum hálfu grimmari en áður. Auðsjáanlega voru nú Frammenn búnir að taka ráð sín saman, um að láta nú ekki á sig halla. Ná þeír þegar knettinum á sitt vald, hlaupa neð hann upp að marki Reykjavikurmanna, og skýtur Gunn- ar Haldórsson, af afli miklu, en Erlendur Hafliðason, markmaður Reykjavíkur, er fínn (dóninn) og tók ekki mjög nærri sjer að stöðva knöttinn og þeyta honum langt frá markinu út á völlinn. Reykjavíkur- menn hlaupa nú með hann upp undir mark Frammanna, en ekki lengra, því Thorsteinson er viss, sæmilega. Frammenn ná nú knett- inum. Pjetur bróðir »Konelighoff« hleypur með knöftinn og þeytir hon- um til Gunnars Halldórssonar, sem óðara sendir hann inn um mark Reykjavíkurmanna, Gunr.ar er góð skytta. Lá nú knötturinn stöðugt á og við mark Reykjavíkurmanna. Hiaupa nú tveir Frammenn með knöttinn á mark Reykjavíkurmanna, Jón á gullskónum sjer ætlun þeirra, ætlar aö stöðva þá, en hittir ekki knöttinn htldur rekur tána á kaf í moldina, svo upp þyrlast tnökkur mikill, svo enginn varð Nonna var það sem eftir var af leiknum. Þetta líkaði Reykjavíkurmönnura miður mjög, hendast með knöttinn upp að marki Frammanna, þá vill svo til að Hindrik Thorarensen sparkar knettinum í hendina á sjálfum sjer og var hann þá svo nálægt marki Frammanna, að Reykjavíkurfjelagið fjekk vítisspyrnu (Straffespark). Lúð- vík sparkar og Gunnar Hjörl. var nukkuð seinn til þess, að ná hon- um. Voru nú Ieikar jafnir aftur. Mönnum er aftur raðað upp. Hjeldu nú Frammenn knettinum það sem eftir var af leiknum altaf á vallar- helming R.víkurrranna og þritt fyrir margt rekaðar ágætar tilraunir Fram- manna til þess, að konia knettinum inn um mark Reykjavíkur, hepnað- ist þeim það þó ekki og í hvert sinn, er knötturinn var á rás á mark Reykjavíkurmanna, sá maður alla þá áhorfendur sem stóðu, halla sjer í sömu átt, var þaö merki þess að þeir vildu, að knötturinn færi inn, en Reykjavíkurmenn vörðust nieð öllu liðinu fyrir^framan maik sitt. Endaði svo leikurinn, að hvor hafði gjört tvö mörk hjá hinum. Jeg þaut út á völlinn til þess að ná tali af einhverjum keppandanum. Sá jeg þá Clausen vera að basla við að ná vatni úr brunahananum einum. Notaði jeg þá tækifærið, og spurði hann hvernig honum hefði þótt leikurinn takast. Um leið og hann þurkaði af sjer svit- ann sagði hann þaö hreinasta »Dyr- plageri* að láta keppa í knattspyrnu í slíkum hita, því það væri ekki tekið út með sitjandi sælunni að standa við Reykjavíkurfjelaginu. Ahorfendurnir voru um 1000 (völlurinn rúmar samt fleiri). Aldrei hafa jafn margir í einu verið við- staddir kappleik, og sýnir það, að þetta er einmitt sú íþrótt, sem kem- ur blóði Reykvíkinga til að renna örara. Veðrið bar einnig vott um það, að þessi íþrótt er guði þókn- anleg. Þökk fyrir skemtunina »Fram« og »Reykjavíkur«, hafið sælir unnið fyrir fþróttavöllinn. Hrnfti. Kína- Lífs-Elixír Sá eini ósvikni er nýkomina I verslun Guðm. Olsen. Hvar kaupa menn helst veJwaSavoovtt*? Hjá því þar er hún. ódýrust, best og fjölbreyttust. Enskar húfur að vanda ódýrastar, bestar og smekklegastar, nýkomnar í verslun GUÐM. OLSEN. 5^a^ua vauSsHf&ja. Eftir Rider Haggard. ---- Frh. En þetta voru hin síðustu orð mannsins, því Hugi klauf hann í heröar niður með sverði sínu. Varð nú þröng allmikil. Gripu menn það sem var næst, sumir logandi eldibranda aðrir ljái, hnífa eða broddstafi og sóttu að þeim Huga. Rikki beið ekki boðanna, en hóf skothríð mikla og Davíð vá þegar mann með saxinu. Hugi hijóp þegar af baki og stúðu þeir fjclagar ag snjeru saman bökum en menn sóttu að þeim frá öll- um hliðum. Varð orustan hörð en skömm, voru það einkum örvar Rikka er flýttu fyrir mála- lokum, drap hann mann með

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.