Vísir - 10.07.1914, Blaðsíða 2
Ví S I R
Til
, skáldsins
Olafar Sigurðardóttur
frá Hlöðum í Eyjafirði.
Sungið í kvennasamsæti í Reykjavík 8. júli 1914.
Lag; Hvað er svo glatt.
||fpR norðurátt oss bárust hörpuhljómar
með hlýjum, Ijettum, undurhreinum blæ;
frá auðn og kyrð þeir komu — þessir ómar
þars kona sat í litlum sveitabæ.
Við fögnum þjer, sem hefur stilt þá strengi,
svo sterkt sem veikt þar Ijek þín haga mund;
já, hreimar þínir hafa töfrað lengi —
þeir hafa leitt oss saman þessa stund.
í kvöld við vildum öðrum önnum gleyma
og allar gleðjast við þau strengjahljóð.
Við eigum litlu kverin hjá oss heima,
í huga geymum mörg þfn bestu ljóð:
þau sumarblóm, sem yl og yndi færa,
sem anga Ijúft við sólbros mild og hlý,
og blika döggvuð líkt og lindin tæra,
þar lífsins þrár og draumar speglast í.
Við skiljum, þig! en fæstar fengið hafa
þó færri geisla’ að vöggustokknum inn.
Við skiljum: Það er kvöl að kyrkja’ oggrafa
í kalinn jarðveg andans gróður sinn,
Við skiljum, hvernig húm og þrautir þjaka,
við þekkjum margar líkan skapadóm,
En hitt er gátan, hvernig í þeim klaka
úr klungururð fá sprottið svona blóm.
Með göfgi’ á svip og gleðibragð um hvarma
í gliti slíkra blóma situr þú,
svo ern og hress í aftansólarbjarma,
og aldrei söngstu fegri ljóð en nú!
Við ysta sjónhring sjer þú blysin loga,
sem sigrað gátu skugga, tár og þraut,
svo nú sjest hvergi nótt á himinboga —
og nú er líf þitt orðiö sigurbraut,
/. B.
V I S I R.
Stœrsta blað á isltaska tmigu.
Argangurinn (400—5f 0 blöð) kostar
erlendis l r. 9.00 eða 21/, dollars, innan-
lands 1. r. 7 00 Ársfj.kr. 1,75, mán kr-0,60.
Skrifstofa og afgreiðslustofa í Austur-
s'ræti 14 opin kl. 8 árd. til kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. 26.
Ritstjóri Einar Gunnarsson
vemulega tit viðtals kl. 5—7.
deild rekur víst minni til þess,
aiS á sí'Sasta þirigi var bætt inn í
Iögin vörutolli af bátum, sem jeg i
tel mjög ósanngjamt. Hv. þrn. ;
Dal. (B. J. f. V.) þótti þá ófært, '
aö bátar slyppu viö vörutoll; eg
vona að hann hafi nú breytt skoö- ;
un sinni. Eins og nú stendur,
veröa þeir, sem fá sjer mótorbáta ,
frá útlöndum, aö borga 700 kr. í
fragt fyrir hvern bát frá útlönd-
um til Austfjarða og þar aö auki
háan vörutoll. Þar á ofan bætist
þaö, aö skipstjórar neita aö taka
nokkura ábyrgö á mótorbátunum.
Um þetta mun jeg gera breyting-
artillögu, því aö menn eru sár-
óánægöir yfir þessu gjaldi, sem
von er. — Enn vil jeg benda á
þaö til athugunar, aö þaö er mjog
óheppilegt, að taka ekki breyting-
ar á lögum inn í texta laganna,
bæöi i þessum lögum og öðrum.
Umr. lokiö.
Tillaga utn nefnd feld.
Frv. visaö til 2. umr. í e. hl.
2. m á 1.
Tillaga tíl þingsályktunar um
birting fyrirhugaðra löggjafar-
mála; hvernig ræöa skuli.
Tillaga forseta um eina umræöu
samþ. í e. hl.
3. m á 1.
Tillaga til þingsályktunar um
fækkun sýslum.embætta; hvernig
ræöa skuli.
Tillaga forseta um eina urnræöu
satnþ. í e. hl.
Neðri deild.
8. fundur í dag.
1. m á 1.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um skipun prestakalla 16. nóv.
1902; 1 .umr. (Flutningsm. Sig
urður Gunnarsson.)
Siguröur Gunnarsso :
Ástæöan fyrir þessu frv. er sú,
að þegar Fróöarkirkja var lögð
niður, stofnuöu sóknarmenn frí-
kirkjusöfnuð. Samt óska þeir
heldur aö vera í þjóðkirkjufini og
mynda þar sjerstakan söfnuö.
Umr. lokið.
Frv. vísaö til 2. umr. í e. hl.
2. m á 1.
Frv. til laga um breyting á
vegalögunum; 1. umr.
Tekiö af dagskrá.
3. m á 1.
Frv. til laga um mat á lóðum
og löndum í Reykjavík; 1. umr.
S v e in n Bj.örnsson:
Þetta frv. er rætt í bæjarstjórn
Reykjavíkur, samið af henni og
samjiykt. Frv. fer fram á mat á
lóðum bæjarins. A síöari árum
bafa hugir manna mjög hneigst að
])vi, aö leggja meiri alúð viö lönd
og lóðir bæjarins. Þaö er kunn-
ugt, aö fram um aldamót voru
lóðir bæjarins gefnar eða leigðar
mjög lágt. Nú er það öfan á orö-
ið í bæjarstjórninni, aö léigja lóö:
ir til 5 ára. En spurningin er,
hvernig eigi aö hafa leigumálann
1 tveim saniningum, sem bæjar-
stjórnin hefir gert um leigu, hef-
ir verið sett, aö matiö skyldi fara
fram eftir mati óvilhallra manna.
Þetta þykir þó ekki heppilegt á-
kvæöi. Því hefir bæjarstjórninni
komiö til hugar, aö hafa fasta f
matsnefnd og sett reglur þar um i
frv. — Eg vænti góðra undirtekta
undir málið. Ef mönnum þykir
vert aö setja nefnd í málið, sem eg
óska ekki fyrir mitt leyti, þá legg
eg til, aö frv. sje vísaö til nefnd-
arinnar í mælingu og skrásetn-
ingu lóöa og landa í Reykjavík.
Umr. lokið.
Frv. vísaö til 2. umr. í e. hl.
4. m á 1.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um skipun læknishjeraða; 1.
umr. (Flutningsmaður Siguröur
Gunnarsson.)
Sig u r ö u r Gunnarsson:
Þetta frv. er ekki nýr gestur
hjer á þinginu. Á þinginu 1911
var þetta frv. samþ. hjer i neöri
deild og viö tvær umr. í efri deild,
en fjell viö 3. umr. En 1913
drukknaöi ]>aö í því málaflóði,
sem þá var. — Eg býst við, aö
fleiri sams konar frv. kunni ffam
aö koma, 0g leyfi jeg mjer því
aö stinga upp á 5 manna nefnd.
Umr. lokið.
Samþ. í e. hl. að kjósa 5 manna
nefnd i málið.
Nefnd kosin:
Skúli Thoroddsen.
. Sigurður Gunnarsson.
Eggert Pálsson.
Matthías Ólafsson.
Stefán Stefánsson.
5. mál.
Frv. til laga um dómtúlka og
skjalþýðendur; 1. umr. (Flutn-
ingsmaöur Bjarni Jónsson.).
Frv. vísað til 2. umr. í e. hl.
Samþ. í e. hl. aö kjósa 5 manna
nefnd í málið.
Kosning hlutu í nefndina:
Bjarni Jónsson frá Vogi.
Einar Arnórsson.
Jón Magnússon.
Þórarinn Benediktsson.
Pjetur Jónsson.
6. m á 1.
Frv. til laga um löggilta endur-
skoðendur; 1. umr. (Flutnings-
maöur Bjarni Jónsson frá Vogi.)
Frv. vísaö til 2. umr. i e. hl.
Frv. vísað til sömu nefndar sem
í næsta máli á undan.
7. m á 1.
Frv. til laga um borgarstjóra-
kosning; 1. umr.
Sveinn Björnsson:
Þetta frv. hefir áður veriö hjer
í þingi. Þaö var samþykt hjer
í neöri deild í fyrra, en felt í efri
deild. Frv. er alveg eins og í
fyrra meö þeim eina viöauka, aö
til er ætlast, aö bæjarstjórnin sjálf
kjósi sjer forseta. Það er óviö-
kunnanlegt, aö borgarstjóri, sem
tekur til máls hjer um bil í hverju
máli, stýri fundum. Það er svipað
eins og ef ráðherra væri forseti
hjer í deildinni.
Mönnum er kunnugt um þaö,
að á öllum þingmálafundum hin
síöari ár hefir þaö verið einróma
ósk, að fá borgarstjórann kosinn
af bæjarmönnum, en ekki bæjar-
stjórn. — Eg vænti frv. jafngóöra
undirtekta sem á undanförnum
þingum.
Umr. lokið.
Frv. vísaö til 2. umr. í e. hl.
Dagskrá neðri deildar laugar-
daginn 11. júlí.
1. Giröingar; 2. umr.
2. Vörutollsfrv.; 2. umr.
3. Fuglafriðun og eggja; 1. umr.
4. Breyting á vegalögum; 1. umr.
5. Breyting á talsímalögunum; 1.
umr.
6. Breyting á þingsköpum alþing-
is; 1. umr.
7. Varadómar í landsyfirrjetti í
1. umr.
Effrl delld-
Fundur í dag.
1. m á 1.
Siglingalög, visaö til 2. umr.
2. m á 1.
S veitarst j órnarlö g.
Nefnd kosin:
Magnús Pjetursson.
Kristinn Daníelsson.
Stgr. Jónsson.
Vísaö til 2. umr.
3. mál.
Refir.
Sig. Stef. (framsögumaöur)
sagði að refaskinn hefðu hækkað
mjög síðustu árin. Fyrir 7 árurii
kostuöu falleg skinn 25—30 kr.,
en nú 75—100 kr. Nú væri alið
upp á Vestfjörðum á 3. hundraö
refir. Ilt ef útlendingar fengi refi
hjeðan til aö rækta hjá sjer og
keppa viö oss. Silfurrefapar heföi
verið keypt til Noregs nýlega frá
Vesturheimi fyrir geypiverð, en
úlfaþytur varð um þetta í blöð-
unum og mátti búast við útflutn-
ingsbanni.
Karli Finnbogas. þótti á-
góði af refum koma órjett niþur.
Með frv. væri bægt frá samkeppni
í sölu yrölinga, sem væri bændum
til hagnaðar, einmitt þeim, sem
tjónið biðu annars af refum.
Magn. Pjetursson sagföi
miklar tekjur af refum í sinni
sýslu. Bjóst viö nægri samkeppni
um kaup yrðlinga þó útlendingum
væri bægt frá.
Vísað til 2. umr. meö 7 :2.
4. m á 1.
Tollgæzla.
S i g. S t e f. (framsögum.) J>ótti
ískyggilegar frjettir sem nú bær-
ust um tollsvik bæði utan af Iandi
°g þó einkum úr Reykjavík, þar
sem rannsókn væri hjer hafin gegn
7—8 kaupmönnum fyrir stórfeld
tollsvik.
Nýlega höfðu veriö slegnir hjer
upp 7 kassar, sem áttu að fara
út um land, stóö á þeim regúla-
torar, saumavjelar o. s. frv., en
]>ar voru allmargir kassar af vindl-
um meö. Tollsvikararnir hlægja
að hvað sektin er lág, og verður
að taka hjer hart á.
Ráöherra vildi ekki láta toll-
svik varöa verslunarleyfismissi.
Þá kæmu ef til vill upp smiglara-
stjett sem milliliöur, þar sem slík-
ir menn gætu ekki mist neitt versl-
unarleyfi.
Júl. Havsteen þótti of
strangt aö ætíö tapaðist verslunar-
leyfi, einnig þegar ekki væri dæmd
rema 10 kr. sekt fyrir yfirsjón-
ifta.
Nefnd kosin:
Steingr. Jónsson.
Siguröur Stefánsson.
Karl Einarsson,
Karl Finnbogason.
Björn Þorláksson.
Efrideildarfundur á morgun
kl. 1.
Botnvörpuveiöasektir; 1. umr.