Vísir - 01.08.1914, Blaðsíða 1
\z
Ferðalös:
og sumardvalir
í sveit takast best ef meun
nesta sig í
Nýhöfn
Laugard. 1. ág. 1914.
Háfl.kl. 12,46’ árd. og 1,28’ síðd.
Á MORGUN
Afmœli:
Frú Marta M. Einarsson.
Ungfrú Valgerður Jónsdóttir.
Einar J. Pálsson, snikkari.
Hans Hoflrnann, verslunarm.
Jón Erlendsson, sjómaður.
Sig. Guðmundsson, skipstj.
Póstáœtlun:
Tuliniusarskip fer til útlanda.
Björgvinjarskip fer til Austfj.
og Noregs.
Sími 475.
Nýtt ágætt
prógram í kvöld.
laus. Árslaun 400 kr. Umsóknar-
frestur til 1. okt.
Búnaðarskýrslur áriö 1912 eru
nýkomnar út frá Hagstofu íslands.
(Verö 25 au.)
Slgurði þórðasynl sýslumanni
í Arnarholti, vai veitt lausn frá
embætti sínu með eftirlaunum,
27. f. m.
Póstafgreiðslumannssýslan í
Reykjavík er laus. Árslaun 1200
kr. Umsóknarfrestur til 1. okt.
Messur í Fríkirkjunni í Reykja-
vik á morgun kl. 12 sr. Jóh. Þor-
kelsson, kl. 5 sr. Ólafur Ólafsson.
Messað í Fríkirkjunni í Hafnarfirði
kl. 12. á hádegi.
Flóra var á ísafirði í gær, vænt-
anleg hingað á morgun.
Victoria Louise skemtiferða-
skipið þýska kemur ekki ferðina
hingað sem áætlað var.
Þjóðhátíðin verður ekki haldin
á morgun.
Hússtjórnarnámsskeið.
Frá 16. ág. næstkomandi verð-
ur haldið sex vikna námsskeið í
kvennaskólanum, ef nógu margir
nemendur gefa sig fram.
Borgun 35 kr. fyrir allan tím-
ann. Umsóknir sendist fyrir 8.
ág. forstöðukonu skólans.
Rvík Vs 1914.
Jnglbjörg H. Bjarnason.
Striðið.
Af „Evrópustríðinu“ berast eng-
in markverð skeyti enn sem komið
er. þau skeyti sem koma eru mest
meiningar einstakra manna um
það hvað stríðhættan sje mikil, og
að hinar og þessar þjóðir víg-
búist af kappi. þetta er í sjálfu
sjer ekkert merkilegt, því að
flestar þjóðir vígbúast einlægt
hvort sem hættan er mikil eða
lítil og einlægt geta verið skiftar
skoðanir ókunnugra einstaklinga
um það hvað stríðshætta sje mik-
il þangað til menn rjúka saman.
— Best mun vera að bíða ró-
legur þangað til einhverjar veru-
legar fregnir koma og hlaupa
ekki eftir fregnum sem auðsjáan-
lega eru teknar eftir minni háttar
æsingarblöðum erlendis, sem
kríta liðugt til þess að fá sem
flesta kaupendur.
Vísir mun senda fregnmiða
samstundis er einhver markverð
fregn kemur.
IfkklstUjr fást venjulega tilbúní-r
á Hverfísg. 6. Fegurð, verð og
gæði undir dómi almennings. —
mmmm Sími 93. — Helgi Helgason.
(Sjá einnig 4. bls.)
Eftirfarandi Iög voru samín á
næturfundinum í sameinuðu þingi,
sem getið er um í blaöinu í gær.
Voru þau samþykkt í báðum deild-
um í gærmorgun og síðan símuð
kongungi til staðfestingar.
Lög
um ráðstafanir, til þess að
tryggja Iandið gegn hættu, sem
stafað geti af ófriði í Norður-
álfu.
1. gr.
Sameinað Alþingi, kýs jafn-
skjótt sem verða má, 5 manna
nefnd, til þess að vera lands-
stjórninni til ráðuneytis um ráð-
stafanir til að tryggja landið gegn
hættu, sem því geti stafað af
ófriði stórvelda í Norðurálfu.
2. gr.
í þessum tilgangi heimilast
stjórninni, ef þörf gerist:
1. að kaupa frá útlöndum fyrir
landssjóðs hönd hæfilegar
birgðir af nauðsynjavöru, svo
sem korni, kolum, salti, stein-
olíu, vjelaolíu, veiðarfærum
læknislyfjum o. s. frv.
2. Að verja til slíkra kaupa
handbæru fje landssjóðs, er
hann má missa frá öðrum
lögmætum útgjöldum, sbr. þó
4. lið.
3. Að taka enn fremur alt að
500 þúsund króna lán til
slíkra kaupa.
4. Að stöðva fjárgreiðslur þær
sem taldar eru í fjádögunum
fyrir árið 1914 og 1915 í 13.
grein, B. II-XVIII, svo og allar
lánveitingar úr viðlagasjóði,
er heimilaðareru í fyrgreind-
um fjárlögum, þó svo að eigi
komi í bága við þegar gjörða
samninga og ráðstafanir um
verk eða loforð um lánveit-
ingar á þessu ári.
3- gr-
Landsstjórninni er og heimilt,að
leggja bann að einhverju leyti
eða öllu við útflutningi eða sðlu
úr landi á öllum aðfluttum nauð-
synjavörum, svo sem matvælum,
veiðarfærum, salti kolum o.s frv.,
ef slík ráðstöfun skyldi reynast
nauðsynleg vegna yfirvofandi eða
hafins Norðurálfu-ófriðar. — þó
má eigi meina skipum að taka j
hjer kol eða aðrar birgðir, er
þeim eru nauðsynlegar til þess
að komast heim til sín.
Á sama hátt heimilast lands-
stjórninni, að leggja bann við út-
flutningi íslenskra matvæla, ef
aðflutningur til landsins af út-
lendum matvörum heftist svo, að
til voða horfi fyrir landsmenn.
Heimilt er stjórninni enn frem-
ur að ákveða í reglugerð refs-
ingar fyrir brot gegn þessari gr.
4- gr-
Landsstjórnin ákveður, hvort
gera skuli framangreindar ráð-
stafanir og hve nær, svo og á
hvern hátt skuli ráðstafa birgðum
þeim, sem keyptar kunnu að
verða samkvæmt lögum þessum,
og hvernig skuli selja þær.
Enn fremur má landsstjórnin,
ef almennings þörf í einhverju
bygðarlagi krefur, taka eign-
ar námi matvæli og eldsneyti hjá
kaupmönnum eða framleiðendum
enda komi fullt endurgjald
fyrir.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar í
stað og gilda þar til næsta Al-
þingi kemur saman.
Frumvörp fallin.
5. Frv. til I. um breytingu á
lögum nr. 66 22. nóv. 1913 um
girðingar.
6. Frv. til 1. um breyting á lög-
nm um friðun fugla og eggja nr.
59, 10. nóv. 1913.
Frumvörp tekin aftur
1. Frv. til 1. um breytingu á
lögum nr. 86, 6. apríl 1898 um
bann gegn botnvörpuveiðum.
2. Frv. til. I. um breyting á
lögum nr. 5 frá 19. febr. 1886 um
friðun á laxi.
3. Frv. til 1. um landsdóni.
Fyrst um sinn verða að öllu
forfallalausu farnar fastar ferð-
ir frá R.vík austur yfir fjall
Mánudaga, Miðvikudaga og
Föstudaga. Lagt af stað frá
Reykjavík kl. 9. f. m.
Pöntunum austan fjalls verð-
ur veitt móttaka við Ölfus-
árbrú hjá stöðvarstjóranum
þar, en í Reykjavík á skrif-
stofunni.
Y firr jettarmálaflutningsmað ur,
Pósthússtræti 17.
Venjulegaheimakl. 10-11 og4-6
Talsími 16.
MAGDEBORGAR
BRUNABÓTAFJELAG.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
p O. Johnson & Kaaber.
§5
&
Viðaukatiilaga
við tillögu til þingsályktunar um
ráðstafanir gegn útlendingum út af
notum þeirra á íslenskri landhelgi
og höfnum hjer á landi við ýms
verkunarstörf á fiskifangi (síld).
Aftan við tillöguna bætist:
Jafnfram ályktar neðri deild, að
skora á landsstjórnina að hlutast til
um að gengið sje eftir greiðlsum
á innflutningsgjaldi (þar á meðal
vörutolli) og útflutningsgjaldi af
vörum, sem útlendingar ferma úr
skipi í skip á íslenskum höfnum
eða í íslenskri landhelgi.
Þingsályktun
um birtingu fyrirhugaðra löggjafar-
mála.
Neðri deild Alþingis skorar á
iandsstjórnina, að hún gefi sveiiar-
stjórnum kost á, að ræða og gera
tillögur um þau atriði í ábúðarlög-
gjöf, atvinnumálum og skattamálum,
sem hún hefur í hyggju að leggja
fyrir Alþingi.