Vísir - 11.08.1914, Blaðsíða 3
V I S 1 R
‘y.ltvtv \S. v\A, vet?\xr ^walvjevSasVoívYv
á setd á upp^ol^ ej vvSvxYvaYvlec^ fcolS
*y,\eY et ta&vjaetv W ál aV®ra fcaup,
S^Yuá^st veÆa \Aú\r á uppfcoívYvu,
3^3 svo yyvv^Iu lev^v seYw fae$V ev
yyvuyv 3es 2»\YYVseYv v ^ev&b\avvfe ¥v\itpa yuöuuuyyv Vvl á5 Já
upp^^vu^ar, e5 evufvvet vvldv ^óta óo?
utau uppfco%,
Tveir litlir bátar
njir eru til sölu.
NIC. BJARNASON.
er í fyrnefndu opnu brjefi getur
því ekld skoðast öðruvísi en hver
önnur íslensk stjórnarráðstöfun, er
að sjálfsögðu má breyta á sama
hátt, sem hún er gerð, af konungi
með undirskrift íslandsráðherra eins.
F á n a m á I i ð.
Nefndarálit
um fánamáliö (fyrir sameinaö
þing).
Nefndir ])ær, sem efri og neöri
deild alþingis skipuöu til aö íhuga
fánamáliö, komu sjer saman um aö
starfa aö því i sameiningu. Þær
ræddu máliö ítarlega á nokki'um
fundum, og fengu ráöherra til við-
tals á tveim þeirra.
Allir nefndarmenn, nema Skúli
Thoroddsen og Bjarni Jónsson,
voru á einu máli um þaö, að rjett
væri að hagnýta konungsúrskurð-
inn um íslenzkan fána frá 22. nóv.
1913, aö með því væri nokkuö unn-
ið, en engu tapað, og rjettur þjóö-
arinnar til fullkomins siglingafána
að engu skertur.
Um liti fánans og gerö voru
skiftar skoðanir nefndarmanna.
Sumir vildu hafa fánann tvílitan
að eins — bláan og hvítan. Aörir
vildu hafa fánann þrílitan — blá-
an, hvítan og rauöan.
Aöeins þremur gerðum var hald-
iö fram:
1. Þeirri, sem borin var upp á al-
þingi 1911 og 1913, og hefur ver-
ið notuð síðan 1907.
2. Sömu gerð óbreyttri að öðru
en því, aö bætt yröi hvítri stjörnu
i efri stangarreit.
3. Sömu gerö óbreýttri að öðru
en því, að rauðum krossi væri bætt
innan í miðjan hvíta krossinn (1.
tillaga fánanefndarinnar, sem skip-
uð var 30. des. 1913).
Flestum nefndarmönnum kom
saman um það, að almenningi
mundi kærust hin fyrstnefnda
fánagerð. Og enginn þeirra lýsti
yfir javí, að hann væri henni alveg
mótfallinn, ef til þess kæmi, að
konungur gæti fallist á hana ó-
breytta.
Nú var nefndinni ljóst, að nokk-
ur líkindi eru til, aö konungur vilji
ekki fallast á þessa gerð, svo nauð-
syn veröi að breyta henni eitthvað.
Þeir, sem fastast hjeldu henni
fram, töldu vænlegast að breyta
henni sem minst, ef til kæmi, og
þótti nægilegt að bæta að eins
hvítri stjörnu i efri stangarreit-
inn.
Aðrir töldu litlu skifta, þótt
breytingin yrði gagngeröari, ef
breyta þyrfti á annað borð, og
þótti þríliti fáninn fegurri og hent-
ugri.
Meiri hluti nefndarinnar (P. J.,
M. K., G. H„ S. St„ E. J. 0g S.
G.) taldi óheppilegt að alþingi
geröi fleiri gerðir en tvær að till-
lögu sinni við konung, og vildi
láta aðra hvora tvílitu gerðina
fylgja þrílitu geröinni.
Minni hlutinn (Sk. Th„ Bjarni
J„ Jós. Bj. Magn. P. og Karl F.)
vildu ekki útiloka með öllu hina
uppteknu gerð, þó að litlar líkur
þættu til, aö konungur fjellist á
hana. Ef hún fengist ekki, vildi
hann ekki breyta henni með öðru
en hvítri stjörnu í efri stangar-
reitnum. En þar sem hann vildi
ekki heldur útiloka þrílitu gerð-
ina, og taldi hana tryggingu fyrir
því, að konungur fjellist á ein-
hverja geröina, vildi hann hafa
gerðirnar þrjár í tillögum þings-
ins við konung.
Ráöherra studdi tillögur minni
hlutans í nefndinni, en G. B. ljet ;
5,
málið hlutlaust.
Nefndin kom sjer svo saman um, ;
að leggja til við hv. alþingi, að
það samþykki eftirfarandi tillögu
til þingsályktunar:
TILLAGA
tií þingsályktunar um gerð ís-
lenska fánans.
Meö þvi að svo er tiltekið í
konungsúrskurði 22. nóv. 1913» a®
gerö íslenska fánans skuli ákveöin
með nýjum konungsúrskurði, þeg-
ar ráðherra íslands hafi haft tök
á að kynna sjer óskir manna á ís-
landi um það atriði, þá ályktar
sameinað alþingi að mæla meö
þeirri gerð, sem borin var upp á
alþingi 1911 og 1913, a n n a ð-
h v o r t óbreyttri, e ð a með stórri
bvítri fimmblaðaðri stjörnu í efra
stangarreit, eða rauðum krossi í
miðjum hvíta krossinum, i líkingu
viö tillögu fánanefndarinnar, sem
skipuð var 30. des. 1913.
Alþingi 8. ágúst 1914.
Karl Finnbogason,
skrifari Ed. og frsm.
Jósef J. Björnsson.
Magnús Pjetursson.
Einar Jónsson.
Bjarni Jónsson frá Vogi,
með fyrirvara.
Skúli Thoroddsen,
skrifari Nd„ með fyrirvara.
Meö skírskotun til sjerstaks
fyrirvara:
Guðm. Hannesson.
Pjetur Jónsson.
Sigurður Stefánsson.
M. J. Kristjánsson.
Sigurður Gunnarsson,
form. nefndar neðri deildar.
Samþykkur öllu því, sem ekki
fer i bága við álit fánanefndar-
innar 30. des. 1913; læt málið hlut-
laust vegna nefndarstarfs míns.
G. Björnsson,
íorm. nefndar Ed. og samvinnu-
nefndarinnar.
Breytingartlllaga
við þingsályktunartillögu fánanefnda
Alþingis,
Flutningsmenn: Guðm. Hannes-
son, Sigurður Gunnarsson, Sigurð-
ur Stefánsson og Pjetur Jónsson.
Tiilagan orðist þannig:
Með því að svo er tiltekið í
konungsúrskurði frá 22. nóv. 1913,
að gerð íslenska fánans skuli ákveð-
in með nýjum konungsúrskurði,
þegar ráðherr^ íslands hefur haft
tök á að kynna sjer óskir manua á
íslandi um það atriði, þá álykár
sameinað Alþingi að lýsa yfir því
áliti sínu, að flestum ísiendingum
muni langkærast að sú fánagerð,
sem borin var upp á Alþingi 1911
og 1913, haldist óbreytt og yröi
staðfest af konungi. En sje þess
ekki kostur, vill það mæla með
hinum þrílita fána, sem fánanefnd-
in, er skipuð var 30. desember 1913,
gerði að aðaltillögu sinni.
Neðri deiid.
Fundur í gær.
1. mál.
Till. til þingsál. um strandferðir;
ein umr.
Tillagan samþ. og afgreidd til
ráðherra sem þingsályktun frá neðri
deild alþingis.
2. m á 1.
Frv. til laga um breyting á toll-
lögum nr. 54, 11. júlí 1911 og
lögum um vörutoll nr. 30, 22.
okt. 1912; ein umr.
Frv. samþ. og afgreitt til ráðherra
sem lög frá alþingi.
3. m á 1.
Frv. til laga um stofnunkenn-