Vísir - 19.09.1914, Qupperneq 3
VISIR
í dag
verður selt tölu-
vert afnærfatnaði
með 10—20 prc.
afslætti á Vestnr-
götu 50.
Enn fremur stumpasirs
og fataefni.
Sunnudagsmorgun fer bifreiS til j
Þingvalla og kemur um kvöldiö.
Far geta 2—3 fengiö. Gefi sig
fram á Vísis-skrifstofu í dag fyr-
ir kl. 6.
þessu landi á þessum fundi. Vísaö
til fasteignanefndar, er leggi til-
lögur sínar fyrir næsta fund.
9. Borgarstjóri skýröi frá, aö
Jón Þorkelsson hafi tilkynt sjer,
aö hann hafi meötekiö brjef til
bæjarstjórnarinnar, til geymslu á
Landskjalasafniö, meö 3 innsigl-
um merktum Ólafur Sveinsson,
Ó. G. og Sig. Halldórsson. Brjefiö
opnist 2. júli 1961.
10. Brunabótaviröingar: Hús
Laugaveg 28 lcr. 9,679; Spítalastig
3 kr. 6,255; Gróðrarstöðvarhús kr.
14,091.
ÍÞRÓTTAFJELAG
REYKJAVÍKUR
byrjar leikfimisæfingar sinar 5.
næsta mánaöar.
Fjelagið auglýsir á öörum stað
hjer i blaðinu aö það geti veitt
nokkrum mönnum viðtöku. Ætti
það tækifæri ekki að veröa ónot-
aö, því aö sökum rúmleysis verð-
ur aö takmarka mjög fjelagafjöld-
ann.
Iþróttafjelagiö er uppgangsfje-
lag. Frá 1907 hefur því vaxiö
fiskur um hrygg meö ári hverju.
Er það fátítt með fjelög hjer, aö
þau lifi svo lengi meö fullu starfs-
þoli. Islenski flysjungshátturinn
hefur ekki enn komiö því á knje,
eins og mörgum fjelögum hjer i
bænum, sem nú eru ekki annað en
nafnið. I vetur sem leið voru 70
starfandi meölimir fjelagsins í
tveim deildum, fyrir utan eina
•deild, sem aö eins var skipuö pilt-
um úr Verslunarskóla Islands.
Fjelagiö hefur ágætis leikfimis-
kennara þar sem Björn Jakobsson
'Cr, og besta leikfimishúsið, sem völ
■er á hjer i bænum, leikfimishús
Mentaskólans, sem hefur þaö fram
yfir önnur leikfimishús hjer, aö
þar geta íþróttamennirnir fengið
sjer heitt bað og kalt eftir æf-
ingar.
Er það skaði, aö íþróttafjelagiö
skuli ekki geta haft nema 2 deildir
þar sem hjer í bænum er fjöldi
ungra manna, sem iöka vilja leik-
fimi, en geta ekki fengiö inngöngu
í fjelagið sökum húsnæöisskorts.
Leikfimishús Menntaskólans
þyrfti nauösynlega að stækka, því
aö i þvi er ekki hægt að æfa 30
menn í einu svo vel fari.
Fyrsta skilyrði fyrir framtíð í-
þrótta hjer í bænum er aö bygt
verði viðunanlegt leikfimishús að
stærö og útbúnaði.
Hjer með eru allir gasnotendur, sem ætla að skifta um bústað,
vinsamlega beðnir að tilkynna það til Gasstöðvarinnar viku fyrir
flutningsdag, svo hægt sje að skrifa upp þá rjettu gaseyðslu á
flutningsdegi. Þeir gasnotendur, sem vanrækja að tilkynna burt-
flutning sinn, verða að borga alt það gas, sem eytt er eftir mæli
þeirra frá flutningsdegi til þess er Gasstöðin lætur lesa á mælirinn
næst eftir mánaðamótin, þótt aðrir bafi notað gasið þann tíma.
18. sept 1914.
Crasstöd XLeykjavíkur.
r
byrjar fimleikaæfingar sínar 5. okt. n. k. — Enn þá er hægt að
veita nokkrum mönnum viðtöku. — Þeir, sem gerast vilja f jelagar,
gefi sig fram við ritara fjelagsins, hr. klæðskera Bjarna Bjarnason,
Laugavegi 5, eða einhvern annan úr stjórn fjelagsins fyrir 25.
þessa mánaðar.
Stjórnin.
ÞINGLÝSINGAR
17. þ. m.
Slyrjalrlrep 09 lllá
Vísi hafa borist ógryríni öíl af
nýjustu enskum blöðum, flestöll
eiga þau sammerkt i því, að þau
flytja svæsnustu óhróöurs- og
skammagreinar um óvini sína og
reifaralegar lýsingar á sigrum
bandamannanna. Þetta er sýnilega
skrifað i þeim tilgangi að æsa
])jóöirnar sem ákafast gegn óvin-
um sínum til þess að fá þá til aö
ganga viljuga til vígvallarins, enda
þurfa Englendingar sjerstaklega'
á þessu að halda, þar sem þeir
þurfa nú á sem flestum sjálfboöa-
liðum að halda.
Vísir hefur sett sjer tvær megin-
reglur í frásögnum sínum frá
styrjöld þessari; í fyrsta lagi að
vera algerlega hlutlaus og i ööru
lagi að vera sem áreiöanlegastur
í frásögnum; þess vegna er blaðið
sem varkárast í aö birta þær frjett-
ir, sem lýst hefur veriö. Eftirleiöis
ætlar blaðið aö flytja greinar úr
tveim áreiöanlegum blöðum frá
hvorri þjóð fyrir sig, „Times“ og
„Iiamburger Fremdenblatt'; þá
hafa menn að visu hlutdræg blöð,
en eins áreiðanleg og föng eru á.
Og til þess aö menn sjái fregnir
hlutlausra þjóöa, hefur blaðið
fengiö norsk og hollensk blöð, en
vissa er fyrir því, að Norðmenn og
Hollendingar eru hlutlausir.
Raddir hafa heyrst um það, aö
Vísir ætti að birta æsinga-, lygaJ
og reifaragreinar úr erlendum
sorpblöðum, en þó slíkt kunni að
hitta eyru einstöku manna, þá vill
Vísir ekki gera það sakir þeirr-
ar meginreglu, sem áöur er minst.
Ennfremur telur Vísir það ekki
heppilegt, aö fylla blaöið með óá-
reiðanlegum ófriöarfrjettum, en
láta öll innlend mál sitja á hakan-
um.
Iltan af landi.
Austan úr Rangárvallasýslu.
(Símfr.)
Góður þurkur og ágætt veður
hefur verið hjer síðustu viku.
Stórum hefur raknað úr þeim
slæmu horfum, sem hjer voru meö
heyskap. Besta útlit er fyrir að
menn nái inn öllum heyjum, sem
úti voru, enda eru sumir þegar
búnir að ná öllu heyi sínu inn og
farnir að slá á ný.
Seyðisfirði í gær. (Símfr.)
S t e r 1 i n g kom hingað í morg-
un beint frá Höfn hlaðinn vörum
til Suðurlandsins. Fór hjeöan um
hádegi um Norðfjörö til Reykja-
víkur. Voru farþegar nálega 200,
mest kaupafólk og námsmenn. —
Sira Þ o r s t e i n n H a 11 d ó r s-
s o n frá Mjóafirði andaðist i nótt
í sjúkrahúsinu hjer.
A u s t r i.
50—60 konur hjeldu fund í K.
F. U. M. til að ræða um brauð-
hækkunina. Þær gerðu þá fundar-
ályktun að biðja stjórnina aö sker-
ast í þaö að bakararnir lækkuðu
verð á brauðum.
Haraldur Níelsson próf. messar
á morgun kl. 12 í Fríkirkjunni.
Katólski presturinn Servaes hef-
hefur lofaö Vísi hollenskum blöð-
um.
1. Davið Östlund selur 9. þ. m.
Sveini Oddssyni og Jóni Sig-
mundssyni prentsmiöju sína með
áhöldum fyrir 4500 kr.
2. Kristján Möller selur 9. þ.
Runólfi Stefánssyni 555^2 ferál.
lóö við Klapparstig fyrir 400 kr.
Eftir
Guv Boothby.
Frh.
Aö lokinni máltíð fórum við út
á hlað og höföum stólana meö okk-
ur. Rökkriö seig á, og við sátum
og horfðum á eldflugurnar þjóta
eins og neista yfir flötina út úr
skóginum 0g inn í hann. Þaö var
eftirminnilegt kvöld. Hátt uppi
blikuðu stjörnur hitabeltis-himins-
ins í allri sinni dýrð. Umhverfis
var myrkviöurinn dulrænn og ó-
kannaður. Ljettur kliður af lækj-
arnið heyrðist skamt frá. En við
og viö heyrðust út úr myrkviðn-
um djúptónar einhverra skógar-
dýra, eöa einmanalega ýlfrið í ugl-
unni og öðrum náttfuglum.
Síöan voru bál mikil kveikt að
boði Alie hjer og hvar í kring um-
hverfis aösetur okkar og juku þau
margfalt fremur en minkuðu un-
aðarblæinn á sviöinu í kring. Viö
heyröum förunauta okkar tala í
hálfum hljóðum aö húsabaki, —
að eins ávæning af oröum þeirra
og til hestanna heyrðum við endur
og sinrium.
„En hvaö þetta er alt yndis-
legt!“ sagði Alie og horfði upp
3. Þorsteinn Gunnarsson selur
7. október 1912 Þórunni Jónsdótt-
ur húseig'hina nr. 40 B viö Njáls-
götu fyrir 4000 kr.
4. Þorlákur Oddsson selur 27.
júní þ. á. Þ. P. Þorsteinsdóttur
hálfa húseignina nr. 4 B viö Skóla-
vöröustíg fyrir 3300 kr.
til tindrandi stjarnanna. Svo sagöi
hún eins og við sjálfa sig: „Mik-
ið fádæmi liði okkur betur, ef við
gætum bara altaf átt viö slikan
frið að búa!“
„ITaldið þjer það?“ svaraði jeg.
„Haldið þjer ekki að það sje ein-
mitt þessi eiröarlausi órói, og iðu-
kast og veðrabrigði veraldarinnar,
svo að jeg ekki nefni baráttuna
fyrir tilverunni, sem gerir oss lífið
ljúft að lifa þessu lífi?“
„Æ, þjer talið um yðar eigin
veröld, — y ð a r heim!“ sagði
hún döpur í bragði. „Hafið þjer
hugsað um, hvernig minn lieimur
er? Fullur af sífeldum samsærum,
endalausri, látlausri baráttu með
óttann vofandi yfir mjer að jeg
verði gripin. — Já, dr. Norman-
ville! Þjer þekkið ekki, við hvilík
æfikjör jeg á að búa!“
„Því haldið þjer þá áfram að
búa við þau? Ef jeg að eins
mætti —“
Jeg stilti mig alt í einu. — Eitt
augnablik — og áhættuorðin hefðu
verið flogin af vörum mjer. En
að sjá hana svona og segja henni
ekki ást rnína, •—- það var mjer alt
að því ofraun. Jeg hjelt mjer samt
i skefjum og át ofan í mig alt,
sem jeg ætlaði að segja. Hún var
þögnuð og horfði langt út í myrk-
viðinn.