Vísir - 13.10.1914, Blaðsíða 2

Vísir - 13.10.1914, Blaðsíða 2
V 1 S 1 K Fáeinar athugasemdir út af ummælum Morgunblaðsins. í Morgunblaðinu á föstudaginn var stóð greinarstúfur, sem hljóð- aði um bendingar þær, sem Dýra- verndunarfélagið í Rvík hefir látið festa upp víða á almannafæri. Morg- unblaðið kallar bendingarnar: »Orð — innantóm orð«, gefur í skyn, að þær muni hafa lítinn árangur og segir, að það sé alt annað, sem þarf að gera o. s. frv. Eg verö að segja sem er, að mig furðar á, hvernig Morgunblaðið tekur í þetta mál; eg hafði búist við, að blað þetta mundi fremur styðja hinar fyrstu tilraunir félags- ms heldur en snupra þær. LTmmæli blaðsins eru í mínum augum hvorki svo viturleg né svo góðgjörn, sem mér hefði þótt vænta mega. Þaö er ekki viturlegt, að heimta miklar athafnir þegar í upphafi af félagi, sem að eins er komið á lagg- irnar, er sára-fáment og félaust; og það er ekki góðgjarnlegt, að láta fyrstu opinberu ummælin um fé- lagsvísi þennan, sem þó er sann- arlega löfsverður, vera í ámælis- og snuprutón. Dýraverndunarfélaginu var það vel Ijóst, meðan Morgunblaðið þagði, aö þörf er á aö innræta börnum og unglingum velvildarhug til allra dýra, og brýna fyrir þeim, að fara vel með allar skepnur. En þetta má framkvæma með mörgu móti, meðal annars með því, að láta stuttorðar bendingar í þessa átt vera sem víðast á almannafæri, fyrir augum allra manna, ungra og gam- alla; þær bendingar geta með því móti orðiö mörgu barni og mörg- um fullorðnum fastar í minni, Þessi Ieið var Dýraverndunarfé- laginu fær nú þegar, að því er til- kostnað snerti, og því var hún farin. Hinu hefir félagið ekki ráð á, að taka öll börn og Ieggja þau á kné sér, og ekki heldur vald til aö reka þau í féiagiö fyr en þau góðfús- lega vilja þangað koma. — í Dýraverndunarfélagið eru allir velkomnir, ungir og gamlir, væri mjög gott, að fá þangað alla þá, sem að Morgunblaðinu standa. Og eins og þeir menn spyrja, hvort slysið á Laugaveginum geti ekki ýtt undir Dýraverndunarfélagið, eins vil eg aftur á móti spyrja: Getur þetta slys ekki ýtt undir spyrj- endurna að ganga í Dýraverndun- arfélagið, og með því styrkja fé- lagið að sínu leyti til þess að koma þeirra eigin hugsjónum og tillög- um í framkvæmd? Vilji spyrjend- urnir ekki á þenna hátt styðja og styrkja félagið til góðra athafna og framkvæmda, þá veröur það líklega bæði mér og öðrum að álíta, að lítil alvara fylgi umvöndunum þeirra. Morgunblaðið kallar bendingar Dýraverndunarfélagsins »innantóm orð«, Ójá! Svo er nú »hvert mál, sem það er virt«; og þetta sama má máske segja um fieiri orð, sem eru látin »á þrykk út ganga*. Þorsteinn Erlingsson. Svo blíður sem vorið, ér vermandi sól um víðlendið ylgeislum stráir, sem ungviðið lífgar um lægðir og hól er lækningu’ af kulsárum þráir, var andinn þinn göfgi, sem Iið vildi veita þeim veikluðu öllum er bugaði þreyta. Sem logandi helbrandur hatur þitt var gegn harðstjórn og okrarans valdi, er sástu að öreiginn byrðarnar bar, en blóðsugur ræntu hann gjaldi. Þú tókst að þér málstað þess magnvana, þjáða í myrkrið þú ylgeisla sendir þeim smáða. Og æskan þá rétti þér örfandi hönd, — en ellin þig vitlausan sagði, er fanst það sem glæpur, að brjóta þau bönd, sem bölsýni’ á þjóðina Iagði; í auðmýkt hún lærði að blessa þann bana er böölanna dómur kvað réttlæta hana. Menn eldingar litu’ er í iúðrinum þaut og lið þitt að víggörðum rendi, er harðstjórnar virkjunum bylti’ um og braut og bölvan á helvegu sendi, þá kúgunin æpjandi aflið sitt misti en árroði frelsisins börnin sín kysti. ije * * * * * H ♦ * Þú svífur nú vorboöans vængjunum á um víðblámans eilífu heiði, þar frelsisins nýturöu fagnandi’ að sjá, í fegurð, sem ljósvinur þreyði: Hvar jafnaöar- sannleiks- og einingar andi sér óðulin nema í framtíðar landi. 28. sept. 1914. M. G. Fyrir 30—40 árum síðan var drukkinn maður að stríða einni vatnskerlingunni hérna í bænum og ( uppnefna hana; þá sagði hún: »Ef j þú kallar mig Imbu næpu, þá kalla j eg þig svarta Pál«. Svona má hafa það. En fyrir hönd Dýraverndunar- félagsins, sem eg því miður get ekki stutt og styrkt eins mikið og eg viidi, vil eg alls ekki svara Morg- unblaðinu með neinum briglsyrð- um. En biðja vildi eg þá, sem um það blað fjalla, að athuga, hvort sumt af því, sem þar er stundum j á borð borið, er nú öllu innihalds- | meira eða mergjaðra og líklegra til j gagns, heldur en umræddar bend- i ingar Dýraverndunarféiagsins kunna | að vera. En áður en eg hætti vildi eg.í vinsemd mega spyrja Morgunblaðið að tveim spurningum : I. Veit Morgunblaðið tölu á þeim hestum, sem móðir og þyrstir hafa fengið að drekka á austurveginum heim frá Reykjavík einungis fyrir bendingarnar, sem Tryggvi gamii Gunnarssun, núverandi formaður Dýraverndunarfélagsins, lét fyrir mörgum árum festa upp víða með fram veginum : »Leyfið hestunum að drekka«? II. Veit Morgunblaðið tölu á þcim unglingum, sem hafa fest þessar bendingar svo rækilega í huga sér, af því þeir sáu þær einlægt, er þeir fóru um veginn, að þeir síðan á- minningarlaust muna jafnan eftirað lofa hestunum að drekka? Um þetta getur enginn sagt til fullkominnar hlýtar, en þeir, sem hafa átt tíðar ferðir um þenna veg síðasíliðin 20 ár, þeir vita, að gagnið af þessum bendingum er þegar orðið afarmikið. — Reynslan úr þessari átt er þver- öfug við ummæli blaðsins; hún gef- ur ótvírætt í skyn, að bendingar Dýraverndunarfélagsins geti einmitt borið og muni með tímanum bera góðan árangur. Nei I Sannleikurinn er sá, að þessi leið, sem Dýraverndunarfélagið hefir farið, er ein allra bezta og víða um Iönd alment mest notaða aðferðin til aö innræta ungum og gömlum þá meginreglu: Að fara vel með allar skepnur. Slysið umrædda á Laugaveginum ætti því að verða til þess, að öll blööin hér í Rvík tækju upp bend- ingar Dýraverndunarfélagsins og hjálpuðu þannig til að koma þcim j inn á hvert einasta heimili. Það væri blöðunum til sóma, og gæti orðið til mikils gagns og mik- illar blessunar. Og til þessa treysti eg Morgun- blaðinu engu síður en hinum blöð- unum. Fari svo, að Dýraverndunarfélagiö taki þroska og eignist eitthvert fé til umráða, en geri samt ekkert til gagns og Iáti ekkert til sín taka, — þá er eða verður tími til að ámæla því. — En meðan það er ekki nema Iítill félagsvísir og á ekkert tii nema góðan vilja meðlima sinna og Iíkn- arhug þeirra með skepnum þeim, sem illa kann að líða, — þá get eg ekki séð, að mikið sé hægt af því að heimta; því finst mér í rauninni þakklætisvert, hvað lítið gott sem það ræðst í að gera. Félag þetta er líklega hið yngsta og minsta hér í bænum; þar með er ekki sagt, að það sé hið óþarf- asta eða ónauðsynlegasta, Það er á valdi bæjarmanna, að efla það; og eg vona, að sú góðvild og sú sam- úð með þeim, sem bágt eiga, sem oft má sjá í fögru Ijósi hjá Reyk- víkingum, komi einnig fram í því, að góðir menn styðji þenna litla, en lofsverða félagsvísi, er hefir þann eina tilgang, að glæða hjá ungum og gömlum þá hugsun: Að fara vel með allar skepnur, láta þeim öllum líða svo vel, sem hœgt er. Rvík “/ío—'Ú. Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur. Yfir vogi víðum skær vafurlogi blikar. öldusogi fögru fjœr friðarbogi hvikar. Ólafur lögregluþjónn. Meiri hluti dómnefndarinnar varð ásátt um, að þessi botn fengi verðlaun. Himinbogi heiður, tær hægt í sogi hvikar. Huld í sogi hörpu slær, hrannabogi hvikar. Þessir 2 botnar, sem báðireru góðir, gátu ekki komið til greina af því að rímvilla er í þeim. ABrir botnar: Líkt og togi lopa mær ljósabogi kvikar. Friðar-boginn færist nær feigðarsogið hikar. Bjarni’ á trogi bleikur rær, Bensi’ í sogi hikar. Verðlaunanna, sem er Ijóða- bók St. Ólafssonar og kr. 4,50 má vitja á afgreiðslu Vísis. GÆRUR keyptar hæsta verði hjá Svc&evf ‘öotjas^wx Laugaveg 13.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.