Vísir - 13.10.1914, Síða 3

Vísir - 13.10.1914, Síða 3
Þar sem eg hefi nú miklar birgðir af aiskonar vefnaðar- vörum-keyptar áður en stríðið mikla byrjaði-þá sel eg nú um tíma eftirtaldar vörur með feikna miklum afslætti. Svo sem: TiUtmiwn jatnað, 'A3et«a«j(aúka 3a^*a> ^®3t'káp\i« (,'\)Da\e«p«oof) tta«ta 09 koetvna, 'VDeta«káip\i« (J^«\« ttotvot 03 t»ö««v) 'VDeUavúáfttVavx, 'y.új\x« 'y.átstw, Stvjsv, Staojwv oa SúójatwáS aU$úona« - ^ntv j«em\i« tvv«va« alkunnu og alþektu vefnaðarvöru: SYO sem gardínutau, SYimtutaa, kjólatau, léreft og m. m. fl. 10-40 prc. afsláttur. STURLA JÓNSSON. (steamkolin) hjá eru bztfí og seijast mest. G-erlarannsóknarstofa Gísla Guðmundssonar Lækjargötu 4 B (uppi á lofti) er venjulega opin 11—3 virka daga. Fallegi hyíti púkinn. Eftir Guy Boothby. Frh. Eg beið snöggvast og er eg sá að apinn var dauður, leit eg í átt- ina þangað er Alie stóð svipstundu áður við tréð. Hún var þar ekki. Þá sá eg bregða fyrir hvítum kjól og hverfa bak við laufhrúgu. Eg þaut þangað og þar fann eg hana. Hún lá þar og var meðvitundar- laus. Eg flýtti mér að polli skamt þar frá, íók vatn í húfu mína og sneri við í hendingskasti til þess að dreypa á hana. Að þrem eða fjór- um mínútum liðnum hafði eg lífg- aö hana við svo hún gat sest upp. »Eruð þér úr hættu?* stundi hún úpp þegar hún fékk málið. »Eruð þér viss um að þér séuð ómeiddur? Eg hélt að voðadýr þetta hefði hremt yður.« Hún titraði af hrolli er hún talaði, en eg fullvissaði hana um það sem mér var unt, að eg hefði ekki svo mikið sem fengið skrámu að þvf er eg vissi sjálfur af. Og svo fórum við saman þangað er þetta ljóta óargadýr lá dautt. Eg horfði hálf undarlegur í skapi á þetta ógurlega, sálarvana kjöt- flykki, og hugleiddi, hve nærri hafði legið að það hefði lyfjað mér elli. Svo varð mér litið til hundsins, er bjargaði lífi mínu eftir skipun hús- móður sinnar. Hann hafði tvö mjög ljót sár á hvorri síðu, er eg þóttist vita að væru eftir apaklærnar. »Eg vona, greyið mitt,« sagði eg og klappaði honum um nauðljót- an hausinn, »að við tveir verðum betri vinir eftir en áður. Nú á eg þér lífgjöf aö launa.« Sneri eg þá máli rnínu til Alie og mælti: »Alie! Hvernig í ósköpunum stóð á þessu, að þér skylduð koma mér til hjálpar einmitt á úrslitastund- inni?« »Eg heyrði fyrsta skotið yðar«, svaraði hún, »og leist ráðlegast að veita yður efrirför. Ouði sé lof fyrir að eg geröi það, því augnabliks- dvöl hefði gert alt um seinan. Nú skulum við halda heim í áfangastað svo fljótt sem fætur toga. Morgun- maturinn verður til reiðu, vona eg, þegar við komum heim, og um hádegið þarf eg að koma boðbera af stað heitn í nýlenduna ineð bréf.« Við snerum nú heimleiðis og komum að byrgjunum að þrem sfundarfjórðungum liðnum. Þegar við komum á flötina þar sem byrgin okkar stóðu, sáum við mann koma ríðandi út úr kjarr- skóginum fyrir handan. Maðurinn fór all geyst og hélt rakleiðis til okkar. Víð miðbyrgið fór hann af baki og þá sá eg, að þarna var kominn gamli kunningi minn, hann Walworth, ailur rykug- ur og sveittur. Var auðséð á öllu, að hann hafði ekki talið sporin klársins síns. Hann sté af baki, er hann kom auga á Alie, tók ofan og beið þess með lotningarsvip að hún ávarpaði sig fyrst. »Hafið þér nokkrar slæmar fréttir að flytja, Walworíh?« mælti hún. »Því hafið þér svo hraðan á?« »Eg er með afar áríðandi, mik- ilvægt bréf til yðar,« svaraði hann. »Kuggurinnkommeð þaðf morgun.« — Hérna verð eg að skjóta því inn í til skýringar, að sambandi öllu viö umheiminn héldu uppi trú- verðugir boðberar og til þess kjörn- ir af henni, er fluttu fregnir einu sinni á mánuði hverjum til ákveð- ins staðar á eynni, tveim mælistig- um fyrir vestan nýlenduna. Þaðan voru bréfin borin á hraðsigldum kugg, er Fallegi, hvíti púkinn átti, og flutti kuggur sá bréf frá Alie til sama staðar í sömu ferð. Þann- ig var haldið við reglulegum póst- göngum til hagnaðar og þæginda hvorum aðilja um sig. — Hún tók við bréfinu af Walworth, bauð honum að borða með okkur, og fór svo með bréfið inn í byrg- ið sitt. Eg fór með Walworth inn til mín, og er bjallan kvað við urðutn við samferða inn í borðsalinn. Stundu síðar kom Alie til okkar og sá eg skjótt á svip bennar að eitthvað var alvarlegt á seyöi. En ekki lét hún á neinu bera fyrri en staðið var upp frá boiðum. Þá stakk hún upp á því, að við skyld- um koma út með vindlana okkar og reykja þar í ró; við þyrftumað vera þar sem víst væri að enginn stæði á hleri, því hún hefði mikil- væg málefni við okkur að ræða.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.