Vísir - 24.10.1914, Blaðsíða 1

Vísir - 24.10.1914, Blaðsíða 1
1208 V í S I R Stærsta, besta og ódýrasta blað á íslenska tungu. Um 500 tölublöð um árið. Verð innanlands: Einstök blöð 3 au. Mánuður 6C au Árstj.kr.1,75. Arg.kr.7.oo. Erl. kr. 9,oo eða 2V2 doll. V I S I R kemur út kl. 81/, árdegls hvern virkan dag. Skrit- stofa og afgreiðsla Austur- str.14. Opin kl. 7 árd. til 8 síðd. Sími 400.—Ritstjór i: GunnarSigurð8son(fráSela- læk). Til viðt venjul. kl.2-3 síðd. Framfundur í kvöld kl. 8V2 ' Temlarahúsinu. SÍMSKEYTI 2. okt. kl. ^ii) 0. h. Opinber fregn segir að egyptska stjórnin hafi stígið spor í áttina til þess að reka öll skip óvina- þjóða út úr Súezskurðinum, er þau hafa verið þar nógu lengi tii þess aðþað megi heita augljóst að þau noti skurðinn sem athvarf. Opinber fregn frá París segir að bandaher haldi ðlium aðstöðum sínum, þrátt fyrir áköf áhlaup þjóð- verja. Rússar hafa hrakið þjóðverja afturávið í grend- inni við Varsjá. ^omfcótvx heldur kvenfélagið — .HRINGURINN’ — laugardag og sunnudag 24. og 25. þ. m., til ágóða fyrir Nánar á götuauglýsingum. Laugard. 24. okt. 1914* Vetrardagur fyrsti. Háflóð árd. kl. 9,2‘ síðd. kl. 9,35. Afmæli á morgun: Hannes S. Blöndal bankarit. Magnús G. Guðnason steinsm. Gamia Bíó Yið dauðans dyr Afar hrífandi leikrit í 3 þátt- um, leikinn af þektum dönsk- leikurum, í aðalhlutverkinu f!rú Ellen Price, dansmær við konungl. leilchús- Ið í K.höfn. (Fögur og unaðs- leg mynd.) Sr— 1 iiiu i MaxangicBamoBcaBBg— FISEUR. Porskur, Smáfiskur, Upsi, og Keila. þur og velverkaður fæst í Liverpool. • s BÆJARFRETTIR n m »Botnía< kom í gærmorgun frá útlöndum. Meöal farþega: Copeland kaupm., Símon Þórðarson frá Hól, jgfr. Anna Jónsdóttir (Þórarinssonar)j 25 Færeyingar; og frá Vestmanna- eyjum: Þorsteinn Jónsson verslun- armaður með frú, Jón Jónsson frá Mörk, verkstjóri, Jón Hinriksson verslunarstjóri, Fr. Nathan, umboðs- sali o. fl. o. fl. René Alexandre franskur mað- ur, sem var hjá «Timur- og kola- versluninni* og fór f stríðið, hefir særst í orustu milii Rheims og Craonne, Fékk hann kúiu í fót- legginn og iiggur nú á sjúkrahúsi, en á batavegi að sögn. f Guðm. Gunnarsson austan af Rangárvöllum er nýlátinn hér á sjúkrahúsinu f Landakoti. Gengi sterlingspunda í póstávís- Unum héðan er nú hækkað upp í kr. 19.25, en þýskt mark er aftur komið niður { 88 aura. Kennaraskóliun verður settur í ^ag kl. 12 á hádegi. Davfð bóndi á Arnbjargarlæk er staddur hér í bænum. Vesturgata. Bsejarprýði. Enn þá einu sinni er farið að gera við göturnar hérna í bænum, enda er þessi fyllilega þörf í slíkri afskaplegri rigningartíð sem verið hefir hér í haust. Nú er það Hafnarstræti sem tek- ið er fyrir tii endurbóta og var þess síst vanþörf, og virðist árangurinn af aðferð þeirri, sern þar er viðhöfð, vera ágætur. — Sömuleiðis er byrjað að gera gangstétt meðfram Vesturgötu — þeim endanum sem veit að Hafn- arstræti og er það að líkindum hið mesta nauðsynjaverk, sem hér hefir verið byrjað á um langt skeið, því eins og allir vita, þá er ekki eins mikil umferð um nokkra götu bæj- arins með hesta og vagna eins og þá götu, en aftur á móti er hún á köflum svo mjó, að oft verður fólk að hafa alla aðgæslu til þess að veröa ekki fyrir slysum vegna þrengsla, og sérstaklega er börnum þar stór hætta búin. Þessi fjölfarna gata, sem hefir of iengi verið bænum til vanvirðu, fær nú alt annaö útlit þegar búiö er að leggja gangstéttina með henni allri að sunnanverðu eins og nú er byrjað og sagt er að eigi að rífa niöur Dúkskot sem staöið hefir fyrir götunni til óprýöi og skamm- ar, ennfremur að færa eigi Marín- arhús upp í kálgarðinn bak við húsið, frá götunni, og eru þetta þær sjálfsögðustu umbætur sem þarna þarf að gera. — Þeir sem hafa búið við nefnda götu, hafa fengið orð fyrir að vera gæflyndir og þolinmóðir við sijórn þessa bæjar og þótt þeir möglunar- laust hafi vaðið forina í mjóalegg, fyrir framan hús sín ár eftir ár, þá munu þeir (ekki síður en aðrir bæj- arbúar) kunna að meta og þakka þær hinar miklu og góðu um- bætur, sem nú eiga að verða á Vesturgötu. Fjalar. ^Y^ÓsVsY^UXY margskonar, þar á meðal MENTHOL sykur, ómissandi gegn hæsi og brjóst-kvefi, ávalt fyrirliggjandi í Lækjarg. 6 B. Magnús Th. S. Blöndahi. Eyja Bíó mr sýning í k v ö I d ~1S3$ s a m k v æ m t g ö t u a u g lýsingum. TBW G-ÆRTJR keyptar hæsta verði y 3&omseYi. Epli, amerísk 2 teg. Vfnber, ág. teg. 60 a. pr. 7, kg. Perur, framúrskarandi 65 a. - - Laukur, besta teg 15a. - - Kartöflur, danskar kr. 11,00 pr. 100 kg. Verslunin ^\a\tvasotv. 5^adA\t atmeYitvlYtgs, Árbók Háskólans, fyrir 1913—1914, er útkomin, að því er sjá má af blöðum; eitt þeirra gat þess jafnframt, að hún ætti að fyrír- finnast í hverri »góðri« bókahillu. Út af þessu vildi eg, eftir minni reynslu, gera þá athugasemd, að þau höíuðvandkvæði eru þó á öflun bók- ar þessarar fyrir menn útí frá, að hún er e k k i f á a n 1 e g, ef um er beðið — eða hefir ekki verið! Eg hefi viljað eiga þessa bók (hvort sem hún nú er merkileg eða ómerki- leg) frá uppbafi, þ. e. frá því er háskóli vor tók til starfa, og eg hefi ætíð gert tilraun til þess að afla mér hennar, bæði með aðstoð eins af prófessorunum og beinlínis hjá há- skólaritara, sem hefir gefið mér sama svarið: að hún væri ekki til. Hversvegna þetta væri svo, hefi eg aldrei fengið skýrt. — Og hún hefði mátt vera dýr, ef eg hefði átl að ganga frá kaupum á henni. — { ár hefi eg ekki farið á hnotskóg um þetta, og ætla mér ekki að gera. Fn þó Iangar mig enn að eiga »Árbókina«, nýja, frá upphafi. G. Sv.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.