Vísir - 09.03.1915, Blaðsíða 1

Vísir - 09.03.1915, Blaðsíða 1
1352 VISIR Stærsta, besta og ódýra ita blað á islenska tungu. Um 500 tðlublöð um árið. Verð inriánlánds: Einstök blöð 3 au. Mánuður 60 au. Arsfj. kr. 1,75. Arg.kr.7,00. Erl. kr. 9 00 eða 2l/s doll. / __ VISIR Þriðjudaginn 9. mars 1915; v i s l R kemur út kl. 12 á hádegi hvem dag. Skrifslofa og afgreiðsla cr i Austurstræti 14. Qpin kl. 7 árd. tíl kl. 8 síðd, Sími 400. Ritstjóri. Gunnar Signrðsson (frá Selalæk). Tilviðt.2—3. œ- -a ,Satv\Us sxttotv o$ feattvpaotti. S'«\\ -o--o- Gamla Bfó. -o--o- Skraut lífsins. Stórfalleg'mynd í 4 þáttum leikin af frægum þýskum leik urum. — Aðalhlutverkið leik- ur hin fallega þýska leikkona Toni Sylva. Petta er óefað mynd, sem öll- um mun geðjast að. Leikhusið. Hr. E. H. og ritdómarar — kvikmyndir og leiklist — »Syndir.annara«. (Eftir Q. S.) Skortur á velsœmistilfinningu. »Hver sem ekki kaupir bókina hans bróður míns og hrósar henni er skilmálalaust ólæknandi vitfyrr- ingur, skíthæll og asni.« l| Þannig fórust ritstjóra nokkrum í Vesturheimi orð um bók eina er bróöir hans hgði gefið út. Þetta mun mönnum nú þykja ailiangt gengið, en það var þó ekk» hann sjálfur heidiir bróðir hans sem 'í hlut átti. Hr. Einar Hjörleifsson stígur feti framar, þar sem alveg samskonar skoðun lýsir sér hjá honum í ritdómsgreinum hans um sjálfan sig í tveim síðustu (9. og 10.) tölubi. Lögréttu. Það mun nú engan hafa undrað, þótt hr. E. H. barmaði sér út af hörðum dómum og iiiri og ómann- úðlegri meðferð á sér, slíkum harma- tölum og raunakveini eru menn orðnir svo vanir úr þeirri átt, að enginn kippir sér við það. En hitt kemur mönnum meira á cvart, að hann færi að rita hólritdóm um ritsmíð sína og sjálfan sig yfir höf- uð sem skáld. Skýringar er ekki nema eölilegt og sjálfsagt að rit- höfundar geri, ef þeir telja að þeir hafi verið misskildir, en þegar þeir fara sjálfir að rita væmna hólrit- dóma um sjálfa sig, þá er lengra gengið en alment velsæmi leyfir, enda mun slíkt vera eins dæmi. Allir ritdómarar sammáia um aðalatriðið. E. H. er nú aö vísu kunnur að því, aö Iáta sig það minstu skifta, hvað hann ver, og því síst að bndra, þótt hann sé ekki ófús- ari en ella á að verja málefni, er Stúfasirs á kr. 1,30 V, kgr. fæst hjá TB® Jóh. Ögm. Oddssyni. Laugaveg 63. stríðir á móti almennri skynsemi og rökréttri hugsun, þegar hann á sjálf- ur hlut að máli. En eitt er að verja, annað að sannfæra. Skyldi honum ekki veitast allerfitt að sannfæra menn um það, að það sé frekar kostur en ókostur á leikriti, að það vanti máttarviðinn.að engin »dramat- isk« heild sé í því? Hr. E. H. telur þetta atriði, sem sé, að efni leikritsins sé samsett úr tveim við- fangscfnum, sem dragi hvort úr öðru, réttilega aðalatriðið í aðfinsl- um blaðanna á leikritinu, og um þetta atriði hafa öll blöðin verið samdóma, þótt þau taki þaö á nokkuð mismunandi vegu, enda er þetta svo í augum uppi, að ekki geta orðið skiftar skoðanir um það. Eg , tel ekki þörf á, að taka upp um- mæli blaðanna til sönnunar þessu, fyr en ef reynt verður að hrekja það. Þrátt fyrir það, þótt öll blöðin séu sammála um þenna aðalgalla leikritsins, finst hr. E. H. þó viss- ara, að taka tvo ritstjóra undan, er hann kveður upp þann sannfær- andi(!) dóm, »að ritstjórar blaðanna hafi bersýnilega ekkert vit á skáid- skap né leiklist*. Sennilega hefir það einkum vakað fyrir honum, er hann gerði undantekning þessa, að fá ekki öll blöðin á mótí sér, að minsta kosti ekki sitt blað, en ó- neitanlega er það dálítið kynlegt, að honum skyldi einmitt hugkvæmast að taka þá ritstjórana undan, sem mest lof báru á leikritið. Mér stendur nær að svara grein- um hr. E. H. en öðrum ritstjórum, er hann ræðst á, því að hann snýr aðallega máli sínu að mér, sérstak- lega að því er fyrnefnt aðalatriði snertir, sökum þess, að eg, að því er hann sjálfur segir, »gerir þess glöggvasta grein«. Þa3 er sýnilegt, að aðfinslurnar hafa snert hr. E. H. i!la, því í þessum langa reiðilestri um einfeldni þeirra manna, sem ekki vilja fyrirvaralaust hrósa öllum rilsmíöum hans,værióþarfi að bregöa honumum »hógværtblygðunarleysi«. Það mætti óhikaö sieppa lýsingar- orðinu. Hafi það verið tiigangur hr. E. H., að særa þá, sem fundið hafa að leikritinu, með því að bera þeim einfeldni og annað þvílíkt á brýn, skal eg fullvissa hann um, að það hefir gersamlega mistekist að því er mig snertir. Eg fyrirverð mig ails ekki að teljast í flokki þeirra manna, sem hr. E. H. hefir kallað vitleysinga í ritdeilum sínum, svo sem t. d. Ben. Gröndal skáld (sbr. fyirsögnina á blaðagrein um B. Gr. eftir E. H., sem hljóðar svo : »Ekki vitlausari en vant er«). Þess skal og getið, að einn af ritdóm- urum þeim, sem lentu í >vitleys- ingja«-tali hr. E. H., er ekki ókunn- ari rithöfundur en hann sjálfur. Annars get eg ekki stilt mig um það í þessu sambandi, að beina þeirri spurningu tii hr. E. H., hvort honum finnist ekki sjáifum, að hann fata nokkuð óvarlega, er hann reynir að nota Mark Twain eða hans líka sem grýiu á okkur, sem finnum að ritsmíðum hans. Skilst honum virki- lega ekki, að væri okkur hætt við að fá einhvern Mark Twain yfir okkur, þá mundi hann þó standa hálfu berskjaldaðri gegn slíkum manni eftir að hafa skrifað væmna hólgrein um sig og ritverk sín ? Mundi nokkur maður geta legiö öliu flatari fyrir slíkum manni ? Tökum t. d. efni, eins og þegar höfundurinn er í sveita síns andlit- is að tína saman hrósyrða-náðar- moia þá, sem fallið hafa af borð- um erlendra blaðamanna, koma þeim síðan á framfæri og dreifa þeim ut meðal landa sinna, en bera sig um leið autnlega yfir því, að enginn annar skyldi hafa fengist til þessa verks, eða þegar hann notar andlit áhorfendanna, sem eitt af aðalástæö- um, fyrir skruminu um ritsmíð sína o. s. frv. o. s. frv. íslenskir ritdómarar. Hr. E. H. gerir mjög mikið úr því, hve íslenskir biaðamenn og aðrir ritdómarar séu harðir og ó- sanngjarnir í dómum síiium um inn- lendan skáldskap og listir. Getui hann nú í raun og veru verið þess- NYJA BIO Kaja og Maja eða Loftfarinn. Danskur sjónleikur í 2 þátt- um og 30 atriðum. —.. Aðal- hlutverkið leikur hinn góð- kunni leikari Adam Poulsen. Nafn hans eitt, er sönriun fyrir því, að hér er um góðan sjónleik að ræða. Auk hans leika margir góðir leikarar. arar skoðunar? Eg hélt, að flestir mundu fremur hneykslast á þvrgagu- stæða, því flest blöð og tímarit hafa nú upp á síðkastið borið lof á þækur þær, sem út hafa komið, og meira að segja þrásinnis fjarstæðu- skjall og oflof. Það er öldungis óþarfi fyrir hr. E. H., að vera að barma sér yfir því, að hann hafi farið varhluta af þessu, honum hefir oft verið hælt fyrir rit sín og það stundum um of, en hér sannast sem oftar, að sjaldan launar kálfur of- eldi. Það skal tekið fram, að það er alls ekki meining mín, að gera lítið úr ritsmíðum hr. E. H. yfirleitt. Eg álít þvert á móti, að hann eigi ein- dregið hrós skilið fyrir margar þeirra, einkum þó smásögurnar. Annars er eg þess fullviss að það er ekki skoðun hr. E. H., að öruggústa leiðin til að hlúa að skáld- um og listamönnum, sé að ausa yfir þá taumlausu lofi og skjalli, þóít nærri lægi, að skilja það á grein hans. H*-. E. H. og kvikmyndirnar. Hr. E. H. eyðir nærfelt heilum dálki í það, að fjargviðrast út úr því, hve dagblööin hrósi kvikmynd- um, og að þau dragi eindregið taum kvikmyndahúsanna í samkepn- inni milli þeirra og leikhússins. Það er augljóst af því, hve óráðvandlega hann fer hér með, að honum geng- ur óvild til, að því er mig snertir. Síðan eg tók við Vísi hafa oftar en einu sinni verið birtar aöfinslugrein- ar um kvikmyndahúsin. í greininni »Leikhúsiö« (I. kafla), sem deifan hófst um, dró eg eindregið taum leikhússins og skoraði á menn, að styðja leikhúsið í samkepninni við kvikmyndahúsin. Eg hefi ávalt am- ast við hólgreinum um kvikmyndir, enda aldrei getið nema allra bestu myndanna í blaðinu, en það tel eg ósaknæmt, því sumar af myndunum hafa rétt á sér, einnig trá sjónar- miði hstarinnar. Þá kem eg að aðalefninu, ágrein- ing hr. E. H. við blööin út af leik- ritinu. Frh.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.