Vísir - 23.04.1915, Qupperneq 4
v t s i k
Breskar frásagnir
um „Prins E i t h e I “
Þýska beitiskipið »Prins Eithel
Friedrich* kom um mánaðamótin
síðustu til Newport News í Banda-
nkjunum og lá þar nokkra daga,
uns lagt var hald á skipið, er for-
ingi þess áræddi eigi út aftur. Vakti
hann athygli mikla og umtal í ame-
KAUPSKAPUR
eru nú t háu verði, þó borgar enginn þær jafnháu verði og
Versl. ,Hlíf, Grettisg. 26
rískum blöðum með framferði sínu,
áður en hann var kyrsettur. Er
eigi laust við, að Bandamenn hendi
gaman að »sjógarpi« þessum. Lét
hann jafnan mikið yfir sér og var
hinn dólglegasti. Var jafnan kynt
undir gufukötlunum, meðan skipið
lá þar í skipalægi, svo að rauk á-
kaflega úr báðum reykháfum, en
skipið nötraði af gufuþrýstingnum,
en fallbyssur allar hafðar auðar og
vígbúnar sem til orustu. Kvaðst
skipstjóri hafa þetta svo til þess að
kæla þær, að eigi riði úr þeim
skotin af sjálfsdáðum.
Fyrir utan hafnarmynni í New-
port News lá amerísk flotadeild, er
skyldi gæta komumanna, að eigi
tröðkuðu þeir hlutleysi Bandaríkj-
anna. Hafði þar forystu Helm að-
míráll á herskipinu »Alabama«.
Voru og vígi í Iandi búin til varn-
ar, ef á þyrfti að halda. Utan land-
helgi sáust leitarljós frá fjórum
herskipum Breta og Frakka, er biðu
með óþreyju eftir að fá sökt »sjó-
ræningja* þessum. Þjóðverjar kváð-
ust og reiðubúnir til brottferðar á
hverri stundu.
Tíminn leið fljótt, og Bandaríkja-
menn mistu brátt þolinmæðina og
settu Thierichsen skipherra á »Prins
Eithel Friedrich« 24 stunda frest til
brottferðar þ. 1. apríl, en hótuðu
kyrsetningu ella.
Bjóst hann þegar til brottferðar
og bauð yfirmanni tollgæslumála
Bandaríkjanna að fylgja með sér út
úr landhelgi, en tjáði honum þó
von bráðar, að hann neyddist til að
hlíta kyrsetm'ngu, því að hjálpar-
skip, er hann ætti von á, hefði ef-
laust eigi sloppið fram hjá fjand-
mönnunum; gekk hann því næst
til sængur. Var hann þá kyrsettur
með skip sitt.
Farþegi einn af franska skipinu
»Florideí, sem »Prins Eithel Fried-
rich« sökti ásamt 7 öðrum skipum
þ. 9. febr. sfðastl., segir Ijótar sög-
ur af framferði Þjóðverja við það
tækifæri. Birtist frásögn hans í
blaðinu »Matin« í París. Segir
hann þá hafa rænf og ruplað öllu
fémætu úr »Floride«, en kveykt í
því síðan. Jafnvel segir hann þá
hafa tekið öll þau matreiðsluáhöld,
sem voru úr kopar, hvað þá annað.
Vínföng og matvæli voru einnig
hirt, þar á meðal 500 flöskur af
kampavíni. Hafi eigi eyrisvirði verið
Iauslegt eftir innan borðs, er skipið
sökk.
gerir nú fyrst um sinn, séu þær hreinar og vel þurrar.
Swpi'S meðaw b \
Húsaleigusamningar
(eyðublöð) fást í prentsmiðju Gunn-
ars Sigurðssonar.
Barnavagn í ágætu standi til
sölu Laugaveg 57 (uppi).
*
4 g r a manna far, nýlegt og vel
útbúið, fæst lánað til róðra fyrst
um sinn. Afgr. v. á.
Vandaður og fallegar mubl-
ur eru til kaups með góðu verði á
Njálsgötu 17. 9
* BÆJARFRETTIR
Afmæli á morgun.
Einar Jónsson, skósmiður.
Sigurður Oddsson, skipstjóri.
Frú Steinunn Sæmundsson.
Háflóð í dag kl. 11,57 f. h.
— í nótt kl. 12,18 e. miðn.
»Maí«
kom inn í gær með mikinn afla.
M • M
G-ardínutan
»Apríl«
kom inn í morgun, hafði fiskað
ágætlega.
Helgi Magri«.
kom inn í morgun, hafði fiskað
ágætlega.
hvergi jafn fjöl-
breyttar byrgðir
né ódýrari.
Stuvla 3otvssoxv'
»Great Admiral«
kom inn í gær mjög vel fiskaður.
Lúðrafiokkur K. F. U. M.
lék allengi á Austurvelli í gær,
og^var þar margt manna að hlusta
á, og hefði þó verið fleira, ef göt-
urnar hefðu verið færar.
Vélbátar
tveir rákust á í fyrrinótt, í sæmi-
lega björtu veðri þó. Átti annan
bátinn Gísli kaupm. Hjálmarsson,
og kom hann að sunnan með fisk.
Segist bátsverjum svo frá, að hinn
hafi komið innan af Skerjafirði og
farið óvarlega og eigi að réttum
reglum. Við áreksturinn klofnaði
stefnið á báti Gísla. Myndi hafa
klofnað niður úr, segir hann, ef
ekki helði viljað svo til, að það
var skeytt saman áður, og hélt sér
að neðan. Báturinn komst hingað
hjálparlausl, enda hafði hinn þegar
farið sinnar leiðar. Brotni báturinn
er nú í viðgerð við steinbryggjuna.
Det kgl octr.
Brandassurance Comp.
Vátryggir : Hús, húsgögn, vörur
alskonar o. fl.
Skrifstofutími 8-12 og 2-8 Austurstr.
N. B. Nielsen.
Líffistur - Líffiœði
iangmestar byrgðir, alt vönduð
vinna.
Skólavörðustíg 22. — Sími 497.
Matthías Matthíasson.
Brauð
lang ódýrust í
Versl. H I í f, Grettisgötu 26.
Dáinn
er sagður síra Böðvar Eyjólfsson
í Árnesi á ströndum. — Létst úi
lungnabólgu í fyrradag. Hann var
sonur Eyjólfs prests í Árnesi og
bróðir sfra Eyjólfs heitins Kolbeins,
prests að Staðarbakka.
Síra Böðvar var drengur góður,
og' er því harmdauði öllum þeim,
er þektu hann.
Exporí-kaffið
ágæta (kaffikannan), nýkomiö í
Versl. H I í f,
Grettisgötu 26.
Kýmni.
Þórður gamli (sem liggur veikur):
Já, já, nú er svo sem úti um mig.
Lyfsalinn hefir líint hauskúpu á
áburðarkrukkuna.
Hafnía-Lageröl
og Pilsner fæst í
Versl. »H I f f*
Grettisgötu 26.
H U SNÆÐI
2 herbergi og eldhús nál.
miðbænum til leigu 1. eða 14. maí.
Afgr. v. á.
Herbergi á góðum stað til
leigu frá 14. maí fyrir einhleypa
með miðstöðvarhita. Afgr. v. á.
9
í b Ú ð og herbergi til Ieigu frá
14. maí á góðum stað í bænum.
Afgr. v. á.
Stór stofa til leigu frá 14. maí.
Uppl. á Laugaveg 12. Jóh. Á.
Jónasson.
1 s t o f a eldhús og geymsla ósk-
ast til Ieigu 14. maí. Uppl. á
Laugaveg 108.
Œ
V I N N A
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturninum. Opinn kl. 8—li.
Telpa 12—14 ára óskast í
sumar. Hún má búast við að
feröast dálítið með konu, og gæta
barns. Uppl. í Þingholtsstræti 25
(uppi).
Unglingsstúlka óskast í
sumar, að gæta barns. Uppl. í
Hildibraudshúsi.
FÆÐI
F æ ð i og húsnæði fæst ætíö
best' og ódýrast á kaffi og mat-
söluhúsinu á Laugaveg 23. Krist-
ín Dalstedt.
Nokkrir
Cigarettur og Yindlar
smáir og stórir, margar tegundir.
Afarlágt verð, fást í
Versl. , Hlfr
Grettlsg. 26.
(10-20)
duglegir fiski-
menn
geta gengið atvinnu á kútter
Langanes
sem liggur í Hafnarfirði. —
Lysthafendur snúi sér til
Skiftið við þá,
sem auglýsa
í Vísi.
Nathan &01sen
nú þegar.
Sérstaklegagóð kjör í boðl
Hátt kaup.