Vísir - 15.05.1915, Blaðsíða 1

Vísir - 15.05.1915, Blaðsíða 1
Utgefaadi: H LUTAFELAG. Ritstj. ANDRES BJÖRNSSON SÍMI 400. VI I 5. árg ^ Laugardaginn 15. Maí 1SI5. GAMLA BIO Professor M y s í i e u s Stór leynilögreglusjótileikur i 3 þáttum útbúinn og skreyttur eðlilegum litum hjá Pathe Freres í Paris. Spennandi að efni, og ágæt- lega leikinn. St. Diana fer skemtiför inn að Elliðaám á morgun ef veður leyfir. Meðlimir mæti i G.-T.-húsinu kl. 9x/2 f. h., stundvíslega. Verðlaun verða gefin fyrir hlaup. Fjölmennið! Sprenging varð uppi á Bakarastíg í gær, nokk- uð agaleg. Þar var verið að sprengja klöpp í grunni húss þess, er Jón landsverkfræðingur Þoriáksson ætl- ar að reisa fyrir ofan rakarabúð Árna Böðvarssonar. Varð svo mikið af einni sprengingunni, að grjótið flaug yfir götuna og braut fjóra búðarglugga hinum megin götunn- ar, einn hjá Jóh. Norðfjörð úrsmið, tvo í verslun Halldóru Ólafsdóttur, og enn fremur hafði einn steinmoli farið þar í gegnum blikkplötu á húsinu. Loks hafði einn steinninn kaslast alla leið ínn um glugga hjá Andrési Andréssyni klæðskera uppi á lofti á horninu fyrir neðan Ing- ólfsstræti, og hefði ekki verið gott að verða fyrir honum. Vel hafði fólk verið varað við, áður sprengt væri, og var því fátt þarna nærri, en nokkrir menn þó, svo að stór hepni mátti það kalla, að ekki urðu meiri slys að. Eigi vitum vér, hvort hægt er að gefa þeim, er verkinu stýrði, sök á slysni þessari. Heyrt höfum vér, að sprengiefnið hafi ekki verið neitt sérlega mikið í þetta sinn, og þakið hafði veriö yfir með sandpokum. En bending ætti þetta að vera þeim, sem við slíkt fást, að fara varlega, svona inni í miðjum bænum. Skaðinn hlcypur sjálfsagt á nokkr- um hundruðum króna, því aö« gluggarnir eru stórir og dýrir. H E R M E Ð tilkynnist vinum og vandamönnum, að okkar elsku- legi sonur og stjúpsonur, Guðmurtdur Bárðarson, andaðist á Siglufirði aðfaranótt 12. þ. m. Jarðarför hans fer fram að Hvanneyrarkirkju mánudaginn 17. þ. m. kl. 12 á hádegi. Reykjavík 14. maí 1915. Guðrún Guðmundsdóttir, B. Kr. Gnðmundsson. Knattspyrnufél. Pram. Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 16. þ. m. kl. 1 e. h. í Lækjargötu 10 B, (hjá Gunnari Thorsteinsson). Barnakenslu höfum við undirritaðir fyrirhugað að halda um 6 vikna tíma í vor, ef nógu mörg börn gefa sig fram. Kenslugjaldið er 3 kr. fyrir all- an tímann fyrir 2 klt. kenslu á dag og borgist fyrirfram. þeir, sem vilja sinna þessu, gefi sig fram kl. 4—7 e. h. í dag í barnaskólanum. (ruðm Davíðsson. Jörundur Brynjólfsson. Frakkastíg 12. Nýlendugötu 23. ,Christianssund’ fer að forfallalausu aust- ur þriðjuda^inn 18. mai árdegis. sá BÆJARFRETTIR Afmæli í dag: Frú Sigríður Benediktsdóttir. — Þórunn Benediktsdóttir. Afmæli á morgun: Frú Jórunn Norðmann. Síra Richard Torfason, Veðrið í dag. Vm. loftv. 769 logn Rv. íf. Ak. Gr. Sf. Þh. 770 a. andv. “ 770 logn “ 770 nv. andv.“ 733 logn' “ 768 logn “ 766 nnv. kul “ 7,0 4.5 0,5 2,0 4,0 0,1 2.5 Sjálfstæðisfélagsfundi tr frestað til mánudagskvölds. Messað á morgun í Fríkirkunni í Hafn- arfirði kl. 12 á hád. Síra Ólafur Ólafsson. (Ferming). Messað á morgun í Fríkirkjunni í Rvík. Síra Haraldur Nielsson. Altaris- ganga í Fríkirkjunni í Rvík verður á Hvítasunnudag. Aðalfundur Búnaðarféiags íslands verður hald- inn í dag kl. 5 í Iðnaðarmannahúsinu. Christianssund kom hingað í nótt. Er það býsna hröð ferð frá Siglufirði. — Skipið fer vestur í dag, en austur aftur á þriðjudags morgun, sbr. augl. hér í blaðinu. Skrifstofa og afgreiðsla í Hótel Island. SÍMI 400. 155. ibl. NYJA BIO Gullkálfurinn. Sjónleikur í 3 þáttum. Gerist í Ástralíu og á Englandi. Aðalhlutverkin leika: Frú Ellen Aggerholm. Frú Dinesen. Olav Fönss. Myndin er framúrskarandi góð og ágætlega leikin. >Ssssg®sssg@ss@ Fjaiia- Eyvindur verður leikinn í Iðnó sunnud.- kveid, 16. þ. m. kl. 8 síðd. Leikendur flestir sömu og áður. Aðgöngumiða má panta í bókaversl. ísafoldar. l••Ssss@@sssé®ssss Aukafundur í Templarahúsinu á sunnudagskveldið kl. 8 e. m. Nýir meðlimir óskast til inn- töku f félagið. Stjórnin. Sóían mótov'xsta vanan við DAN, vantar. HÁTT KAUP í BOÐI. I. Kjartansson, Laugaveg 66. Heima frá 12—2. Saumasiiki og Hnappagata- silki fœst í Vöruhúsinu. Þrettán Dannebrogsflögg töldum vér á höfninni í gær. — Ef eitthvert þeirra skyldi vera feigt, þá er vonandi að það fari eitt, en ekki skipið með. Jarðarför Sigurðar heitins skipstj. Símon- arsonar fór fram í gær við allmik- ið fjölmenni.«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.