Vísir - 15.05.1915, Síða 3

Vísir - 15.05.1915, Síða 3
v i s i h §Hir sUvou o^ &ampa\)\t\. S'«v\ \90. "H® Kaupentiur Vísis, sem fiytja búferlum um krossmessuna, eru vinsaml. beðnir að gjöra afgr. við vart strax. 18 17 og skírður 11. sama mán- aðar. Hann verður því ekki 100 ára fyrr en 8. maí (ekki 13. rnaí) 1917, — og þessi aldur kemur heim við ferming hans og kirkju- bækur og manntöl á yngri árum hans. Reykjavík 12. maí 1915. Pétur Zóphóníasson. Tóbak í langar pípur best og ódýrast hjá Sco&il au^singar iimaute^a. Jes Zimsen. Ekta Zepliyr-Hálslín er best og ódýrast. GULNAR EKKI. Nýkomið mikið úrval! EINNIG SPORTVESTI — — SPORTBELTI — — AXLABÖND. Engin verðhækkun ^ í Klæðaverslun Gruðm. Siguiðss. Simi 377. Laugaveg 10. ejiit \j\)oiia^\úsÍY\\x á Sími 407. Sími 407, Prentsmiðja Gunnars Sigurðssonar. L]ósmyndastofa. Hérmeð tilkynnist, að eg hefi aftur opnaðmynda- stofu í húsakynnum þeim, sem herra P. Brynjólfs- son kgl. hirð-ljósmyndari áður notaði, á Hverfisgötu M 18. Með því að eg keypti alt hið mikla plötusafn hru P. Brynjólfssonar, bið eg alla þá, sem setíð hafa fyrir hjá honum og óska að fá nýjar myndir eftir eldri plötum eða stækkaðar myndir, að snúa sér til mín með pantanir og munu þær verða fljótt og vel afgreiddar. Þeir sem hafa setið fyrir hjá mér áður en mynda- stofa mín í Austurstræti brann, og eigi hafa feng- ið myndir sínar fyrir brunann, eru vinsamlega beðn- ir að koma í hina nýju myndastofu mína og sitja þar fyrir aftur. Myndastofan verður opin á virkum dögum frá frá kl. 9 til 6 síðd., á helgum dögum frá kl. 11 árd. til 3 síðdeis. Sigríður Zoégas A. Gudmundsson Heildsölu- & Umboðsverslun vekur hérmeð athygii heiðraðra kaupmanna á að verslunin hefir nú hér liggjandi ýmsar vörur svo sem: Haframjöl. — Rúgmjöl. — Rúsínur. — Sveskjur — Fíkjur — Margarine, Skrifstofa (fyrst uni sinn) í Pósthússtræti 11, uppi. (Skrifstofur P. I. Thorsteinsson i Likv.) Talsími 146. öl Jvá Ö^evl\v\v\\ ^<ý\U S\m\ 39 ö. ffr dagbók læknisins. (Lauslega þýtt.) Frh Því næst settumst við aftur að í vagnklefanum og kl. 4, sama dag, komum við til Monte Carlo. North stóð á vagnstöðvarpallinum, til þess að taka á móti okkur. Hann hristi höfuðið, þegar eg nefndi nafn mitt fyrir honum. Eg varaði hann við því með bendingu, að segja nokk- uð í viðurvist frú Feveral. Hún var ákaflega þreytt eftir ferðina, og til allrar hamingjn tók hún ekki eftir svipnum á North, sem gaf mér til kynna, að það væru slæm tíðindi, sem hann hefði að segja. Eg fór nú með hana til hótels eins, sem ekki var langt frá Casino, sá um, að hún fengi gott og þægilegt her- bergi og lofaði að koma aftur til hennar eftir nokkra klukkutínia. Því næst hélt eg af stað til Norths. Hann fylgdi mér til hótels síns. »Það gleður mig, að þér eruð kominn«, sagði ungi maðurinn, undir eins og við vorum orðnir einir. > Það hefir verið óttalegur tími fyrir mig, síðati Feveral kom. Hann er gersamlega brjálaöur, — hann dvelur öllum stundum við spilaborðin, borðar ekkert, en drekk- ur talsvert, og annaðhvort getur hann eða vill ekki þekkja mig. Hann tapar stórfé. En eigi að dæma eftir því, hvernig hann spilar, þá virðist svo, sem honum standi ná- kvæmlega á sama, hvort hann vinn- ur eða tapar.* »Og hvar á hann heima hér?« spurði eg. > Á hótel des Anglais. Hann hef- ir leigt nokkur herbergi á fyrsta sal, og neitar sér auðsjáanlega ekki um neitt.« Mér var kunnugt um, að Feve- ral var ekki ríkur. Ef liann héldi áfram, einni stund lengur, þessari léttúð, hlaut svo að fara, að hann og unga konan hans yrðu öreigar. »Veslings maðurinn er ekki, sem stendur, fær um að ábyrgjast það, sem hann gerir«, sagði eg. »Nei, hann er blátt áfram band< óður«, sagöi North með innilegri sannfæringu. »Nú, — eg vona, að vitfirringin standi ekki lengi yfir«, svaraöi eg. »Sem stendur þjáist hann af tvö- földu áfalli, sem hann varð fyrir. Dauði barnsins hans og rétt á eftir inflúensan, hafði óheillavænleg áhrif á taugar hans, — en hitt áfallið var þó miklu þyngra en hið fyrra. Hefði hann ekki orðið fyrir því, þá hefði hann ekki setið hér við spilaborðin og eyðilagt sig og fjöl- skyldu sína.« »Hvað eigið þér við með því?« spurði North. »Það versta er, að við getum ekKi fundið sjúklinginn, sem Fe- veral gaf strykninið. Eg hefi sent besta spæjarann í Westfield til þess, að hafa uppi á honum. En ennþá er enginn, sem veit neitt um sjúk- linginn. Eg vonaði, að mín biöi hér símskeyti frá spæjaranum, Hud- son, en ekkert hefir komið ennþá.« »Annars er Hudson framúrskar- andi duglegur spæjari*, sagði North, »og geti nokkur flett ofan af þessu leyndartnáli, þá er það hann. Hann stendur ekki langt að baki hinum heimsfræga Sherlock Holmes, og það gleður mig mjög, að þér hafið falið honum málið. Faöir tninn, sem er viðurkendur besti málaflutn- ingsmaður í Westfield, notar Hud- son oft, og hann hefir mjög mikið álit á dugnaði hans.« »Gott og vel«, sagði eg. «Þaö er þá ekki annað að gera, sem stendur, en að bíða. Eitt einasta glappaskot gæti orðiö til þess, að Feveral yrði geðveikur alla sína æfi.« »Ætlið þér ekki að láta hann vita af því, að konan hans sé kom- in?« greip North fram í. »Nei, ekki fyrst um sinn. Eg verð algerlega að láta stjórnast af kringumstæðunum. Það verður nú verkefni okkar, herra North, að hafa gætur á honum. Ef hann skyldi taka upp á því, að fara burt úr Monte Carlo, þá verðum við þegar í stað að fara á eftir honum.«

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.