Vísir - 16.06.1915, Page 2
V 1 S i H
VISIR
kemur fyrst um sinn út kl. 12 á
hádegi,
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
fsland er opin frá kl, 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað. inng frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 12—2.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Skipatjón Breta
í Hellusundum.
Nú hefir enn orðið híé á sókn-
inni í Hellusundum. Sennilega er
Bretum tekið að blöskra skipatjón
sitt þar. Má og vera að eitthvað
eigi að breyta til um hernaðinn
eftir mannaskiftin í flotamálaráðu-
neytinu.
Þannig telja Þjóðverjar skipa-
tjón Breta síðan ófriðurinn hófst
við Hellusund:
Þ. 19. mars var vígskipunum
Irresistible og Ocean sökt. — 18. apr.
var sökt kafbátnum E. 15. — Þ. 30.
apr. var einum tundurspilli sökt og
3. mai einum kafnökkva, A. E. 2.
— Þ. 14. s. m. var sökt vígskip-
inu Goliath, og síðan í vikunni til
22. maí þrem tundurbátum og tveim
fallbyssubátum, Loks var vígskip-
inu Triumph sökt þ. 25. maí og
vígskipinu Majestic 27. maí. —
Auk þessara eru ekki færri en 13
önnur sögð meira og minna sködduð.
Þegar nú þess er gætt, hvað
Bretar hafa mist af herskipum heima
við strendur sínar, og hins þá ekki
síður, að Þjóðverjar hafa varla mist
nokkra fleytu, nema þessi fáubeiti-
skip, sem úti voru í byrjun ófrið-
arins, en smíða sjálfsagt sífelt nýja
dreka til viðbótar hernum, þá verð-
ur manni að spyrja hve lengi Bret-
ar geta haldið skipaliðsmuninum,
ef þessu heldur áfram. Hve langt
verður þangað til að þeir neyðast
til þess, aö reyna að komast að
þýska flotanum, hvað sem það
kostar, áður en hann verður þeim
jafnsterkur eða ofjarl.
Kaflar
úr lýsingu Vesturheims-
manns á Þjóðverjum f
Belgíu.
Þá er höf. haföi setið í boði
Þjóðverjanna og hjalað við þá um
ófriðinn, víkur sögunni aftur til
Thompsons, vinar hans, litla mynda-
smiðsins fré Texas.
»Áður en vér hófum samræðuna
spurði eg generalinn, hvort mynda-
smiðurinn minn, Thompson, mætti
fá leyfi tii að taka myndir af hin-
um mikla her, um leið og hann
KVELDSKEMTUN
verður haldin
í Iðnó sunnudaginn 20. þ, m. kl. 9 síðd.
SKEMTISKEÁ:
Dans, Furlana: Stefanía Guðmundsdóttir og Óskar Borg-
þórsson. —
Einsöngur. Einar Indriðason. —
Gleðilegt sumar, skra tsýning í 1 þætti, eftir Guðm. Guð-
mundsson. —
^5 Aðgöngumiða má panta í bókaverslun ísafoldar, og
kosta 75, 65, 50 og 35 aura fyrir börn. ■■
færi framhjá. Fimm mínútum síð-
ar var Thompson rokinn af stað í
hermanna bifreið, og fylgdi honum
liösforinginn er gengið hafði í her-
skólann við Fort Riley. Þeir stöns-
uðu utan til á veginum, þegar birt-
an var góð, og þegar Thompson sá
svo riddara-, fótgöngu- eða stór-
skotaliðsdeild, sem hann langaði til
að »ná«, þá lét hann liðsforingjann
vita það. Hann blés þá í hljóðpípu
sína, og öll fylkingin nam staðar.
»Dokið þið bara dálítið við,
þangað til rykið líður frá«, sagði
Thompson og kveykti sér í vindli,
og þarna stóð svo hinn 9. keisara-
legi her, með fylkingar, sem þöktu
landið svo langt sem augað eygði,
og beið þess, að loftið yrði nógu
hreint til þess, að taka mætti mynd-
ina. —
Þar brunaði ein af fallbyssu-
deildum hins keisaralega lífvarðar
fram hjá, og lagði þá Thompson
eitt eða annað orð í belg um það,
hve hæfið stórskotaliðið við Vera
Cruz hefði verið.
»Við skulum sýna hvað okkar
fallbyssur geta«, sagði liösforing-
inn, og gaf svo skipun. Fleiri skip-
anir komu, heil hryðja af skipun-
unum Svo er biásið í lúður. Átta
hestar ryktu í aktýgin, ökumennirn-
ir smeltu svipunum. Fallbyssulið-
| arnir ýtttu á hjólin og ein fallbyss-
| an beygði út af veginnm og út á
i slétta grund, sem lá þar til hliðar.
Gömul vindmyila stóð á hæð einni
6 rastir þar frá, og barði út í loft-
ið með heljarstórum vængjum.' Alt
í einu hitti sprengikúla vindmyllurta
i
i og tvístraði henni i smáagnir.
I Thompsun gaf það eftir, að þetta
hefði verið »mikið laglega skotið!
—- Og ef piitar ykkar halda svo
fram stefnunni, þá eru þeir vissir
með að verða teknir í sjóher Banda-
ríkjanna þegar ófriðurinn er úti«.
í öllum annálum nútíðarstyrjalda
hyggegvarla að finnast muni jafn-
oki þessa litla Kansas-myndasmiðs,
sem stóð þarna og lét sér hvergi
bregða, og stöðvaði heila heri með
því að banda við þeim hendinni,
tók myndir af hverju því, er hon-
um sýndist, og lét skjóta úr fall-
byssum hins keisaralega lífvarðar,
rétt til þess að seðja forvitni sína.
Einstaklega voru þeir alúðlegir
og gestrisnir við mig, þessir þýsku
herforingjar, og mjög mikið fanst
mér til um alt, sem eg sá. En —
engu að síður verð eg að játa það,
að þeir komu mér ekk' fyrir sjónir,
sem þeir væru lifandi, mannlegar
verur, sem hafa sína kosti og lesti,
sem sjálfir hafa ást á einu, en ó-
beit á hinu, heldur miklu fre * ur
svo, sem væru þeir hlutar meir eða
minna nauðsynlegir htutar af stórri
og öfiugrl vél, sem stjórnað er og
gætt af kaldrifjaðri og nákvæmri
skynsemi, um óravegu, heiman úr
Berlínarborg. Sú vél hefir ekki
öllu meira mannlegt í fari sínu, en
grjótmulningsvélar hafa. Hernað-
arstarf er það, að mylja, sópa, og
gereyða, og ekkert tillit til menn-
ingar, riddaraskapar, eða mannúðar
mundi hafa nokkur áhrif á hana.
Eg held að eg hljóti að hafa orðið
eitthvaö bilaður í taugunum af þess-
um ógeðfeldu, stirðu og svipbrigða-
lausu andlitum Þjóðverjanna, þess-
um tilbreytingarlausu og Ieiðinlegu
einkennisbúningum þeirra og þessu
eilífa, hjakkandi skóhljóöi. Því að
það var eins og mér létti fyrir
brjósti, er eg sneri vagninum mín-
um viö og stefndi til Antwerpen og
vina minna Belga.
Bestu
jBRAUIOT
eru seld á Hverfisgötu 72.
Sími 380.
I D. Ólafsson.
T I L M I N N I 8:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst skrif jt. í i'runastöð opín v. d
11-3 og 5-7
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-21/, og 57,-7
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 8‘/, siðd.
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 11-2*/, og 5‘7-b1/,. Banka-
stjórn 12-2
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið Þ/,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 10-12 og 4-b
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknarb'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Nýtt Gósenland.
Stöðugt koma nýjar fregnir frá
Rússlandi um hin undraverðu á-
hrif áfengisbannsins. Vegna þess,
hve mjög glæpum hafi fækkað síð-
an bannið kom á, hefir dómsmála-
ráðherrann skipað svo fyrir, að
hætt skuli byggingu nýrra fangelsa.
í mörgum héruðum hafa yfirvöldin
fækkað lögreglumönnum um helm-
ing og »jafnvel sá helmingurinn,
sem eftir er hefir ekkert að gera og
fangelsið okkar er tómt«, segir í
einni skýrslunni.
Skýrsla frá læknum þeim, er
stundað hafa verkamenn við hinar
miklu vélaverksmiðjur í Kótonna í
nánd við Moskva, eru svohjóðandi:
Árlega fáumst vér við 140,000
siúkdómstilfelli, og af þeim koma
70% á verkalýðinn. Ókunnugum
er alls ómögulegt að gera sér grein
fyrir þeirri breytingu, sem áfengis-
bannið hefir valdið á meðal þessa
fólks. Áður var fjöldi óverkfærra
manna eftir hvern helgidag, vegna
drykkjuslarks. Þetta er nú horfið.
Nú koma engar grátandi konur til
þess að biðja oss verr.dar gegn ó-
svífnum eiginmönnum. Alstaðar á
friðsemi og regla heima; og hin
áður óþekta veimegun, sem stafar
af því, að nú er engu eytl í áfenga
drykki, hefir komið því til leiðar,
að verkamennirnir hafa samþykt í
einu hljóðí, að gefa konum og
börnum hermannanna 1% af laun-
um sínum.
Sveitaprestur skrifar: »Það er
eins og fólkið sé orðið skynsamara;
það er eins og allir séu í vetfangi
orðnir heilsubetri. Fólkið gengur
almennilega til fara. Nú heyrist
ekkert dónatal eða ósæmilegir söngv-
I ar og engin áflog sjást, alstaðar
ríkir friður og eindrægni*.
í bréfi frá bónda stendur svo:
»Þorpið okkar sparar þúsundir rúbla
og bændurnir hérna verja nú stór-
fé í búnaðarbætur«. Og bónda-
kona ein skrifar: »Okkur líður nú
svo vel, að við óttumst það nú mest,
að ófriðnum verði of fljótt lokið*.
í sumum héruðum hefir íkveikj-
um fækkað um 40%. Af öllu þessu
leiðir, að mörg héruð hafa sent
stjórninni eindregna áskorun um
það, aö áfengisbannið verði látið
haldast framvegis.
Vel væri, ef satt væri.