Vísir - 16.06.1915, Síða 4
V i S> 1 K
almet\T\\t\$$
Um húsabyggingar.
Höfundurinn að búsagerðarbreyt-
ingunum má hafa þakkir fyrir hug-
leiðingar sínar í blaðínu. En eg
ætla samt enn á ný að benda á það,
sem hann hyggur aó mest tálmi
steinhúsabyggingunni, og helst ætti
um að tala í sambandi við þau.
Og vitið þið hvað það er. Nei,
það vita víst allfæstir af núlifandi
mönnum, en nú skal eg leiða at-
hygli að því.
Árið 1874 bygði eg tvö stein-
hús á Hellum á Vatnsleysuströnd,
og þær steintóptii standa alveg eins
og nýjar væru enn í dag. Eg hafði
ekkert cement í þær, heldur 3 tunn-
ur af kalki héðan úr Esjunni, sem
talið var ígildi cementsins, og það
reyndist alveg rétt að vera.
Höfundurinn ætti að kynna sér
þetta kalk og hreyfa því, að það
sé haft til húsagerðar hér og ann-
arstaðar á landinu. Það yrði aldrei [
eins dýrt og cementið, og ekki líkt I
því. Eg man ekki hvað tunnan
kostaði. En mig minnir að hún
kostaði 6 eða 7 krónur, cg það
var ágætisverð.
Eg skal geta þess, að Björn sál.
Guðmundssun kaupm. seldi mér
nefndar kalktunnur þá, og að Iík-
indum hafa fleiri í þá daga notað
það með sama árangri og eg. Þetta
málefni er svo náið því, sem húsa-
gerðar-höfundurinn hefir vakið máls i
á, að nú afhendi eg honum það til
umtals og íhugunar. ij
íslendingum er of oft hætt við
því, að sýnast, en vera ekki. Eins
og helst í því, að nota sínar lands-
afurðir og Ieita þeirra sjálfir. Þar
hygg eg okkur standa einna hrapal-
legast að baki öðrum þjóðum, að
undanteknum hinum duglegu og
framtakssömu sjómönnum okkar,
sem eru fyrirmyndarmenn í sínni
slöðu og starfi. En hamingjan
hjálpi landbúnaðarhugsjónum nú-
tímans og notkun manna á afurð-
um búa sinna. Um það skal eg
fátt eitt tala hér. Hvaða heimili
búa til osta og skyr, eg vil segja
fyrir.sitt eigið fólk, hvað þá meira?
Því miður sárafá, sér í lagi hér
á Suður og Vesturlandi, síst þó
í kringum Reykjavík, þar sem selja
mætti þó þessa fæðu dýrt. Kjötið
er selt frá búunum, mjólkin sömu-
leiðis. Keypt í staðinn þorskhaus-
ar og illa verkuð hrognkelsi og
margarine, og rúgbrauð, eins og
þau koma fyrir.
Ekki meira um þetta. En að lok-
um tel eg það vera á eftir öðrum
þjóðum, að hefjast ekki handa og
notfæra sér móinn lil eldiviðar eftir
nýjustu þekkingu og reynslu ann-
ara þjóða. Sömuleiðis koiin á landi
hér, því að vond eru þau, ef þau
eru verri en verstu kolin, sem hing-
að hafa verið og eru send frá út-
löndum, en þó seld fullu verði.
Hvar eru nú áhugasamir menn
til þess, að hreyfa þessum innan-
landsmálum okkar, til hagsældar
landi og lýð? Og hvar eru Ung-
mennafélögin?
Rvík 12. júní 1915.
L P.
Gefjunardiíkar
stórt úrval
nýkomið í kíæðaverslun
H. Andersen & Sön.
Aðalstræti 16.
Haframjöl
Hveiti 3 teg.
þ. á m.
Pilsburry Best
. fœst hjá
JóniHjartarsyni & Co.
17. júni
verða ækifœriskaup á minning-
arspjöldum Jóns Sigurðssonar
forseta, og ættu allir að kaupa
þau, sem eiga þau ekki, til minn-
ingar um þann góðfræga íslend-
ing. Spjöldin fást í
Safnahúsinu.
Verðið er að eins 35 aurar.
setur s\u ágjetu
Kýmni.
í húsi einu, hér í bænum, voru
nokkrar konur og nokkrir menn
saman komnir, á síðast liðnum vefri.
Mikið var um glens og hlátur, af
halfu kvenna. Loks segir ein kon-
an: »Maður mætti halda, að við
værum orðnar vitlausar.*
Þá segir einn maðurinn: »Það
gsrir ekkert tii, meðan hann ekki
v e i t það.«
Allur munur.
Faðirinn (við litla drenginn sinn)|:
Það er alveg dæmalaust, hvað þú
þreytir mig á degi hverjum.
Strákur: Já, pabbi minn, en dag-
arnir eru svo stuttir, núna.
Margl er sér til garnans gert.
Konan : Er húsmóðir yðar heima?
Vinnuk.: Nei, frúin er við jarð-
arför. Frænka hermar var jörðuð
í dag.
Konan: Hvenær búist þér við
henni heim?
Vinnuk.-: Það er ekki gott að
segja það ákveðið, það undir því
komið, hvernig frúin skemtir sér.
aS e\tvs
C&a’wmaw Og
*^D\ce-(^\a\v
úpveUuVj
Fást hjá öllum betri verslunum.
Nýkomið
ágætt
alklæði og
dömukiæði
í versiun
Hverfisgötu 37.
TAPAÐ — FUNDIÐ 2
O u I u r hundur, lítill, hvílur á
á bringu og framlöppum, er í
óskilum. Vitjist til lögreglunnar í
Reykjavík, innan þriggja daga.
O u 1 u r hanski tapaður. Skilist
á Bergstaðastíg 17.
Eyruarlokkur tapaðist í
gær á gctum bæjaríns.
Finnandi er beðinn, að skila hon-
um í búð Egils Jacob en.
Sparisjóðsb ók hefir tap-
asl frá skiifstofu söfnunarsjóðsins,
að Lvg. 37.
Finnandi er beðinn að skila henni
á afgr. Visis.
Vátryggingar.
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The BriU
hish Dominion General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
Morgunkjólar fásl altaf
ódýrastir í Grjótagötu 14, niðri.
Aspadistra til sölu á Grett-
isgötu 24, uppi.
Barnkerra til sölu. Uppl. á
Njálsgötu 52.
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturmnum. Opinn frá 8—11.
Sími 444.
V é l s t j ó r a vantar á Jörund.
Semjið við A. V. Tulinius.
Vinnukona óskast á rólegt
heimili í kaupslað. A. v. á.
2 d u g 1 e g i r drengir frá 12—16
ára óskasl. Hátt kaup í boði.
Uppl. á Vitastíg 13.
Vanur maður óskar eftir at-
vinnu við málningu, helst aðeins
með öðrum manni. Afgr. «. á.
2 kaupakonuróskastá fyrir-
myndarheimili. Hátt kaup í boði.
Uppl. hjá Ámunda Filippussyni
Skólavörðustíg 17 B.
S t ú I k u duglega, sem er vön
húsverkum, vantar á gott heimili
hér í bænum, frá 1. júlí til 1. okt.
Forstöðukona kvennaskólans frk.
Ingibjörg Bjarnason semur við um-
sækjendur.
Lipur 10 ára gömul telpa
óskar eftir sumarvist á góðu heimili.
Uppl. á Hverfisgötu 32.
S t ú 1 k a óskast á heimili nálægt
Reykjavík, til inniverka um sláttinn.
Uppl. í Kirkjustræti 4, á öðru
lofti.
D u g 1 e g kaupakona, sem kann
að sla, getur fengið vinnu í 4 — 5
vikna tíma. Afgr. v. á.
D r e n g u r, 12—14 ára, óskast
á scndisveinastöðina.
H e r b e r g i til Ieigu fyrir ein-
hleypa. Uppl. hjá Gunuþórunni
Halldórsdóttur, Sápuhúsinu.
S ó 1 r í k herbergi, ódýr, eru til
leigu neðarlega í Austurbænum
Afgr. v. á.
2 herbergi, eldhús og geymsla
óskast til leigu 1. okt. Afgr. v. á.
2 samanliggjandi herbergi
eru til leigu nú þegar á besta stað
í bænum. Mjög hentug fyrirþing-
mann. Þá með öllum útbúnaöi og
síma. Afgr. v. á.
H e r b e r g i til leigu með sér-
inngangi. Afgr. v. á.
S ó 1 r í k srofa til leigu fyrir ein-
hleypan, með eða án húsgagna.
Afgr. v. á.
S ó 1 r í k stofa er til leigu, með
eða án húsgagna. Afgr. v. á.
Þ a n n 1. okt. óskast til leigu
3. herbergja íbúð ásamt geymslu.
Tilboð merkt »íbúð 1. okt.« send
ist afgr. Vísis.
|| TILKYNNINGAR. ||
E g u u d i r r i t u ð tek að mér
saumaskap. Barnakápur, kjóla.morg-
unkjóla og fl.
Guðrún Baldvinsdóttir,
Vitastíg 7.
8 fæð|
F æ ð i og húsnæði fæst í Mið-
bænum. Afgr. v. á.