Vísir - 29.06.1915, Side 3

Vísir - 29.06.1915, Side 3
V t S í K JDvef&Æ svtton o$ fiampaovtv. \M. jrevBameuxv kaupa ódýrast alsk. Vefnaðarvöru og Fatnaði íiýkomið í Vöruhúsið stórt úr?al af enskum fataeinum! í Austurstræti 1. r S- Sutvtvtau^ssotv & Co. fiaupu evtvs o§ a&vxt ÍSlensfcir Fánar! Misnrnnandi stærðir Koma með s/s SterJing. og sumardvalir í sveit, takast best ef rnenn nesta sig í Nýh öf n, Prentsmiðja Gunnars Sigurðssonar. í Kartöílurnar eftirspurðu eru komnar aftur í vcrslun Einars Arnasonar. *}Caupv3 öf Jvá ©f^etlitvtvv ^^vfl SfoaW&$t\mssot\. ffr dagbók læknisins. (Lauslega þýtt.) Frh. Bayard var um þessar mundir trúlofaöur ungfrú Kathleen Church, sem var skjólstæöingur Levesens. Eg svaraði og sagöist ekki vita, aö Bayard væri í peningavandræðum. »Jú, þaö er hann«, sagði Leve' sen. »Hann var nógu vitlaus til að ganga í ábyrgð fyrir vin sinn, og fyrir bragöiö á hann nú að borga 3000 pund irman tíu daga hér frá. Hann bað mig í gær, f viðurvist ungfrú Kathleen, að hjálpa sér út úr vandræöunum. Eg neitaöi að hjálpa honum, og svo virtist, sem honum félli það mjög þungt.« »Og þó ætlið þér nú að gefa honum 5000 pund«, sagði eg. »Það finst mér undarlegt, þar sem hann þarf þó ekki nema 3000 pund.« »Fáist þér ekki um það. En það er ekki verra fyrir hann, að hafa ofurlítið afgangs, nndir slíkum kring- umstæðum. Fáið hann nú einungis til þess, að taka við ávísuninni. Sannleikurinn er sá, að hér býr meira undir, en útlit er fyrir á fyrsta augnabliki. Eg vil fá yður til að hjálpa mér í dálitlu samsæri, og þér skuluð fá það vel borgað. Þér skuluð nú fá Bayard ávfsunina, þeg- ar enginn sér til. Sjáið svo um, að hann leggi hana fram í bank- anum, sem eg hefi peninga mína í, til þess, að fá hana þar útborg- aða. Ef þér beitið í þessu máli þeirri kænsku og þagmælsku, sem við þarf, þá skal eg gefa yður þau þúsund pund, sem eg veit að yður vanhagar svo mjög um.« »Hvað eigið þér við?« spurði eg og leit á hann, bæði hræddur og hissa. »Þér vitið, að yður vanhagar sárt um peningana«, svaraði hann. »Já, það veit guð«, sagði eg. »Til þess að varna því, að fó- getinn komi og selji húsgögnin yðar«, hélt Levesen áfram. »Þér eigið von á einu barninu í viöbót, og verði gert fjárnám í búi yðar, eins og nú stendur á, þá gæti farið svo, að það kostaði konuna yðar Iífið. Er það ekki rétt, sem eg segi? J'j, eg veit vel um hagi yðar, og eitt þúsund pund geta algerlega rétt yður við aftur, —eða er ekki svo?« »Jú, jú, en þetta er svívirðilegt verk, sem þér heimtið af mér«, svaraði eg. »Hvað er það annars, sem þér hafið í huga með þessu, Levesen ?« Andlit Levesens var nú orðið öskugrátt. »Tilgangur minn er sá«, hvæsti hann inn í eyra mér, »að losna *ið þenna svívirðilega, smjaðurtungu- snák, hann Bayard.« »Eg hélt, að hann væri vinur yðar«, svaraöi eg. »Vinur minn!« sagði Levesen, »ef nokkur maður er til, sem eg hata, þá er það hann. Hann hefir komist upp á milli mín og konu þeirrar, sem eg vil giftast. Eg hefi fast ákveðið, að gera út af við hann á einhvern hátt. Honum skal ekki takast, að fá ungfrú Kathleen. Eg skal sjá um, að hann verði lokaður inni. Ef; þér viljið nú hjálpa mér, þá skal málið útkljáð, og þér skul- uð fá þessi þúsund pund.« Eg var eins og vax í höndunum á honum, því hagir mínir voru hörmulegir. Eg spurði hann því nánar um, hvað eg ætti að gera. »Það er áform mitt, að láta taka Bayard fastan«, sagði Levesen. »Eg mun sjá um, að hann verði ákærð- ur fyrir fölsun og tekinn fastur. Þeg- ar að því kemur, þá eigið þér að hjálpa mér. Eg hefi í huga, að út- vega sannanir fyrir því, að Bayard hafi falsað undirskriftina á ávísun- inni, sem þér haldið þarna á. Hann mun náttúrlega halda því fram, að þér hafið fengið sér hana, en þér verðið að neita því. í stuttu máli, — við verðum báðir, — bæði þér og eg, — að vera undir það búnir, að vinna eið að því, að fleiri eða færri ósannindi séu sannleikur. En ef við berum ráð okxar saman og styðj- um vitnisburð hvors annars, þá er eg sannfærður um, að alt fer eins og við ætlumst til.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.