Vísir - 08.07.1915, Blaðsíða 2

Vísir - 08.07.1915, Blaðsíða 2
VISIR VISIR kemur fyrst um sinn út kl. 12 á hádegi, Afgreiðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi. Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sama stað, inng. frá Aöalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá kl. 5-6. Sími 400.— P. O. Box 367. . StjórnarfrumYörp. Fjárlagafrumvarps stjórnarinnar hsfir nú verið getið að nokkru leyti hér í blaðinu, og verður nú rakið aðalefni hinna annara lagafrum- varpa, og verður þá fyrst fyrir: Frumvarp til laga um ullarmat. Eftir frumvarpi þessu verður öll vorull og þvegin haustull, sem flutt er héðan af landi, metin og flokk- uð eftir gæðum. — Alla útflutta ull ber að merkja með sameigin- legu merki, nafninu »fsland«, auk þess með skammstöfuðu nafni út- flytjanda og flokksmerki ullarinnar, eftir gæðum. Ráðherra skipar 4 yfirullarmats- menn, en lögreglustjóri ulllarmats- «• menn á hverjum ullarútflutnings- stað eftir tillögum yfirullarmats- manna. Umdæmi yfirullarmatsmanna eru þessi: 1. Frá Vík í Mýrdal til Borgar- ness, að báðum stöðum með- töldum, og Vestmannaeyjar. 2. Frá Búðum til Hvammstanga. j 3. Frá Blönduósi til Þórshafnar. 4. Frá Bakkafirði til Hornafjarðar. Árslaun yfirullarmatsmanna úr Iandsjóði verða 400 kr., en kaup ' ullarmatsmanna greiða ullarútflytj- endur. Yfirullarmatsmenn skulu ferðast um umdæmi sitt árlega, og líta eftir ullarmati og ullarmeðferð á útflutningsstöðunum. — Ferðakostn- aður greiðist úr landsjóði, alt að 200 kr. hverjum þeirra. Langt er orðið síðan fyrst var farið að tala um lögboðið ullar- mat, og mun það almannarómur, að frumvarp þetta korni ekki of snemma fram. Frumvarp til laga urn sparisjóði. Frumvarp um sparisjóði hefir legið fyrir tveim síðustu þingum, 1913 og 1914. — Árið 1913 var málið fyrst til meðferðar í efri deild og tók þar nokkrum breytingum, frá því sem það var, er stjórnin lagði það fram. í neðri deild komst það í gegn um allar umræður, en var svo felt þar með litlum at- kvæðamun. Á þingi 1914 var mál þetta lagt fyrst fyrir neðri deild og hafði movuU •7 • O m ú G\\ sovo nú þegar er 9 Ölgerðarhtis R.víkur öll áhöld og tœki, sem til ölgerðarinnar þarf. Ölgerðarhús þetta er hið fullkomnasta í sinni grein hér á landi. Lysthafendur snúi sér til yfirdómslögmanns Sveins Björnssonar, Fríkirkjuveg 19. T I L MINNIS: Baðhúsiö opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11. Borgarst.skrifit. í brunastöð opin v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K, F. U. M. Alm. samk. sunnd. 8‘/2 siðd, Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3 Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúmgripasafnið opið P/2-2V2 síðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d Vífilsstaðahæíið. Hcimsóknart'mi 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 losa sparisjóðiua við að greiða ár- gjald til landsjóðs, að skyldan til þess, að hafa 5% af sparisjóðs- innstæðufé í tryggum verðbréfum eða í Landsbankanum*), sé færð niður í 3%> o. fl. Auk þess, sem frurnv. þetta fer fram á, að lögbjóða opinbert eftir- lit með öllum sparisjóðum lands- ins, setur það nákvæinar reglur fyrir allri stjórn sjóðanna og fyrirkon.u- lagi þeirra í aðalatriðum. Um heim allan mun opinbert eftirlit með sparisjóðum Iíkt því, sem frumv. þetta fer fram á, talið sjálfsagt; þykir Vísi ólíklegt, að það sé ekki orðið tímabært hér á landi. Sími 202. Bifrei ðarfélag- Evíkur 1915 —= Vonarstræti, ie== - hefir bifreiðar í gangi alla daga til Hafnarfjarðar og upp um sveitir Skrifstofan er opin frá kl. 9 árd. til kl. 10 síðdegis Sími 405. — — Sími 405 stjórnin tekið til greina þær breyt- ingar þingsins, setn henni þóttu að- gengilegar. — Umræður um málið í neðri deild snérust nú eins og fyrr, aðallega um það, hvernig um- sjóninni með sparisjóðunum skyldi hagað, og þá einkum um það, hvort skipa skyldi sérstakan um- sjónarmann með öllum sparisjóðum landsins. Gelck deildin svo frá mál- inu, að hún feldi sérstakan umsjón- armann, en samþykti þá tilhögun, að Stjórnarráðið skyldi hafa eftirlit með sparisjóðunum. Eftirliti þessu vildi deildin haga svo, að Stjórnaráðið léti bankavan- an mann athuga allan hag, starf- semi og fyrirkomulag allra spari- sjóða á landinu, svo fljótt sem unt væri, og hefði síðan slíkt eftirlit ár- lega með nokkrum hinum stærstu sparisjóðum landsins. En er málið kom til efri deildar, var orðið svo áliðið þingtímann, að deildin taldi enga von til þess, að málið yrði útkljáð á því þingi . og skoraði hún á stjórnina, að leggja frv. til laga um sparisjóði fyrir næsta þing. Nú kemur frumv. fyrir þingið í þriðja sinn, í öllum aðalatriðum óbreytt frá því, seni það var upp- haflega. — Stjórnin hefir enn ekki getað fallið frá skipun sérstaks um- sjónarmanns með öllum sparisjóð- um landsins og leggur hún mikla áherslu á, að einmitt það fyrir- komulag verði samþykt. — Af öðr- um ákvæðum, sem ágreiningur hefir orðið uni, heldur stjórnin enn fast við að krefjast tryggingar af gjald- kerum sjóðanna fyrir fé því, sem þeim er trúað fyrir, þó ekki af þeim, sem hafa undir 600 króna þóknun fyrir starf sitt. Aftur hefir stjórnin fallist á, að BómullarimiflutDÍiigur til ÍJýskalands. Enska blaðið »Daily Mail« hefir ráðist á bresku stjórnina fyrir það, að hún hafi ekki gert ráðstafanir til að hindra allan bómullarinhflutn- ing til Þýskalands. Segir blaðið, að eftir skotfæraeyðslu Þýskalands og Austurríkis muni Iáía nærri, að þeir þurfi 5000 balla af bómull á dag. Og þessa bómull fái Þjóð- verjar frá hlutlausum þjóðum, með því að breska stjórnin hafi enn ekki lýst yfir því, að bómull væri bannvara. Blaðið bendir á, að bómullarútflutningur frá Bretiandi til Norðurlanda hafi þrítugfaldast í vetur, og að mestur hluti þeirrar bómullar muni fara til Þýskalands. Snemma í október í haust var talsvert rætt um það, hvort setja ætti bómull á bannvörulistana, en Bandarfkjamönnum mundi hafa orðið það mjög á móti skapi, enda var það ekki gert; og í febrúar mánuði í vetur sagði Sir Edward Grey, að Þjóöverjar mundu hafa haft nægar birgöir af bómull til skotfærgerðar, og því sæi stjórm'n eigi ástæðu til að setja hana á bann- vörulistann. í marsmánuði varð bómull skilorðsbundin bannvara, með því að Englandskonungur gaf út auglýsingu um, að vöruflutningar *) Þetta ákv. nær aðeins til þeirra sjóöa, sem geyma 50 000 ki.spari- sjóðs-innstæðufé eða meira.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.