Vísir - 15.07.1915, Side 2
V ISI R
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng frá
Aöalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 5-6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
I lestrarsal
þingsins hefir þetta bætst viö: Er
indi frá Júlíönu Sveinsdóttur um
800 kr. hvert árið til málaranáms í
Khöfn. — Áskorun frá stjórn Kaupf.
Húnv. um bættar strandferðir. —
Beiðni frá Guðr. Jónsd. prestsekkju
um hækkuð eftirl. — Beiðni frá
Eggert Brandss., Rvk, um 2—300
kr. árl. styrk. — Umsókn frá Birni
Jakobssyni um 500 kr. hvert árið
til íþróttakenstu. — Umsókn frá
Theód. Árnasyni um 1200 kr. hvert
árið til hljómlistarnáms. Erindi frá
Páli Erlingssyni um 1400 kr. til
uppihalds sundkenslu allt árið. —
Umsókn frá Jóni Þorb.syni um
2000 kr. styrk til að fara utan og
rannsaka hrossasölumálið. — Erindi
frá Magn. Guðlaugsc. smáskamtal.
um fjárstyrk fyrir lækningar. — Er-
indi frá ábúendum Skaftafells í Ör-
æfum um fjárstyrk til að girða
Bæjarskóg. — Erindi frá 236 alþ.
kjósendum í Eyrarbakkahéraði um
að Ásg. Blöndal læknir fái að halda
fullum embættislaunum sem eftirl ]
— Áskorun frá sýslun. Árness. um
fjárv. til brúargerðar á Stóru-Laxá.
— Beiðni frá Sig. Erl. bóksala um
150 kr. árl. ellistyrk. — Erindi frá
Árna Gíslas. fyrv. pósti um eftirl. j
— Bréf stj.ráðsins um tóbaksnautn j
barna og unglinga, ásamt eftirriti af i
skýrslu fræðslum.stj. um sama mál j
með 12 fylgiskj. — Erindi frá Ág.
Helgas. í Birtingah. um að Guðm.
syni hans verði veittar 600 kr. hv.
árið til að nema verkvélasmíði. —
Erindi frá rektor Hásk. ísl. um fé
til bóka handa klassisku kenslunni.
— Bréf frá sama um að stofna
dócentsemb. í alm. sjúkd.fr., blóð-
vatnsfr. og sóttkveykjufr. — Erindi
frá forst.m. Hjálpr.hersins um heim-
ild til 25 þús. kr. láns úr viðl.sj.
til sjöm.hælis í Rvík. — Erindi frá
Davíð Stef.s. í Fornahvammi um 2
þús. kr. lán úr viðhsj. til húsab. á
jörðinni. — Bréf frá E. Pálss. alþm.,
ásamt skýrslu um jarðabætur, sem
hann hefir látið gera s.k.v. aths. í
1. lið 5. gr. í gildandi fjárl. —
Erindi frá Jakob Jóhs. magister um
600 kr. árl. styrk til að rita ísl.
setningafræði (syntaxis). — 5 þmf.-
gerðir úr Skagafj.s. — Þmf.gerð úr
Mýrasýslu.
Misþyrmið ekki
málinu.
Þó eg sé ekki einn á meðal
hinna lærðu og málfróðu manna
þcssa lands, þá hefi eg ávalt haft
hug á því, að tala og skrifa sæmi-
legt mál, og uni þess vegna illa
Ivaupu e\ns o§ áðwr
ootvxU
að heyra og sjá blessuðu móður-
málinu okkar, íslenskunni, misboð-
ið af okkur sjálfum; en pað er þó
gert hér í Reykjavík og víðar á
hverjum einasta degi. Blöðin koma
hér út daglega, og daglega flytja
þau líka málvillur (sjálfsagt oft af
athugaleysi). Nú fáum við áriega
einhver réttindi, og hið síðasta er
stjórnarskrá og almenn kvenréttindi
að ógleymdum fánanum o k k a r,
en jafnframt þessum blessuðum
réttindum öllum virðist þjóðin ekki
skeyta neytt um það dýrmætasta,
sem er hennar eigin tunga.
Nú er þjóðin öll í sameiningu
að setja á stofn skipastól, er benda
skal öllum heimi á það, að vér
séum líka að verða sjálfstæðir á
sjónum, það eru líka réltindi. Nöfn
skipanna eru að margra áliti góð,
jafnvel af mörgum talin ágæt, en
hvernig förum við með þau, sem
eru einn gimsteinninn úr tungu
vorri, málinu okkar? Við mis-
brúkum nöfnin svo, að kalla má,
að við klæmustum á þeim, Almennt
segja menn:
»Eg kom með Gullfoss*.
»Eg ætla að fara með Gu!lfoss«.
Hvað hugsa menn, er þeir láta
slíkar og þvílíkar setningar út úr
sér? Er þeim alvara að flytja fossínn
fram og aftur með sér? í vasa
sínum?, eða hvað? — Af hverju
kemur sú ósamræmi í daglegu máli
og riti, að almennt er bæjarnafnið
Seifoss bevgt eftir reglum o. s. frv.
en skipanöfnin Gullfoss og Goða-
foss verða að ve.a óbeygjanleg?
Það mun þó ekki vera hugmynd
in, að sýna Dönum að við séum
| ekki búnir að gleyma því, hvað
| fagur var hljómurinn af bæjarnöfn-
unum íslensku, sem þeir settu hérna
um árið á dönsku strandferðabát-
ana, og sem við f greiða skyni fyr-
ir virðinguna, er okkur var sýnd
með því, brugðum okkur til og
létum bæjarnöfnin vera óbeygjanleg;
já meira að segja höfum við lært
svo rnikið af þessari fáu ára reynslu,
að nú höldum við áfram upptekn-
um hætti, þegar um okkar eigin
skip er að ræða, sem koma öðrum
þjóðum við, og alt gerum við
þetta þvert ofan f viðurkenda ís
lenska málvenju. Látum útlend-
ingana eiga sig, en hugsum aðeins
um að venja okkar sjálfa á að tala
svo gott mál, sem mentun okkar
leyfir, og látum ekki eins og okk-
ur skifti það eugu, hvort við heyr-
um málinu okkar misþyrmt. Það
er ekki fínna fyrir það, þó Iærðu
mennirnir geri það líka, því ef satt
er sagt heyrist vitleysan eins oft
hjá þeim; takið bara eftir! —
Þið málfróðu menn : Finst ykk-
ur ekki skylda ykkar vera sú, að
útrýma málleysunum ? Til þess
hefir þjóðin kostað nám ykkar, að
þið vinnið ykkur sjálfum og þjóð-
inni gagn með lærdómnum. Að
sitja auðum höndum hjá og hlusta
á hugsunarleysis-villurnar er sama
og að vinna að framþróun þeirra;
því sá, sem ekki er með, hann er
er á móti, annaðhvorí beinlínis eða
óbeinlínis.
Hvort eg nú skrifa þessar iínur
á slæmu eða góðu máli skiftir
mínna, því eg er ekki einn úr
lærða flokknutn; en sannleikurinn
er hinn sami, þó hann komi frá
ólærðum manni og hefir sama rétt
á sér. Eg skal fúslega taka leið-
beiningum, eins og við ættum allir
að gera.
Eg læt hér með lokið máli mínu.
rinni eg ástæðu síðar mun eg bæta
við grein þessa eftir þörfum.
Ó.J.
Stirt bankafyrirkomulag
þar eð alþingi það, er nú situr,
hefir til meðferðar nýtt frumvarp
um aukin réttindi til handa fs-
landsbanka, virðist það ekki úr
vegi, að jafnframt yrði lítilsháttar
athuguð viðskiftakjör þau, er
landsmenn verða að sæta af
hendi banka vorra, því þau veröa
naumast lengur talin viðunandi,
þegar tekið er hæfilegt tillit til
hinna margvíslegu réttinda, sem
bankastofnanir vorar njóta hér hjá
oss, samanborið við flesta banka
annara þjóða.
Bæri stjórn og þing á líkan
hátt umhyggju fyrir hagsmunum
þeirra, sem við bankana verða
að skifta, eins og þau virðast
gera fyrir sjálfum stofnununum,
þá myndu þau tæplega taka það
í mál, að reka erindi þeirra svo
að segja árlega um ný aukin
réttindi, án þess jafnframt að
rannsaka hver ókjör það eru,
T I L M I N N IS:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst.skrifit. í brunastöð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 8*/s siðd.
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
sem þeir bjóða í viðskiftum sínum
við almenning. Afskiftaleysi
þetta er þeim mun eftirtekar-
verðara, þar sem ókjörin virðast
einsog fara hríðversandi eftir því
sem stofnanir þessar njóta meiri
og fleiri réttinda af stjórn og
þingi, og það auðvitað allt á
kostnað þjóðarinnar. Sem dæmi
uppá vort afleita bankafyrirkomu-
lag ætla eg að láta nægja, að
bera söluverð banka vorra á út-
lendri mynt saman við það, sem
það var í Kaupmannahöfn 8% Þ- á.
Kaupmannahöfn 3%*
Hamborg pr 100 m. kr. 77,10,
London pd. sterl. 18,12,
París pr 100 fr. 70,00,
Amsterd. pr 100 fl. 152,00,
New York pr. 100 dollara 384,00,
Ómakslaun engin.
Reykjavík 3%.
kr. 79,00, framfærsla um 2V2 %
- 18,35, - - 18/j o -
- 72,00, — - 3
- 156,00, — - 2% -
- 405,00, — - 5% -
Ómakslaun % -
Auk þess hagnaðar hafa bankar
vorir að jafnaði vaxtalausa alla þá
peninga, sem greiddir eru til
þeirra fyrir ávísanir á útlönd, minst
10 til 15 daga, þeim peningum
geta bankarnir komið þá þegar á
vexti til innlendra lánþega og ætla
eg þann hagnað ekki ofhátt áætl-
aðan að telja hann Gróði
bankanna á seldum ávísunum til
landa þeirra sem að ofan eru nefnd,
að New York undanskildri, verð-
ur þannig frá rúml. 2 til 4% en
6% fyrir ávísanir á New York,
og sjá þá væntanl. allir heilskign-
ir menn, að annað eins er óhæfi-
lega hár skattur á viðskifti íslend-
inga við útlönd. Hvernig geta
menn t. d. gert ráð fyrir beinum
viðskiftum við Vesturheim, með-
an bankafyrir komulag vort er
slíkt, að skattgjald þeirra áþeirri
verslun, að meðtöldum ómaks-
launum (Provision) nemur um
23V* eyrir fyrir hvern dollar?
Skattur, sem ekki myndi verða
álitinn verðlaunaverður með marg-
auknum hlunnindum og margvís-
legum réttindum á kostnað þjóð-
arinnar, annarstaðar en hér á
íslandi, þar sem alt virðist geta
gengið án þess við því sé amast.
B. H. B.