Vísir - 26.07.1915, Blaðsíða 3

Vísir - 26.07.1915, Blaðsíða 3
VI 8 1 K JÖveWl ^újjenaa sítvon o$ fiampa\)\ti. $ím\ \M. • ® e\o\. £e\^Jv Vvl a3 ve\la v átvtvv ^Öatmá v ^osJeUssoevt geUvv Jetv^vst h\í ttvét utvd- vmhvButtv, ev^atvda \atSat‘vutvat *\)attuá. Varmá 21. júlí 1915. Halldór Jónsson. Skiftafundur verður haldinn í þrotabúi h/f »Iðunnar« næstkomandi þrið udag, 27. þ. m., kl. 5 e. m. í bæjarþingsstofu Reykjavíkur ti! frekari ráð- stafana á eignum búsins o. fl. Vigfús Einarsson seitur skiftaráðandi. J&axwv yétttveB et öUuttv sttatvglega öötvtvu^ öU ueÆv \ átvtvv ^Jatmá v 3&os$sUss\)fcU. Álafossi 20. júlí 1915. Bogi A, J. Þórðarson. 3 Metsfttftwa v j&töttttgóhx 3 er nú kominn LUNDI og verður þar seldur meira og minna á hverjum degi nú um tíma. Sími 517. Prentsm. Gunnars Sigurðssonar. Drekkið Mörk Carlsberg Heimsins bestu óáfengu drykkir. Fást alsiaðar Aðalumboð fyrir ísland: Nathan & Olsen. Tóma poka undan rúgi og hrísgrjónum (200 pd.), kaupir Versi. „Hlíf“ Gretfisg. 26 hán verði. Hringið 503. Det kgL octr. Brandassurance Comp. Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur alskonar o. fl. Skrifstofutími 8-12 og 2-8 Austurstr. N. B. Nielsen. ^aupvS öt ]xí Öt^eV&vtvtvv ^$vll S^aUagtvmssotv. S\m\ 9 Urskurður hjaríans Eftir Charles Garvlce. Frh. »0-ho, það er hræðilegtU mælti hún. »Al!s ekki. Þetta er mjög gott whisky. Viljið þér geia svo vel að hella því ekki niður.« Hann tók við því, drakk það og iét flöskuna aftur í vasa sinn. »Jæja, hvernig lístyður á hann?« »Hann er Ijómandi fallegur«, sagði Veronika, sem virtist vera utan við sig af ákefð og gleði. »Haldið þér, að eg geti veitt annan í við- bót?« »Eg er ekki í minsta vafa um það«, svaraði hann. »Við skulum koma lengra upp með ánni.« Veronika virtist vera mjög nám- fús. Fylgdi hún fyrirskipunum hans í blindni. Hún veiddi brátt annan fisk. Ralph leit út fyrir að vera næstum því jafn ánægður yfir fengn- um sem hún. »Það er ekkert, sem konurnar geta ekki, ef þær bara reyna«, mælti hann. »Þið eruð syo fimar og fljótar að sjá ykkur leik á borði. Þið eruð okkur, karlmönnunum, fremri í flestum greinum. Nú getið þér skiliö, hvers vegna eg er glað- ur yfir því, að vera hér áfram. En mér þykir bara leiðinlegt, að fram- komu minni skyldi vera ábótavant, Miss Denby.« Veronika hafði sest á árbakkann. Hún horiði nú á hann beita nýrri flugu á öngulinn. »Hvers vegna er það svo?« spurði hún. »Ja-a, í fyrsta lagi af því, að eg er alveg ókunnugur hérna, og fólk er alt af tortryggið gagnvart ókunn- ugum mönnum. Og það er ósköp skiljanlegt.« »Útskýrið þér það«, sagði Verc- nika, sem var að reyna að tala kuldalega eða jafnvel drembilega. Fann þó með sjálfri sér, að henni mistókst það. Það var erfitt að lát- ast vera drambsöm í návist þessa unga útlendings, sem var svo hræði- lega rólegur og ófeiminn. »Það er á þenna hátt«, mælti hann. «Þótt eg sé Englendingur, hefi eg verið í Ástrah'u alla æff rnína. Móðir mín var ensk, Hún fór til Ástralíu með mig, þegar eg var ungbarn. Mér er ekki kunnugt hvers vegna. Hún var stolt kona og orðfá. Maðurinn hennar yfirgaf hana. Hún var því, hvað hann snerti, einmana og yfirgefin í heim- inum.« »Þér meinið föður yðar?« sagði Veronika, sem var að reyna að láta ekki beia á forvitn- sinni. »Nei, það geri eg ekki«, sagði hann. »Eg skal vera hreinskilinn. Eg sá aldrei föður minn. Hann dó áður en eg fæddist. Eg meinti seinni manninn hennar móður minnar.« Munnurinn varð hörku- Iegur. Hann hnyklaði brýnnar og beygði sig fram yfir öngulinn. »Eg þekti hann aldrei. Hann hljóp burt frá móður minni fyrir mitt minni. Eg veit ekki, hvers vegna eg er að segja yður frá þessu. Já, þér vilduð vita, hvers vegna eg hefði ekki betri meðmæli. Mamma og eg vorum einstæðingar. Þegar eg var orðinn nógu gamall, byrjaði eg að vinna fyrir henni. Við vorum fátæk. Bar- áttan fyrir tilverunni var næsta erfið. Eg gerði það sem eg gat. Og eg er sæll að hafa það á nieðvitund- inni, að eg gerði það sem eg gat. Eg er guði þakRlátur. Eg fékk vinnu í námunum. Þar áður hafði eg verið hæði búðardrengur, smali og yfir höfuð alt, sem mér bauðst. Eg vann það inn, sem var nóg fyrir okkur bæði. Mér. gekk vel. Þá« — hann beygði sig svo mikið fram yfir öngulinn, að Veronika gat ekki séð framan í hann — »þá dó hún.« Nú varð þögn. Veroniku fanst sem hún tæki þátt í sorginni með honum. Hún reyndi að láta samúð- ina hafa ekki nein áhrif á sig. Henni tókst það ekki. Og hálf- vegis ósjálfrátt sagði hún lágt: »Hún dó!« »Já. Eg hefði átt að vera glaður yfir því. Eg sé það núna. Eg var samt svo hryggur, af því að — eg elskaði hana.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.