Vísir - 04.08.1915, Page 4
V I S I R
*}taupv5 öt \xí Qtgev%vM\\ ^vtt S^Uas&Yvmssow. 39 ö.
Bæjarfréttir.
Frh. frá 1. siðu.
Veðrið í dag.
Vm. loftv. 765 logn it 10,9
Rv. a 765 logn' ti 11,3
íf. ií 768 logn it 10,2
Ak. u 769 logn ii 5,0
Cn. u 732 logn ii 4,5
Sf. u 766 logn U 9,9
Þh. u 760 logn ti 11,0
E/s. ‘Perm*
hom frá New Castle í nótt kl. 12
með kol til Sameinaða gufuskipafé-
lagsins. Allmikmn póst hafði skip-
ið meðrerðis frá Kaupmannahöfn.
Héðan fer það til Sauðárkróks
og Akureyrar.
»Digby <<
enska hjálparbeitiskipið, sem kom
hingað í vor með kassann handa
enska konsúlnum kom hingað aft-
ur í gær um kl. 6. Ekki hve er-
indið vera annað en að gefa skips-
mönnum frí einn dag eða svo.
Hafði verið lítilsháttar gieðskapur
þar um borð í gærkveldi, söngur
og hljóðfærasláttur. — Héðan úr
Iandi sóttu þeir ræöismennirnir Ás-
geir Sigurðsson og Cable og Berrie
stórkaupm. skipverja heim.
Dagskrá
á fundi bæjarstjóinar fimtudag-
inn 5. ágúst kl. 5. síðdegis:
1. Fundargerð byggingarnefndar
31. júlí.
2. Fundargerð veganefndar 3. ág.
3. Fundargerð fátækran. 22. júlf.
4. Lögð fram skýrsla um starf-
semi brunabótafél. hinna dönsku
kaupstaða.
5. Guðmundur Pétursson og Ó-
lafur Pálmason sækja um land
til erfðafestu eða á leigu við
Grandaveg.
6. Eyjólfur Jóhannsson falar land
á leigu í Kaplaskjóli.
7. Eggert Briem býður kaup á
lóðarræmu við Bókhlöðustíg.
8. Bjarni Jónsson sækir fyrir hönd
K. F. U. M. um að Ijósker verði
sett við götuna að húsi félags-
ins. —
9. Kosin kjörstjórn við kosningu
endurskoðunarmanna bæjar-
reikninganna.
10. Brunabótavirðingar.
Björgúlfur Ólafsson
læknir skrifar þ. 7. júní s. I. frá
Java. Er hann þar á skemtiferð með
konu sinni. En heimilisfang þeirra
er: Kendangan, Borneo.
Sfld
Tveir bátar komu í morgun
hlaðnir af síld innan úr sundum.
Dánarfregn.
Jensen, sem var vélastjóri á Botníu,
er nú sagður látinn. Það hafði
verið heilablóðfall, sem honum varð
að bana. Jensen var mörgum
kunnur hér og vel látinn,
Sfðust forvöð
eru nú að fá sér aðgöngumiða
að framsögn Kambans í kvöld —
ef það er ekki orðið of seint!
Drekkið
Lys
Carlsberg
Heimsins bestu óáfengu
drykkir.
Fást alstaðar
Aðalumboð fyrir ísland:
Nathan & Olsen.
H æ s t verð á ull og prjónatusk-
um er í .Hlíf*. Hringið upp síma
503.
Á b u r ð kaupir Laugarnesspítali.
G o 11 píanó fœst til kaups.
Afgr. v. á.
1*1. fáni, sama stærð og er
á Alþingishúsinu, nærri nýr, rétt
gerð, til sölu með afslætti. Á afgr.
Morgunkjólar fást altaf ó-
dýrastir í Grjótagötu 14niðri.
D i p I o m a t f ö t, Iítið notuð, til
sölu með tækifærisverði. Til sýnis
á afgr.
| Dýrtíðin.
| Eins og skýrt er frá i þingfrétt-
'jj um í dag, voru dýrtíðarráðstafan-
| irnar til umræðu í neðri deild þings-
1 ins í gær. Fundurinn stóð fram á
I elleftu stundu, en þótti Ienda meira
1 í striti en viti.
Dýrtíðarráðstafanir.
Jafnaðarmannablaðið varar alþýðu-
stéttirnar við að láta embættis- og
kaupmannavaldið siga sér hverri á
móti annari. — Það er sjálfsagt að
varast það, ef tilraunir verða gerðar
í þá átt, en fáir hafa líklega orðið
varir við það enn. En þar sem
eg er einn úr þeirri alþýðustétt,
sem kaupstaðarbúar nefnast og eg
held eg geti kallast jafnaðarmaður,
þá verð eg að nrótmæla þeiiri
stefnu sem kemur fram í áður-
nefndri aðvörun, sem sé því,j að
bændur og aðrir framleiðendur hafi
frá jafnaðarmanna sjónarmiði, rétt
til að skapa oss kaupstaðarbúum
og öðrum sem ekkert framleiðum
það vöruverð, sem útilokar oss frá
að geta notið nokkurra þeirra mat-
væla sem aflað er í landinu, þegar
! verðhækkunin ekki er að neinu leyti
framleiðendunum sjálfum að þakka.
Mér finst að blaðið komi hér óþægi-
lega í mótsögn við sjálft sig, sbr.
veröhækkunarskattmn. Sem kaup-
staðarbúi held eg að eg verði að
vekja athygli á þeirri hættu,‘ sem
yfir oss vofir frá bændavaldinu á
þingi, það er oss hættulegra en
embættismannavaldið, og get eg ekki
séð, að í jafnaðarstefnunni eigum
við samleið með bændum í fram-
tíðinni og allra síst eins og nú
standa sakir; bændur græða manna
mest á ófriðnum, en kaupstaðar-
búar bera hallann — og yfir oss
vofir hætta,' og vér heimtum vernd
af þinginu, röggsamlegri og ákveðn-
ari en tillögur dýrtíðarnefndarinnar
— (þ. e. meirihl.), minni hluta tillög-
urnar eru gott sýnishorn af því,
hvað bændavaldið leyfir sér að bjóða.
Að endingu vil eg þakka hr. Þórði
Bjarnasyni fyrir hans ágætu ritgerð
í Lögréttu og Vísi fyrir hans góðu
smápistla í þessu máli.
Óíto N. Þorldksson.
Viðeyjarförin 1. ágúst.
í henni voru mörg hundruð
manna úr Reykjavík. Fólkið skemti
sér vel, og sýndi mjög margt eyjar-
skeggjum þá kurteisi og lítillæti, að
fara beint inn á túnið til að ganga
þar um og leika sér, þrátt fyrir
beiðni og margítrekað bann, sem
sumir, jafnvel mælir borgarar bæj-
arins, létu sér sæma að svara full-
um hálsi.
Eg var með öllu óviðbúinn svo
fjölmennri heimsókn. Og túnið, sem
átti að slá um miðjan þennan mán-
uð, er nú niðurtraðkað og stór-
skemt.
Til þess því framvegis að fyrir-
byggja allan misskilning hjá þeim
sem kynnu að halda að Viðeyar-
túnið eigi engan rétt á sér, þá er
hér með öllum óviðkomandi, ad við-
lagðrí sekt að lögum, fyrírboðið að
fara um túnið eða ganga þar innan
girðinga aðra leið en veginn.
Viðey 2. ágúst, 1915.
Björn Jónsson,
bústjóri.
\ a$ tan&v,
Símfregn.
Akureyri í dag.
Ingólfur Arnarson kom inn í
morgun með 900 tunnur af síld.
Engin markverð tíðindi önnur.
Barnavagn óskast strax keypt-
ur eða lánaður. A. v. á.
Dagstofuhúsgögn o. fl.
til sölu með lækif. verði. A. v. á.
Barnakerra óskast fil kaups
eða leigu nú þegar. Upp!. í versi-
un Jóns Þórðarsonar.
S t e i n b í t s riklingur til sölu
hjá Ólafi Magnússyni á Laugaveg
24 B, (hjólhestaverkstæðinu).
L í t i ð kvenbjól til ölu me'l lágu
verði. Til sýnis hjá Ólafi Magnúss.
Gott húspláss,3 herbergi
og eldhús, óskast frá 1. okt., helst
í Austurbænum. Uppl. gefur Carl
Ólafsson Ijósmyndari.
G o 11 herbergi með sérinngangi,
(eða tvö lítil) óskast 1. okt. n. k.
handa einhleypum. Lokuð tilboð
merkt »500« sendist afgr. Vísis
fyrir 7. þ. m.
H ú s n æ ð i óskast fyrir barnlausa
fjölskyldu, 1 —2 herbergi ásamt eld-
húsi. Upplýsingar gefur Helgi
Árnason í Safnahúsinu.
G o 11 herb., með húsgögnum,
er til leigu fyrir lágt verð á Berg-
staðast. 1.
Váiryggingar.
Drengur.
9
Areiðanlegur drengur,
15 ára, laus við skóla,
get.ur fengíð góða stöðu,
nú þégar, á skrifstofu
hér í bænum. Afgr. v. á.
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The Britr
hish Dominlon General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
Brjóstnæla og úrhalda fundið.
Vitjist á Laugveg 37.
V I N N A
D u g 1 e g a n kaupamann og
kaupakonu vantar. Gott kaup í boði.
Uppl. í Bergstaðastr. 4.
Kaupakona óskast nú þegar
á gott heimili. Hátt kaup. Uppl
á Hverfisg. 89.
B u d d a fundin í Bröttugötu,
vitja má í Fischersundi 1 (uppi).
P e n i ii g a r fundnir. Vitja má
í Bókaverslun ísafoldar.
FÆÐI
F æ ð i fæst í miðbænum. Afgr.v.á.