Vísir - 22.08.1915, Síða 4
V 1 S 1 R
Bæjarfréttir.
Framh. frá 1. síðu. I
!
»Sterling«
fór í gær. Til Vestmannaeyja :
fóru þingmennirnir: Karl Einars- |
son, Magn. Pétursson og Stgr. Jóns- j
son, til þess að athuga höfnina í
Eyjunum, ennfremur Þór. Kristjáns-
son verkfr., Olsen umboðssali o. fl.
Til Khafnar fóru: Chr. Popp og
fjölskylda hans, alfarin, stúdentarnir:
Helgi Tómasson, Sig. Leví, Þorv.
Árnason og Héðinn Valdemarsson.
Kolin.
EÚirtektarverð eru símskeytin frá
Matth. Þórðarsyni, sem birt eru hér
í blaðinu, um kolaútfl. frá Bretlandi. i
— En ekkert nýtt um ísl. kolin.
Húsaleigukvittanir
í mjög handhægum litlum heft-
um, 12 blaða, hafa nýlega verið
prentaðar og fást í prentsm. Gunn-
ars Sigurðssonar.
Hafnarumsjónin.
Um þann starfa sækja: skip-
stjórarnir Friðrik Björnsson, Hjalti
Jónsson og þorsteinn Júl. Sveins-
son, Guðm. Jakobsson, trésm,
og Jóhann P. Jónsson sonur Jóns
á Vífilsstöðum. Hann er útlærð-
ur skipstjóri og nú í sjóliði Dana.
Eva Blytt
hefir haldið fyrirlestra sína
undanfarin kvöld í Bárubúð fyrir
troðfullu húsi. Láta menn yfir-
leitt vel af þeim, en margir kvarta
yfir því, að þeir hafi ekki skilið
norskuna.
Guðm. Kamban
ætlar að lesa upp leikrit sitt,
„Konungsglímuna" á þriðjudags-
kvöldið í Bárubúð. — Varlegast
að tryggja sér aðgöngumiða.
,Guðspekis’~
fyrirlestrarnir.
Hér hefir verið á ferðinni, eins
og menn vita, norsk kona, Eva
Blytt að nafni, og hefir hún haldið
3 fyrirlestra um »guðspekis« efni
undanfarin kvöld. Aðsókn hefir
verið mikil — enda aðgangur ó-
keypis — og þarf menn sfst að
furða á slíku hér í þessum bæ, þar
sem það, sem er ólíku magnaðra
en hinar meinlausu og næsta óá-
kveðnu dulhugmyndir »guðspek-
inga< svokallaðra, þrífst og dafnar
með afbrigðum, svo sem hindur-
vitni allskonar og römm draugatrú,
sem nú gengur Ijósum Iogum hér
bæði í kirkjum og heimahúsum.
Þeim, sem nokkuð vissu um »guð-
spekis«-stefnuna áður, var víst harla
lítill gróði að fyrirlestrum þessum;
kona þessi hafði ekkert nýtt að færa,
svo sem varla var von. Hún talaði
stillilega og látlaust, en ef menn
hafa ekki vitað það áður, þá hafa
menn víst komist að raun um það
eftir þessa lestra, hversu kenningar
þessar eru fádæma sundurlausar og
á reiki. Fyrir þekkingarinnar, skyn-
seminnar, rökfræðinnar dómstóli
standast þær vitanlega ekki, fremur
en önnur trúarbrögð eða átrúnað-
ur. Þess er ekki að vænta. Hér
skal þó ekki neitt farið út í það,
að gagnrýna þessar kenningar, því
að það yrði mikils til of langt mál
og enda þýðingarlaust.
Að eins skal bent á, mönnum
til athugunar framvegis — að sé
fólki »boðið upp á« slíka fyrirlestra
sem þessa, er gersamlega marklaust
að vera að myndast við að »leyfa«
spurningar út í efnið, því að það
getur, eins og glögglega sýndi sig
hér, aldrei orðið annað en »húm-
búg« I Slíkar spurningar, öldungis
í sama anda og fyrirlesturinn (öðru-
vísi var »leyfið« víst ekki meint)
eru óhugsandi nema meðal t r ú -
a ð r a af sama sauðahúsi. En þar
sem öllum almenningi er op-
inn aðgangur, réttlátum og ranslát-
um, sauðunum og höfrunum, þar
hljóta þær að leiða til umræðu og
misklíðar. Það er svo ofureðlilegt,
að engan þarf að furða á því.
í slíkum tilfellum sem þessum
verður því að vera eitt af tvennu :
Annaðhvort frjálsarum-
ræður eða alls engarat-
hugasemdir eða spurn-
i n g a r, þar sem ganga verður að
því vísu, að menn séu mjög ósam-
mála um þessi atriði. Dæmin sýndu
við þessa fyrirlestra, að þótt til
þessara sarnkoma væri stofnað með
fullri »kurteisi«, þá syndguðu bæði
spyrjendur (einkum Páll Guðmunds-
son úr kristil. unglingaféiagi) og
forstöðumaður (Jón Jónsson dócent)
gegn þeim reglum mjög svo á-
þreifanlega. G. Sv.
Nýjar
Kartöflur
nýkomnar til
& C.O.
Hafnarstr. 4. Sími 40.
Bogi Brynjóifsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa Aðalstræti 6 (uppi.)
Skrifstofutími frákl. 1-2 og 4-6 e. h.
Talsíml 2501
Dei kgl. octr.
Brandassurance Comp.
Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur
alskonar o. fl.
Skrifstofutími 8-12 og 2-8 Austurstr.
N. B. Nielsen.
%
Oskeiflar
tóiar
KJÖT-ogl
ÍSlLDAR-g
tunnur
kaupir versl.
PEAES-
SÁPAN
PRÆGrA,
fæst í
versl. V O N,
Laugavegi 55.
Sótskvussápa,
S&^uspætvu oo^
Sóó\.
Ódýrasí í versl.
Y 0 N, hVfi. 55.
Rjóltóbak
Br. Br,
pr. l/2 kgr. kr. 2,40
í versL Yon
Laugavegi 55.
Sykurkaup
eru áreiðanlega
best í versl,
VON, Lvg, 55,
Góður brúkaður
handvagn
óskast tll kaups.
Snúið yður til
O. J. Havsteen
umboðssala,
Ingólfsstræti 9.
KAUPSKAPUR
H æ s t verð á ull og prjónatusk-
um er í »Hlíf«. Hringiö upp síma
503.
Morgunkjólar fást altaf ó-
dýrastir í Grjótagötu 14 niöri.
Einnig í Doktórshúsinu við Vest-
urgötu.
í Bókabúðinni á Laugaveg
22 fást brúkaðar bækur, innlendar
sein erlendar, fyrir hálfvirði.
G ó ð trérulla og brúkaður ofn
fæst með góðu verði. Afgr. v. á.
N ó t u r fyrir Píanó og Orgel,
til sölu með tækifæris verði hjá
Þorsteini Sigurðssyni Laugaveg 22.
Húsaleigukvittanabækur
fást í Prentsm. Gunnars Sigurðss.
HÚSNÆÐI
2 I í t i 1 h e r b e r g i, án hús-
gagna, óskar einhleypur maður eftir
frá 1. sept, eða okt. í Austurbæn-
um. Afgr. v. á.
E i 11 stórt herbergi móti sól til
leigu fyrir einhleypan. Laufásv. 38
E i 11 herbergi fyrir eihleypan
helst í kjallara, óskast 1. okt. Jón
Sigurðsson Laugaveg 54. Sími 197.
V I N N A
S t ú 1 k u vantar frá 1. sept.
Afgr. vísar á.
Innanhússtúlka og ungl-
ingur til gæta barns óskast nú þeg-
| ar. Afgr. v. á.
Vátryggingar.
Vátryggið tafalaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The Britr
hish Dominion General Insur-
ance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
LEIGA
G o 11 p i a n o óskast til leigu
um lengri tíma. Afgr. v. á.
[
TAPAÐ — FUNDIÐ
j
L y k 1 a r töpuðust í gærkveldi.
1 Skilist á afgr. Vísis.