Vísir - 26.08.1915, Blaðsíða 4

Vísir - 26.08.1915, Blaðsíða 4
V I S I R Barraud fallinn. Franski háskólakennarinn okkar, hr Barraud, sem tók við á eftir Courmont og kailaður var heim vegna stríðsins, er nú fallinn í við- nreiíjninni við Þjóðverja. — Hefir Thora Friðriksson fengið bréf um þetta frá móður hr. Barrauds. — Hann hafði verið flokksforingi og getið sér góðan orðstír fyrir frækna framgöngu. Var hann sæmdur heið- ursmerki, er sent var móður hans að honum látnum. — Hér heima var hr. Barraud mæta vel látinn af ölium þeim, er þektu hann, enda var hann fljótur að setja sig inn í íslenskan hugsunarhátt og orðinn ! góður í málinu. — Mælt er, að vinir hans hér ætli að sýna minn- ingu hans einhvern virðingarvott, og væri það mjög vei viðeigandi. Slys. Sorglegt slys vildi til hér í bæn- um í gærkveldi. — Tíu ára gam- all drengur, Guðmundur Ólafsson frá Baldursgötu 1, hljóp út Veltu- sund undan öðrum dreng, sem ætl- aði að hrekkja hann. En á horn- inu á Austurstræti rakst hann á piit, sem kom á hjóli eftir Austurstræti. Pilturinn á hjólinu hafði verið á liægri ferð, en hraðinn á Guðm. var svo mikiil, að við áreksturinn duttu þeir báðir, og skall Guðmundur aft- ur á bak á götuna. Pilturinn, sem á hjólinu var, studdi nú Guðmund inn í búð Ragnars Levis, og var liann lálinn fara þar upp á loft til að jafna sig. Náði hann sér nú brátt svo, að hann vildi fara heim til sín. Bar þá orðið ekkert á því, að neitt alvarlegt væri á ferðum. — Hann hafði ekki mist meövitundina og að eins einu sinni haft orð á því, að sér væri að verða ilt, og búist við því, að kasta upp, en það ieið frá, er hann fékk vatn að drekka. Fór hann nú heim til sín og ann- ar lítill drengur með honum. — Þegar heim var komið, var Sæm. prófessor Bjarnhéðinsson sóttur og var honum sagt, að liðið hefði yfir drenginn og að hann hefði kastað upp. Af því réði Sæm. það, að um heilahristing væri að ræða, en í litlum stíl þó, því að drengurinn var allhress að sjá, talaði eðlilega og kendi sér eiginlega einskis meins. Áleit Sæmundur því, að engin hætta væri á ferðum, en ráðlagði bakstra við höfuðið. Þetta var um kl. 8 í gærkveldi, en kl. 11 var drengurinn dáinn. Vér höfum átt tal við próf. Sæ- mund og telur hann Jíklegast, að sprungið hafi æð í höfðinu og blætt í heilann. Óhæti mun að fullyrða að eng- inn eigi sök á slysi þessu. — Drengurinn fullyrti sjálfur að pilt- Stórt úrvai af FATAEFNUM þar á meðal 4 teg. af CHEVIOTI. — Nýkomið í Vöruhusið. urinn á hjólinu hefði enga sök átt á því, og um það ber öllum sjón- arvottum saman. — Helst er ávítt- ur drengurinn sem elti Guðmund sáluga, og sagt að hann hafi lagt það í vana sinn að hrekkja hann, hvar sem hann náði til hans. En þótt slíkt sé Ijótt, þá er þó ekki rétl að gefa honum sök á slysi þessu. m_________________ Afmæli í dags Ragnhildur Thoroddsen ungfrú. BÆJARFRETTIB Afmæli á morgun. Þorbjörn Guðmundsson verkam. Steinunn Þorvarðsd. húsfrú. Jón Ásmundsson afgr.m. Guðbj. Sverrisd. húsfrú. Salómon Jónsson sjóm. Klemens Jónsson landritari. Dorothea Halberg húsfrú. Sigríður Thordarsen ekkjufrú. Laufey Vilhjálmsdóttir húsfrú. Eva Krislín Guðmundsd. ungfrú. Afmæliskort fást hjá Helga Árnasyni, Safna- húsinu. — Veðrið í dag. Vm. loftv. 756 logn 8,7 Rv. a 756 sv. kaldi “ 6,3 íf. « 756 sv. kaldi “ 4,7 Ak. « 754 ssv. andv. “ 8,1 Gr. « 719 logn “ 5,3 Sf. « 753 logn “ 9,9 Þh. « 756 ’ vnv.st.gola “ 11,5 Sýning Kristínar Jónsdóttur og Guðm. Thorsteinssons er opin dagl. frá kl. 11-6. »Gullfoss« kom að vestan í morgun. Far- þegar voru allmargir og þessa höf- um vér heyrt nefnda : Jón Gunn- arsson samábyrgðarstj., Sighvatur Bjarnason bankastj., Sigfús Blöndahl kaupm., Bjarni Jónsson frá Galta- felli, Páll V. Bjarnason sýslum. í Stykkishólmi. »lngólfur« kom frá Borgarnesi í gærkveldi, seint. Allmargir farþegar voru með honum, þar á meðal: Jens B. Waage bankabókari og kona hans, síra Ás- geir Ásgeirsson í Hvammi o. fl. Riklingur er nú seldur hér í bænum á kr. 1,60 kílóið. Þá verður skip- pundið af honum 256 kr. — Hann verður líklega ekki á borðum dag- launamanna í vetur á Þorranum. Ný staðfest eru j»Iög um heirnildir fyrir landsstjórnina til ýmsa ráðstafana út af NorðuráIfuófriðnum«. í 3, gr. laganna er bannað að flytja út úr landinu inör og tólg — eri fyrir brot á því ákvæði er engin refsing lögð við ílög- unum. — Hve margir lögfræðingar sitja nú á þingi ? Gamla Bíó sýnir »Voðaskotið« í kvöld og annað kvöld eftir áskorunum. Mynd þessi var sýnd fyrir skömmu, og er efasamt, hve geðfeld liún er öll- um almenningi að efni til, en eitt hlutverk sérstaklega er ágætlega leikið, og er myndin þess verð, að sjá hana, þó ekki væri annars vegna. — Það er einhver frægasti leikari Norðmanna, Egill Eide, sem leikur. Guðm. Kamban fór í gær á »Botníu«. Hann hafði ekki ætlað sér að fara fyr en á »Gullfossi«, en breytti skyndiiega áætlun. Þá eru að engu orðnar vonir manna um, að hann endur- tæki upplestur »Konungsglímunnar«. i Stumpasirs, Flúnnelsbútar, Lastingsstúfar nýkomið til JóIl. ðgm. Oddssonar Laugaveg 63. Kartöflur. Nýjar kartöflur á 10 aura pundið fást á Klapparstíg 1 B. Sími 422, Epii - Vínber Melónnr Bananar KartMur, nýjar nýkomið í verslun Guðm. Olsen. sá stóri og litli, sem allir vilja reykja, er reynt hafa, komu með »íslandi« til Jóh. Ögm. Oddssonar Laugaveg 63. 2 1 í t i I h e r b e r g i, án hus- gagna, óskar einhleypur maður eftir frá 1. sept, eða okt. í Austurbæn- um. Afgr. v. á. 2 herbergi, án húsgagna ósk- ast. Tilboð merkt: Á. P., sendist afgr. Vísis. H e r b e r g i til leigu fyrir ein- hleypan mann Bergstaðastræti 52. Námsmaður þarfnast hús- næðis og fæðis í vestur- eða mið- bænum næstkomandi vetur. Til- boðum tekur við til næstk. sunnudags Þorsteinn Sigurgeirsson Bergstaða- stræti 50. Sími 238. S t ú 1 k a óskar eftir 1 herbergi. Helst á lofti. Afgr. v. á. ^eY%eYöf}a íbúð óskast frá 1. okt. Jón Isleifsson, verkfræðingur Lindargötu 7, A. H æ s t verð á ull og prjónatusk- um er í »HIíf«. Hringið upp síma 503. Morgunkjólar fást altaf ó- dýrastir í Grjótagötu 14niðri. Einnig í Doktórshúsinu við Vest- urgötu. Ofn til sölu á Baldursg. 1. 2 s m á o f n óskast til kaups. Afgr. v. á. R ó n i r sjóvetlingar fást á Lind- argötu 20 B, (kjallarauum). Þ a ð, sem óselt er af lifandi blómom, verður nú selt með af- slætti á Stýrimannastíg 9. S t ú I k u vantar frá 1. sept. Afgr. vísar á. Innanhússtúlka og ungl- ingur til að gæta barns óskast nú þegar. Afgr. v. á. D u g 1 e g stúlka óskast í vist 1. sept. n. k. Hátt kaup í boði! Afgr. v. á. Kaupamaður óskast nú þeg- ar í nánd við Reykjavík. A. v. á. S t ú 1 k a óskast til hjúkrunar hjá sængurkonu á Njálsgötu 33 A. ^ Vátryggingar, Vátryggið tafalaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Britr hish Dominion General Insur- ance Co. Ltd. * Aðalumboðsm. G. Gíslason.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.