Vísir - 28.09.1915, Page 2

Vísir - 28.09.1915, Page 2
V ISIR VISI R Afgreiðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi, Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sama stað, inng. frá Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá ki. 5-6. Sími 400,— P. O. Box 367. Síldveiðahöfn f Hornvík. Á þinginu í sumar var iöggiltur verslunarstaður á Höfn við Hornvík, sérstaklega með það fyrir augum, að þaðan yrði hægt að reka sild- veiðar. Magnús Torfason bæjarfógeti á ísafirði er eigandi jarðarinnar og hefflr Vísir áður skýrt frá því, að hann sé komin hingað til bæjarins fil þess að undirbúa stofnum hluta- féiags í þessu skyni. — Vísir var forvitinn og fór því á fund bæjar- fógetans til þess að fá frekari upp- Iýsningar um framtíðarhorfur fyrir- tækisins. Fyrst varð það fyrir að spyrja um hvernig gengi að fá fé. »Fé er nóg fyrir hendi til þess að koma upp einni venjulegri síld- veiðastöð með bráðabirgðatækjum«, var svarið, »en ekkert verulegt er hægt að gera fyrir en staðurinn er rannsakaður, dýpi mæit og áætlun gerð um kostnað við hafnargerð. Þangað iii þessum undirbúningi er lokið koma engir samningar til mála. Og aðalerindið hingað suður er að fá mann til þessara rann- sókna«. Hvað þarf þá að gera ? »Eg geri ráð fyrir að byggja þurfi brimbrjót og dýpka höfnina allmikiði. Getur það þá borgað sig ? »VafaIaust. Þrengslin eru orðin svo mikil í Siglufirði, að eftirsókn eftir veiðistöðum á Vestfjörðum hlýtur að fara að koma fram. Það er auðvitað, að hafnargerðin kostar allmikið fé, og að af því leiðir að grunnleiga yrði hærri í Hornvík en við Eyjafjörð. En þess ber að gæta, aö Hornvík liggur miklu betur við síldveiðum. Fratnan af síldartíman- um verða allir er hana stunda að sækja vestur að Horni, um 12 tíma sigiingu frá Eyjafirði. Veiðin er þeim mun dýrari frá Eyjafirði sem meira eyðist af kolum og Iengri tími fer í hverja ferð. En auk þess er nær ómögulegt að flytja síldina svo langan veg, þegar miklir hitar eru. Og þegar þess er gætt, að skip sem stunda veiði við Horn geta fylt sig 3—4 sinnum á meðan að farin er ein ferð frá Eyjafirði, VINNA. 4~5 drengi vantar til að bera út Vísi. Þeir sem vilja sinna þessu gefi sig fram við afgreiðsluna kl. 5 í dag. Gróð og ódýr hagaganga. Nokkrir hestar verða teknir til hagagöngu í haust í Krlsuvík, og einnig verða á sama stað teknir 4—5 hestar til fóðurs. Hestarnir verða fluttir fram og til baka eigendunum að kostnaðarlausu. Semja ber við Jóh. J. Reykdal, Setbergi. Hús til sölu við Vatnsstíg nr. 10 A, 5 herbergi og eldhús. Stór og góður kálgarður fylgir húsinu. Húseignin er laus til íbúðar 1. okt. næstk. Verð 4000 krónur. ^omsetv. Veggfóður (Betræk) mikið úrvai kom með e/s Gullfossi á Laugaveg 1. Notið tækifærið meðan nógu er úr að velja. mm þá liggur það í augum uppi að allmikill munur má vera á grunn- leigunni. En hér við bætist, að síld veidd við Horn og þar um slóðir og söltuð í Hornvík yrði miklu betri vara en sú síld sem flytja verður alla Ieið frá Horni austur á Eyja- fjörð í kös í skipunum áður en hún er söltuð. Og oft er hægt að veiða síld í Hornvík meö ádrætti, eftir gamla Iaginu. Víkin er svo stutt að síldin fer oft og einatt í þéttum I torfum inn í botn, en þar eru sandar fyrir og ágætt aðstöðu við ádrátt. En þaö er alkunnugt að síld sem þannig er veidd er besta og dýr- ; asta varan*. Vísir hefur getið um grein Svein- bjarnar Egilssonar í »Ægi«, þar sem hann varar íslendinga viö því að hleypa Norömönnum að höfnum á Vestfjörðum til að stunda síld- veiðar. Það virðast vera orð í tíma töluð, og ættu síldarútgerðarmenn aö athuga mál þetta vandlega, áöur en þeir hafna tilboði um að taka þátt í stofnun félags tíl að gera höfn í Hornvík. »Eg legg áherslu á að fyrirtækið verði alíslenskt«, segir Magnús Torfa- son; vonandi er að íslenskir út- | gerðarmenn leggi líka áherslu á það, ef rannsóknir leiða það í ljós, að höfnin geti komið að tilætluðum notum. Verkfall í Wales. Menn muna eftir verkfallinu mikla, sem námamenn garðu í Wales í sumar. Þaö stóð í viku og höföu þá um 300 þús. manns gengið iðjulausir. Þegar námumenn voru byrjaðir að vinna aftur, þótti þeim eigi haldin þau loforð, sem þeim höfðu verið gefin, til þess að [þeir hættu við verkfallið. Fóru þeir þá enn á ný að gera verkfall, svona 5—10000 manns í einu. Um- tíma gengu 25000 manns iöjulausir. Stjórnin reyndi að miðla málum og gekk það treglega. Loks komust þó sætt- ir á um síðustu mánaðamót og létu þá kolanámueigendur undan vel- flestum kröfum verkamanna. T I L M I N N I S: Baðhúsið opið'v, d. 8-8, ld.kv. til 11 Borgarst.skrifit. í brunastöð opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M. Alm. samk, sunnd. 8'/2 siðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3 Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugripasafnið opið IVj-2* 1/, síðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Rouget de Lisle (1760-1836). Svo hét höfundur þjóðsöngs Frakka; sem mjög er frægurorðinn um öll lönd. Árið 1792 varR.de Lisle fyrirliði í her Frakka, sem hafði aðsetur sitt í Strassborg. Þá orti hann þenna hersöng, bæði kvæöi og lagið og kallaði hann »Chant deguerredel’ arméedu Rhin«. Síðar hlaut hann nafnið »La Marseilaise« og varð þjóðsöngur í Frakklandi. Höfundurinn hefir kveðið táp og fjör í þjöð sína með honum. Er það líklega sá besti þjóðsöngur, sem búinn hefir verið til, fyrir margra hluta sakir, Hafa líka marg- ir öfundað Frakka af honum. Það verður líklega ekki metið til fulls hvað franska þjóðin á honum að þakka. En franska stjórnin hefir sýnt það, að hún ber viröingu fyrir minningu R. d. Lisle. Á þjóðhátíðardegi Frakka — 14. júlí, »Bastilludeginum« — í sumar lét stjórnin flytja líkamlegar leyfar höf- undarins með mikilli viðhöfn frá kirkjugarðinum, sem hann var graf- inn í, til »Hotel des Invalides« í Paris. Kistan var flutt á fallbyssu- vögnum frá tímum stjórnarbylting- arinnar miklu og fylgdu henni fjöldi hermanna, með brugðnum sverðum og æðstu menn ríkisins. Nú hvílir lík R. d. Lisle við hliö Napoleons mikla í hinni undur- fögru kapellu, en andi hans svífur yfir hinum þrautseigu og herskáu sonum Frakklands, sem leggja alt sitt fram til þess að verja lýðveldið á reynsIutítTium þess. L. I. Vatnavextir íRnsslandi Haustið og veturinn ætlar að koma óvanalega snemma í Rúss- landi núna. í síðustu útlendum blöðum er sagt frá því, að ár hafi vaxið mjög mikið síðustu dagana (fyrri hluta septbr.) og flæði yfir bakkana svo að allar hernaðarfram- kvæmdir séu nú orðnar mjög erfiðar. Hafi þetta komið Þjóðverjum mjög illa og sé ekki sjáanlegt annað en að allar fyrirætlanir þeirra rouni stranda.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.