Vísir - 17.11.1915, Blaðsíða 2

Vísir - 17.11.1915, Blaðsíða 2
v i sl R VISIR Afgreiðsla blaðsins á Hótel | Island er opin frá kl, 8—8 á hverj- ; um degi, Inngangur frá Vallarstræti. Skrífstofa á sama stað, inng. frá Aöalstr. — Ritstjórinn tii viðtals frá Id. 1-3, Sími 400,— P. O. Box 367. Svar til «Gamals háseta,» frá B. J. Blöndal. Niðurlag. Að þilskipaútgerðin beri með sér árlegt tap, get eg ekki séð, því þótt sá floti rýrni, þá bara breytist hann í annan öflugri og betri flota nefnilega togara og bifvélaskip. Um kaup annara sjómanna er alt öðru máli að gegna. Kaup togarahásetanna er fastá- kveðið mánaðarkaup, sem stendur óbreyít þótt ekkert fiskist, til upp- bótar á kaupi sínu hafa þeirlifrina, sem er allmikiil viðbælir ef vel fisk- ast, Afla þenna er þeim leyfilegt að selja hæsta verði hvar sem þeir koma að landi. Ef hasetar hand- færaskipanna hefðu fengið að njóta sömu réttinda skyldi eg aldrei hafa ónáðað gamla hásetann með grein minni. Sama er að segja um þá menn, er ráða sig fyrir 80 til 100 kr.yfir vetrarvertíðina til fiskróöra, það er fyrirfram um samið kaup sem þeim er greitt hvernig sem gengur, og oft mun það vera tekið fram, að nemi upphæð hlutarins 400 til 500 kr. sé hlutareiganda goldið minst 150. En hefir nokkur kvartað und- an því, að útgerðarmenn hafi grætt um of á þeim mönnum sem þeir hafa ráðið með mánaðar kaupi ? Eg held ekki, og hin tvö síðast nefndu tilfelli geta einmitt mælst á sama mælikvarða. Eg vildi spyrja höfund að því, hvort hann nokkru sinni, í sinni hásetatíð, hafi haft samninga við guð eða góða menn um það hve mikils afla hann skyldi verða að njótandi þetta og þetta árið, vér hinir höfum mátt beygja oss undir ýms ófyrirsjáanleg atvik, sem orsakað hafa ýmist afla eða aflaleysi, en vera má að hér sé undanfekning. Það má taka til greina, segir höf., að hásetar á þilskipum hafa alt tros frítt, en við hefði hann átt að bæta, »að undanskyldu því sem þeir verða að leggja sér til fæðis og fá aldrei greitt frá útgerðarinnar hálfu«. — Allir vita þó að frítt fæði er lög- boðið á skipum þessum. Sammála getum við höfundur orðið um það, að sérhverjum sé fyrir bestu að stunda þáatvinnu, er Sjúkrasamlag Eeykjavíkur heldur fund í Bárunni (uppi), miðvikudaginn 24. þ. m., kl. 71/, síðdegis. Vegna þess að fundurinn, sem haldinn var 11. þ. m. var of fámennur til þess að lagabreytingin sem fyrir fundinum lá, næði gildi, verður hún lögð fyrir þennan fund til fullnaðar-úrslita. Reykjavík, 15. nóv. 1915. 3óti ^álssou, form. Giimum! Glímuflokkur U. M. F. R. hefir æfingar í fimleikahúsi Mentaskólans miðvikudagskveld kl. 9l/2. í vetur er þetta eini staðurinn sem menn geta lært glímur og æft glímur og a lir sem það vilja eru velkomnir. Glíman er holl og fögur íþrótt. Við skorum á alla íþróttamenn sem vilja efla og viðhalda ísl. glímunni að sækja æfingar þessar. S t j ó r n i n. Skoskt netjagaxn aí úestu tegund sel eg at’ bryggjunni í desem- ber næstkomandi eftir pöntunnm með óviðjafn- anlegu tækifærisverði. Þeir sem eiga eftir að fá netjagarn snúi sér með pantanir sínar til mín fyrir 25. þ. m. Kr, Jónssom, Frakkastíg 7. Sími 286. Ulster-, Kápu-, Frakka- og Fataefni nýkomin. — Einnig Iðunnardúkar. Gfuðm. Bjarnason. Takið eftir. Hér með lœt eg gamla og nýja viðskiftavini vita að eg er farinn að stunda skósmíði. ^ía$uussot\i Grettisgötu 44. Vanur utanbúðarmaður óskar eftir atvinnu eftir áramót. Ritstj. gefur uppl. T I L M I N N IS: Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11 Borgarst.skrifit. í brunastöö opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3 Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugripasafnið opið IVj-21/, síðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans í Kirkjustræti 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2-3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2—3. mestan arð geíi, en gætum við ekki einnig orðið sammála um það — ef hann gengur ekki undir fölsku nafni — að fylgjast að í háselafé- agið, hætta að verja þetta hræði- lega misrétti útgerðarmanna, og stuðla að því af alefli, aö við og allir aðrir fái fyrir afla sinn eins og vera ber. Viðvíkjandi athugasemd ritstjóra er það að segja, aö það gleður mig að heyra að hann hefirskoðað greinar þessar sem meðmæli með Hásetafélaginu en ekki sem níð um útgerðarmenn. Greinarnar hafa verið skrifaðar í þeim tilgangi, aö hvetja menn til þess nú að bindast þeim félags- skap, sem verji háseta gegn því að verða beittir annari eins kúgun, eins og átt hefir sér stað sfðasta útgerð- artímabil. Björn J. Blöndal. KafDátaliernaðuriiin, —o— Tíöindamaður ameríska blaðsins New York World í Berlín hefir sent blaði sínu skýrslu um kafbáta- hernað Englendinga í Eystrasalti. Segir hann þar aö þýska stjórnin fái ekkert við kafbátana ráðið; hún geti ekki varnað því að þeir kom- ist inn í Eystrasalt. Því að þó að net séu lögð og tundurdufl í mynn- ið á sundunum, þá geti kafbátarnir smogið neðansjávar í landhelgi Dan- merkur eða Svíþjóðar. Bretar séu betur settir að því leyti, aö þeir geti strengt net og hafi gert það, þvert yfir Ermasund. Fréttaritarinn segir að beitiskip- inu Prins Albert hafi verið sökt um hábjartan dag. Tvö lundurskeyti höföu komið á skipið og virfist það takast á loft af-sprengingunni og sökk síöan eins og steinn. Að eins fáum mönnum varð bjargað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.