Vísir - 22.11.1915, Blaðsíða 2

Vísir - 22.11.1915, Blaðsíða 2
v » i 1 R VISIR Afgreiösla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi. Inngangur frá Vallarstræti. Skrífstofa á sama stað, inng frá Aöalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá U. 1-3. Sími 400.— P. O. Box 367. gufuhreinsað, lyktarlaust. Tilbúinn Sængurfatnaður. Kína. Engin sljórnarbreyting í ár. Japanar gerðu í fyrravetur all- harðar kröfur til Kínverja um ýms forréttindi sér til handa í Kína. Sá stjórnin í Kína sér þann kost vænstan að ganga að kröfum Japana. En mælt er að Kínverjar hyggi til hefnda fyrir þessa þvingun. Meðal annars hefir alþýða manna í Kína bund- ist samtökum um að kaupa ekki japanskan varning og stendur þjóðin þar sem einn maður. þykir Japansmönnum súrt í broti, því hingað til hefir aðalmarkaður þeirra verið í Kína. þjóðverjar hafa ekki sparað að ala á sundrunginni milli Japana og Kínverja. Er talið að sendi- herra þeirra hafi verið þess hvetj- andi að Yuan Shi Kai forsetilýð- veldisin tæki sér keisaranafn. þykjast þeir sjá að Kína verði innan skamms öflugt herríki svo að þeir geti þá hefnt sín á Jap- ansmönnum. 1 Yuan lét fara fram atkvæðagræðslu í landinu um það hvort breytt skyldi um stjórn- arfyrirkomulag. Var mikill meiri hluti þjóðarinnar með því að koma á aftur keisarastjórn. Var jafnvel sagt að Yuan hefði tekið sér keisaranafn. En sú fregn reyndist ekki rétt. Japanar komu áður tíl sögunnar og lögðu ein- dregið á móti því að breytt væri um stjórnarfyrirkomulag eins og sakir stæðu nú. Hefiir nú Yuan farið að „ráð- leggingum" þeirra og tilkynt stjórninni í Tokio að engin breyt- ing mundi verða gerð á stjórnar- fyrirkomulaginu þetta ár. Bryan og Wilson. Bryan, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefir nú hafið and- róður gegn stefnu Wilson-stjórn- arinnar í landvarnarmálum. Má Bryan ekki heyra það nefnt að Bandaríkin auki her og flota. Hér með auglýsist, að öllum er bannað taka sand í Skóla- vörðuholtinu. Bœjarstjórnin mun sjálf láta taka þar upp steypusand og verður hann seldar að svo miklu leyti, sem bærinn þarf ekki sjálf- ur á honum að halda. Borgarstjórinn í Reykjavík, 20. nóv. 1915. Simseti. í landareign jarðarinnar Eiðis í Seltjarn- j arneshreppi er öllum b ö n n u ð nema þeim, sem fá leyfi ábúanda jarðarinnar Borgarstjórinn í Reykjavík, 20. nóv. 1915. y. Z»\msew. Kaíbátar í. Miðjaröaihafl þjóðverjar hafa enn á ný kom- ið kafbátum suður í Miðjarðarhaf. Gera þeir siglingum bandamanna talsvert tjón. Hafa kafbátarnir nýskeð sökt tveimur frönskum farþegaskipum og einu ensku flutningaskipi. Hefir mest borið á þeim í Njörfasundi. þar skaut þýskur kafbátur fallbyssukúlum á enskt flutningaskip. það komst undan en um 50 manns féllu á því. Nokkru áður hafði austurrískur kafbátur sökt ítölsku farþegaskipi, Ancona, skamt frá Tunis. Á skipinu voru um 420 manns, og vissu menn ekki fyrir víst hve margir komust lífs af. Af far- þegunum voru 25 Bandaríkja- menn, þar af druknuðu 20. Var búist við að deilur mundu rísa milli Bandaríkjanna og Austur- ríkis út af druknun þessara manna eins og í vor út af Lusi- taniu. Putnik ekki sagt af sér. Fyrir nokkru flaug sú fregn fyrir, að Putnik gamli, yfirhers- höfðingi Serba, hefði sagt af sér. Var sú frétt komin frá þýska- landi. Nú hefir sendiherra Serba í Parísarborg lýst yfir því að Put- nik hafi enn yfiherstjórn Serba ! hers. Hann hefir og lýst yfir - því að stjórnínni í Serbíu detti G-runsamur mótorbátur. í byrjun þeesa mánaöar urðu norsk varðskip vör við mótorbát, sem var á sveimi fram með strönd- um Noregs. Þótti þeim báturinn sýna þeim stöðum, sem hernaðar- þýðingu hefðu, óþarflega mikla at- hygli og gera ofmikið að því að þræða strandlengjuna. Málað var yfir nafn bátsins og för hans í óllu grunsamleg. Loks var báturinn tekinn og farið með hann til Christianssand. — Þar var það upplýst að hann héti Bar- bro og væri eign Fránckels verk- fræðings í Stockholmi. Fránckel þessi hefir nýlega verið tekinn fast- ur í Rússlandi, grunaöur um njósn- ir. Kváðust skipverjar, sem voru ! 7 talsins eiga heima í Stockhólmi, hafa leigt bátinn í skemtiferð til Niðaróss. — Var skemtiferðamönn- unum ®leyft» að fara heim aftur skemstu leið, en báturinn sendur ’’ sömu leið og hann kom. .Aftonbladet* í Stockholm segist hafa spurst fyrir um þetta ferðalag hjá ættingjum Fránckels og segi þeir, að hann hafi ætlað að fara þessa ferð sér til hressingar, eftir varðhaldið í Rússlandi, og hafi 4 sænskir stúdentar verið í för með honum. T I L M I N N IS: Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. til 11 Borgarst skrifit. í brunastöð opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op. v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M. Alm.samk.sunnd.8Va siðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1. Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúrugripasafnið opið U/a-21/, síðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vifilsstaðahæliö. Hcimsóknart'mi 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans í Kirkjustræti 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2—3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2—3. ekki í hug að semja frið fyrr en bandamenn hafi unnið fullan sigur. Nobel-verðlaunin. Vísir skýrði frá því fyrir skömmu, eftlr enskum blöðum að fresta ætti að úthluta Nobelsverð- Iaununum fyrir 1914 og 1915 til næsta árs. Mun hér hafa eitthvað verið blandað málum, því dönsk blöð frá 12. þ. m. skýra frá því að efnafræðisverðlaunin fyrir 1914 hati verið veitt próf. W. Richards við Harvard háskóla, en eðlis- fræðisverðlaunin fyrir það ár hafi próf. Magnus von Lonc í Frank- furt fengið. Vopnasmiðja brennur —o--- Þ. 10. þ. m. kviknaði í slærstu vopnaverksmiðju Betlehem stálfé- lagsins í Pensylvaníu. í verksmiðju þessari voru margra millj. dollara virði af fallbyssum og öðrum her- gögnum og skemdist eöa eyði- lagðist það alt. Menn halda að Þjóðverjar eða þeirra vinir hafi kveykt í verksmiðjunpi.1 Hergögn- in áttu öll að fara til bándamanna. Eldurinn magnaðist svo fljótt að um 800 verkamenn voru nærri því brunnir inni. Hlutabréf Islandsbanka hafa hækkað í verði undan- farna mánuði. 11. þ. m. stóðu þau í 93V2 til 95V2. Kaupendur vildu gefa 93V2 en seljend. fá 95V2.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.