Vísir - 22.11.1915, Síða 4
T
VISIR
Smásögur
um tónsnillinga,
—o—-
V.
Ómögulegir menn.
Wagner og Schumann áltu
ekki vel saman,
Þeir lýsa hvor öðrum á þessa
leið;
Wagner segir um Schumann:
»Hann er gæddur miklum tón-
snillings-gáfum — en ómöguleg-
ur maður.
Eg heimsótti hann þegar eg
fór frá París. Talaði við hann
um dvöl mína þar, um hljóm-
listar-ástandið i Frakklandi og
Þýskalandi, og um bókmentir og
stjórnmál. En hann sat stein-
þegjandi því nær heila klukku-
stund, eins og hann væri heyrn-
arlaus. Það er þreytandi að tala
þannig við sjálfan sig.
Ómögulegur maður«I
En Schumann farast þannig
orð; »Eg hefi sjaldan hitt Wag-
ner. Hann er víst maður greind-
ur og víða er hann heima. En
það veður svo mikið á honum
að hann er óþolandi til lenjdar*:.
Hljóð
úr horni.
pfcdfcafcafeafe jfcsfc Aafcateafcafc^sfcsfcateateatesfcafc^eafcafcg
fr
Reglusamur og S
H áreiðanlegur drengur »
óskast nú strax til snúninga ^
í Brauns Verzlun.
YETRAREAPPR
fyrir teipiir,
Stórt úrvaL
Sturla jónsson.
Heiðraði ritstjóril
Þér hafið sýnt það, að þér vilduð
styðja gott málefni, þar sem þér .
hafið góðfúslega tekið nokkrar rit-
gerðir frá mönnum úr hinu ný-
stofnaða »Hásetafélagi« til birtingar
og ættuð þér í framtíðinni að njóta
þess góðvilja yðar en ekki gjalda.
Vil eg svo biðja yður að lána mér
rúm fyrir þessar línur í yðar heiðr-
aða blaði.
Það hefir lengi verið vöntun á
mörgu því, sem til þjóðarheilla
hefir mátt teljast á voru kalda landi
íslandi, en ekki hefir síst verið mein
að félagsleysinu og samtakaleysinu
meðal alþýðunnar. En nú sýnist
þó eitthvað vera að rofa til á hinu
viðburðarika himinhveli framtíðar-
innar.
Hér í Reykjavík hafa nú flestar
stéttir alþýðunnar myndað félagsskap
innan sinna vébanda, sem hefir þó
að mínu áliti komið nokkru góðu
til leiðar.
Með þaö fyrir augum, hvcrsu
nauðsynlegt það er að hver stétt
manna hafi sinn samvinnufélagsskap,
var í haust stofnað Hásetafélag hér
í Reykjavík, í þeim tilgangi að
vernda réttindindi þeirrar fjölmennu
stéttar og til þess að fylgja fram
sanngjörnum kröfum til væntanlegs
samkomulags við útðerðarmenn.
Ekkert mun vera oss fjær skapi en
það að sýna nokkra ósanngirni eða
árás gegn útgerðarmönnum þessa
bæjar, en væntum að eins góðs
samkomulags og er það ekki ein-
ungis áríðandi heldur lífsnauðsyn-
legt fyrir báða málsparta. Nú stend-
ur svo einkennilega á, að afstaða
togara útgerðarmanna gagnvart
vinnuþyggendum er mjö^ mismun-
andi, sumir þeirra eiga þakkir skilið
fyrir það, að þeir hafa ótilkvaddir
borgað hásetum sínum hærra kaup
en gildir hjá öðrum stéttarbræðrum
þeirra, án þess þó að þeir virðist
standa þeim að nokkrum mun fjár-
hagslega betur að vígi. Öðru máli
er að gegna um þilskipaútgerðar-
menn; á síðasta útgerðar tímabili
var það dýrtíðin og peningaþröng-
in sem neyddi háseta til þess að
ráða sig of snemma og skuldbinda
sig til að selja þeim hálfdrættisfisk
sinn fyrir víst ákvæðisverð yfir allan
útgerðartímann. Af þessu leiðir svo
það að hásetar fengu ekki nema
rúmlega hálft verð fyrir afla sinn,
miðað við markaðsverðið sem ná-
lega altaf var stígandi hærra og
hærra, yfir allann útgerðartímann,
að enduðu úthaldi voru því geysi
miklar upphæðir — fleiri tugir
þúsunda sem þilskipaútgerðarmenn
létu með góðri samvisku renna í
sínar egin' fjárhirslur, af þeim pen-
ingum sem hásetum bar með full-
um rétti ef þeir hefðu ekki neyðst
til aö selja atvinnu sína einum eða
tveimur mánuðum áður en útgerð-
in byrjaði.
I
Þetta er þyngra en nokkum tár-
um taki, hvað útgerðarmenn nota
sér ósjálfstæði fjöldans og beita þá
háseta sfna miklum rangindum sem
hjá þeim hafa unnið ár eftir ár
með trúmensku og undirgefni.
Óskandi væri að hásetar yrðu for-
sjálli framvegis, og létu sig ekki
henda slíka óreiðu næsta útgerðar-
tímabil. Skaðinn ætti í þessu til-
liti að gjöra þá hyggna. Það er
ekki nema réttmætt að skútuútgerð-
armenn ábatist sem mest á þeim
hlula aflans sém þeim ber með
réttu, en þá er líka réttmætt að
hásetar fái fisk sinn borgaðan eftir
hæðsta gangverði sem gildir á þeim
tínia sem fiskurinn er aflaður. Þið
hásetar em enn eruð ekni gengnir
í Hásetafálagið komið og skrifið
uudir lög þess hið fyrsta og hefj-
um þar sameiginleg sigurför og
störfum með dugnaði og keppum
með áhuga að því takmarki að lifta
stétt vorri hærra og hærra til dreng-
skapar og dáða. Látum ekki þá góðu
herra, sem standa oss ofar í mann-
félaginu hafa á s t æ ð u til þess aö
líta n i ð u r á stétt vora með v a n-
v i r ð i n g u og álíta aö hún sé
sem meðvitundarlaus og sálarlaus
v i n n u v é 1, sem þeir eftir eigin
geðþótta geti hagnýtt sér sem hver
önnur steindauð framleiðslutæki
nútímans. Störfum að því að ávinna
stétt vorri traust og virðingu allra
betri manna. Frjálsbornu íslend-
ingar ! burt með undirgefnistilhneyg-
inguna, burt meö þrælseðlið. Beit-
um oss fyrir voru göfuga málefni:
jöfnuði og réítindum. Trúum á
sigur hins góða.
Reykjavík 18/u 1915.
Jósef S. Húnfjörð.
Kosningar í Banda-
ríkjunum.
Kvenfólkið og Wilson biða ósigur.
Kosningar fóru fram í nokkrum
ríkjum Bandaríkjanna í Norður-
Ameríku í byrjun þessa mánaðar.
Jafnfram var greitt atkvæði um
kosningarétt kvenna. Atkvæða-
greiöslan var mjög andvíg kven-
réttindunum, t. d. höfðu andstæð-
ingar þeirra í New York 220000
atkv. meiri hluta, í MassachuSetts
110000 og í Pennsylvaniu 150000,
höfðu fylgismenn þeirra þó unnið
kappsamlega fyrir atkvæðagreiðsluna
En kosningarnar sjálfar gengu
mjög á móti Wilson forseta, er
sagt að hans fylgismenn hafi al-
staðar orðið undir, en sérstaka
eftirtekt vekur það, að þingmanns-
efni eitt í New York, sem Wilson
hafði mælt mjög eindregið með,
og áður hafði haft 6000 atkvæða
meiri hluta, féll við þessar kosn-
ingar. Eru það Þjóðverjar sem
valda þessum kosningaósigri Wil-
sons.
O M A
plöntusmjör
GLÆNYTT
gengur næst íslensku smjöri,
fæst
í Nýhöfn
HÚSNÆÐI
B a r n I a u s hjón óska eftir stofu
með geymslu og aðgangi að eld-
húsi. Afgr. v. á.
KAUPSKAPUR
Morgunkjólar, smekkleg-
astir, vænstir og ódýiastir, sömul.
langsjöl og þríhyrnur eru
ávalt til sölu í Garðastræti 4 uppi.
(Gengið upp frá Mjóstræti).
Morgunkjólar frá 5,50
7,00 fást hvergi ódýrari né betri en
í Doktorshúsinu við Vesturgötu.
Gamlar og nýjar bækur eru
teknar til sölu í Bókabúðinni á
Laugaveg 22.
G u I r ó f u r, ágætar, 7-8 tunn-
ur, til sölu. Upplýsingar á Grettis
götu 38.
T i I s ö I u nýlegur hefilbekkur
og alskonar smíðaverkfæri með
góðu verði, nokkur sett borðfætur.
Upplýsingar í Bárubúð, útbyggingu.
N o k k r i r lotteríseðlar (Det
danske Kolonial Klasse Lotteri) til
sölu, þangað til «Gullfoss» fer til
útlanda. Afgr. v. á.
VINNA
L a g t æ k u r maður óskar eftir
stöðugri atvinnu. Ekki kaupdýr.
Afgr. vísar á.