Vísir - 28.11.1915, Síða 2
V 1 51 R
VfSIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng frá
Aöalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 1-3.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Gv
oa JDurm,
gufuhreinsað, lyktariaust.
Tilbúinn Sængurfatnaður.
1
|
I
Aukafundur
bæjarsíjórrtarimtar í gær.
&s\3&t
af
Fataefniim
,er nú komið!
Guðm, Sigurðsson
Eins og skýrt var frá í blaðinu
í gær, var haldinn aukafundur í
bæjarstjórninni til að ljúka við
fjárhagsáætlunina fyrir næsta ár.
Hófst fundurinn kl. 5 síðd. og
stóðu umræður til miðnættis —
og orðaskifti urðu nokkur eftir
það um búninga lögregluþjón-
anna. Fjárhagsnefnd hafði viljað
setja það skiiyrði fjárv. til þeirra,
að þeir yrðu úr íslensku efni,
en borgarstjóri upplýsti seint á
fundinum,að það mundi ekki fáan-
legt fyr en að ófriðnum loknum.
Vildu þeir Sighv. Bj. og J, þorl.
eígi að síður halda fast við skil-
yrðið, en Sv. B. og Ben. Sv.
töldu meira um það vert að fá
nýja búninga heldur en úr hverju
efni þeir væru, og varð meiri hl.
bæjarstjórnarinnar á sama máli.
Aðal deiluefni fundarins var það,
hvort fjölga ætti föstum kennur-
um barnaskólans og fækka þá
stundakennurum að sama skapi.
Mikið fjárspursmál var hér ekki
um að ræða, að eins 1400 króna j
hækkun á launum á ári, þ. e. I
byrjunarlaunum. En fjárhagsn. \
(Sighv. Bj. og J. þorl.) vildu ekki í
að hreyft væri að þessu leytivið !
fyrirkomulaginu á skólanum, fyr ;
en skólanefnd legði fram tillögur
sínar um gagngerðar breytingará
öllu fyrirkomulagínu. Benti Sighv.
Bj. á að nefnd hefði verið skip-
uð árið 1912 til að athuga skóla-
fyrirkomulagið; hefði hún lagt
fram rækilegt nefndarálit árið 1913
og gert nokkrar breytingartillög-
ur, en eftir þeim hefði lítt verið
farið. Af þessum og ýmsum
fleiri ástæðum gæti hann ekki#*
greitt atkvæði með tillögum um
fjölgun föstu kennaranna, þó hann
gæti fyllilega tekið undir það, að
bæjarmenn ættu að láta sér ant
um skólann og sér væri ekki
síður ant um hann en öðrum bæj-
arfulltrúum. Af ýmsum ástæðum
væri óhentugt að gera þessar
breytingar á miðju skólaári og út-
gjöldin til skólans orðin svo mtk-
il, að ekki væri á bætandi. Bað-
áhöld vildi hann veita fé til að
kaupa handa skólanum og kvað
fjárhagsnefnd mundu hafa faliist
á það, ef sú tillaga hefði legið
fyrir henni frá skólanefnd.
Magnús Helgason og Sig- Jóns-
son fullyrtu að tillögum nefndar-
innar frá 1912 væri framfylgt að
svo miklu leyti sem unt væri og
færðu ýms rök að því. En að
sumu leyti væri það ekki unt,
nema því að eins að föstum kenn-
urum væri fjölgað og skólahúsið
stækkað. Sagði sira M. að ekki
yrði skólinn bættur með því einu,
að mönnum væri ant um hann,
ef ekkert væri gert fyrir hanri.
Skólinn kostaði mikið, en væri
þó ódýrasti skólinn á Norður-
löndum. í bæjum í Noregi kost-
uðu barnaskólar 71 krónu fyrir
hvert barn, en hér gætu menn
reiknað það út.
þann reikning hafði Sigurður
Jónsson á reiðum höndum. Upp-
lýsti hann að skólinn hér í Rvík
kostaði tæpar 48 krónur á barn,
í Hafnarfirði kostaði barnaskól-
inn kr. 50.98, á ísaf. kt. 53.86,
Akureyri kr. 58.95 og á Seyðisf.
kr. 62.12. Ennfremur gerði hann
all-nákvæma grein fyrir því.hvað
ætla mætti að fjölskyldumenn hér
í bænum þyrftu til að lifa á um
árið. Tók hann til dæmis 5
manna heimili (2 börn), mundi
það varla komast af með minna
en 1822 krónur til þess allra
nauðsynlegasta. Sundurliðaði hann
þessa áætlun þannig:
Fæði kr. 773.
Föt — 310.
Ljós og hita — 124.
Vinnu — 93.
Til þvotta — 19.
Lækningar — 53.
Húsgögn (viðhald) — 40.
Bækur og ritföng — 50.
Opinber gjöld — 60.
Húsaleiga — 300.
og bygði þetta á reynslu að mestu
leyti. Af þessu mætti sjá, að ekki
væri það ástæðulaust, að bæta
eitthvað kjör þeirra kennara sem
ekki hefðu nema 1000—1200 kr.
laun, eða þar undir, því að yfir
sumarið gætu þeir ekki unnið sér
meira inn en 3—4 hundruð í
mesta lagi. það sem á vantaði
yrðu þeir því að vinna sér inn í
frístundum sínum að vetrinum til
og slíta sér þannig út utan skól-
ans.
Jón þorláksson benti á,
að með því að samþykkja dýr-
tíðaruppbót handa kennurum skól-
ans, bæði föstum kennurum og
stundakennurum, hefði bæjar-
stjórnin fullnægt réttmætum kröf-
um um umbætur á launakjörum
þessara starfsmanna sinna. Heiði
bæjarstj. vafalaust farið þar feti
lengra en landstjórn mundi hafa
gert. Áleit að skólanum væri á
bótavant í fleiru en því sem nefndin
frá 1912 hefði gerttill. um. Með
nefndaráliti þeirrar nefndar væri
prentað bréf frá fræðslumálastjóra,
þar sem drepið væri á eitt atriði,
sem sér virtist vera aðalatriðið
sem umbóta þyrfti, nfl. of mikið
bóklegt nám væri lagt á börnin.
Kæmi jafnvel fyrir að taka yrði
börn úr skóianum af þessum á-
stæðum, þau þyldu þetta ekki og
yrðu veik. það væri upplýst að
skólanefnd hefði með höndum
tillögur um breytingar á skóla-
fyrirkomulaginu. í sambandi við
þær breytingatill. hefði öllum
stundakennurum verið sagt upp
starfinu í vor, þó þeim nú hafi
verið veitt það aftur. Formaður
skólanefndar hefði upplýst, að
riefndinni hefði ekki unnist tími
til þess að ganga frá tillögum sín-
um til þessa. — Vildi bíða eftir
þessum tillögum, eina ráðið til
að knýja fram breytingar á fyrir-
komulagi skólans, sem bæjarstj.
teldi nauðsynlegar væri að neita
um frekari fjárveitingar. Kvaðst
mundu hafa haft samviskubit af
því að vera á móti þessum tíll-
ögum um fjölgun fastra kennara,
ef hann hefði álitið þær vera til
bóta, en hann teldi þess litla von
að svo væri. Af tillögum þeim
sem skólan. heiði með höndum
væri þessi eina, sem fram hefði
komið e. t. v. sú ónauðsynlegasta.
T. d. hefði hún ekki komið fram
með tillöguna um böðin til fjár-
hagsnefndar, annars mundi nefnd-
in hafa tekið hana upp. — Helst
væri svo að skilja á umræðum
um þetta mál, sem eiginlega þurfi
engra umbótá á skólafyrirkomul.
það væri þá helst það, að finna
ráð til þess að börn væru iæs,
er þau kæmu í skólann. — En
ekki hefði skólanefnd heldur
T I L MINMIS:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst.skrifií. í brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-3
og 4-73
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. sanik. sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið l1/,-21/, síðd.
Pósthúsiö opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 12!
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud,
kl. 12—1.
Eyrna- nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2-3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2 3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
komið með neina tillögu í þá átt.
Um aðalgallann á skólanum, að
börnum væri ætlað óhæfilega
mikið bóklegt nám frá einum degi
til annars, væri ekkert rætt. —
Vildi leggja mesta áherslu á lík-
amlega framför barna á skóla-
skyldualdri og siðgæðis þroska
— minni á bóklegt nám.
Borgarstj. áleitfjölgun fastra
kennara nauðsynlega, en sér væri
það ekki kappsmál að hún kæm-
ist þegar í framkvæmd. Flestar
ræður hefðu fallið í þá átt, að
telja þessa fjölgun nauðsynlega;
skólanefnd mætti því vel við una.
Tillögur sínar um endurbætur
mundi hún geta komið fram með
fyrir byrjun næsta skólaárs, og
þá mætti fjölga fasta-kennurum,
samkv. tillögum Sig. Jónssonar,
þvi af því mundi ekki leiða nein
aukin útgjöld á þvi ári. Kvaðst
álíta rétt að fækka kenslustundum,
en því hefði ekki orðið komið
við að neinum mun enn; vonaði
að hægt yrði að gera einhverjar
skynsamar tillögur í þá átt.
Skólanefnd hefði ekki þorað að
koma með tiil. um böð í skólann
um leið og till. um fjölgun fastra
kennara, talið þá breytingu nauð-
synlegri.
Ennfr. töluðu um þetta mál þau
Sig. Jónsson (aftur) og Bríet. —
Kvað Sigurður líklegra, að veik-
indi skólabarna stöfuðu af þrengsl-
um í skólanum en af of miklu
bóklegu námi. Fyr meir hefði
ekki borið á því, að börn þyldu
ekki skólavistina og hetði þó
bóklega námið verið meira þá í
öllum skólanum. En nú þyrfti
að tví og þríhlaða í kenslustof-
urnar á dag og það vissu allir ab
væri óholt.
En svo lauk þessu máli að
tillögurnar um fjölgun fastra kenn-
ara voru feldar með 9 : 3 og
9 : 4 atkv., en baðáhöldin sam-
þykt í einu hljóði.