Vísir - 10.12.1915, Blaðsíða 3

Vísir - 10.12.1915, Blaðsíða 3
VÍSiR £>vefcV\% S&n\tas tjújjengg s\hon og úampeoin S'\m\ \96 STÍGT? í! L. Togara-, mótorbáta-, land- og verk- mannastígvé! fyrirliggjandi. Einnig smíðuð stfgvél úr Boxcalv og Chévraux eftir pöntunum. Friðrik P, Welding. Vesturgötu 34. Þrír mótorbátar í ágætu standi, eru til sölu strax. Upplýsingar gefur fyctetv&wf ^ctetvðtsson, Laugavegi 56. 3^\tvtu út a? vet\a. Sturla fónsson. 3 3fuUi\»eitslutv £oJts & ^étwts fæst nú ávalt hin alkunna Sætsaft frá Sanítas. Bóka- og pappírsverslun og bókbandsvinnustofu hefi eg sett á stofn í Kirkjustrætl 10 (húsi Kristj. Þorgríms- sonar). Sími 556. Hefi til sölu: Allar fslenskar bækur, Sænskar bækur, Pappír og ritföng, Pergament, Islendingasögur og fleiri bœkur í bandí. Munið eftir bókahorninu við Austurvöll I ÁRSÆLL ÁRN'ASON;. Fundur í Kaupmannafélaginu laugardaginn 11. des. kl. 71/, síðd. í Bárubúð uppi. S T J Ó R N IN. stott útval tv^ottvvS, Sfurla fönsson. Mótorbátar il sölu nú þegar með öllu til- búnu til fiskiveiða. Beitusíld með- Cigarettur mest úrval í fylgjandi ef óskað er. Afgreiðslan vísar á. S^tvúÆ au^suvgat Uttvatvle^a. Úrskurður hjartans Eftir Charles Garvice. Frh. »Og vér endurtökum það, sem fulltrúi krúnunnar tók fram, að oss þykir fyrir að ákæran hefir komið fram á hendur yður.« Ralph hneigði sig. »Eg þakka yöur, lávarðurc, mælti hann lágt en greinilega. Svo varð honum lit- ið til Veroniku. Orð hans höfðu dáið í ópum múgsins, er ekkert skeytti um að- finslur Iögreglunnar, en fært sigað Ralph með útréttum höndum. Einn eða tveir af þeim næstu gripn í handleggi hans. Og áður en að var hægt að gera, höfðu þeir lyft honum upp á axlir sér og báru hann út úr húsinu. Þar var tekið við honum með óstöðvandi gleðiópum af þeim, er ekki höfðu náð inngöngu. Vagninn frá Lynne stóð nálægt dyrum dóm- aranna og mennirnir — það voru konur á meöal þeirra — sem báru Ralph, Iétu hann í vagninn. Múg- urinn flyktist svo umhverfis hann, Iyftu höfuðfötunum og æptu sigri- hrósandi. Enginn vafi er á því, að sumir þeirra gleymdu ekki, að hann var ekki lengur Ralph Farrington skógarvörðurinn, „einn af oss“ eins og þeir komust að orði, en vissu, að lausn hans var merki um sig- urför hans í mannfélagsskipuninni. Önnur ástæða fyrir hinum miklu gleði’álum þeirra hefir óefað verið sú, að Ralph hafði verið uppáhald allra — nema veiðiþjófanna — og að hann var orðinn áður en ákæran kom fram á hendurhonum alkunn hetja fyrir að hafa bjargað Ödu. »Eg þakka ykkur, eg þakka ykk- ur«, mælti hann. »Eg er eins glaö- ur og þið yfir því, að vera hreins- aður af ákærunni.« »Hreinsaöur, eg held nú vel það*, mælti einhver í hópnum. »En þaö hefði farið laglega, et hinir tveir hefðu ekki fengið maklegmálagjöld.* Menn veittu því eftirtekt, að orð- in höfðu ekki verið hugsuð, því að þau mintu á þann raunveruleika, að frændi Ralphs, bróðursonur gamla mannsins, er var að koma að í þessum svifum, lá á Iíkbörunum heima á Lynne Court. Það datt því alt í dúnalogn eins skyndilega eins og þegar mylnu- hjól staönar. Hönd hafði verið rétt út að ofan til þess aö hrífa Ralph úr þeirri dauöans hættu, er hann var staddur í, en hún hafði látið hræðilega refsingu dynja yfir þann seka. Menn gáfu jariinum og Veroniku rúm og stóðu svo hljóðír. Ralph stökk út úr vagninum og þrýsti föður sínum í faðmi sér og þeir horfðust í augu, sem snöggvast. Svo tók Ralph hönd Veroniku og Iyfti henni að vörum sér. Við þetta hófst aftur hrifningin meðal múgsins og samúöar- og fagnaðaróp bárust frá manni til manns. Ralph hjálpaði jariinum og Veroniku upp í vagninn — jarl- inn stóð teinréttur, fyrirmanniegur og giaður á svip og hélt uppi hendinni. Það voru margir er báru ekki neitt góðan hug tii Lynbo- rough iávarðar. Hann hafði verið harður, ef ekki óréttlátur iandsdrott- inn. Hann hafði aldrei sýnt land- setum sínum minstu góðvild, né gestinum er að garði bar. Hann hatði lifað ömurlegu einverulífi. En er múgurinn starði á hann á þess- ari stundu var hver einasti þeirra sannfærður um, að hann var orð* inn — breyttur. Harðneskjusvipur- inn var orðinn þýður og augun ljómuðu af samúð. Yglibrúnin var horfin og hinar þunnu varir, er kuldalega hæðnisglottið hafði leikið um, bærðust nú af geðshræringu. Þær bærðust eins og hann ætlaði að tala, en orðin heyrðust ekki. Að lokum heyrðu þeir, sem næstir honum stóðu hann mæia þessum orðum: »Vinir mínir — þakkið guði með mér — sonur minn var týnd- ur en er nú fundinn. Sonur minn — minn ástkæri sonur.« Um leið og liann snéri sér við, til þess að hylja tárin, greip hann um hönd Ralps og hélt henni fast og lengi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.