Vísir - 03.03.1916, Side 1
Utgefandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400.
Skrifstofa og|
afgreiðsla í
Hótel Isiand
SÍMI 400.
6. árg.
Föstudaginn 3. mars 1916.
I. O. O- F. 97339 -
f Gamla Bíó {
Hver var Robin?
D.æmalaust spennandi leynilög-
regluleikur í 3 þáttum og
100 atriðum
um hinar árangurslausutilraun-
ir leynilögr.þjónsins Mac Fields
til að handsama hinn dular-
fulla stórbófakonung, Robin.
Aðgm. kosta: 50, 30 og 10 aur.
jgisæeaiimBasœBaisaagBí
Leíkfélag Reykjavíkur.
Laugardaginn 4. mars.
Tengdapabbi.
Sjónleikur í 4 þáttum
eftir
Gustaf af Geijerstam.
Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað
fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er,
annars verða þeir
þegar seldir öðrum.
2 hiis
til sölu.
Afgr. v. á.
U. M. F. Iðunn,
Fundur í kveld kl. 9
í BÁRUNNI.
Fjölbreytt dagskrá.
Kornið heldur fyrir kl. 9. því fund-
urinn verður settur stundvíslega.
Stjórnln
ffr loftinu.
Á svörtu töflunni. Bretakonungur hefir gefið út auglýsingu um j
viðskiftabann við tiltekna menn af ættum óvinaþjóða, sem eiga heima í
hlutlausum löndum, eða menn sem átt hafa skifti við óvinaþjóðir. Hefir
stjornin gefið út skrá yfir þessa menn, og eru á henni firma í Hollandi,
50 kaupmenn í Svíþjóð og 25 í Grikklandi.
Búigarar. Frá Balkan koma stöðugt fregnir um, að búlgarskir
hermenn gerist liðhlaupar. Kvarta þeir sáran yfir matvælaskorti sinna
manua og hverskonar vandræðum. Hestar þeirra falla úr hor hrönnum
saman.
i
Verdun. Frekkar tilkynna aö skothríðin fyrir norðan Verdun haf
verið dálítið vægari í gær en áður. Franska blaðið Petit Parisin telur
mannljón Pjóðverja í þessu síðasta áhlaupi 150000 manns.
Blöð Þjóðveria eru sögð dauf í dálkinn yfir því hve árásin á Ver-
dun tókst illa. En Frakkar eru vonbetri um sigur að lokum.
í opinberum fréttum frá Þjóöverjum er gert gys að Frökkum fyrir
mat þeirra á manntjóninu. Segjast Þjóðverjar ekki hafa mist nærri því
eins marga menn og bandamenn haldi, og að Frakkar hafi mist að
minsta kosti jafnmarga menn og Þjóðverjar.
Lofthernaður. Zeppelins-loftskip komu til Englandsstrandar norð-
arlega 1. þ. m., en unnu Bretum ekkert hernaðarlegt tjón. Þjóðverjar
segjast hafa skotið niður þrjár óvinaflugvelar á vestur-vígstöðvunum í
fyrradag, og Rússar segjast hafa orðið fyrir heimsókn flugvéla hjá Fried-
richsstadt og Dwinsk.
Dagens Nyheter segja að þýskir kafbátar hafi sökt eða skotið
tundurskeyturo sænsk skip, samtals um 50 þús. smál. og drepið 158
menn.
Vopnuð kaupför. Wilson forseti hefir beðið þingið að taka
ályktun um hvort Bandaríkjaþegnar skuli varaðir við að ferðast með
vopnuðum kaupförum. Hann hefir hætt öllum samningum við sendi-
herra Þjóðverja, þangað til þingiö hefir lagt dóin á málið.
Þjóðverjar bíða þess með óþreyju hvernig málinu verði ráðið til
lykta í Bandaríkjunum.
Yfirlýsing Robert Cecil lávarðar, um rétt kaupskipa til að hafa vopn
til varnar, og neitun hans á því að breskum kaupförum hafi verið gefin
skipun á laun um að ráðast á þýska kafbáta að fyrrabragöi, hefir haft
mikil áhrif á afstöðu Bandaríkjanna til málsins.
Portúgal. Talið er að Þjóðverjar hafi sett Portúgalsstjórn tvo
kosti (ultimatum) út af töku þýskra skipa á höfnum í Portúgal.
Búlgaría viil frið Lausafregnir ganga suöur í Rómaborg um
það að Búlgarar hafi beðið stjórnmálamenn á Norðurlöndum um að Ieita
hófanna um friöarkosti hjá bandamönnum.
Stúlka
óskast 1-2 mánuði
á támennt heimili.
Uppi. á Laugavegi 5 (uppi).
yaupÆ MtsU
Sunnudaginn 5. mars 1916 kl. 9 síðdegis flytur
prófessor Jón Helgason
fyrirlestur í Bárubúð:
Þegar Reykjavík var fjórtán vetra.
Aðgöngumiðar á 50 aura fást í ísafoldar-bókaverslun í dag
(föstudag 3. mars) og á morgun allan daginn, svo og (ef rúm leyf-
ir) við innganginn áður en fyrirlesturinn byrjar.
Húsið verður opnað kl. 87* síðd.
62. tbl.
Nýja Bíó
Alþýðukonan
Leikrit í 3 þáttum leikið af
þýskum leikendum.
þetta er ekki sama mynd-
in og hér hefir áður veríð
sýnd með þessu nafni.
Ijarðarför minnar hjart-
kæru eiginkonu, Valgerðar
Jónsdóttur, er ákveðin á
laugardaginn 4. mars. Hefst
með húskveðju kl. 11 f. h. en
ekki 11 eins og áður var
auglýst, frá heimili okkar
Skólavörðustíg 26.
þórður þorsíeinsson.
Alúðarþakkir til allra hinna mörgu,
er mér hafa auösýnt hluttekningu i
sjúkdómi og við jarðarför minnar
kæru móður, Ida Anette Nielsen.
Inger Östlund.
Afmæli á morgun:
Árni Vigfússon.
Ásgr. Jónsson, málari.
Björn B. Guðmnndsson, námsm.
Geir Thorsteinsson, framkvstj.
Jón Jónsson, prent.
Sesselja Sveinsdóttir, húsfr.
Afmæli í dag:
Ámundi Árnason, kaupm.
Jón Þorláksson, verkfr.
Þórarinn Benediktsson, aiþm.
Gunnfríður Rögnvaldsdóttir, húsfr.
Ólöf Sigurðardóttir, ungfr.
Afmæliskort með íslensk-
um erindum fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúsinu.
Guðm. Hlíðdal,
verkfræðingur, fór með björg-
unarskipinu Geir ásamt þeim For-
berg og Smith til að rannsaka síma-
slitin.
Bragi
kom frá Englandi í gær og hafði
póstflutning meðferðis. Hafði selt
afla fyrir 1300 sterl. pund.
(Frh, á 4. síðu).