Vísir - 18.03.1916, Page 1
Utgefandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400
Skrifstofa og
afgreiðsia í
Hótel ísland
SÍMI 400
6. árg.
Laugardaginn 18, marz 1916.
77. tbl.
Gamla Bíó
Harmasaga
ástarinnar.
Sú besta mynd sem
Henny Porten
hefir leikið í,
verður sýnd í síðasta
sinn í kveld.
Pað er mynd sem allir ættu
að sjá.
Innilegt þakklæti til allra fyrir
auðsýnda hluttekningu við jarðarför
frú Guðrúnar P. Johnsen frá Arnar-
bæli.
Börn og tengdabörn hinnar látnu.
0^ I.O.G.T.
Umdæmisþingið
1916.
Fundur í G.-T.-húsinu í
Reykjavík mánudagiun 20.
marz kl. 8V2 síðdegis.
i
Jóliannes Einarson
skipstjóri.
F. 1. janúar, 1876. D. 4. marz. 1916.
(Kveðja frá Olafi skipstj. Olafssyni.)
Þú varst sá vinur, seni vildir
mig verja í stríði;
heilsteypta hugsun og anda,
og hjartað þitt prúða,
man eg á meðan eg lifi,
og minningu þinni,
helga’ eg nú hlýjustu þakkir,
í hrynjandi tárum. —
Senn kemur vorið úr suðri
með sólgeisla-kranzinn,
þá breiöa sig litfögru blómin
um brekkur og hæðir. —,
Leggja vildi’ eg liljur og rósir
á leiði þitt, vinur, —
en sárbitrar saknaðar-örvar
særa mitt hjarta. P. P.
KIRK JU-CONCER T
Páis Isólfssonar
verður endurtekinn í dómkirkjunni sunnudaginn 19. marz 1916, kl.
7 síðdegis — Hr. Pétur Halidórsson aðstoðar.
Aðgöngumiðar verða seldir í bókaverzlunum ísaf. og Sigf. Eymunds-
sonar í dag og í Goodtemplarahúsinu á sunnud. frá 10—12 og 2—5
og kosta 50 aura. — Kirkjan opnuð kl. 6Va.
Þjóðin og einstaklingurinn
Fyrirlestur um þetta efni flytur Sig. P. Johnson í Bárubúð
sunnudaginn 19. þ. m. kl. 5 e. h.
Aðgöngumiðar á 25 aura fást í bókaverzlun ísafoldar í dag
og við innganginn.
Aðalfundur
Fríksrkjusafnaðarins í Reykjavík
verður haldinn í Fríkirkjunni sunnudaginn
19. þ. m. ki. 5 síðd.
Aríðandi er að sem flestir mætil
Stjórnin
Simskeyti
frá fréttaritara Vísis
Bæjaríróttir
• Khöfn 17. marz.
Hollenzka farþegaskipið Tubantia hefir verið
skotið tundurskeyti eða farist í E\orðursjónum. Af
farþegum og skipshöfn, samtals 1800 manns, tókst
að bjarga alimörgum.
Messur á morgun:
í Fríkirkj, í Hafnarfirði á hádegi,
(sr. Ól. Ól.)
í Dómkirkj. í Rvík á hád. sr.
Bjarni Jónsson. Síðd. (kl. 5) sr.
Jóh. Þorkelsson.
Messufall.
Ekki messað á morgun i Frí-
kirkjunni í Rvík vegna safnaöar-
fundar.
Skemtun
halda ungmennafélögin íTempl-
arahúsinu annaðkvöld (smbr. augl.
hér í blaðinu í gær). Ýmislegt ný-
stárlegt kvað vera þar á dagskrá.
En því miður fá engir þar að
koma, nema þeir, sem eru í ung-
mennafél. einhvers staöar á landinu.
Afmæli í dag:
Erl. Erlendsson, kaupm.
Jón Ásbjöinsson, yfirdómslögm.
Katrín Eyjólfsd., húsfr.
Sveinn Hallgrímsson, bankagj.k.
Guðríður Jóhannesdóttir. *
Eyþóra B. Ásgrímsdóttir ungfrú.
Afmæli á morgun:
J. Aal Hansen, kaupm.
Kristófer Sigurösson, járnsm.
Steinunn Bjarnason, húsfr.
Afmæliskort með íslensk-
um erindum fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúsinu.
Mýja Bíó
farð-
skjálftinn.
Síðasta sinn í kvöld
Leikfélag Reykjavíkur
Ekki
leikiðí kveld
og vegna þess aö óvíst er að
Tengdapabbi verði leikinn oft-
ar, eru þeir sem keyptu að-
göngumiða tii fimtudagsins
beðnir að vitja andvirðis þeirra
í Iðnó í dag.
Þjlskipin.
Hafstein og Milly, (eign Duus-
verzl.) komu inn í fyrrad. meö góð-
an afla. Hafstein með 14 þús. og
Milly með 13.
Og 4 af skipum Duusverzlunar
komu inn í gær með ágætan afla:
Keflavík með 13 þús., Seagull með
14,500, Sigurfari með 11 og Sæ-
borg með 18 þús.
Botnvörpungarnir
Njörður og Snorri goði komu
inn í fyrrad. fullir af fiski.
r. Nýr sótari
|l
Frá 1. apríl næstk. verður Sig-
urður Halldórsson Njálsg. 49 sótari
hér í bænum í stað Magnúsar
Magnússonar, sem orðið hefir að
láta af þeim starfa söknm vanheilsu.
Fátækrahúsnæði.
Samþ. var á síðasta bæjarstjórn-
arfundi að fela borgarstjóra að
kaupa húseignina Bjarnaborg fyrir
þurfalinga bæjarins, ef hún fengist
fyrir 38 þús. krónur.
Skipafregnir
B o t n í a kom hingað í morg-
un frá útl.
I s I a n d kom til ísafj. í gærkv.
um 7-leytiö.