Vísir - 13.04.1916, Síða 4
v rs'i r
Hitt og þetta
Rottur
gera oft mikinn usla í appelsínu-
göröum á Ítalíu, þær klifra upp í
tré og naga ávextina. Á þann hátt
eyðileggjast árlega margra þúsunda
króna virði af appelsínum.
Stór jörð.
Stærsta bújörð sem þekkist er í
Mexíkó. Hún er 25 danskar mílur
frá norðri til suðurs og 34 mílur
frá austri ttl vesturs. Á jörð þessari
er framfleytt miljón nautgripa, 700
þús. fjár og 100 þúsundum hesta.
Brauðverð lækkar.
Um síðastl. mánaðamót lækk-
uðu bakarar í London brauðverð
um V2 penny eða frá 91/2 pence
ofen í 9 pence og var gert ráð
fyrir að þau mundu lækka bráð-
lega um V2 penny í viðbót.
Soldán
gerður að marskálk.
Mackensen hershöfðingi hefir
nýlega verið sendur til Mikla-
garðs. Átti hann að færa Tyrkja
soldán marskálksstaf frá þýzka-
landskeisara.
Glæfraför.
Eftirfarandi saga hefir nýlega verið
birt í ensku blaði og er hún tekin
úrrússneska blaðinu Russkoye Slovo.
í her Rússa eru tveir bræður,
Yusik og Yosik, eru þeir rússneskir
í aöra ættina, en pólskir f hina.
Sveit sú sem þeir voru í lá í skot-
gröfum hjá Pripetflóunum. Dag
nokkurn varð eldra bróðurnum ein-
hver skissa á og var honum stefnt
fyrir herrétt næsta dag. Um morg-
uninn voru báðir bræðurnir horfnir
úr skotgröfunum. Höfðu þeir skilið
eftir kúiubyssur sínar en haft loð-
kufla sína með sér.
Þrem nóttum síðar komu bræð-
urnir aftur til skotgrafanna og beidd-
ust þess að þeim yröi fylgt til yfir-
foringjans svo þeir gætu skýrt frá
hversvegna þeir hefðu horfið. Með-
an bræöurnir voru burtu heyrðu
Rússar miklar sprengingar bak við
herlínu Þjóðverja og næsta morgun
sáu flugmenn Rússa að á einum
stað hafði komið upp eldur og að
þýzk flutningalest hafði sprungið í
loft upp.
Jbaxvxv.
'y.évxxvel ev evuuxxv séx^vvjex^um
^vavlveQ.a feawxval lo8u
o^ ^Desh\x-JtasVuxéa1i&a^\ús-
evguaxvuuav ^véx \ ^aeuuxu og oexBa \»eu
ev á xuoU ^xeUa tajaxtaust ^éíUx a% Tó^uxu.
Rvík 12. apríl 1916.
Oddur Gíslason.
Bræðurnir voru leiddir fyrir yfir-
foringja hersveitarinnar. Hann skip-
aði að setja þá f varðhald og gaf
þeim að sök að þeir væru liðhiaupar.
Foringjanum varð því orðfall er
bræðurnir skýrðu honum frá aö
þeir hefðu sprengt í Joft upp skot-
færaforðabúr Þjóðverja tveim nóttum
áður, Komu þeir með fjöl úr hurð-
inni til sannindamerkis. Var skrifaö
á fjölina á þýzku: »Oeymsluklefi
nr. 66 P — 6 MK.«
En því fóruð þið leyfislaust úr
ykkar staö, spurði foringinn. Yosik
skýrði honum frá að liann heíði
verið hræddur um að herrétturinn
mundi dæma sig í þunga refsingu
fyrir yfirsjón þá sem sér hefði orðið
á og kvaðst því hafa viljað gera
eitthvað til þess að fá fyriigefningu
hersveitarforingjans. Hann nefndi
þessa ráðagerð við hersveitarforingj-
ans. Hann nefndi þessa ráðagerð
viö bróður sinnn og réði hann það
með sér að fara líka, því annars,
eins og hann sagði, mun mér verða
hegnt fyrir að lofa þér að sleppa.
Síðan skýrðu þeir frá hvað þeir
heföu ratað í. Þegar þeir koiriu
úr skotgröfunnm, skriðu þeir í
myrkrinu inn í þéttan skóg, sem
þar var nærri og komust þar í
gegnum herlínu Þjóðverja, án þess
þeirra yrði vart. Þegar birta tók
voru þeir komnir út í skógarjaöar-
inn hinumegin og sáu þar skamt
á brott smáhóla, sem þeim þóttu
grunsamlegir.
V Þeir komust að raun um að í
hólum þessum voru geymdar mikl-
ar skotfærabirgðar sem Þjóðverjar
áttu, enda var þar maður stöðugt
á verði.
Þeir leyndust í skógarjaðrinum
um daginn, en þegar dimma tók,
skriðu þeir til hólanna, og er þeir
sáu sér færi á, réðust þeir á varð-
manninn og drápu hann, án þess
aö hann gæti gjört öðrum aðvart.
Yosik sá hurð á einum hólnum
og var hún ramlega læst, en þeim
tókst að sprengja hana upp með
byssustyngjum varðmannsins, Þeg-
ar inn kom, tóku þeir að þreifa
fyrir sér, og vildi þá svo vel til,
að annar þeirra da!t um Ijósker.
Síðan kveiktu þeir á Ijóskerinu og
sáu þá að í hóinum voru geymd
feyknin öll af fallbvssukúlum og
púðri.
Síðan opnuðu þeir kassa og
helíu oiíu úr ljóskerinu « þá og
kveiktu síðan eld í spítnarusli.
Lögðu síðan þráð, vættan í olíu,
frá eldinum til púðurkassanna og
hlupii síðan sem fætur toguðu til
skógarins.
Þegar þeir höfðu skamt farið,
heyrðu þeir hræðilega sprengingu
og virtist sem jörðinni væri kippt
undan fótum þeirra, og í sam bili
varð önnur sprenging hálfu meiri
en sú fyrsta. Kváðust bræðurnir
ekki geta lýst henni, því þeir hefðu
fallið í öngvit.
Þegar þeir röknuðu úr rotinu,
lágu þeir í lítilli gjá og skriðu
þaðan inn í skóginn.
í dögun hittu þeir fyrir bóndabæ
í skóginum og þar fengu þeir að
vera um daginn. Faldi bóndi þá
úti á skemmulofti. Um nóttina tókst
þeim að komast fram hjá varð-
mönnum Þjóðverja, skall þó oft
hurö nærri hælum að þeir yrðu
teknir höndum.
Þegar bræðurnir höfðu sagl sögu
sína. báðu þeir foringjann að gera j
alt sem í hans valdi sfæði til þess j
að þeím yrði fyrirgefið. Saga þeirra
reýndist rétt. Kom alt það sem
þeir höfðu sagt vel heim við það,
sem njósnarmenn og flugmenn Rússa
höfðu séð, auk þess sem borðiö úr
hurðinni sýndi hvar þeir höfðu verið.
Rættist nú betur úr fyrir bræðrun-
um en þeir höfðu búist við, því
þeir voru báðir sæmdir St. Georgs
! krossinum.
Dreng
vantar til sendiferða.
LUDVIG ANDERSEN,
Kirkjustr. 10.
"JCaupi? \ 5 v.
Tvær kaupakonur óskast á góð
sveiíaheimili. Uppl. á Vesturgötu
35. [140
Divan eða beddi óskast til leigu
þangað til í vor. A. v. á. [134
Divan eð sofi óskast yfir sumar-
tímann. A. V. á. [168
Fæði fæst í Ingólfsstr. 4. [8
Eitt herbergi til leigu frá 14. maí
fyrir einhleypa. Forstofuinngangur.
Húsgögn og ræsting ef óskað er.
Rétt við miðbæinn. A. v. á. [154
2—3 herbergi og eldhús óskast
frá 14. maí fyrir barnlaust fólk,
heizt í Vesturbænum. A. v. á. [160
£ Eg óska eflir að fá ieigð 2—3
herbergi ásamt eldhúsi og geymslu,
í má líka vera heil tasía, húsaleigan
borguð fyrirfram ef óskað er.
Ingvar E. Einarsson, stýrimaður,
Uppl. á Frakkastíg 14. [167
KAUPSKAPUR
Morgunkjólar smekklegastir, vænst-
ir og ódýrastir, sömuleiðisiangsjöl og
þríhyrnur eruávalt til söíu íGarða-
stræti 4 uppi. (Gengið upp irá
Mjóstræti 4). [1
Komiö og skoðið svumur og
morgunkjólana í Doktorshúsinu Vest-
urgötu. [68
Morgunkjólar úr góðu vaskataui
fást á Vesturgötu 38 niðri. [97
1 kvenhjól og 1 karlm. eru til
sölu. A. v. á. [136
Ódýr barnavagga fæst á Grettis-
götu 44 A uppi, austurenda. [162
Sófi eða Divan óskast til kaups
eða leigu. A. v. á. [163
Ný egg fást daglega á Grettisgötu
56 B. [164
Fermingarkjóll með hálfvirði er
til sölu á Vesiurgötu 17. Ásta
j Sigurðardóttir. [165
| Til sölu 4 stólar og sófi, og
j stofuborð á Bergst.str. 41. [166
HÚSMÆiI