Vísir


Vísir - 22.05.1916, Qupperneq 3

Vísir - 22.05.1916, Qupperneq 3
V I SI R Drekkið CARLSBERG Pilsner Heimsins bestu óáfengu drykkir. Fást alstaðar Aðalumboð fyrir ísland Nathan & [Oisen. Appelsínur er best að kaupa í Yersl, Yísir, Laugavegi 1 Enskt Veggfóður nýkomið með e/s Island á Laugaveg 1. y; \l y. VŒRINOJAR vinna á Melun- um í kveld frá 6V2. Ökumaðnr. Maður sem ervanur ökumensku og að fara með hesta, getur fengið vinnu nú þegar. Hátt kaupl Petersen frá Viðey Iðnskólanum. Blomstur pottar, mikið úrval nýkomið tii Jóds Hjartars.»to. Atvinna. Sjóinenn og stúlkur vanar fiskverkun geta fengið góð kjör á Austfjörðum. Langur atvinnutími og reglubundin vinna. Fríar ferðir. Gerið svo vel að tala við mig frá 6—8 síðdegis á Stýrimannastíg 5. Kristinn Jónsson. NOKKRA MEN N Há11 kaup! rœð eg til símalagningar í sumar út um land* BRYNJÓLFUR EINARSSON, Kárastöðum. Pétur Magnússon, yfirdómslögmaður, Hverfisgötu 30. Sími 533 — Heima kl. 5—6 Oddur Gíslason yflrréttarmálaflufnlngsmaður Laufásvegi 22. Venjulega heima kl. Jl-12og4- Simi 26 Bogi Brynjólfsson yflrréttarmálaflutningsmaður, Skrifstofa í Aðalstræti 6 [uppi]. Srifstofutimi frákl. 12— og 4—6 e. — Talsími 250 — Vátryggiö tafarlaust gegn eldl vörur og húsmuni hjá The Brtt- ish Dominion General Insu rance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gfslason Det kgl. octr, Brandassurance Comp. Vátryggir: Hús, húsgögn, vöru- alskonar. Skrifstofutími8-12 og -28. Austurstræti 1. N. B. Nielsen. jCaupxl VisK. Prentsmiðja Þ. Þ. Clemenlz. 1916. Barátta hjartnanna Eftir E. A. Rowlands. 36 ---- Frh. Oædd svona óvenjulega sterkri dómgreind, eins og Rósabella var, hefði hún ekki átt aö geta farið jafn vilt og hún nú fór í áliti sínu á Chestermere. Hún heföi átt að geta séð hann eins glögglega út og annað fólk, og ekki þurft að láta hégómagirnd sína leiða sig af- vega, né loka augum sínum fyrir ýmsum auðsæum sannindum. Hún hefði átt að vera miklu varkárari í því að gera lftið úr valdi slíkrar konu sem Katrínar, yfir slíkum manni sem Chestermere, allra helzt vegna þess að það var svo gagn- ólíkt því valdi, sem hún átti sjálf yfir að ráða. Hefði Rósabella verið eins og hún átti að sér að vera myndi hún hafa gert sér glögga grein fyrir ástandinu eins og það var. Hún myndi þá fljótt hafa orðið að við- urkenna hversu óvenjuiega áhrifa- mikið vald slík ást, sem Katrínar, hlaut að hafa yfir öðrum eins manni og Filipp. , Hún hefði getað gert sér grein fyrir að slík ást myndi vekja hjá honum eingöngu viðkvæma og göfugar tilfinningar, gagnstæðar því æsandi báli, sem hún — Rósabella — hetöi aðeins um stundarsakir getað kveikt í hjarta hans, en sem hlotið hefði að deyja út eins snögg- lega og það hafði kviknað. Og svo hefði hún þá auðvitað dregið hann sundur í háði. Því næst myndi hún, ef eig- ingirni hennar ekki heföi hamlað því, hætt algerlega að virða hann viðlits. En í því hugarástandi, sem hún nú var í, var hún langt frá því að vera sjálfri sér lík. Og af því hún var bæði órdleg og æst gerði hún sér þá skökku hugmynd um trúlof- un og tilvonandi giftingu Chesler- meres, að þaö væri aðeins fyrir- sláttur, og annað ekki. Hún hafði jafnan sína eigin meiningu og álit á öllu því sem fram fór. — Sóma síns vegna var hann skyldugur að giftast henni. Þessari trúlofun þeirra, frá því þau voru í barnæsku, varð ekki svo auðveld- lega kollvarpað, sérstaklega af manni af þeirri tegund, sem hann var. Þar að auki þurfti hann pening- anna hennar með, og hún þurfti að ná í nafnbótina hans. Minning- ingin um hina háu stöðu og tign Chestermeres var ekki veikasti þátt- urinn í reiði Rósabellu út af því, sem nú var að gerast. Hún hafði satt aö segja, ekki fyr en nú gert sér ljósa grein fyrir hvað mikið hún í raun og veru hafði lagt upp úr þessu. — Hann óttast mig, hélt hún áfram, í huganum,hversvegna myndi hann annars forðast mig, eins og hann gerir? Hann gat ekki slitið sig frá mér fyrsta kvöld- ið sem við mættumst, á dansleikn- um hjá frú Dorrilion. — Eða þá einn morguninn í skemtigarðinum, — Já» eg þurfti ekki annað þá en rétt að líta í átlina til hans, til þess að draga hann að mér. Rósabella brosti dauflega með sjálfri sér þegar hún rifjaði upp allar þessar endurminningar. — Jæja, það er eflaust skyn- samiega gert af honum áð forðast mig, sagði hún hægt og seint, skynsamlegt að einu, en ekki öllu leyti. Eg skal verða honurn óþægi- legur andstæðingur, eins og hann bráðlega skal fá að komast að raun um. Að þessu hnigu hugsanir Rósa- bellu daginn út og daginn inn. Hún hafði ekki hugsað að sér væri mögulegt að geta orðiö jafn sár og reiö, eða óskað svo mjög ákaft að geta komið fram hefnd. Hún bar saman, í huga sínum, hollustu Chestermeres gagnvart Kat- rínu og hollustu Ruperts gagnvart sér. Geðshræringin, sem hafði Iýst sér svo augljóslega í andliti og rödd Ruperts, þegar hún hreytti úr sér ónotunum, var lengi að jafna sig. Hann stóð upp, og reikaði, stefnulaust, um herbergið, leit á allar myndirnar, sem hann þekti svo vel, án þess að taka eftir neinni þeirra. Hann sá ekkert nema þetta fagra kuldalega andlit, sem svo kæruleys- islega snéri sér frá honum. Og honum blæddi í augum. Rósabella var eitthvað breytt, — eitthvað ööruvísi en hún átti að sér að vera. Hann hafði getið sér til að hún væri veik, og enda þótt hún hefði sett svona rækilega ofaní viö hann fyrir það, fann hann þó á sér að hún var ekki við vana- lega heilsu. En að því fráséðu, fann hann að það var eitthvað meira, — eitt- hvað sem átti sér dýpri rætur, eitt- hvaö hræðilegra máske en gamla tilfinningarleysið og sérgæðings- hátturinn, sem hafði að undanförnu veriö þröskuldurinn í vegi fyrir gæfu hans.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.