Vísir - 18.09.1916, Side 2
V ISIR
VISiR
A f g r e I ö s 1 a blaðsíns á Hótel
Island er opfn frá k!. 8—7 á hverj-
um degí,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama siað, inng., frá
Aðalstr. — Rítstjödnn ttl víðtals frá
kl. 3-4.
Sími 400,— P. O. Box 367,
Upplaujsn flokkanna.
þegar er það fréttist, hve lítil
þáttaka manna var í landskosn-
ingunum 5. f. m., þótti það aug-
ljós sönnun þess, að gömlu flokk-
arnir væru á fallanda fæti. Ög
það er mjög eðlilegt, að sú verði
raunin, á þvi um undanfarin ár
hefir það mál skift mönnum í
flokka sem ekki verður í fljótu
bragði séð, að hafi nein áhrif á
afstöþu manna til innanlandsmála.
það mál, sambandsmálið, verður
nú að líkindum um hríð lagt á
hylluna. Ekki sjáanlegt að ís-
lendingum geti orðið neinn hagur
að þvi að fitja upp á nýju þrefi
um það. — Að vísu má gera ráð
fyrir því, að fánamálinu verði
bráðlega hreyft á þingi, en nú
orðið munu skoðanir manna vera
orðnar nokkuð líkar á því svo
að varla verður gert ráð fyrir, að
það geti skift flokkum í framtíð-
inni.
Framvegis hljóta það að verða
innanlandsmálin sem skifta kjós-
endum í flokka og þá einnig
þingmönnum. Og þegar nú úr-
slit landskosninganna eru kunn
orðin, sést það glöggt, að þegar
er farið að bridda á þeirri flokka-
skiftingu.
Bæði í Heimastjórnarflokknum
og Sjálfstæðisflokknum, hafa þeir
menn verið í flokki saman, sem
sjáanlega geta enga samleið átt.
þeir eru sumir hverjir enn í flokk
saman, en lítið tímaspursmál hve-
nær leiðir þeirra hljóta að skiljast.
Við athugun á kosningu heima-
stjórnarmanna við þessar kosn-
ingar, virðist það koma berlega í
ljós, að sá flokkur geti ekki lengi
staðið óskiftur, og er hann þó
sem stendur að ytra útliti sterk-
asti flokkur landsins. Landskjörs-
listi hans hlaut flest atkvæðin,
1950 talsins. — En kosningarrétt
áttu um 24 þús. manns í landinu.
Vitanlega dettur engum í hug
að sá flokkur eigi ekki meira
fylgi í landinu, en þessi litla þátt-
taka sýnir að ■ áhuginn meðal
flokksmanna er yfirleitt mjög í
Motorbátur ca.10 smál
með 12 hesta DAN-mótor, seglum, akkeri
og keðjum og með eða án veiðarfæra
til sölu,
Bát og mótor hefir verið vel við haldið. Semja má við
METÚSALEM JÓHANNSSON,
Pingholtsstræti 15,
sem gefur allar upplýsingar.
Atvinna.
Við niðursuðu geta kvenfólk og unglingar fengið atvinnu frá
20. september til ársloka.
Menn snúi sér á Hverfisgötu 46 eða í Niðursuðuverksmiðjuna
Norðurstíg 4.
rjenun. — En annað atriði er
ekki síður upplýsandi um fram-
tíðarhorfur flokksins. það er
samheldni þeirra manna er kusu.
Efstur á listanum var sá mað-
ur, sem alment er viðurkent að
haldið hafi flokknum saman, og
talið hefir verið, vafalaust með
réttu, að notið hafi fullkomins
rtausts flokksmanna sinna. En at-
kvæðatala hans sýnir þó, að marg-
ir háttvirtir kjósendur hafa tekið
aðra menn fram yfir hann, hann
fær að eins 1852 atkvæði, og
mismunurinn á þeirri tölu og at-
kvæðafjölda listans svarar til þess
að 98 kjósendur hafi strikað yfir
nafn hans. En það er vitanlegt,
að svo margir hafa ekki strikað
yfir nafnið, og hljóta því þeim
mun fleiri að hafa flutt hann nið-
ur á listanum. Til þess að efsti
maður á lista missi eitt atkvæði
þurfa 12 menn að flytja nafn hans
niður um eitt sæti, 6 um 2, 4
um 3, 3 um 4.
Ef enginn kjósandi hetði breytt
nafnaröðinni á listanum eða strik-
að yfír nöfn, hefði
2. hlotið 1787 atkv. (hlaut 1446)
3. — 1625 — ( — 1584)
4. _ 1462 — ( — 1214)
5. — 1300 — ( — 1237)
6. — 1137 — ( — 1093)
Atkvæðavanhöld Guðmundar
Björnssonar eru þannig 341, Guð-
jóns Guðlaugssonar 41 (og græddi
hann þó auðvitað mikið á því,
hve margir hafa strikað yfir nafn
G. B.), frú Bríetar 248, Sigurjóns
Friðjónssonar 63 (fluttist þó upp
um eitt sæti) Jóns Einarssonar,
44. Atkvæðavanhöld G. B. svara
til þess að 372 menn hafi strikað
yfir nafn hans, en á því hefur
Guðjón Guðlaugsson grætt 31
atkvæði. Vanhöld Guðjóns eru
því um það bil helmingi meiri
en þau sýnast.
Me n t u n.
þessar breytingar bera vott um
mjög mikið los á flokknum, og !
um það að framkoma hvers ein-
staks af aðalmönnunum í ein-
stökum málum hafi ráðið meiru
við kosninguna en stefna flokks-
ins. — Og er þar ólíku saman
að jafna, er athuguð er kosning
B-listans, þar sem efsti maðurinn
fær einum 19 atkvæðum færra
en listinn og annar maður 61
atkv. minna en hann gat fengið
að óbreyttum listanum. Enda er
vitanlegt að sá listi var kosinn
með tilliti til eins einasta máls.
Frh. Sverrir.
„það má heita ágætt hjá hon-
um, ómentuðum manni".
Oft eru þessi orð töluð.
Og þessi:
„Hefði hann notið mentunar,
þá hefði getað orðið eitthvað úr
honum“.
Stundum er þetta síðartalda með
sanni sagt. Oftar mun það vera
sleggjudómur eins og hið fyr-
nefnda.
Eg hefi heyrt þetta svo oft og
er orðinn dauðleiður á því. Mig
langar til að segja fáein orð um
mentun, ef „Visir“ vill sýna mér
þá velvild að flytja þau.
i
Tilgangur minn er sá að breyta
þessum hugsunarhætti — ekki .
allt í einu — það er ekki hægt,
en smátt og smátt--------.
það er talsverð lítilsvirðing í
því þegar sagt er um einhvern,
að. hann sé ómentaður maður.
Eg skal gera grein fyrir hvern
skilning eg legg í orðið mentun.
því betur sem maðurinn er
mentaður, því meira veit hann um
heiminn og hluti þá sem í honum
eru og því betur þekkir hann
sjálfan sig og aðra menn.
því minna sem hann er ment-
aður, því minna veit hann um
þetta sem hér er talið.
En hver er ómentaður?
Sá sem ekkert þekkir — ekk-
ert veit.
Sem betur fer held eg, að fáir
séu svo ílla á sig komnir.
þessi sleggjudómur um ment-
unarleysi náungans er oft kveð-
inn upp af því, að margir ætla,
að til mentunar liggi engin leið
nema skólavegurinn. þeir sem
búnir eru að bíta sig mjög fast í
þá skoðun, eiga víst bágt með að
trúa mér, þegar eg segi að eg hefi
rekist á lítið mentaða menn, sem
stundað hafa skólanám mörg ár.
Eða þegar eg segi, að eg þekki
vel mentaða menn, sem ekki hafa
notið annars skólanáms en barna-
skóla og unglinga eða kvöldskóla.
En satt er það þó.
þessir menn eru oftast kallaðir
sjálfmentaðir, og það er að nokkru
leyti rétt.
Sá sem hefir hlotið mentun í
skóla, er líka að nokkru leyti
sjálfmentaður, en báðir hafa þeir
mentun sína utan að, svo mun-
urinn verður ekki mikill. Að
eins sá, að þeir hafa aflað sér
mentunarinnar með nokkuð mis-
munandi aðferð.
Eg skal játa það, að skólaleiðin
er hægari, en hin er líka vel fær.
Eg veit ekki nema þrjár aðal-
leiðir til mentunar:
1. Að hlýða á það sem aðrir
segja.
2. Að lesa það sem aðrir hafa
ritað.
3. Að athuga það sem fyrir
augu og eyru ber og gera
sér glögga grein fyrir eðli
þess og f'standi.
þessar leiðir verða þeir að fara
báðir, skólagengni og sjálfmentaði
maðurinn.
Sá skólagengni er lengra studd-
ur áleiðis og hefur meiri tíma, en
sá sem verður að vinna.
En margt getur glapið skóla-
piltinn, sem aldrei verður á leið
verkamannsins, og vinnan mentar;
ef ekki ^er unnið hugsunarlaust.
Að endingu nokkur orð um
sleggjudóminn, sem minnst er á
að ofan. Hann er t. d. mjög oft
kveðinn upp um unga rithöfunda,
sem ekki hafa gengið skólaveginn.
þó dómarinn hafi aldrei svo
mikið sem séð höfundinn, leggur
hann samt á hann þenna dóm,
að hann sé ómentaður.
Hið eina sem hann veit er það
að höfundurinn hefir ekki gengið
skólaveginn.
þess vegna erdómurinn sleggju-
dómur, og þá er betra að þegja.
/>.