Alþýðublaðið - 21.04.1928, Side 2

Alþýðublaðið - 21.04.1928, Side 2
^ MÉHH??ÐUBHASIÐ J -rj-ai • J!*iq '!«j| y '><gp| FJárlHgin. Ræða Haralds 'Guð~ mundssonar vlð síð- ustuumræðu um fjár- Iðgln í neðri deild. i fjárlagafrumvarpinu, eins og það nú kemur frá hv. ed., eru ýmsir iiðir, bæði tekju- og gjalda- megin, sem ég er ekki ánægður með. Út í það skal ég ekki fara. Við fyrri umræðu fjárlaganna og atkvæðagreiðslur uim einstaka liði hefir afstaða mín til þeirra komið í Ijós. Að eins vil ég nú taka það fram, að ég og flokksmenn mínir erum yfirleitt mótfallnir þeim aðferðum, sem aðallega eru hafðar til að afla rikissjóði tekna, þ. e. tollum á þurftar- og neyzlu- vörum almennings. Nú mun ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um fjárlögin al-. ment. Nú er gott árferði, og má gera ráð fyrir, að árið 1929 njóti góðs af því. Þvi hefði mátt ætl'a, að svo yrði nú gengið frá fjárlög- um þess árs, áð í þeim væri gert ráð fyrir all ríflegum tekjuaf- gangi. Svo er ekki. Og þó að! surnir tekjuliðirnir séu varlega á- ætlaðir, eru aðrir, sem ekki mega hærri vera. Sumir mjög veruiegir lögboðnir gjaldaliðir hafa ekki verið teknir inn í fjárlögin. Skal ég þar til nefna að eins 100 þúsj kr. framlag til sundhallar i Reykjavik. Furðar mig á, að hv. Ed. skuli eigi hafa tekið 'upp þennan lið ,eins og hún tók upp framlagið til landnámssjóðs og búfjártryggingasjóðs, sem hvort- tveggja einnig er ákveðið með lögum afgreiddum á þessu þingi. Eins og frumvarpið nú er úr garði gert, eru litlar eða engar líkur til þess, að nokkur tekju- afgangur geti orðið, nema óvænt höpp beri að höndum. Líklegra er, að halli verði á árinu, nema árferði verði því betra. Hér í háttv. deild hefir verið drepið á ýmsa hina smærri gjalda- liði; t. d. styrki til einstakra manna. Ég skal ekki deila um nauðsyn þeirra. Slíkt orkar jafnan tvímælis, einn telur þetta nauð- synlegt, annar hitt. Vil ég snúa mér að hinum stærri upphæðum. Og aðalútgjöldin eru þá til verk- legra framkvæmda, að meðtöldu því fé, sem varið er til sam- gangna á sjó og landi. Skal ég leyfa mér að lesa hér upp niokkr- ar upphæðir fjárlaganna, sem verja á í þessu skyni. Eru þær teknar úr lausu yfirliti, er ég hefi gert yfir frv. -eins og það nú liggur fyrir. Útgjöld samkv. 13. gr. eru: Til vega, og brúa 892 þús. kr. — auk fastra launa og styrkja —. Til síma 500 þús. kr. — auk alls starfrækslukostnaðar. Til vita 105 þús. kr. — sömuleiðis auk starf- rækslukostnaðar. Þar við má bæta, því, sem varið er til sam- gangna á sjó, en það eru 432 þús. kr„ að meðtöldum þeim 85 þús. kr„ sem heimilað er að greiða Eimskipafélaginu, auk þess, sem kynni að verða Iagt til byggingar og reksturs nýs strandfierðaskips. Nema þá fram- lög rlkisins til samgangnanna einna samtals- nærri 2 millj. Þar við bætast svo framlög sýslusjóð- anna, minst kr. 75 þús. Þá konia verklegar framkvæmdir samkv. 12. og 14. gr„ þ. e. til skóla og ■Sj úk rahú sabygginga, samtals 275 þús. kr. Loks má telja gjöld sam- kvæmt 16. gr„ sem eru nærri eingöngu til verklegra fram- kvæmda. í þeim felast ekki, að ög hygg, önnur starfslaun, sem greidd eru beint úr ríkissjóði, en greiðslur til matsmanna, dýralækna og erindreka og nokkrar smærri upphæðir, svo sem til erindrekst- urs. En útgjöldin samkv. þessari grein nema um 1300 þús. kr. Af þessu fara 895 þús. kr. til land- búnaðarins, 565 þús. kr. þar af er beinn styrkur til landbúnaðar- framkvæmda, sumpart styrkur til félaga og sumpart til einstak- linga samkv. jarðræktarlögunum, og 330 þús. kr. til ýmsra land- búnaðarsjóða, svo sem Bygging- ar og landnámssjóðs og Búfjár- fryggingasjóðs og Ræktunarsjóð#. "Til Fiskifél. og Fiskiveiðasjóðs fa(ra samtals að eins 76 þús. Alls telst mér til, að framlög til verk- legrai framkvæmda nemi um 3 millj. 500 þús. kr„ eða hér um bil þriðjungi. allra gjaldanna sam- kvæmt fjárlagafrumv., en þau eru áætlúð 10 millj. 850 þús. kr. Mér' dettur ekki í hug að neita nauðsyn þeirra framkvæmda, sem hér er verið að veita fé til. En við afgreiðslu fjárlaga ber að líta á tvent: Nauðsyn og getu. Mæli ég þetta einkum til þeirra manna, sem heimtuðu Verklegar fram- kvæmdir, jafnvel þó að þær yrðu að kosta tekjuhalla á fjárlögun- um. Annars held ég,að ekki verði annað með réttu sagt en að mjög riflega sé nú til þeirra lagt, þeg- ar þeim er ætIaður*Vs allra tekna ríkissjóðs. Tel ég, að alþingi hafi teygt sig svo langt sem frekast pr unt í þeim efnum. Menn mega ekki einblína á árin 1925 og 1926. Árið 1925 urðu tekjurnar yfir 16 raillj. Nú er gert ráð fyrir tæp- um 11 millj., og-þó að þær kunni að fara eitthvað fram úr áætlun, er því varlega treystandi. Sá veit gör, sem reynir. Það skaðar ekki að koma inn í verzlun Ben. S. Þórarinssonar, og sjá hvað er þar til af góðum, fallegum og ódýrum vörum. Sumarkápur og „dragter(( (kjóll og kápa saman) handa stúlkum frá tveggja til 14 ára. Nýtízku snið og litir og úr góðu efni, eru að fá í verzlun Ben. S. Þérarinssonar Verðið snildarlegt. í þessu sambandi vil ég drepa á skoðun, sem nokkuð hefir ból- að á hér í háttv. deild. Hún er sú, að fjárveitingar til verklegra% franikvmæda séu ekki bindandi fyrir stjórnina nema fé sé fyrir hendi, að ákvæði fjárlaganna beri að eins að skoða sem heimildj Ég tel þetta rangt með öllu. Ég tel þær- algerlega bindandi fyrir stjórnina. Með það fyrir augurn er enn meiri ástæða til að af- greiða fjárlögin tekjuhallalaust, þannig, að vist se, að tekjur hrökkvi jafnan fyrir lögmætum gjöldum, þítt erfiðlega ári og af- gangur verði, ef góðæri gefst. Þegar þess nú er gætt, hve stórhuga þingið hefir verið og stórtækt í því að lögbjóða greiðslur úr rikissjóði, er áka,f- lega undarlegt, að þessi hv. deild skuli hafa hafnað all álitlegum tekjustofni þar, sem tóbakseinka- salan er. Af hrnni hefði áreiðan- lega, mátt fá drjúgar tekjur, og það algerlega án þess að íþyngja ajmenningi með sköttum meir en orðið er. Hefði frv. um tóbaks- einkasöluna verið samþykt, rnyndi afgreiðsla fjárlaganna hafa orðið sæmileg. Ég kernst ekki hjá því að átelja þá menn, sem verið hafa svo örir á fé ríkissjóðs sem áður er sagt, fyrir að vilja ekki rotfæra ríkinu þenna tskjustofn. Ég tel, a.ð útlitið sá nú svo gott, að nokkurs tekjuafgangs hefði mátt vænta, ef þessum tekjulið hafði verið bætt við. Góðærin eiga yfirleitt að gefa tekjuafgang, sem síðar, þegar lak- ar árar, á að nota til verklegra framkvæmda. Þá er þeirra mest þörf vegna atvinnuleysis. Með slíku fyrirkomulagi getur ríkis- sjóður bætt nokkuð úr skipulags- Ieysi því og óstöðugri atvinnu, sem leiðir af því, að atvinnurekst- ur er ajlur í höndum einstakra manna, sem reka hann sér til hagnaðar fyrst og fremst, en eigi með tilliti til almennings hteilla óg velfarnaðar. Nfna Bang. Fyrr verandijkenslumála« ráðherra Dana. Frú Nína Bang, fyrrverandi kenslumála'ráðherra jafnaðar- mannastjómarinnar í Danmörku, lézt eftir margra mánaða van- húlsu í Ríkissjúkrahúsinu aðfara- nótt sunnudags 25. marz. s. 1. Nina Bang var fædd 6. okt. 1866, og- var því 61 árs að aldrr, er hún lézt. Faðir hennar var mjög íhaldssinnaður um öll þjóð- mál og var ákveðinn hernaðar- sinni. Hún var því alin upp í því andrúmslofti, er lítt er fallið til að skapa styrkan og frjáls- an anda. En eðli hennar var annað. Hún var tilfinninganæm með afbrigðum og fljót að verðla hrifin. Sagði hún svo sjálf frá fyrir tveimur árum á fundi með ungum jafnaðarmönnum, að alt af, þegar hún heyrði talað um frelsishetjur hinna ýmsu þjóða, um hugsjónir og nýjar hreyfingar, þá fyltist hún eldmóði — og henni hitnaði af þrá eftir að taka sjálf þátt í baráttunni og standa viið hlið þeirra, er hraustleg- ast börðust. H ún gekk mentaveginn, og varð „magister“ í sögu. Námið gekk henni mjög vel, og sögðu kenn- arar hennar síðar, að sjaldan hefðu þeir hitt fyrir svo gáfaða konu, viljasterka og áhugasama. Árið 1895 giftist hún svo Gustav Bang, hinum þekta sagnfræðingi og jafnaðarmanni. Haiði hanm þá ekki byrjað starf sitt í jafnaðar- mannaflokknum. En sameiginleg- ar rannsóknir þeirra í sögu og hagfræði opnuðu augu þeirra fyrir réttmæti og sannleika jafn- aðarstefnunnar. Og svo skeði það dag nokkurn, að þau heimsóttu Wiinblad gamla, sem var í þann tíð ritstjóri Social-Demokraiten’s, og gengu í jafnaðarmannafliokk- inn. Þá var flokkurinn mjög lítill og fátækur, illa liðinn og fyrir- litinn á hærri stöðum, foringjar hans mættu víða tortryggni og tregðu verkamanna. Eins og gef- ur að skilja, fanst því félögunum mikill fengur að fá þessa tvo meníuðfr og gáfuðu félaga, og ekki síst vegna þess, að blaðið þeirra var lítið og fátækt og hafði því litlum góðum kröftum á að skipa.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.