Vísir - 05.04.1918, Qupperneq 2
VxSiR
VÍSIR.
Aígroiéfila blaéalus li Aðalitrat
14, opin írft ki. 8—8 í. hverjum degri.
Skrifstofa á sama Bt&ð.
Sími 400. P. 0. Box 367.
Ritstjörinn til viðtalg frá kl. 2—3.
Prentsmiðjaa & Laugaveg «
eimi 188.
Auglýiisgum vðitt möttaka i Landi
BtjðrnuBBi cftir kl. 8 ft kvðidin.
Auglýsingsveið: 50 aur. hver em
dftlki i itserri augl. 5 aura orðið i
BM&auglýsingnm meé öbreytta letri.
Samningsleysið.
Þá eru „sendiherrarnir" loks
skipaðir og farnir til Englands,
en 'lengi stóð á því. Þeir áttu
að vera komnir til Englands
fyrir áramót, því að lengur giltu
ekki samningar okkar við Breta,
Og ómögulegt er að segja hvert
tjón landinu hefir orðið að drætt-
inum. Menn vita, að öll útgerð-
in var í óvissu vegna samnings-
leysisins, og furðulegt að nokkur
útgerðarmaður skuli hafa ráðist
í að gera út skip sín, án þess
að hafa hugmynd um hvaða verð
mundi fást fyrir fiskinn. Það er
því ekki stjórninni að þakka, þó
að útgerðin hafi ekki stöðvast
algerlega, en miklar líkur til þess
að hún eigi sök á því að botn-
vörpungamir voru ekki allir
gerðir út vorvertíðina, vegna
örðugleikanna á þvi að fá kol i
Englandi.
Og það er nú fleira en menn
hyggja, sem samningsleysið hefir
haft áhrif á. T. d. er ekki nokk-
ur vafi á því, að það hefir haft
áhrif á vöruflutningana frá Banda-
ríkjunum, þvi að um þá gætu
Bretar ráðið miklu, ef þeir vildu.
Er þá ekki alt i góðu lagi nú?
munu menn spyrja, af því að
Gullfoss hefir nú loks fengið út-
fiutningsleyii. En einmitt af því,
hvernig það komst í kring, vita
menn að útflutningsleyfi frá
Bandaríkjunum hafa beinlínis
strandað á samningsleysinu við
Breta. Og loks fekst útfiutn-
ingsleyfið handa Gullfossi fyrir
milligöngu Breta, af því að öðr-
um kosti hefði orðið að senda
Lagarfoss til New York með
vörur þær, sem hér liggja undir
skemdum, og hefði hann þá ekki
getað flutt kjötið til Noregs. —
En Bretum er um það hugað,
að Norðmenn fái kjötið, því að
annars verða þeir að kaupa það
sjálfir; en þó að kjötlitlir séu,
vilja Bretar sem allra minst af
saltkjötinu okkar.
En, þegar um það var að
ræða, að fá bresku stjórnina til
þess að útvega frekara útflutn-
ingsleyfi frá Bandaríkjunum, þá
gáfu þeir það svar, að um það
mætti tala, þegar farið yrði að
semja um verð á afurðum okkar.
Með öðrum orðum: tregða sú
sem verið hefir á útflutningsleyf-
Gullfoss.
Borgarinnar vandaðasta og fullkomnasta úrval af léreftum úr hör og baðmull, borðdúkum, serviett-
um, ágætum handklæðum og haudklæðadreglum, hör- og tyllblúndum, bróderingum, pifiiTn
(hvítum og svörtum, smekklegum að vanda), óvenjulega fallegum dömukrögum, vasaklútum, teygju-
böndum, að einlitix, haldgóðu stúfasirtsi ógleymdu. — Gullfalleg morgunkjólatau,
drengjabuxur, og saumnálarnar viðurkendu mætti líka nefna, ásamt mörgu fleira, er hér yrði of
langt upp að telja. —
Sparið tlma og peninga á meðan birgðir endast.
Mnnlö sima 599.
Kvenna-
Karla-
Barna-
Regn-
hlífar
nýkomnar
Egill Jacobnea
um frá Bandaríkjunnm, og að
líkindum einnig krafa Bandarikj-
anna um lán á skipum okkar
til flutninga, stafar algerlega af
þessum óþarfa og óskiljanlega
drætti stjórnarinnar okkar á því
að koma „sendiherrunum11 af
stað. Og það er enn óséð, hvert
ógagn okkur getur enn stafað af
þessari vanrækslu stjórnarinnar.
Eftir því sem lengra líður og
það kemur betur í Ijós, að mat-
vælaskortur er yfirvofandt í
Bandarikjunum, verður vafalaust
enn örðugra að fá matvæli það-
an. —
f
Omögulegt er að leiða neinum
getum að því, hvað valdið bafi
f
þessum drætti. Omögulegt að
sjá neina skynsamlega ástæðu til
þess að fresta samningunum. —
Ekkert annað en framkvæmda-
leysi og hugsunarleysi stjómar-
innar og alment getuleysi á að
koma nokkru í verk sem þörf er
á. Hún virðist hafa varið öllum
tíma sínum í það hið mikla, og
að vísu þarfa verk, að losa sig
við alla ábyrgð á landsverslun-
inni, og hefir svo haldið að hún
væri þar með orðin algerlega
ábyrgðarlaus á allri annari stjórn
landsins. Má jafnvel vel vera,
að landsverslunarforstjórnin hafi
að lokum verið látin skipa
„sendiherrana11.
Ein stoia og litið svefnherbergi
óskast til leigu 14. maí íán húsgagna), helst sem næst miðbænum.
Fyrirfram borgun. Tilboð merkt „888“ leggist inn. á afgr. Vísis.
viö fiskverkim geta nokkrar dugiegar
stúlkur fengið á Kirkjusandi hjá Th«
Thorsteinsson.
Nánari upplýsingar hjá
Ingimnnði Jðnssyni eða i LiverpooL
leykisYÍnnnst. ijarna iónssonar
Hverfisgötu 30
smíðar alt sem að beykisiðn lýtur, eftir pöntun
svo sem: Lýsistunnur. Kjöttunnur, Síldartunnur. Tekur að sér
uppsetningu á kjöt- og síldartunnum úr tilbúnu efni. — Hefir á
lager bala og kúta; sömuleiðis nokkur hundruð nýar síldartunnur.
Vöndnð vinna. Lágt verð. Fljótt og vel af hendi leyst.
Virðingarfylst
Bjarni Jónsson, beykir,
liðurjofnunarskrá leykjavíkuF
liggur frammi á bæjarþingstofunni almenningí til
sýnis frá 8—18. þ. m.
Kærur sendist formanni niðurjöfnunarnefndar
fyrir 2. maí n. k.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 2. apríl 1918.