Vísir - 06.03.1919, Qupperneq 2
DMaTmM&OtsiEMl
Á lager:
Vasahnífar
Borðhnífar
Kidhúshnifar
Matskeiðar
Teskeiðar
Gaílar
Hnífapör
Fiskhnífar
Skæri
ingu teknanna. — Kolin lækku'Su
í veröi um 75 kr. smál. frá ára-
mótum. Gasverðiö er það sama og
áður. — Nú lækkar kolaverðið enn
um 50 kr.; enn er gasverðið ó-
breytt!
Hvað ætlast bæjarstjórnin fyr-
ir með þessu? Því hefir jafnan ver-
ið borið við, þegar gasverðið hef-
ir hækkað, að kolin hafi hækkað
svo mikið í verði. En nú hafa kol-
in 1 æ k k a ð aftur í verði um
fullan þriðjung, hvers vegna lækk-
ar gasverðið þá ekki að sama
skapi ?
Gasnotandi.
........... . «”“"11-
Bæjarfréttir.
Afmæli í dag.
Jónas Eyfjörð, trésm.
Sigrún Jónsdóttir, hfr.
Anna S. Pétursdóttir, hfr.
Níels Andrésson, bóksali.
Einar Þorvaldsson,
1,351,50 pr.mtr,
Smjörlér. 0,50 mtr.
Egill Jacobsen
111
borg til Kairo. Sú vegalengd er
5300 enskar mílur og hefir aldrei
verið flogið áður lengra en til
Khartum. Líklega verður farin
Níl-leiðin og talað er um, að nota
stóran flugbát til fararinnar.
Símslit milli Hollands og
Englands.
Vegna mikilla sæsimabilana
milli Englands og Hollands, eru
loftskeytastöðvar í báðum löndum
teknar að annast skeytasendingar
milli landanna til bráðabirgða,
meðan á aðgerð stendur á sæsím-
anum.
London, 6. mars.
Wilson um þ j ó ð abandalag ið.
Wilson forseti talaði um þjóða-
bandalagið i New York, áður en
hánn hélt af stað til Norðurálf-
unnar aftur, og mælti eindregið
með stofnun þess. Hann sagði, að
yfirgnæfandi meirihluti Banda-
ríkjamanna væri því fylgjandi. —
Jafnvel þó að bandalagið væri
ekki annað en umræðufélag, þá
myndi það verða stjórnmálabrögð-
unum að bana, ])ví að þau þyldu
ekki opinberar umræður. Þýska-
land myndi ekki hafa lagt út í
ófriðinn, ef heiminum hefði gefist
tækifæri til að ræða herförina
gegn Serbíu svo sem vikutxma.
Utanríkisstjóm Breta hefði beiðst
þess, að gefinn væri eins eða
tveggja daga frestur, svo að full-
trúar Evrópuþjóða gætu komið
saman og reynt að miðla málum.
Þýskaland þorði ekki að leyfa einn
dag til umræðu. Þegar heiminum
varð það Ijóst, að ein þjóðin lék
lausum hala eins og stigamaður,
þá fóru hinar þjóðimar smátt og
smátt að taka höndtim saman
gegn henni. „Vér vitum með
vissu,“ mælti forsetinn, „að ef
| Þjóðverjar hefðu látið sér detta
það í hug, að Bretaveldi gengi í
ófriðinn með Frakklandi og Rúss-
landi, þá myndu þeir aldrei hafa
lagt út í ófriðinn. Það er tilgang-
ur bandalagsins, að gera öllum
stigamannaþjóðum það ljóst, að
ekki að eins Bretaveldi heldur
einnig Bandaríkin og allur heim-
urinn, muni taka i taumana til að
brjóta slíkar fyrirætlanir á bak
aftur.“
Gasverðið.
Verðið á gasinu hefir verið ein-
hver versta plágan í dýrtíðinni hér
i bænum. Aldrei hefir þó staðið
á ]xvi, að hækka gasverðið, hafi
nokkurt tilefni gefist til þess. En
menn höfðu búist við því af bæj-
arstjórninni, sem verðlaginu ræð-
ur, að hún léti heldur ekki standa
á því að 1 æ k k a verðið undir
eins og eitthvað lagaðist. — Á þyí
hefir reyndin þó orðið önnur.
t gasstöðinni eru nú bökuðbrauð
og til þess notaður hiti, sem áð-
ur fór til ónýtis. En ekkert lækk-
aði gasverðið þrátt fyrir þá aukn-
Lagarfoss
hafði farið frá New York 26.
febrúar, og er því væntanlegur
hingað um miðja næstu viku.
Mb. „Faxiw
á að fara til ísafjarðar í dag.
„Sterlmg“
er kominn til Húsavikur. Það
var missögn i blaðinu í gær, að
hann ætti að.snúa við hingað frá
Seyðisfirði. Frá Húsavík á skipið
að halda áfram vestur um, koma
á allar hafnir á Húnaflóa, og taka
þar gærur, fara þaðan til ísafjarð-
ar og þaðan beina leið hingð, og
er búist við þvi um 20. þ. m. Þá á
skipið að halda aftur norður um
land til Sauðárkróks, beina leið,
þaðan til Akureyrar, Húsavíkur,
Vopnafjarða og Seyðisfjarðar og
þaðan til útlanda.
Vagnhestur fældist
á Vesturgötunni í gær og hljóp
með vagninn um götuna þar til
bæði hestur og vagn féllu. Lítil
stúlka var i vagninum og meiddist
talsvert.
Frostið (
var í morgun mjög likt og í gær-
morgun: 8 st. í Rvík, 8 st. á ísa-
firði, 8.2 st. á Akureyri, 6.8 st.
á Seyðisfirði, 15 stig
á Grímsstöðum og 7.7 st. i Vest-
manneyjum.
Egill Skallagrímsson,
’ hið nýja botnvörpuskip h.f.
„Kveldúlfs“, kom frá Englandi í
nótt og liggur flöggum skreytt
hér á ytri höfninni.
Kaupmannafélagið
heldur fund i kvöld kl. 8y2 í
Iðnó.
V í S IR.
Afgreiðsía blaðsins í Aðaistræii 14,
opin kl. 8—8 á hverjum degi.
Skrifstofa á sama stað.
Sími 400. — P. O. Box 367.
Auglýsingaverð: 80 aur. hver cm.
dálks í stærri auglýsr..óU..i. ^ aixra orSið
i smáauglýsingum með óbreyttu letri.
Omannskæð styrjðld.
Það er haft eftir írlendingi, sem.
var í ófriðnum, að honum hafi orð-
ið þetta að orði, þegar hann leít
upp úr skotgröf sinni: „Já, það
má segja, þetta er maimskæB
styrjöld“, — og rigndi þá sprengi-
kú'unum sem þéttast alt um-
hverfis.
Þessa skoðun mun margur hafa
haft um styrjöldina miklu, en svo
ótrúlegt sem það má virðast, þa
er nú fullyrt, að hún hafi í raun
og veru verið ómannskæðasta
styrjöld, sem sögur fara af, þegar
miðað er við allan þann mann-
fjölda, sem þátt tók í henni.
Þegar talað er um mannfalt í
styrjöldum, þá er átt við alla þá
hermenn, sem látast, hvort sem
þeir falla fyrir vopnum eða sótt-
um. En því hefir jafnan vérið svo
varið í fyrri styrjöldum, að flest-
ir hafa fallið fyrir stórsóttum, sem
upp hafa komið í herliðunum. En
i þessari síðusu styrjöld hafa Iælcn-
ar sigrast á öllum stórsóttum, meíf
því að láta framfylgja ströngum
þrifnaðarreglum út í yztu æsar.
Dr. Woods Hutchinson hefir
ritað bók „um lækna í ófriðnum“,
og segir þar, að nægar vistir, á-
gæt sjúkrahús og framför í sára-
lækningum og þó einkum bólu-
setning gegn taugaveiki, hafi
bjargað 400.000 manna árlega á
brezku vestur-vígstöðvunum ein-
um. Meir en hálfu fæfri menn dóu
þar af sjúkdómum heldur en tíð-
ast var í hermannabúðum á frið-*
artímum.
(Frá verslunarráðinu).
Sknggar
eftir Pál Steingrímsson.
pegar sjónleikur eftir ungan
liöfund er sýndur í fyrsta skifti,
eru áhorfendur all af að spyrja.
peir spyrja sjálfa sig og sessu-
nauta sína, þeir spyrja kunn-
ingja sina og ókunnuga, hvernig
þeiin þyki leikurinn.
þegar „Skuggar“ voru sýndir
í fyrsta skifti, þá voru margir
sein spurðu, og svörin voru á
marga vegu. En þegar menn
stungu liendi i eigin barm, þá
var eitt svarið hjá þeim flest-
um: peir hrygðust yfir óham-
ingjunni, yflr skuggunum, sem
örlögin gáfu unnendunum í stað
sólar og gleði.
Leikurinn er um sorg og i>-
gæfu. það eru syndir feðranna,
sem koma niðiu' á börnunum.