Vísir - 07.03.1919, Side 3

Vísir - 07.03.1919, Side 3
ft íslendingar eru seinir til að taka upp erlendar nýjungar og liggja til þess margar orsakir. Lengi höfðu bifreiðar verið not- aðar utanlands, áður en þær fiuttust hingað. Nú vilja menn ekki án þeirra vera, og vísl er um það, að ómetanlegt gagn varð að þeim í veikindunum í vetur, livað sem öðru líður. Nii eru flugvélar orðnar ó- missandi samgöngutæki í mörg- um löndum og þær verða næsta samgöngutækið, sem hingað kemur, verða á undan eimreið- um og rafniagnsvögnum. Styrjöldin mikla hefir flýtt mjög fyrir framförum i fluglist og fiugvélagerð. f upphafi styrjaldarinnar áttu Bretar t. d. 166 flugvélar, en 21000 þegar vopnahléð var sam- ið. Árið 1914 áttu þeir 45 sjó- flugvélar, en 1300 i nóv. s. 1. — Flugvélarnar áttu mikinn þátt í úrslitum ófriðarins og er talið, að Bretar eigi nú stærstan flug- vélastól og segjast þeir framveg- is ætla að verða öndvegisþjóð í þeirri grein, eins og í siglingum. í ráði er að freista að flúga yf- ir Atlantshafið á þessu ári. Búist ■ei' við að Englendingar, Banda- ríkjamenn og Frakkar keppi þar hverir við aðra. Síðan vopnaviðskiftum lauk, hafa flugvélar verið notaðar til póstflutninga og farþegaflutn- iuga í nrörgum löndum og marg- ar langferðir flognar. Tveir Frakkar flugu nýlega yf- ir Miðjarðarhaf, frá Marseilles til Algier, um 500 enskar milur, og voru 5 stundir á leiðinni. pó var veður þá svo vont, að gufuskip komust ekki hindrunarlaust leið- ar sinnar þar í milli þann dag. Frá Belfast á írlandi var ný- , lega flogið til Sheffield á 2% kl.st. pað eru 194 enskar milur. Flugvélin var knúin með 350 hesta mótor og bar 12 smálestir, þar á íneðal 7 farþega. Er það mesti þungi, sem fluttur hefir verið i flugvél milli þessara landa. Farþegar neyttu máltíðar á leiðinni og létu hið besta yfir förinnni. Loks hefir verið flogið frá Bretlandi til Indlands, en sú för tókst þó ekki sem greiðlegast, því að flugvélin bilaði á leiðinni, en þó komst hún alla leið að lokum. Vegna margra og merkilegra uppgötvana og endurbóta, mega flugferðir nú orðið heita mjög hættulitlar á friðartímum. Hér í bænum hefir verið stofn- að til flugvélafélags, en sennilegt er, að nokkur hið verði á fram- kvæmdum þess. En ekki er loku fyrir það skot- ið, að hingað kunni að slæðast einhver flugmaður að sumri, sem vildi leita sér frægðar í þvi að verða fyrstur til að fljúga yfir „íslands-ála“ Fm. Bæjarfréttir. I. O. O. F. 107379 — O. A Afmæli í dag. Ingvar Sigurðsson. Guðríöur Jónsdóttir, hjúkr.kona. Anna Hjaltested, ungfrú. Holger Debeil, forstj. Sig. Sigurðsson, kenn., ísaf. Carl L. A. Trolle. Böðvar Gíslason, trésm. Ottó J. Ólafsson, verslm. Steinolía sú, sem nú er verið að skipa í land, verður að nokkru leyti geymd á íþróttavellinum og græðist í- þróttasambandinu þar nokkurt fé, sem notað verður til að endurbæta völlimi. i Dansleik ætlar íþróttafélag Rvíkur að halda í Iðnó annað kveld, og er sagt, að húsið verði raflýst það eina kveld, í tilefni af skemtun- inni. Aðalfundur íþróttasambands Reykjavíkur var haldinn í fyrrakveld. — Þrír menn gengu úr stjórn, og skoruð- ust tveir þeirra undan endurkosn- ing, Jón Þorláksson og Magnús Kjaran, og voru kosnir i þeirra stað Gunnar Thorsteinsson og Erlendur Pétursson, en Sigurjón Pétursson var endurkosinn. Hagtir sambandsins má heita góður; tekj- ur aldrei meiri en nú; útgjöld að visu niikil, en tekjuafgangur þó. V í S I R. Aígreiðsla blaðsins í Aðalstraetí 14, opin kl. 8—8 á hverjum degi. Skrifstofa á sama stað. Sími 400. — P. O. Box 367. Auglýsingaverð: 80 aur. hver cm. dálks í stærri auglýsi:;gu:n. d aura orðiS í smáauglýsingum með óbreyttu letri. ísl. smjör pr. */» kr. 3,35 fæst i versl. Ámunda Árnasonar HverfÍBg. 37 „Geir«, björgunarskipið, hefir verið að brjóta skipum leið um höfnina í daS' i #1 Tveir franskir botnvörpungar liggja hér áhöfn- inni. VeðriS er með vægara móti í dag. Frost í Rvík 6 st., á ísafirði 7, Akur- eyri 11, Grímsstöðum 14, Seyðis- firði 10, Vestmannaeyjum 2.6. Frú Ragna Jónsson, kona Þorsteins Jónssonar kaup- manns frá Seyðisfirði, hefir heit- ið hjálparstöðinni fyrir berlda- veika, sem hjúkruunarfél. „Líkn“ er að koma á fót hér í bænum, rausnarlegurn styrk. Ætlar hún að kosta eina hjúkrunarkonu fyrir stöðina að öllu leyti, eða leggja fram 1200 kr. á ári. V erkf r æSingarnir Guðm. Hlíðdal og Th. Krabbe hafa að sögn sagt af sér. 130 Kuldi hennar bráðnaði eins og snjórinn bráðnar i hita' vorsólarinnar. Clive dans- aði vel; allir, sem elska söng og eru söng- næmir, dansa vel; með höndina i hönd hans, með hálfaftur augum og svo nálægt honum, að kinn hennar snart næstum því vanga hans, leið hún með honum eftir tón- unum frá einhverjum besta hljóðfæra- flokknum i allri Evrópu. I fyrsta sinn á æfinni fann ungfrú Edilh til þess í liverju sönn hamingja er fólgin, því þetla var fyrirboði hennar. Hjartað barðist í brjósti hennar, henni var. þungt um andardráttinn; einhver óumræðileg fagnaðartilfinning gagntók liana alla. Hún opnaði augun, og horfði framan i hann feimin, innileg, dreýmandi. En í augum hans var ekkerl svar að finna. Hann horfði heint fram fyrir sig, alvarlegur, já, næstum því hörkulegur á svipinn; og þessi alvara og harka jók enn meira töframagn það, sem fjötraði hug hennar. En hann virtist ekki sjá neitt af allri dýrðinni umhverfis þau, livorki hina skrautlegu sali eða mannfjöldann skarl- klæddan; í stað þess sveif fyrir hugskots- sjónum hans fátæklegt og lítið herbergi í Bensons-sundi, þar sem ung stúlka sat við hljóðfæri, sem liún lék á; beinvaxni líkaminn heygði sig ofan yfir nóturúar, 131 og í stað hins glymjandi hljóðfærasláttar . í salnum, sem hann dansaði eftir, hljómaði fyrir eyrum hans angurblíða lagið, sem söngmeyjan af strætinu hafði sungið fyrir hann, — sú sama og hann hafði heitið að líta aldrei framar augum. IX. kapituli. Elisha fær stöðu. prem dögum eftir dansleikinn hjá frú Dalrymple, þegar Elisha gekk inn i litlu borðstofuna, þar sem þær Tibby og Mina sátn að morgunverði, rétti Tibby honum bréf yfir borðið. þau voru svo óvön þvi að fá bréf, að báðar stúlkurnar horfðu á hann með forvitni meðan liann, hægt og hikandi, opnaði umslagið, og þegar hann loks leit upp úr hréfinu, með undr- unarsvip á andlitinu, hljóp Mina til hans til þess að fá að vita fréttirnar. „Hvað er á seyði? Hefir einhver skilið þér eftir arf ?‘ spurði Tibby hvatlega. „Eða er það viðvikjandi sköttunum? Sköttun- vun! Eins og konuugunnn geti ekki kom- ist af án okkar aðstoðar- Ekki svo að skilja að eg hafi nokkuð á móti honum, og eg þori líka að segja, að það er ekki hehn- 132 ingurinn af því, sem inn er heimtað, sem lendir í hans vasa.“ „Bréfið er frá herramanninum — herra Clive!“ stundi Elisha um leið og hann greip fram i fyrir henni. Hann hefir útl- vegað mér lærisveina; hér eru nöfn þeirra og heimilisfang, það eru tignir menn og hefðarmeyjar, og svo á eg að hafa tíu krón- ur um tímann! Tíu krónur, hugsið ykk- ur!“ Hann hló og þurkaði svitann af enni sér um leið og hann horfði ýmist á Tibby eða Mínu, eins og hann vissi ekki hvaðan á sig stæði veðrið. „petta virðast nú vera of góð tiðindi til þess, að þau geti vei*ið sönn,“ sagði Tibby. „Svei mér ef þetta er ekki það, sem kallað er að „gcra glettur“ og sumum stúlkunum i verksmiðjunni þvkir svo gaman að? pað er líka ekkert annað, þvi hvernig átt þú að geta kent tigihbornu fólki i þessum görmum, sem þú ert í?“" „Hann hefir hugsað fyrir því og látið fylgja með bréfinu ávísun upp á 40 krón- ur, ef eg skyldi þurfa á að halda, eins og hann kemst að orði. Hafið þið nokkurn tíma heyrt annað eins!“ rribbv hristi höfuðið og hniklaði brým- ar. „Ef eg væri spurð, mundi eg svara, að hann væri einn af þessum náungum, sem

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.