Vísir - 09.10.1920, Qupperneq 2
MfSfK
bafa fyrirliggjandi:
Ejól - Br. Br. -
Rulla Br.Br.&Kruger
Simskeyt
Kaupmanahöfn 8. okt.
Landamœri Póllands.
Símfregn frá Riga segir, að Pól-
'Jand eigi að stækka um helming
samkvæmt landamerkjasamningum
við bolshvíkinga.
Engin blöð í Barlín
koma nú út nema blöð jafnaðar-
manna (vegna prentaraverkfalls?)
TímaritiÖ Ltoyd George
er á móti því að írar fái nýlendu-
stjórn. /
Fjármál Dana.
Fjárlagafrumvarp stjórnarinnar
var lagt fram í«gær. Áætlaður er
7 miljóna tekjuhalli.
Erlend m$ni.
100 kr. sænskar .... kr. 141.75
100 — norskar .... — 98,50
100 mörk þýsk .... — 11.50
100 mörk finsk — 20.50
100 frankar fr — 47.75
100 frankar svissn. . . — 114.50
100 frankar belgiskir — 50.50
100 gyllini holl — 221.50
Sterlingspund — 24.00
Dollar — 7.13
f
Bæiarfréttir.
Messur á morgun.
1 dómkirkjunni kl. 11 síra Jóh.
porkelsson, kl. 5 Dr. theol. Skat
Hoffmeyer.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
1 síra Ólafur Ólafsson, í fríkirkj-
unni hér kl. 2 prófessor Haraldur
Níelsson og kl. 5 síra Ólafur Ólafs-
son.
Söngskemtun
G. Sveins porkelssonar var fjöl-
sótt og tókst ágætlega. Klöppuðu
áheyrendur söngmanninum óspart
Iof í lófa og var hann marg „klapp-
aður upp“. Hann endurtekur
sönginn í Nýja Bíó á morgun
kl. 4.
Octagon
þ vottasápan
er besta þvottasápa sem fáanleg er. Bóin tíl af hinu heimsfrœga
firma Colgate & Co. er hlotið hefir fyrstu verðlaun fyrir vörngæið
á öllam iðnsýningum.
OCTAGON er nú sem stendur miklu ódýrari en aðrar þvotta-
sápur.
Hósmæður! Biðjið kaupmennina er þér verslið við um
OCTAGON og sparið á þann hátt vinnu og peninga í dýrtiðinni.
Jóh. Olafsson & Co.
Símar 584 & 884, Reykjavik. Slmnefni ,Jawel‘.
Aðalumboð fyrir ísland.
Smámynt
er nú orðin hér af svo skornum
skamti að mikill bagi er að. —
Krónuseðlarnir eru að verða ófá-
anlegir og mun það vera af því,
að þeir séu sendir úr landi, og er
því óhjákvæmilegt að gefa út ísl.
krónuseðla, enda hefir Vísir heyrt,
að von sé á þeim bráðlega.
Steinolíuverðið
hefir verið hækkað um 9 krón-
ur tunnan. Var það gert eftir að
verðlagsnefndin var skipuð, en ekki
með hennar samþykki. — Vænta
menn þess fastlega, að nefndin láti
það ekki afskiftalaust.
Leikhúsið.
Sjónleikur Guðm. Kambans,
„Vér morðingjar", verður leikinn
annað kvöld.
Veðrið í dag.
Hiti í Vestmannaeyjum 8 stig,
Reykjavík 10,8, ísafirði 6, Akur-
eyri 13, Grímsstöðum 10,5, Seyðis-
firði 7,6. — Engin skeyti frá Fær-
eyjum. — Loftvog lægst fyrir SV.
land og fallandi þar, en stígandi á
Suðurlandi. Suðlæg átt. Horfiír
svipuðu véðri.
Sundlaugarnar.
Ókeypis sundkenslu veitir Páll
Erlingsson öllum sjómönnum og
skólapiltum bæjarins, þenna mánuð
og hinn næsta. Vatn er nú nægilegt
í sundlauginni og aðsókn mikil
þangað á degi hverjum
Frl(- Inga Magnúsdóttir,
skjalþýðandi, er nýskeð farin að
starfa á 1. skrifstofu stjórnarráðsins
og er hún fyrsta stúlkan, sem þar
hefir unnið. Hún tók skjalþýð-
andapróf í Kaupmannahöfn og er
fyrsti íslendingur, sem tekið hefir
j?að próf í ensku.
Sierl'mg
fer héðan á 'mánudag. Átti að
fara á morgun, en brottför skipsins
frestað vegna rigninga, sem seink-
að hafa útskipun.
Hundapesl
hefir borist hingað. Dýralæknir
ráðleggur sveitamönnum, sem hing-
að koma, að skilja hunda sína eft-
ir utanbæjar.
liegukaixir
og alisk;ona.r
mnn
faínaðir
Ódýrt og vandað.
Best að versla í Fatabúðinni.
Hafnerstrætí 16. S í m i 2 6 9.
Skjöldur
fer til Borgarness kl. 10 í fyrra-
málið.
Gulljoss
kom til Seyðisfjarðar síðdegis í
gær.
Skúli fógeti
hefir hætt veiðum í svip.
Svanur
fór kl. 9 í gærkveldi til Breiða-
fjarðar.
Bending.
Herra ritstjóri Vísis!
Gerið svo vel að benda lesend-
um blaðs yðar á, að hér í bænum
fást tilbúnir skósólar úr gúmmí. sem
mikill sparnaður er að nota. Sólar
þessir eru negldir undir venjulegá
(ógatslitna) leðursóia. peir eru
þægilegir og áreiðanlega endingar-
betri en leðursólar þeir, sem manni
eru nú seldir dýrum dómum. Mína
sóla keypti eg í skóverslun Hvann-
bergsbræðra í Hafnarstræti og
kostuðu þeir ánegldir kr. 4,25. par
fást einnig kvensólar. En sjálfsagt
fást þeir víðar.
petta er ekki nema ofurlítið spor
í sparnaðaráttina, en áreiðanlega
þess vert, að mönnum sem vilja
spara, sé á það bent.
Virðingarfylst.
Landi.
ATH. Vísir gat um þetta sóla-
efni, þegar það kom hingað fyrst
í heildverslun G. Gíslasonar. ]7að
er mjög mikið notað í öðrum lönd-
um, t. d. á Englandi.
Hver vill hjálpa?
Kona nokkur öldruð og fátæk
er búin að vera hér í bænum kring-
um 30 ár. Hún hefir ekki legið á
liði sínu um dagana, heldur bjarg-
ast áfram með dugnaði, og hefir
hún þó átt fyrir ómegð að sjá. —
pungar raunir og ástvinamissir
hafa fyrr og síðar gengið í garð
hennar. Nú er þannig ástatt fyrir
konu þessari, að hana vantar hús-
næði. Að vísu getur hún átt kost
á að fá skýli, ef hún væri svo
efnum búin, að geta kostað inn-
réttingu á smáskúr, sem henní
stendur til boða. En vitanlega er
hún ekki svo stödd, að hún geti
framkvæmt þetta af eigin fjármun-
um. Hún vill þess vegna leita til
heiðraðra meðborgara sinna, —
Reykvíkinga^ — um frjáls sam-
skot til þess að henni verði auðið
að láta gera 1 herbergi og lítið
eldhús í áðurnefndum skúr. Von-