Vísir - 04.04.1921, Síða 2
VÍSIR
Höfum fyrirliggjaudi:
Fiskbnrsta, Stráliústa
Þalpappa, Blackvarois
CyiináeraUn, Rapid
Dampcylinðerolin
Primnsa - Baiins.
Sfmskeyti
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn 2. apríl.
Kolaverkfallið í Englandi.
Frá London er síma'ð á þessa
leið: Verkamenn lög'ðu niSur
vinnu í allflestum námum í nótt.
Hafa hinir róttækari verkainanna-
foringjar tekið forustu námuverka-
manna í sínar hendur. VerkfalliS
hefir á sér byltingarblæ, en stjórn-
in virðist standa vel að vígi ög
vera mjög föst í sessi. — Standa
Rretar nú augliti til auglitis við
mestu vandræðin, sem nokkurn
tima hafa verið í iðnaðarmálum
j>ar í landi.
Allur útflutningur eldsneytis úr
landinu cr bannaður, nema þvt að
eins. að sérstakt leyfi sé gefið til.
Hefir stjórnin gefið út bráða-
birgðalög, sem veita hnnni heimild
til víðtækra ráðstafana.
Valdasókn Karls konungs.
Frá Berlin cr símað: Það er í
almæli i Vín, að stjórn Ungverja-
latids hafi verið nifv Karli kon-
ungi í ráðabruggi hans um ríkis-
töku í Ungverjalandi. Hervaldi
hefir verið lýst yfir í Vestur-Ung-
vérjalandi og helmingur hersins
gengið i lið með konunginum.
í skeyti frá Vín er sagt frá bvi,
eö Horthy ríkisstjóri hafi slept til-
.kalli sínu til embættis og í síðara
skeyti, að Karl konungur ætli að
fara til Sviss aftur bg að ung-
A'erska stjórnin hafi beiöst farar-
leyfis honum til handa.
Agence Tiavas segir að Horthv
hafi fengið Karli konungi völdin
í hendur og hafi hann verið hyltur
af lýðnum og hernuni. F.nn fremur
að Andrass) grei fi hafi verið út-
néfndur forsætisráðherra í Ung-
verjalaudi.
Khöfn 2. apríl.
Verkfailið í Bretlandi.
Margar kolanámur eru þegar
orðnar fullar af vatni og koma
ekki að nokkru gagni fyrst um
sinn. Meira en tvær miljónir manna
hafa mist atvinnu.
Ungverjar og Karl konungur.
Þjóðþingið í Búdapest hefir
samþykt í einu hljóði, að Karl kon-
uiigur liafi fvrirgert rétti sínum til
konungdóms er hann flýði úr landi
1918, og leitun hans'.eftir konung-
dónti brjóti bág við gildandi rétt-
arfar. Er skorað á stjórnina, að
flytja hann þegar úr landi. Kon-
ungur hefir skrifað ríkisstjóranum
cg segir þar, að hann fari því úr
landi, að hagsmunum ríkisius sé
svo hest borgið, en kveðst vera
löglegur konungur Ungverjalands
cg áskilja sér rétt til að hverfa
þangað, hvenær sem vera skal.
írar fá sjálfstjórn.
Talbot lávarður, .hinn kaþólski,
er prðinn Iandstjóri í írlandi. Sam-
kvæmt nýju sjálfstjóraarlögunum,
verður fyrsta verk hans að kveðja
til fundar þingin í Suður-írlandi og
Norður-írlandi. Sinn Feinar hafa
lýst yfir, að þeir ætli að taka þátt
í atkvæðagreiðslunni við þing-
kosningar.
Ráðherra-skifti.
Sir Robért Horne er orðinn f jár-
málaráðherra eftir Austen Cham-
berlain.
Síldveiðar Svía við ísland.
Sænska stjórnin hefir borið
fram tillögu um að veita fjórum
hringnótafélögum í Bóhús-léni too
þúsund króna styrk til síldveiða
við fsland næsta sumar. Er ráö-
gert, að 50 menn stundi veiðarnar
og áætlaður afli er 20 þúsund tunn-
ur. Sú ástæða er færð fram fyrir
þessari fjárveitingu, aö fiskimönn-
um í Bóhúsléni gangi misjafnlega
að selja hina ófeitari síld sem þeir
veiða; ennfremur er það talið
þióðþrifaráð að styrkja síldveiðar,
því að árin 1909 til 1918 var flutt
til Svíþjóðar íslensk síld frá Nor-
egi fvrir 13 miljónir króna á ári og
fyrir 32 miljónir króna 1918. Talið
er, að selja megi um T50 þúsund
tunnur af islenkri síld í Svíþjóð ár-
lega og þykir æskilegast, að Svíar
veiði sem mest af henni sjálfir.
(Sumar þessar tölur virðast mis-
ritaðar).
Gengi erl. myntar.
Khöfn 2. apríl.
roo kr. sænskar........ kr. 127,85
100 kr. norskar........ — 88,25
100 mörk, þýsk.........— 8.90
too frankar, fr........— 38.50
100 frankar, svissn. ... — 95.09
100 lírar, ítal........— 22.50
too pesetar, spánv.....— 76.50
too gvllini, boll......— t8q.oo
Sterlingspund ......... — 23.43
Dollar................... — 5.49
(Frá Verslunarráðinu).
Khöfn 3. apríl.
). Járnbrauta og flutningaVerkamenn
styðja kolaverkfallsmenn.
f Lundúnafregn. segir, að búist sé
“við, að járnbrautamenn og flutn-
ingamenn standi sem einn maður
með kolaverkfallsmönnum.
Bandaríkin vilja sitt.
Hardings-stjórnin í Bandaríkj-
unum hefir samþykt að gefa ekki
bandamönnum einn eyri eftir af
skuldum þeini, sem þeir standa í
við Bandaríkin.
Friðvænlegra í Þýskalandi.
Berlínarfregn segir frið á kom-
inn í borgum og bæjum Mið-
Þýskalands, en óaldarflokkar
kommunista fara rænandi víða um
sveitir.
Grikkir hefja styrjöld.
Grískar hersveitir hafa sótt inn
yfir landamæri Búlgaríu norð-
vestan við Adrianópel. Aþenu-
fregn segir, að foringjar frá 1901
til 1913 hafi verið kvaddir til her-
þjónustu. Konungur þeirra er íar-
inn til landamæranna. Gunaris er
orðinn forsætisráðherra en Kilo-
geropoulos fjármálaráðherra.
Frá Alþingi.
Á laugárdaginn lauk 2. umr.
um fjáraukalögin 1920—21 í n.
d. Var það þriðji dagur þeirrar
umræðu. Allflestar f járveitinga-
tillögur, sem fram komu, náðu
samþykki deildarinnar, enda
flestar þannig vaxnar, að ekki
varð hjá þvi komist. — Feld var
tillaga f j árA'ei tinganefndar um
launauppbót til ráðherranna (4
þús. til hvers þeirra); var nafna-
kall haft um þá till. og urðu 10
með henni en 15 á móti, ráð-
herrarnir tveir greiddu ekki at-
kv. — Um uppbót þessa komsl
einn þingm. svo að orði, að nóg-
ir menn myndu fást til að gegna
émbættum þessum án launavið-
hótar og ómögidegt hefði reynst
að „nudda“ núv, ráðherrum úr
sætunum, þó að itrekaðar til-
rannir hefðu verið gerðar til
þess, og væri þvi ekki að sjá, að
þeir væru „kvaldir“.
Póstburðargjaldafrv. stjórn-
ar var til annarar .umræðu og
var samþ. með nokkrum hrevt-
ingum eftir tillögum fjárhags-
nefndar; — burðargjald fyrir
alm. brcf lækkað og hækkun á
blaðaburðargjaldi feld niður.
f dag hefst önnur umr. um
tóbaks- og vínfangaeinokunina
i n. d. Hefir fjárh.nefnd klofn-
að um það mál. Vijja 6 nefndar-
menn láta samþ. frv., en með
talsverðum breytingum. Einn
nefndarmanna (Jakoh Möller)
er frv. algerlega mótfallinn. Tel-
ur hann fyrst og fremst tekju-
von svo litla af einkasölunni, ef
verðvaranno ætti elcki aðhækka.
að ekki svari kostnaði að ráðast í
fyrirtækið, en málið auk þess
svo flausturslega undirhúið, að
þegar af' þeirri ástæðu sé frá-
gangssök að samþ. (W. Stjórnin
Stórt og rnjðg ódýrt úr-
val af
vasahnífum
í Járnvörud. Jes Zimsea
hafði gert ráð fyrir alt að 400
þús. kr. tekjum af vínsölunni
einni saman, en sú telcjuvon
rýrnar svo við nánari athugun,
að hún verður nálega að engu,
vegna þess aðallega, að bygt hef-
ir verið á miklu meiri innflutn-
ingi en rétt er.
)r
.,tk Ur-aí*. , tJrf—
Bæjarfréttir.
Kólnar í veðri.
Frost var um alt land í morgun,
meira en lengi hefir áður verið. í
Reykjavík 7,4 st., Stykkishólmi
10,8, ísafirði 11,3, Akureyri 11,
Grímsstöðum 14,5, Seyðisforði 9,7,
(engin skeyti frá Raufavhöfn),
Þórshöfn i Færeyjum hiti 1 st.. —
Loftvog Iægst fyrir austan land,
ört stígandi. Snörp norðlæg átt á
Norðurlandi. Horfur: Hæg norð-
læg átt.
Aflinn glæðist. *
Skallagrímur kom af veiðum í
morgun með 110 tunnur lifrar. —
Leifur heppni kotn í nótt með 70
tunnur lifrar.
Þilsk. Keflavík
kom inn í gær með ir þúsund.
Nýtt botnvörpuskip
kom hingað í gær frá Þýska-
landi, — heitir „Menja“ og er eign
hlutafélagsins ,,Grótti“; verður
gert út frá Hafnarfirði. Hjalti
Jónsson er framkvæmdastjóri fé-
lagsins og kom á skipinu frá
Þýskalandi, en skipstjóri er Karl
Guðmundsson.
Slys.
Á annan páskadagsfnorgun vildi
það hörmulega slys til á Giljum í
Mýrdal, að unglingsprltur. 17 'ára
gamall, Jón Árnason að nafni. lenti
í lausasnjóskáfli sem bljóp með
bann ofan í g-il fyrir ofan bæinn.
Hafði hann farið að gefa sauðum
hey, sem haföir eru fvrir vestan
bæinn en þeir sótt austur í fjalls-
hlíðina þar fyrir ofan, sem er mjög
grösug, og var hann að sækja þá
cr slys þetta har að höndum og
hann beið þana af, Hatin var ætt-
að.ur frá Staðarhrauni og var
efnispilfur.
Tvær Tæ'ður
erti nýútkomnar eftir síra Bjarna
Jónsson dómkirkjuprest. Heitir
lun fyrri: Jesús í Dalnum, en hin:
Sannleikurinn um Jesúm og sann-
leikurinn um mennina.
Brauð lækka
ií verði frá deginum í dag, shr,
augl. í blaðinu t dag.
Leiðrétting
frá O. Forberg, landssínia-
stjóra, verður að biða næsta
blaðs.