Vísir - 29.04.1921, Page 2
VÍSIK
(
Höfum fyrirliggjandi
Cocoa „Bernsdorp’s“
Te „Welrose“
„Ezportkaffl“
.,Eldspýtnr“
Kex: Lnnch Snowflake Cabin.
Pappirspoka flestar stærðir.
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn í gær.
Samningar Þjóðverja.
í annari tilkynnirigu sinni til
stjórnarinnar í Washington bjóð-
ast Þjóðverjar til a'ð greiða 200
miljarSa marka og taka til þess lán
lijá ýmsum þjó'Sum er greitt veriSi
me'ö jöfnum árlegum afborgunum.
Þeir kveSast strax vilja leggja fyr-
ir 1 miljarð í París og ef til vill
taka á sig skuldir bandamanna viS
Ameríku. En aftur á móti heimta
Þjóöverjar að hætt verði öllum
þvingunarráðstöfúnum, aS Efrí-
Schlesía verSi óskift og aö þeir fái
aS njóta frjálsra viðskifta á heims-
marka'ðinum.
Frá París er siniaö, aö Frakkar
og Belgar ' hafi algerlega neita’ð
þessum skilmálum, en Bretar séu
reitSubúriir að semja.
Stjórnin i Washington sér eftir
þetta ekki fa^rt að halda fram til-
hoði Þjóðverja.
Lauðhelgisgæslan.
Stutt athugasemd
eftir Sigurð Sigurðsson
frá Amarholti.
Um þetta tnál er nú búið a'S
þjarka og þrefa svo mikið i blöð-
unum, bæði af mér og öðrum, að
þess er riaumast að vænta, að nokk••
uð nýtt eöa áður óumrætt' sé i
vændum.
Samt sem áður get eg ekki lát-
ið hjá líða, að fara nokkrum orð-
um um málið eins og nú standa
sakir. Vér fslendingar höfum að
undanförnu, og að miriu áliti, með
réttu, gert fremur lítið úr land-
helgisgæsiu Dana hér við land.
Það er því sjálfsögð skylda fslend-
inga’ að láta þess getið, þegar
brcyting til batnaðar hefir átt sér
stað i þessu efni.
Og um það verður ekki deilt.
Síðari varðskipið „Fylla“ hóf
starfsemi sina hér við land — því
miður helst til seint, hefir svomjög
breyst til batnaðar frá því sem áð-
ur var, að því er ekki saman að
jafna. „Fylla“ hefir ekki að eins
náð í all-marga sökudólga við ó-
löglegar veiðar i landhelgi, og
þannig fært sjóði ríkisins miklar
tekjur beinlínis, heldur sýnt svo
mikla árvekni og iðju í starfi sínu,
að ólöglegar veiðar botnvörpunga
við suðurströnd landsiris hafa
gjörminkað og riú upp á síðkastið
svo að segja horfið.
Þetta starf ,,Fylla“ hefir borið
mikinn árangur og er i alla staði
ágætt. Það vita allir, að hinn mikli
raótorbátafloti, sem nú stundar
veiðar við suðurströnd landsins, er
aðallega og einkum frá Vestmanna-
eyjum. En veðurfari er þannig
háttað, að langan tima vetrar eiga
þessir bátar örðugt með að stunda
vciðiskap sinn langt i^iafi úti, enda
fiskigöngur mjög oft með strönd-
um fram og þvi í landhelgi.
Þess er ekki að vænta og ekk-
ert vit í, að stórt og dýrt strand-
varriarskip, sem ætlað er öllu land-
inu, hafi tima til og geti annast hið
daglega og hversdagslega strand-
varnareftirlit hér á þessu takmark-
aða sviði, sem þó er svo verðmætt,
litið eftir veiðarfærum og aðstoðað
báta þá sem hjálpar])urfa eru,
nema þá í einstöku tilfellum.
Þvi er það svo augljóst öllum,
sem til þekkja, að ekkert getur
gagnað fjárhagslégum hagsmun-
úm Islendinga betur en það, að góð
samvinna sé milli hins hraðskreiða
og vopnaða skips „Fylla“ og
„Þórs“, hjálparskips Vestmanna-
eyja. Og ef gleðilegt til að vita,
að enginn virðist hafa skilið betur
eri skipherrann á „Fylla" hversu
gagnlegt það væri fyrir fiskiveið-
ar vorar að samvinna væri milli
beggja skipanna.
Okkar áhugamál, hér i Vest-
mannaeyjum, er fyrst og fremst
þetta, að hér sé að starfi skip, hin-
um haffærara, til hjálpar í neyð, til
eftirlits með veiðarfærum bátarina
eg siðan en ekki ^síst til eftirlits
með ólöglegum veiðum botnvörp-
unga i landhelgi.
Ekkert væri íslendingum hag-
feldara, eins og nú standa sakir í
fjármálum landsiris en þetta, að
skip vort, sem vér þegar eigum,
mætti starfa á sama grundvelli eins
Bifreiðadekk
/
32 X 4l/a
höfam yið fyrirdggjandi.
Jöh. Olafsson & Co.
og hingað til og nú i náinni sam-
vinnu við skipin, sem Dariir senda
ckkur þetta ár til aðstoðar,
,,Fylla“, sem þegar er komin og
starfað hefir svo ágætlega og „Is-
lands Falk“, sem kemur nú á
næstunni.
Vor skylda er og verður æ hin
sama, að þakka það; sem vel er
gert i vorn garð, og væri illa farið
ef vanþökk íslendinga yrði til þess
að draga úr áhuga þeirra ágætu
manna, sem þeir hafa sent oss og
þegar hafa sýnt viljann og mátt-
inn til þess að bætg. úr þvi, sem
okkur þótti rniður fara.
eftir P. Stefánsson frá Þverá.
Frh.
II.
Þvi miður vanst mér ekki tími
ti! að hlusta á umræður þær, er
urðu um málið i neðri deild. En
framsögumaður meirihlut^, hr.
Þorlciíur Guðundsson, lét mér i té
góðfúslega aðalkjarnann í fram-
söguræðu sinni. Var það á þá
leið, að hann sem ekki væri ánægð-
ur með hin lágu fargjöld, sem
fólk slyppi nú með að borga fyrir
bílkeyrslu. teldi. ekki nema sann-
gjarnt, að notendur legðu nokkuð
af mörkum til rikisins. þar sem þvi
ækki yrði hnekt, að það (þ. e. ríkið)~
legði bílunum til vegi. Að vísu við-
tirkendi hann. sem réttilega var at-
hugað. að þessir vegir senr það op- ;
inbera legði til. væru raunverulega
ófærir flesta tíma árs, og marga
tíma alófærir, en þar sem bilskatt, !
ur tíðkaðist í öðrum löndum — j
Danmörk — þá yrðum við að gera j
slíkt hið sama. Að sjálfsögðu taldi
hann það, að bilkeyrsla yrði dýr-
ari hér, heldur en í nokkru öðru
landi, vegna þess, að hinir illfæru
vegir legðu svo þungan skatt á bil-
I ana og vegfarendur, en liann matti
þessi ágætu flutningatæki svo mik-
i ið, fyrir það, hversu þægilegt með
þeim væri að ferðast, og fanst, að
slik þægindi væri réttmætt að
skatta.
Það er gleðilegt, þegar slikir ó-
sérplægnir menn hittast með þjóð
vorri og er þess varla von, að
þjóðin kunni að meta þá eftir verð-
leikum, og slíka menn geta tæp-
lega önnur héruð alið en þau, sem
eiga þvi likum andans kröftum til
að dreifa eins og lýsa sér i um-
mælum tveggja sveitunga fram-
söguinannsins. Annar kvað sagt
Drenglr! Komlð á rnorgan
kl. 1 og seljið Skemmtiblaðið.
hafa, að það væri eyðilegging fyr-
ir vegina, að bamisettir bilarnir
ækju altaf vinstra megiri á þeím
(vegunum). Hinn hafði sagt atJ
sjðan bílarnir hefðu konnð á veg-
ina, hefði umferð aukist mjög mik-
ið. ]>. e. a. s. gagnsemi veganna
aukist, en aukin umferð orsakaði
slit á vegunum. Varð honum gagn-
semi veganna að áhyggjuefni bless-
uðum. Sín er nú hver samvisku-
semin!
Frh.
*V ML.
.JM—
W
Bæjarfréttir. .k
'í
I. O. O. F. Stvd. 1034298 >/2. - II.
Karlakórsæfing
í kvöld kl. 8 1. og 2. ten., kl. 9
1. og 2. bass.
Tíðarfar
Vætusamt hefir verið undanfar-
ið hér sunnanlands, en nú er kom-
ið sumar og blíðviðri. í simtali við
Seyðisf jörð í morgun var oss sagt,
að þar hefði verið alveg einstakt
blíðviðri, veturinn hefði mátt heita
snjólaus, enda sæist ekki meiri
fenjór i fjöllum en vant er að vera
um hásumar.
Aflimi
Egill Skallagrimsson og Apríl
komu inn í gær með góðan afla.
Walpole kom í morgun með 60
tunnur lifrar.
Mentaskólinn.
Ákveðið er að prófum skuli þar
lokið og skólanum sagt upp 25.
júní, vegna konungskomunnar.
Stúdentaefnin fengu upplestrarí-
leyfi sitt í gær.
Fimtugsafmæli
á Sigurgeir Einarsson kaup-
maður í dag.
Gullfoss
er í dag á vestari höfnum Húna-
flóa. Suðurland kom í nótt að vest-
an og Sterlirig er væntanlegur í
dag.
U ngmennaf élagsfundurinn
verður í Iðnó (uppi) í kvöld kl. 9
Vísir
kcmur ekki út á sunnudaginn.