Vísir - 30.04.1921, Blaðsíða 2
VtSIS
Kaupum háu verði
ialleg og ðgölluð selskion.
Bilaskattarinn.
eftir P. Stefánsson frá Þverá.
III.
Eg skal viöurkenna. aö irndir
núverandi kringumstæöum er
nauösynlegt að afla ríkinu tekna.
en það er e k k i sama á hvern
hátt það er gert. Hvort það er gert
á þann hátt, að að einstaka stétt-
um, atvinnurekendum og einstakl-
ingum sé með því íþyngt, og lagð-
ir í einelti. Sú stefna sýnist óneit-
anlega gera talsvert vart við sig í
seinni tíð. Eins er það ekki aðal-
uppgáfu þings og stjómar að afla
tekna til þess að eyða þeim, þó til
styrktar sé bráöefnilegum slæping-
um, sem löngun hafa til að fara
»t um heiminn. Nei, a'ðal-stefna
þings og stjómar átti á þessum
erfiðu tímum að vera sú, að eyða
sem minstu, en uin leið að fara
þann veg með íé þjóðarinnar, að
atvinnuvegum vorum og heildinni
kæmi að sem bestu og mestu haldi,
en það verður hvorki með ónauð-
synl. styrkveitingum til skemtunar
né stoínun nýrra embætta, og þá
þegar slíkt verður með þeim hætti,
að atvinnuvegum einstakra manna
Og stétta verður að íþyngja með
ósanngjornum sköttum samtimis
og þing og stjórn eys út fé til hlið-
stæðra fyrirtækja og atvinnurekst-
urs, ef aðrir eiga hlut að máli.
Það keniur því undarlega fyrir,
að stjórnin skuli hafa látið sér í
hug koma slíka fjarstæðu sem þá,
að fara að skattskylda þau einustu
flutningatæki sem til eru á landi
hér, eða þá menn sem kynnu að
vilja nota þau við atvinnurekstur
sinn. Má þar til nefna útgerðina
sem hefir tekið flutningabílana í
sína þjónustu, sömuleiðis nokkrir
bændur, sem tímans vegna álíta
sér hag í þ'vi að nota bíla til að-
drátta, og þetta skeður samtímis
þvi að ríkið borgar xoo kr. og
meira með hverju tonni af vörum
sem fluttar eru á sjó, og veitir
ferðastyrk hverjum manni sem á
sjó ferðast með skipum þeim. er
það hefir með að gera.
Eins og áður hefir verið bent á,
færir stjómín þrjár ástæður fyrir
þessum bílaskatti. I*'yrsta ástæðan
er, hvað fólksbílana áhrærir, sú,
að fólk brúki þá til skemtiferða.
Er þar líklegast sérstaklega átt við
lækna? önnur ástæðan að því er
við kemur flutningabílum, að þeir
sííti vegunum mjög. En þriðja á-
stæðan, sem virðist sú veigamesta,
að D a n i r hafi alt að 800 kr.
skatt á bílum.
Áður en stjórnin tók ákvörðun
sína með skattinn. sýndist það
ekki hafa verið úr vegi að hún
hefði athugað, hvað það kostaði
fyrir mann hér að ferðast t.d. 1 km.
samanborið við það hvað það kost-
aði x Danmörku. í Kaupmanna-
höfn kostar nú með sporvagni 25
aura frá Hellerup til Sundby, sem
eru ca. 14—15 km., fyrir stríðið
kostaði það 10 aura. Með bíl kost-
ar ca. 30 aur. pr. km., þegar um
lengri veg er að ræða; hér ca. 2 kr.
Með járnbraut kostar á 3. farrými
ca. 35 aura á danska mílu, hér kost-
ar með bíl, sem verður aö skoðast
hliðstætt farartæki járnbraut í
Danmörku, 15 kr. fyrir danska
mílu. Að þessu athuguðu virðist
þurfa brjóstheilindi til að íþyngja
umferð manna á landi með þung-
um sköttum, og sýnist annað liggja
•nær stjórninni og þinginu heldur
en það, enda þótt Reykvikingar
eigi hlut að máli.
IV.
í greinagerð þeirri er stjórnin
lét fylgja frumvarpinu, tekur hún
fram að í Danmörku séu bílar tneð
18 hestafla vél skattaðir með 800
kr. á ári. En þetta er fjarri því að
vera rétt, fyrst er það, að skatt-
skyld hestorka mótorsins er reikn-
að í Danmörk eftir effectivum
krafti, en ekki brúttó krafti mó-
torsins, eins og frumv. gerir ráð
fyrir. Til að reikna út skattskyld-
an kraft mótorsins er notuð eítir-
farandi formula:
D " x S x C x 0,3.
D er þvermál stimpilsins í centi-
metrnm, S slaglengdin i metrum,
C tala stimplanna. Eftir þessu
verður í Danmörku' mótor nieö 20
hestorkur brúttó, skattskyldur sem
ii,87 hestorku mótor, og skattur
5 kr. af hestorku eða 55 kr. af bíl
í staðinn fyrir að frumv. stjórnar-
innar fer frani á 15 kr. af brúttó
hestorku eða 300 kr. árgjald. sem
hin óhlutdræga og framsýna pen-
ingamálahefnd þó færði. niður í
12 kr.!
V.
Skattur sem greiddur er nú í
Danmörku af bílum seni notaðir
eru við fólksflutninga er 2 kr. En
í frumvarpi því, sem liggur fyrir
Ríkisdeginum nú, er gert ráð fyr-
ir m i k i 1 1 i hækkun frá því sem
nú er, en sá skat<«r sem frumvarp-
ið fer fram á r.ö greiddur verði
eftirleiðis af fólksfiutningabílum
er 5 kr. — fimm krónur — af
skattskyldri hestorku. og verður
það næst því að vera % á móti
því sem fjármálaráðherra vor
BenediRt Árnason
heldur siðustu
sön^sk.emtun
I Nýja Bió suimudBginn 1. mai 'kl. 4.
ViO hljóðfærið: Jón ivars.
Aðgöugumiðar seldir 1 bókaverslun ísafoldar, Sigf. Eymunds-
sonar, Hljóðfærahúsinu og Nýja Bió.
Vanur plægingamaður tekur að
sér plægingar, í vor, í Reykjavík
og grerid. — Þeir, sem vilja láta
vinna, sendi nöfn sín í lokuðu um-
slagi merktu „Plægingar“ á afgr.
Vísis fyrir 5. júní.
leggur til i frumvarpi því um bíla-
skatt sem hann lagði fyrir Alþingi.
Það er hvorttveggja, að hann á-
lítur samgöngur vorar i góðu lagi,
og að hann álítur samgöngutæki
vor svara til kröfu tímans! Eða
svo virðist mega ætla eftir þessu!
Af flutningabílum fer hið um-
rædda írumvarp, sem liggur fyrir
Ríkisdeginum nú, fram á að
greiddur verði skattur sem hér
segir: Af bílmn sem vega alt að
4000 kilo eigin þyngd 150 kr. af
hverjum 500 kg. og parti þar af,
þó minst 300 kr. Af bílum sem
hafa meiri eigin þunga greiðist
200 kr. af hverjum 500 kg og þar
að auki leyfa Danir ekki þyngri
bílum út á sveitavegi sína heldur
en 1000 kg eigin þunga, eða bílum
sem bera alt að 1 tonni. Get eg
þessa hér. ef það skyldi geta orðið
til þess, að það væri athugað, hvort
við ekki notuðum alt of þunga bíla
á vorum veikbygðu vegtnn, því eg
álít meiri ástæðu til að athuga það
heldur en að vera að íþyngja
akstri og umferð manna með okur-
háum sköttum.
I greinagerð þeirri er fylgdi um-
ræddu skattafrumvarpi sem lagt
var fyrir Ríkisdaginn, segir svo:
Að himi umræddi skattur sé í sam-
ráði við sarngöngmnálaráðherrann
og að meiningin með honum sé sú
að koma i veg fyrir liina miklu
bíla notkun sem nú sé orðin, og
sem járnbrautir rikisins geti ekki
kept við, en sent kunnugt er, hefir
ríkið með hönduin rekstttr allra
iárnbrauta. er hér því um þving-
unar-skatt að ræöa, af rikisins
hálfu. Fer hér sem oft vill verða.
þegar ríkið hefir fingur i rekstri
eirihverrar atvinnu. Hann^verður
því dýr, en með einokun og skatta-
þvingun getur það ætið bjargað
sér út úr ógöngunum, komið i veg
fyrir einstaklingsgróðann, en gert
alla tilveru möguleika einstaklings-
ins margfalt erfiðari og dýrari.
Héðinn og
IslnndsbankL
Hr. Héðinn Valdemarsson ritar
þessa daga í Alþýðublaðið allmikið
mál um íslandsbanka, skyldur
hans og réttindi, og hve hanri hafi
varið fé sinu illa, einkum þó í síld-
ar- og fiskbrask. Er við þessu lítið
að segja, og er þó ilt að dæmi eru
ekki færð til. — Væn þó til dæmis
fróðlegt, að vita úr hverjum fjár-
sjóði var ausið. þegar Héðinn
sjálfur og hans kumpánar keyptu
fiskinri af Pétri M. Bjarnasyni hér
i bænum. Er mælt að sú „spekula-
tion“ hafi verið einna verst gerð í
þessari borg og óþörfust.
Af því svo er að sjá að mál Héð-
ins um þetta muni verða all-langt.
og ráða megi af því, að hann verði
ávalt búinn til þess að auka við það
nokkru, væri þess mjög óskandi
að Héðinn gerði grein fyrir þessu
áður yfir lyki. Alþýðublaðið mundí
ekki láta skorta rúm til skýringar
um, ef illa væri varið fé alþýðu, þó
ekki væri unt að bera íslands-
banka sökinni.
28. apríl 1921.
Eagle.
Þríðliost samtal
frá Vestmannaeyjum til Lands-
símastjórans, tekið á móti á loft-
skeytastöðinni i Reykjavík:
22./4. 1921.
Háttvirti herra Landssímastjóri
Olaf Forberg, kæri vinur það
gleður mig af öllu hjarta að lifa
þessa stund, er svo þýðingarmikið
spor hefir stigið verið í menning-
arsögu þjóðar vorrar, aö nú getum
vér Vestrnannaeyingar, fámennur
hópur á afskektri eyju, átt kost á
því að Hfa með i viðburðasögu
lands vors og umheimsins, taka
þátt í þvi, sem frarn fer á hnettin-
ttm, án þess að eiga á hættu, að
vera sviftir sambandinu þegar
verst gegnir.
Eg óska yður til hamingju. sem
helsta frumkvöðli þessa mæta og
vituríega verks, að terigja aflasæl-
asta, en einangraðasta hluta þjóð-
arinnar, við heildina á meginland-
inu.
Heill og heiður sé yðttr, hátt-
virti herra, og öllum þeim öðrum