Vísir - 02.05.1921, Blaðsíða 3

Vísir - 02.05.1921, Blaðsíða 3
VfSIK leildsala — ImboðsYerslun FyTlrllKgJandl= 8iikibönd — feikna úrral Körfuvörur alak. Handkörfur IPappírsliöríur Brófakörfur Saumakörfur Teppamnskínur (ágætar). Mais. Heilan mafs, ágætt hænsnafó&ur höfum [vér fengið. Þessi vara hefur lækkað mikið í verði. Kaopfélag Reykvikinga Laug av[eg 22. 7 2 8. Simons beiðist lausnar. Sigiús Slöndahl & Go. Sími 7 20. stæla viö greinarhöf., get jeg ekki látiö hjá líSa, að minnast líti'S eitt á einstök atriði í umræddri grein. J. J. harmar injög mikið þá haekkun, sem gerð hefur verið á launum prestsins og telur kirkju- gjöldin vera alt of há. En mestan harminn ber J. J. einungis vegna J>ess, að Útgerðarmaður er í safn- aðarstjórninni, og að hann skuli Jesa Visí. Hvað launhækkun prestsins við- vikur, er það eitt að segja. að hann á hana fyllilega skilið. Öll þau störf, sem síra Ólaíur innir af hendi, eru mikil og stór og útheimta mikinn tíma, og hefir síra ólafur í ÖIIu, sináu sem stóru, sýnt framúrskarandi dugnað og leyst störf sín vel og rækilega af hendi. — Munu fáir þar eftir leika. Ef nú síra Ólafur færi að oröum Alþ .bl. og segði af sér —1 sem eg vona að hann geri ekki — þá er frikirkjusöfnuðurinn í Reykjavík búinn að vera. Margir sem i frí- kirkjunni eru, mundu tafarlaust ganga úr henrii. Því vandfundinn mun verða maður til að fylla upp jþað skarð sem verður ef síra Ólafs missir við. — Vöxtur og viðgang- ur safnaðarins er aö mestu að þakka prestinum. sem eðlilegt er, enda er síra Ólafur einn allra skörulegasti prestur þessa lands. Að ýmsu leyti eru all-undarlegar þær fullyrðingar sem Alþbl. hefir í frammi. í vetur, þegar til mála kom, að síra Ól. Ólafsson yrði í kjöri við Alþingiskosningarnar hér í hæ, fór Alþýðublaðið að brýna fyrir fríkirkjusöfnuðinum hve mik- il hætta stafaði af því ef hann misti prestinn á þing. Og blaðið, eða „fríkirkjumaður" sem í það skrif- aði þá, sagðist ekki telja eftir sér þótt lattn prestsins liækkuðu, bara ef hann færi ekki. En nú legst al- þýðumaðurimi algerlega á móti launahækkun; vill að presturinn fari. - Við, sem í fríkirkjunni erum, teljum ekki eftir okkur nokkrar ki'ónur. Við viljurn halda okkar ágæta presti og gera hann ánægð- an, því það er okkur fyrir bestu. Reykjavík, 26. apríl 1921. Fríkirkjumaður. Símskeyt! frá fréttarítara Vísi*. Khöfn 30. apríl. Skaðabætumar. Frá Paris er sírnað, að skaða- bótanefnd bandamanna hafi nú komist að endanlcgri niðurstöðu um upphæð skaðabóta þeirra, er Þjóðverjar eigi að greiða, og var þýsku stjórnmni tilkynt niðurstað- an í síðustu viku. Er talið til skuld- ar hjá Þjóðverjum um 132 miljarða marka, sem þeim er gert aö grei'öa á 30 árurn með samtals 270 miljörð - um marka, en síðasta áætlun var 226 miljarðar. Frá London er símað, að forsæt- isráðherrar allra bandamaimaþjóð- anna séu þar saman komnir á fund með sérfróðum ráðunautum sinurn til þess að ráðgast um þvingunar- ráðstafanir,' sent koma á i fram- kvæmd á rnorgun. Sendiherra Breta í Berlin er á fundinum, og hafði hann meðferðis síðustu miðl- unartillögur Þjóðverja, scnt samd- ar hafa verið í samráði við Breta. 1— Lloyd George krefst þess, að Þjóðverjum verði gerð síðustu sáttaboð, áður en bandamenn leggi Ruhrhéraðið undir sig. Wolffs fréttastofa tilkynnir, að Simons, utanríkisráðherra Þjóð- verja, hafi beiðst lausnar frá emr bætti, en Ebert forseti hafi ekki viljað verða við þeirri beiðni hans. af því að stjórn og þing hafi i öll um atriðum fallist á tillögur ha.ns I og samþykt gerðir hans í samn- ingunum við bandamenn. Sjómannaverkfall í Bandaríkjunum. Frá New York er símað, að alls- herjar sjómamiavérkfall verði baf- ið í Bandaríkjunum 1. maí. Gengi erl. myntar. Khöfn 30. apríl. Steiiingspund . kr. 21.85 liollar - — 5-53 100 mörk, þýsk - — B.45 100 kr. sænskar . - 129.00 100 kr. norskar ...... • — 85.75 too frankar, fr • — 4275 100 frankar,-svissn. .. • — 97-°° 100 lírar. ítal . — 26.8=; 100 pesetar. spánv. ... • — 77-25 !°o gyllini, holl . — 194.25 (Frá Verslunarráðinu). PV* Fermingar-skðr og stlgvél hjá Stefini Gnnnarssyni STELLA '6 Hann gekk til hennar og kysti hana, en hún iagði hendur um háls honum, dró hann aS sér og leit innilega í augu honum. ,,Ó, hvaS þér er heitt, góði, Er heitt niSri og drungalegt?“ „Já, ákaflega," svaraði hann, settist hjá henni og stakk höndunum í vasana. „pað er ekki minsti súgur niðn. og þo að hann væn, mundi verða Jokað fyrir hann tafarlaust. Hér er þægilega svalt, Lil; það er sannarlega hressandi að koma til iþín.“ „Finst þér það?“ spurði hún af ákefð. „Svo að þér finst það. Mér þykir vænt um, að þér finst það. Hvað er verið að gera niðri?“ „petta gamla,“ svaraði hann, „leikið á hljóð- fjari, sungið og spilað a spil, en flestir lata sér dauð-Ieiðast.“ Hún brosti. „En hvað hefir þú verið að gera?“ .,Eg var að hjálpa þeim síðastnefndu,“ svcuaði hann. „Mér var sagt, að þú hefðir farið út,“ sagði / Jhún lágt. Hann kinkaði kolli til samþykkis. „Já, eg lof- aði þeim jarpa að spretta úr spori.“ „Og þú yfírgafát gestina fyrsta kvöldið. pað var j>ér líkt. Ley! En kvöldið var yndislega fagurt. F.g hefði horft á eftir þér, ef eg hefði vitað, að j>ú ætlaðir að fara. Mér þykir gaman að sjá til jna á þeim jarpa. Reiðst þú yfír engjamar?“ „Já, yfír engjarnar.“ Hann þagnaði um stund, en tók svo til máls upp úr eins manns hljóði. „Lil! Eg sá draumsjón í kvöld. pað er lang-fegursta stúlka, sem eg hefi séð, önnur en þú.“ Hún andmælti honum ekki, en svaraði brosandi: „Stúlku! Hvernig var hún?“ .,Eg get ekki sagt þér það. Eg rakst á hana að óvöru. Hesturinn sá hana á undan mér og var svo „mannlegur“, að hann stansaði við.“ „Getur þú ekki lýst henni?“ „Nei. pú mundir brosa, ef eg ætti að gera það. Kvenfólk brosir ævinlega að þess háttar lýs- ingum. Og þú getur ekki að því gert, þó að þú sért kvenmaður, Lil! “ .,Var hún dökk eða ljós á yfírbragð?“ „Dökk,“ svaraði hann. „Eg vissi það ekki þá Mér var ekki unt að gera mér grein fyrir, hvort hún var dökk eða Ijós yfírlitum, meðan hún horfði á mig, en egs sá það seinna. Lil, þú manst eftir myndinni, sem eg sendi þér frá París — stúlkunni með dökku augun og langa, silkimjúka hárið — hún var ekki svört en brún í sólskini og langar brár skygðu fyrir augun, en alvörublandið bros lék um variinar." „Eg man eftir myndinni, Ley. Var stúlkan lík henni?“ „Já, nema lifandi! Gerðu þér í hugarlund; að stúlkan á myndinni væri lifandi! pú getur gert þér í hugarlund, hvernig málrómur hennar væri. Mjúkur og sön^fagur, skær eins og klukknsihljóm- ur, yndislega töfrandi, ýmist alvarlegur eða skemt- andi.“ r ,Ley, Ley! Eg held þú hafir komuS til að flytja mér skáldskap í kvöld!“ „Skáldskap! petta er sannleikur. En þú hefír á réttu að standa. Annað eins andlit og annar eins málrómur getur gert skáld úr hverjum, sem vera skal, hvað harðbrjósta, sem hann er.“ „En þú ert ekki harðbrjósta, Ley. En stúlkan, hver var hún? Hvað hét hún?“ „Hún hét .... hann hikaði augnablik og mái- rómurinn var ósjálfrátt undursamlega hljómfagur „hún hét Stella. Hun er bróðurdóttir gamla Etheredges málara.“ Lilian horfði á hann stórum augum. „Segirðu satt. Ley? Eg verð að sjá hana!“ Hann roðnaði, þegar hann leit til hennar. Hún sá, hve rnikið honum var niðri fyrir og fölnaðL „Nei,“ sagði hún alvarlega. „Eg astla ekki a5 sjá hana. Ley, — þú hefír gleymt henni á morg- un. Lofaðu mér að sjá framan í þig.“ Hann leil framan í hana, en hún horfðist í augu við hann og tók um háls honum. „Ó, Ley! Er nú loksins komið að því?“ „Hvað átt þu við? spurði hann þykkjulaust, en þó vottaði fyrir alvöru í rómnum, eins og hann kviði svari hennar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.