Vísir - 12.05.1921, Side 2
VISIR
Florylln — þurger — Ág»tt brauöager
Z” Qerpúlver — til kökugerftar —
Símskeyti
frá fréttaritara Vfsi*.
Khöfn 11. maí.
pjóðverjar ganga aö úrslitakostum
bandamanna. — Stjórnarskifti•
Beriínarfregn segir svo: Hinn nýi
ríkiskanslari, Wirth, fyrrum fjár-
málaráðherra og miðflokksmaður.
átti fyrsla fund ásamt hinu nýja
ráðuneyti kl. 9 í gærkvöldi í þing-
salnum og var þar saman komið hið í
mesta fjölmenni. Dauðakyrð var í |
þingsalnum meðan hann talaði. —
Skýrði hann svo að nú væri út-
runninn frestur sá, sem ]7jóðverjum
hefði verið veittur til andsvara úr-
slitakröfum bandamanna og yrði
tafarlaust að svara þeim játandi eða
neitandi. „Ef vér játum,“ mælti
hann, „verðum vér að bera þungar
byrðar fjárhagslega svo að árum
skiftir. Ef vér neitum, verðum vér
að láta af hendi öll tæki vor til
iðnaðar og fyrirgera með Öllu fjár-
hag ríkisins.“ Eftir stuttar umræður
kom fram svoiátandi tillaga frá
stuðningsmönnum nýju stjórnarinn-
ar: Ríkisdagurinn skorar á stjórn-
ina að senda stjórnum bandamanna
yfirlýsingu þá, sem krafist er í orð-
sendingunni frá 5. maí. Var hún
samþ. með 271 atkv. (socialdemo-
krata, demokrata og miðflokks-
manna) gegn 175 atkv. annara
flokka.
Cengi erl. myntar.
Khöfn 11. maí.
i00 kr. sænskar .... kr. 131.85
100 kr. norskar ....-----90.25
100 mörk .......... —- 8.95
100 fr. fr............— 47.25
100 fr. svissn........— 100.50
100 lírur ........... — 27.75
100 pesetar........ — 77.59
100 gyllini ..........— 200.00
Sterlingspund ........— 22.32
Dollar .............. — 5.59
(Frá Versl.ráðinu).
Taugaveikis-yarnir.
—o---
Viðtal við hv. Stcfán Jnjisson
docent.
1'augaveiki þykir jafnan hinn
mesti vágestur hér á landi, jafnt
til sveita sem i bœjurn. Hún er
þaulsætin, þar sem hún kemur
upj>, mjög næm og ilt við henni
að sjú á allar lundir. Hún gaus
hér upp í Austur-bænum seint i
marsmánuði og sýktust margir, en
að þessu sinni voru reyndar varn-
ir með bólusetningu, sem ekki
hafa [áður verið tíðkaðar hér á
landi, og hefir Vísir hitt Stefán
docent Jónsson að máli, til þess
að spyrjast fyrir um þessar til-
raunir, því að hann hefir útvegað
bólusetningarefnið og unnið að
rannsókn sýkinnar i samvinnu
við héraðslækni. Spurðist blaðið
jafnframt fyrir um útbreiðslu veik-
innar hér á landi og skýrði lækn-
irinn svo frá:
„Taugaveiki má heita mjög al-
geng hér á landi og miklu tíðari
hér en á öðrum Norðurlöndum.
Þeir hafa skift hundruðum, stund-
um jafnvei mörgum hundruðum,
sem sýkst hafa árlega, undanfarin
ár. Hennar heíir víða orðið vart
i vetur, hæði norðan lands og
vestan og hér í Reykjavík. Henn.
ar verður að jafnaði vart hér í
bænum allan ársins liring. — einn
og einn maður sýkist hér og þar
um bæinn, en auk þess grípur
hún um sig við og við og sýkjast
þá margir á skönimum tíma. —
Seinast i nmrs kom hún upp í
Austurbænum og var óvenjulega
þung og illkynjaðri en hún er vön
að vera, og þá lögðust margir.
Það þykir fullsannað af ran-
sóknum, seni eg hefi gert í sam-
ráði við héraðslækni, hvar veikin
haíi átt upptök sín, að þessu
sinni. I húsi einu hefir fundist
gerlaberi, sem telja má, að orðið
hafi valdandi að upptökunum. —
Sumt fólk, einkanlega þó kvenfólk,
gelur borið í sér sýkingargerilinn
ár eftir ár, án þess að sýkjast
sjálft, en sýkir hvervetna frá sér.
Hefir stundum mátt rekja feril
þess bæ frá bæ, veikin alstaðar
komið upj>, þar sem það hefir gist.
Ein slík kona var nýlega i Norð-
urlandi, en er nú látin.
Um varnir gegn veikinni, að
þessu sinni, er það að segja, að
þær hafa verið þrens konar.
I. ) Þeir sem veiktust, voru ein-
angraðir í farsóttahúsinu / Þing-
holtsstræti.
II. ) Reynt heíir verið eftir
mœtti að sjá um, að gerlaberinn
sýkti ekki frá sér.
III) Fólk heíir verið bólusett
á þeim heimilum, sem veikin hef-
ir komið upp á, lil þess að verja
það veikinni.
Þessi bólusetningaraðferð, lil að
varna taugaveiki, er nokkuð gömul,
en einkanlega var hún notuð nijög
B. 8. A.
mótorhjól, lítið notaft og i ágætu st&ndi, til sölu.
Jöh. Ólafsson & Co.
Sfmar: 584 & 884.
mikið í styrjöldinni miklu og reynd-
ist þá ágætlega.
Þessi aðferð hefir ekki verið
reynd hér á laiyli áður og reynsl-
an er altof stutt enn, til þess að
nokkuð verði að svo stöddu sagt
um árangurinn, en annars staðar
hefir hún reynst mjög vel, flestir
sloppið' alveg, en þeir fáu. sem
veikst hafa, orðið lítið veikir.
Sjúkratala og dánartala taugaveik-
issjúklinga hefir þess vegna mjög
lækkað erlendis, þar sem bólusetn-
ing hefir verið notuð.
VTeikin er áreiðanlega í rénum
i Austurbænum, eu þó má búast
við, að hennar verði eilthvað yart
a þeim slóðum enn, þvi að þeir,
sem veiktust, geta hafa sýkt frá
sér, utan heimilis, áður en þeir
lögðust. Og auk þess getur hún
vitanlega komið upp af öðrum
rótum.“
Ljáblðð, Ljábryni, Klöppnr,
Steikarpönnnr, Kolaansur,
Glnggagier. í héildsöln —
Lungódýrast i rersl.
B. H. Bjarnason.
Gott HarmtaiBBi
íVsliRfsrt keypt. IJppl. gefur
Loítor Gaðnmndssoo
Sauitas. Tals. 190.
iasbakaraofn
meft tilheyramli gBséldfæri og
guíusuðupotttar (3 samatæftir),
hvorutveggja nýtt, tíi sölu meft
iunkaupsverði, á Bergstaðastr. 2.
t
Eiiar H. Zaép.
I fyrramorgún druknaði Einar
H. Zoega, sonur Helga kaupmanns
Zoega. Hann var farþegi á Botníu
frá Kaupmannahöfn til Leith, og
hefir falliS fyrir borS, en ófrétt er,
hvernig þetta sviplega slys hefir at-
vikast.
1
Bæjarfréttir.
f
Veori'd í morgun.
Hiti í Rvík 7,2 st., Vestmanna-
eyjum 5.8, Stykkishólmi 6,4, Isa-
firði 4,5, Akureyri 5, Grímsstöðum
0,0, Seyðisfirði 3,8, pórshöfn í Fær-
eyjum 7,1 st.
V æringjasl(álinn.
Drengir sem eru á skátaaldri, 12
— 17 ára, geta fengið að dvelja í
Væringjaskála í sumarleyfi, ef þeir
semja urn það við formann Vær-
ingjafélagsins, cand. phil. Ársæl
Gunnarsson, Hafnarsíræti 8. J?eir
verða að beygja sig undir allan aga
skátafélagsins og kostnaður verður
sá sami og fyrir skátana sjálfa.
Drengir geta enn gengið í Væi--
ingjafé'lagið.
Botnia
er nú í Leith; kemur hingað í
fyrsta lagi annan dag hvítasunnu.
Atvinaa
4 — 5 doglegir vormenn verfta
teknir við Keflavfknrverslun.
Semjið vift Matthlas Þórftarson,
sími 5 A,, Keflavfk.
Slfipafregnir.
G u 11 f o s s kom til Kaupm.-
hafnar 11. maí; fer þaðan 15. maí,
um Leith til Reykjavíkur.
Lagarfoss kom til Ameríku
(Bayonne) 10. maí; fer þaðan 17.
maí, um Halifax, til Reykjavíkur.
V i 1 1 e m o e s fór frá Leith 11.
maí áleiðis hingað. Fer héðan norð-
ur og austur um land.
S.s. Sirius
fer héðan í fyrramálið, kl. 10,
vestur og norður, til Noregs.
Hilmk
kom af veiðum í gær.
Gjöf til Samverjans.
Áhcit frá M. R. kr. 10.
Blandaði kórinn.
Samæfing kl. 8.
Bifreið.astöð Re\)kjavíkur.
Austurstræti, móti Lækjartorgi,
símar 716 og 880. Áætlunarferðir
alla daga, oft á dag, milli Hafnar-
fjarðar og Reykjavíkur. Til Vífils-
staða frá Reykjavík kl. II Vt.
/