Vísir - 13.08.1921, Side 3

Vísir - 13.08.1921, Side 3
yísiM leildsala — imboðsvBPslun FFrirllKSjandl ■ ZVtÍöIUnirbrúsar galv. 15 & 20 lítra (uýkomnir). Aluminium vömr allak. (ódýra«tar á þas«u laudi). Vatnsfötur 28 — 30 — 82 cm. Emaileraðar vörixr allsk. sérlega ódýrar. .Tárnvörur, aðrar, i milzlrt tirvali. Sigiás Blðndihl & Co. Siral 7 2 0. LækjargötnGB arlög, sem nú eru svo a‘ð segja dauðadæmjd, fjárlragslega, létu tafarlaust álit sitt til ríkisstjórn- arinnar í ljósi, og ef hún upp á eigin ábyrgð, ekki vill takast á ' hendur að ganga að kröfum Spán- verja, að hún þá þegar í stað kalli saman aukaþing, sem að vísu mundi kosta landið lauslega á að giska, 50 til 60 þúsund krónur, en á hinn bóginn sanngjarnar líkui fyrir því, að fleiri miljónir króna •mundu græðast, ef þetta lífsspurs- mál yrði til lykta leitt á viðunandi hátt, áður en fiskframleiðendur nevðast til að selja fiskinn langt undir framleiðslukostnaði. Ámi Sigfússon. Aths. Þó að Vísir geti ekki fall- ist á röksemdafærslu háttv. grein- arhöfundar, þá hefir hann ekki tal- ið rétt að synja greininni birtingar, En ]>að virðist liggja í augum uppj, að ef fiskkaupmenn teldu háa toll- inn, 72 pes., yfirvofandi, þá rnyndu þeir ekki láta sér nægja að ætla fyrir honum að eins að hálfu leyti, 30—40 kr., eins og gr.höf. virðist gera ráð fyrir. En munurinn á hærra og lægra tollinum er rúmar 60 kr. á skp. Hins vegar er út- gerðarmönnum í lófa lagið að afla sér fullrar vissu um það, hvort hærra verð væri fáanlegt fyrir fisk- inn, en í boði er, ef hærri tollur- inn væri ekki „yfirvofandi", eins og gr.höf. fullyrðir að hann sé. Þar á enginn v a f i að geta leikið á. dtjfc. fc. >h «fc i\fc *k Bæjarfréttir, r tb Sf> n Brauðverðið. Bakarar í bænum, aðrir en Al- þýðubrauðgérðin, hafa nú lækkað brauðverð sitt, og mun nú vera sama verðlag hjá öllum brauð- gerðarhúsum. Verðið er nú: Rúg- brauð kr. 1.80 (]4 br. 90 au.), fransbrauð 80 aur., súr- og sigti- brauð 60 aur., vínarbrauð 15 og 16 aur., snúðar 12 aur., kökur 16 aur. (áður 20) og 6 (áður 8). Slysfarir. Pétur Hansson, verkstjóri hjá Copland, datt niður í lest á e.s. Borg í gærmorgun og meiddist talsvert, en var ekki sagður mjög þjáður í morgun. — Síödegis í gær slasaðist Árni Ámason, ungur maður, sem var að vinnu i kola- skipinu Thormod Bakkevig. Það slys atvikaðist svo, að verið var að lyfta tveinr kolakörfum upp úr lest skipsins, þegar lyftiásinn (,,bóman“) brotnaði og féllu kola- körfurnar niður í lestina og kom önnur í höfuð Árna og skaddaði hann allmikið. Var hann fluttur á Landakotsspítala og var hann sagður hress eftir vonum í morg- un og í engri hættu staddur. — Fyrir fjórum dögum slasaðist verkamaðurinn Helgi Jónsson, á Barónsstíg 12. Hann var í hafnar- vinnu og slóst sveif á handvindu fyrir brjóst honum og meiddist hann mikið. MessaS verður í dómkirkjunni kl. 11 f. h. á morg-un. Cand. theol. S. Á. Gíslason prédikar. Veðrið í morgun. Eliti í Rvík 10 st., .Vestmanna- eyjum 9, Grindavík 10, Stykkis- hólmi 7, ísafirði ,6, Akureyri 5, (engin skeyti frá Grimsstöðum), Raufarhöfn 4, Seyðisfirði 8, Hól- um i Hornafirði 11, Þórshöfn t Færeyjum 7 st. Loftvog lægst fyr- ir suðaustan land, stöðug eða hægt stígandi. Hæg norðlæg átt. Regu á Akureyri. Horfur: Svipað veður. Skemtiför fara prentarar á morgun á Skildi kl. 10%. Félagsmönnum er heimilt að taka með sér auk skylduliðs kunningja sína og vini. Trúlofun sina hafa opinberað í Kaup- mannahöfn ungfrú Anna Þorkels- dóttir Hreinssonar og cand. theol. Aage Thaarup Rasmussen, sonur Rasmussens prests í Koldíng. íslenskar kvikmyndir af konungskomunni verða sýnd - ar í báðum kvikmyndahúsunum i kvöld. Þar gefst mörgum Reyk- víking færi á að sjá sjálfan sig og má búast við mikilH aðsókn. Knattspyrna verður háð á morgun, að öllu forfallalausu, milli hermanna á Fylla og knattspyrnufél. Þrándar. Gengi erl. myntar. Khöfn 12. ágúst. Sterlingspund.........kr. 23.00 Dollar.................— 6.27 100 rnörk, þýsk........— 7.80 100 kr. sænskar.......—- 132.25 100 kr. norskar........— 81.65 100 frankar, franskir .. — 49.35 100 frankar, svissn. .. — 106.50 100 lírar, ítalskir .... — 28.00 IOO pesetar, spánv.....— 81.75 100 gyllini, holl......— t96-25 (Frá Verslunarráðinu). ‘t'. Reykjtrpipar og tébikSTeski mikið árril í Hifnarbnðiiini. •‘■gpi STELLA 80 Hverju átti hún að svara? Hún fékk ákafan hjartslátt. -Hann var að þakka henni fyrir dreng- inn í sömu andránni, sem hún var að hjálpa Frank fil að draga hann á tálar — hennar vegna! ,.Fraendi,“ sagði hún í hálfum hljóðum, .,þú veist að eg elska þig! ]7ú veist það! ]?ú ætlar æv- inlega að muna það og treysta því, hvað sem 'fyrir kann að koma.“ Hann kinkaði kolli algerlega grunlaus og brosti. ,,Hvað á nú að koma fyrir, Stella?“ spurði hann, •en varla hafði hann slept orðunum, þegar draum- höfgi færðist yfir hann og hann varð annars hug- ar, og Stella, sem horfði framan í hann, svaraði engu orði. XXV. KAPÍTULI. Jasper Adelstone kom stundvíslega til fundar við lafði Lenore, og hann lyfti hattinum, þegar hún kom í móti honum. Lafði Lenore hneigði höfuðið drembilega og beið þess, að hann tæk: til máls. En Jasper þagði. Hún hafði sent eftir honum og hann var kominn! ,,]?ér fenguð orðsending mína, herra Adel- stone?“ sagði hún loks. „Eg er hér,“ svaraði hann brosandi. „Eg sendi eftir yður,“ svaraði hún kuldalega, eftir litla þögn, „af því að eg hefi fengið fregn- ir, sem eg hugsaði, að yður þætti mikilsverðar og mér datt í hug, að þær gætu orðið að liði,“ Hann kinkaði kolli, en vildi ekki láta sem hann skildi hálfkveðna vísu. Honum fanst mátulegt, að láta h^na segja, hvers vegna hún hefði gert hon- I um orð og hann ætlaði ekkert að gera, fyrr en hún hefði gert það. „pegar við hittumst síðast, sögðuð þér orð, sem ekki er líklegt eg hafi gleymt. ]7ér þykist vera fáanlegur — jafnvel óðfús — til að hindra tiltekna ráðagerð.“ „Ef þér eigið við ráðahag Trevornes lávarðar og — og Stell. . ungfrú Etheredge, þá er eg mjög fús til þess; eg er ráðinn í að hindra þann ráða- hag. ! „Eg er komin hingað í kvöld til að láta yður í tje dálitla vitneskju um stúlkuna, sem þér seg- ist leggja mikinn hug á.“ „pessi ,,stúlka“ ,sem þér talið um, mun vera j ungfrú Stella Etheredge? “spurði hann stillilega. en augun urðu skyndilega þykkjuleg. „Ef svo er, þá leyfið mér að minna yðar tign á það, að hún er hefðarmær!“ „Kallið þér hana, hvað sem þér viljið,“ svar- aði lafði Lenore kuldalega og háðslega. „Eg átti við hana.“ „Og manninn, sem þér leggið hug á?“ sagði hann, jafnfyrirlitlega. „Við skulum ekki tala um þá hlið málsins, ef yður er sama, herra AdeIstone.“ „Mér skilst þá, að þér hafið komið hingað í kvöld af eiginhvötum, til þess að gera mér greiða. Skil eg það rétt?“ „pér megið skilja það eins og yður sýnist og hugsa sem þér viljið,“ sagði hún lágt, í annar- legum rómi, „við skulum ekki deila um það. Mig langaði til að sjá yður og gerði yður orð og þér I eruð hér komnir; látum það nægja. pér viljið hindra hjónaband Trevornes lávarðar og hefSar- | meyjarlnnar, sem þér sáuð hjá honum á þessum j stað. ]?ér talið vongóðir um getu yðar & 1 ?ess; ' nú gefst yður skyndilegt tækifæri til að sýna dugn- að yðar í verki. því að Trevorne lávarður ætlar að ganga að eiga hana á morgun eða í siðasta lagi hinn daginn.“ „Hvernig vitið þér það?“ „Af því að eg sá bréfið,“ svaraði hún og leit stcrkandi á hann. „pér hafið vissulega gert mér mikinn greiða,“ sagði liann og glotti háðslega. „Yður!“ var komið fram á varir henni, en hún sýndi á sér fyrirlitningarsvip, eins og það væri ó- samboðið virðingu hemiar, að virða hann svars. „pérlsáuð bréfið,“ sagði hann. „Hverjar voru þessar ráðagerðir hans? Hvar og hvenær átti hún að hitta hann? Fari hann bölvaður!“ „Hún á að fara til Londonar í fyrramálið, klukkan ellefu, og hann ætlar að koma í moti henni þar og fara með hana í Bruton. stræti nr. 24; drengur, frændi hennar, á að fylgja henni,“ sagði hún stuttlega. „Á!“ sagði hann illgirnislega. „eg get kramið þann orm. En hvað ætlast þau svo fyrir?“ Hún hristi höfuðið fyrirlitlega, eins og henni stæði það á sama og laut yfir handriðið á stíflu garðinum, niður í ólgandi, freyðandi hringiðuna. „Eg veit ekki. En úr því að drengurinn á aS fylgja henm, þá geri eg ráð fyrir, að hann kaupi Ieyfisbréf og gangi að eiga hana. En ef til vill er drengurinn aðeins skálkaskjól, sem Trevorne lávarður losar sig við.“ „Og hvað þá?“ „pá,“ svaraði hún hægt. „Jæja, hugsunarhátt- ur Trevornes lávarðar er sæmilega kunnur. A3 öllum líkindum finst honum engin þörf á að gera stúlkuna — fyrirgefiö þér! þessa ungu hefðar- mey — tilvonandi hertogaynju af Wyndward.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.