Vísir - 03.01.1922, Blaðsíða 2
YlSIR
leildsala-lmboðsYerslui
Fyrirliggjandi:
IVJjar, ijratn ílokks, ðdýrar Emaill* vörur
Sigfús Blondahl & Co.
Simi 720. Lækjargötn 6B,
Söngskemtnn
Siguröar Birkis, hin síðari, var
miklu ver sótt en skyldi. ÞaS er
engu líkara en a'ð fólk hafi tekið
hið lága a'Sgöngugjald svo sem
játningu frá söngmannsins hálfu
um, a'ð hann væri ekki úr fremstu
röð þeirra söngmanna, sem vér
höfum átt kost á að heyra. En
SigurSur Birkis er óefaS úr
fremstu röð þeirra manna; radd-
svið hans er mjög mikið, rómur-
inn snjall og þý'ður, holulaus og
sterkur, þegar hann vill það við
hafa, enda þótt hér hafi heyrst ein
rödd eða tvær, sem a'ð svo komnu
eru sterkari. Sigurður syngur með
mikilli skynsemi og lægni og
sannri tilfinningu, og er eðlilegt.
að þeir, sem um það hugsa, geri
sér góðar vonir um, að hann verði
þjóð sinni til mikillar gleði í fram-
tiðinni og til sóma meðal annara
þjóða. — Eitt af þeim lögum, sem
Sigurður söng seinna kvöldið,
hafði hann sungið, þegar hann var
hér fyrir i y2 ári síðan, nefnilegá
aríu úr óperunni Tosca; í fyrri
parti þess lags kom vel í Ijós fram-
för söngvarans, auk þess sýndi
það lag einna best styrkleik radd-
ar hans og skaps.
Farmaður.
Wýárssundið
hófst kl. ioyi f. h. frá Jes Zim-
sens-bryggju. Keppendur voru io
og sundskeiðið 50 stikur, úrslit
urðu þessi:
1. Jón Pálsson, sundk. á 37J^sek.
Í2. Pétur Árnason .... - 38^ —
3. Ólafur Árnason .. - 39Ys —
4. Óskar Bergmann - 41 —
5. Pétur Halldórsson - 41 —
6. Gestur Friðbergsson- 42 —
7. Erlingur Jónsson.. - 47% —
8. Marteinn Pétursson - 47^ —
9. Friðrik Ólafsson .. - 4&//í —
ío. Friðrik Pálsson .. - 50 —
Að sundinu loknu hélt Bjarni
Jónsson frá Vogi ræðu, sem birt
verður í blaðinu á morgun. Fjöldi
fólks horfði á sundið. Sjávarhiti
var 0,6 st. Lofthiti 4 st.
Goðafoss
fór á nýársdag norður og aust-
r.r um land. Meðal farþega voru:
f:ú Guðrún Indriðadóttir, Valtýr
ftefánsson, Haraldur Guðmunds-
son, Árni Kristjánsson frá Lóni í
Kelduhverfi og Árni Árnason frá
Raufarhöfn.
Lagarfoss «
hafði farið inn til Halifax til að
taka kol og fór þaðan áleiðis til
New York á gamlárskvöld. Hann
á að flytja hingað hveiti og fleiri
kornvörur.
Gullfoss
fór til útlanda á nýársdag, eins
og auglýst hafði verið. Farþegar
voru, meðal annara: Jón Björns-
son kaupm., Ólafur Gunnlaugsson.
Gunnar Halldórsson, Óscar Clau-
sen, Fenger, Thoroddsen, Gísli
Andrésson, Jón Ólafsson, Sig. Sig-
urðsson, Grauslund, Ebba S. Hall-
dórsson, Björg Guðnad., Gíslína
Ólafsd., Elinborg Benediktsdóttir.
Vilhjálmur Finsen
hætti ritstjórn Morgunblaðsíns
um áramótin og fór alfarinn af
landi burt á Gullfossi 1. þ. m.
Hann mun setjast að í Noregi.
Til athugunar: —
Eftir að hafa haft tal af atvinnu-
málaráðherra, kannast hann ekki
við, að frá sér sé komnar neinar
heimildir fyrir þeirri fregn,að hann
ætli að segja af sér ráðherrastöð-
unni þegar á þing kemur.
Hljóðfæraasveit Bernburg’s
skemti á Vífilsstöðum, Kleppi
og Laugarnesi um jólin og þótti
sjúklingum mjög vænt um heim-
sóknina.
Botnvörpungarnir.
1. janúar komu Njörður, Jón
forseti og Leifur heppni, sem allir
höfðu veitt í salt, og Ari, sem
veitt hafði í ís; hann fór samdæg-
urs til Englands. — í gær komu
Geir, Kári Sölmundarson og
Austri, sem allir eru lagðir af stað
til Englands, og Skúli fógeti, sem
veitt hafði í salt, og fer nú að
veiða í ís. í morgun komu Hilmir
og Maí, sem báðir hafa veitt í ís
og eru á förum til Englands.
GlímuféL Armann.
Félagar! Munið eftir æfingu
annað kvöld kl. 7.
Trúlofuð
eru ungfrii Guðrún Gunnars-
dóttir frá Eyrarbakka og Jón H.
Svanberg í Viðey. Ennfremur ung-
frú Kóngódía Árnadóttir frá Við-
ey, og Kristján J. Þorgrímsson frá
Laugarnesi.
FyrirliggjMdi:
Ideal dósamjólk.
K. Einarsson & Björnsson
Simi 915. Stmaefai: Embjén
Fiugeldar
púðarskeastir, púðarkerlingar, púðnrsfrákar og eldflngur iást í
verslnn Geðiíais.
hefjast í Bárubúð MiSrikadag 4. janúar kl. 5.
Uppl. gefnar i Bdnkastr. 12 (Konfektbáðiimi)
Lilla Eiriksdóttir. Páll Andrésson-
Guóra. Asbjðrnsson.
Laugavegl. ! Sími 5 5Sw
Landsins besta úrval af RAMMALISTUM.
Myndir innrammaðar fljótt og vel. Hvergi eins ódýrt.
Alþingi
hefir verið kvatt saraan 15 febr.
næstk.
Bæjarlæknis-embættið
er.nú auglýst laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur til 1. mars n. k.
12500 bréf og bréfspjöld
voru borin út um bæinn á jól-
unum. Er það lítið eitt fleira en
í fyrra.
10 ára afmæli
átti firmað Nathan & Olsen 1.
janúar. Firmað hefir gefið út
skrautlega dagbók með ýmsum
fróðleik.
Næturlæknar.
Á morgun verður birt skrá yfir
þá lækna, sem næturvörð hafa fyr-
ir Læknafélagið. Ólafur Þorsteins-
son er næturlæknir í nótt.
Nýja Bíó
sýnir í síðasta sinni í kvöld hina
ágætu hnefleikamynd, af heims-
meistarakappleiknum, sem háður
var í fyrrasumar á milli Carpenti-
er og Dempsey.
Gamla Bíó
sýnir í kvöld ágæta mynd, sem
heitir: Hinn óþekti hermaður og
einnig Giftu þig aldrei.
Samverjinn.
Ef einhver gæti lánað eða selt
Samverjanum þvottapott og eld-
stó, er hann beðinn að snúa sér
til Flosa Sigurðssonar, Lækjarg.
12 A.
Kensla.
Nokkrar stúlkur geta enn kom-
ist að í útsaums-, baldýringar- og
knipli-tíma.
Allskonar útsaums-, baldýriaga-
og knippliefni til sölu.
Kristín Jónsdóttix.
Ingibjörg E. Eyfells,
Skólavörðustíg 4B uppi.
„SANITAS"
sætsaftir eru gerttar úr berf-
um og sykri eins og besta
útlendar saftir. — Þær era
Ijúffengar, þykkar og lita vcL
Simi 190.
Símskeyti frá Hamborg.
Hinni íslensku þjóð óskas!:
gleðilegra jóla og nýárs. — Kap-
tæn Woker, Schiff Martha.
Slysfarir.
Tveir drengir meiddust mikíð á‘
nýársdag af því að flaska, meS
púðri í, sprakk framan í þá. —
Daginn fyrir gamlársdag meidd-
ist drengur í andliti af því að log-
andi púðurkerlingu var fleygt
framan í hann.
„2000 br6ntir“.
Flandhafar miðanna, sem upf*
komu, eiga að vitja peninganna
eigi síðar en 1. júní 1922. Láðist
að geta þess í auglýsingu um vhnn-
ingana. \
M