Vísir - 23.02.1922, Síða 2
* yísiR
Höfum fyrirliggjandi:
Morskin slíiiitul o| flitiiogsluili.
Því dæmist rétt vera:
KæríSi, Hans Hirtz, greibi iooo
róna sekt í ríkissjóS og sæti auk
ess einföldu íangeisi í tvo mán-
uöi. HiS ólöglega innflutta áfengi
skal upptækt og eign ríkissjóðs.
MálskostnaÖarákvæKi lögreglu-
Sterlingsávísanir.
A.thygli ferðamanna og ann-
»ra er vakin á því, að útlendir
bankar vilji ekki kaupa „kross-
aðar“ sterlingsávisanir nema
með miklum eftirgángsmunum.
„Baldurs“-málið
dæmt í hæstarétti.
Svo sem kunnugt er, kom þýskt
mötorskip, „Baldur“, til Siglu-
fjariSar, meö eitthvaö 20 tonn af
áfengi, i sumar sem leiö, sem skip-
stjóri kvaö eiga aö fara til Gauta-
borgar í Svíþjóö. En skýrslan þótti
ósennileg og auk þess uröu skip-
verjar uppvísir að vinverslun við
.landsmenn. Var þá máliö kært og
lauk því svo í héraði, að skip-
stjóri og stýrimaöur voru dæmdir
í 1000 kr. sekt hvor og vinbirgö-
irnar geröar upptækar. Skipstjóri
undi illa þessum dómi, og skaut
honum til hæstaréttar. Var málið
sótt og variö síöastliðinn mánu-
dag í hæstarétti, en dómur upp-
kveðinn í gær. Dómur undirréttar-
ins var hertur að því leyti, að skip-
stjóri var, auk sektanna, dæmdur
í 2ja mánaöa einfalt fangelsi.
Dómur hæstaréttar er á þessa
leið:
Dómi lögregluréttarins hefir
veriö áfrýjaö aö eins að því er
snertir kærða, skipstjóra Hans
Hirtz.
Ný sakargögn hafa verið útveg-
uð og þau lögö fram í liæstarétti.
Þegar litið er til þess, a ö mjög
er ósennilegt, aö áfengisfarmur,
■er fara á frá Hamborg til Gauta-
borgar, og tók tiltölulega mikinn
hluta af lestarrúmi skipsins, sé
sendur þvert úr leið um svo lang-
an veg sem til íslands, aö mað-
ur sá, er samkvæmt farmskírtein-
inu var talinn viðtakandi farms-
ins í Gautaborg, fanst þar ekki,
a ö farmskjölin voru ekki útbúin
sem hér lend lög mæla fyrir um
farmskjöl verslunarskipa, a ö
nokkuð af áfengisfarminum var
faliö í salttunnum, a ö meira var
af spíritus í skipinu en farmskír-
teinið tilgreindi, a ö af tölu kassa
utan af koníaki, er fundust í skip-
inu, má ráöa, aö meira hafi veriö
afhent af áfengisfarminum en upp-
lýst er í prófum málsins, a ö all-
mikiö áfengi var selt og flutt í
land aö næturþeli á Siglufirði, að’
kaupendur áfengis þess hafa boriö
það, að þeir hafi rætt um kaupin
við kærða og skilið hann svo, sem
við hann væri samið um þau og
áfengið átt aö greiðast meö síld,
a ð kæröi hefir ekki gert fulla
K. F. U. K.
Pundur auaað kvöld kl. 81/*.
Ólavía Jóhannsdóttir talar.
Alt kvenfólk velkomið.
grein fyrir mcð hverju hann
greiddi síld þá, er hann keypti,
og a ö það hinsvegar er alls
ósennilegt, að feröin hafi verið
gerð til Siglufjarðar til að kaupa
síld í það lestarrúm, sem afgangs
,var áfengisfarminum, þá er ekk-
ert mark takandi á farmskírteini
skipsins yfir áfengið, og verður
engíun trúnaður lagður á þá
jkýrslu kærða, að áfengið, hafi átt
aö fara til Gautaborgar. en ekki
verið ætlað til innflutnings og af-
hendingar hér viö land. Og er þaö
þá nægilega sannað, að kærði hafi
oröið sekur um brot gegn i. gr;
laga nr. 91, 14. nóv. 1917, enda
veröur ekkert tillit tekiö til skýrslu
kæröa um að stýrimaðurinn hafi
selt áfengið úr skipinu án vilja
hans og vitundar.
Ennfremur er það sannað. aö
um leið og kærði sýndi skipsskjöl-
,in, undirritaði hann á skrifstofu
lögreglustjórans ranga yfirlýsingu
á dönsku þess efnis, aö ekkerr
áfengi væri í skipinu, og leiddi
þetta til þess, aö áfengið var ekkí
innsiglað þegar eftir komu skips-
ins. Hefir kæröi meö þessu gerst
brotlegur gegn 5. gr. fyrnefndra
laga.
Samkvæmt framansögðu er
kærði sekur um brot gegn 1. og
5- gr. laga nr. 91, 14. nóv. 1917.
Hið ólöglega innflutta áfengi á
upptækt að vera og eign ríkis-
sjóðs, og 'þar sem álíta verður
að áfengiö hafi verið ætlþö itil
sölu, ákveðst refsingin samkv. 14.
cg *5- Sr- laganna 1000 kr. sekt
til ríkissjóðs, og aö auki tveggja
mánaða einíalt fangelsi.
Málskostnaðarákvæði lögreglu-
réttardómsins verður aö standa ó-
raskað, en kærði greiði allan
kostnaö málsins fyrir hæstarétti,
þar með taliö málflutningskaup til
sækjanda og verjanda, 200 kr. til
hvors.
Þaö er aðfinningarvert viö með-
ferö málsins í héraði, aö þrjú vitni
hafa verið eiöfest tvisvar sinnum.
réttardómsins skal óraskaö, en
kærði greiði allair kostnað sakar-
innar í hæstarétti, þar með taliö
málfhuningskaup til skipaðs sækj-
anda og verjanda, málaflutnings-
mannanna Jóns Ásbjörnssonar og
Björns' P. Kalman, 200 kr. tii
hvors.
Dóminnm skal fullnægja með
áðför aö lögum.
Bankamatið.
Matinu á hlutabréfunl fslands-
banka er nú lokið. Hefir mats-
nefndin inetið hlutina 91 kr.
virði hundrað krónlirnar.
Fjármálin í Stúdentafélaginu.
Fjármáiaumræðurnar í Stúd-
entafélaginu í gærkveldi urðu
ekki sérlega veigamiklar; varð
úr þeim kai*p nokkurt milli f jár-
málaráðherrans og Mortens
Ottesens. sem lítið var á að
græða.
Til hæstarétlar
hefir máli Olafs Friðriksson-
ar verið áfrýjað af beggja hálfu.
Draupnir
kom hingað i gærdag og fór
með afla sinn áleiðis til Eng-
lands í gærkveldi. Eftir mjög
langar yfirlieyrslm- á Patreks-
firði var skipið sektað um 8000
krónur fyrir ólöglegan umbún-
að veiðarfæra innan landhelgi,
en aí'li og veiðarfæri var elcki
gert upptækt. — Frést hafði
hingað, að skipið hefði sætt
þyngri sektum. en það rejTidist
misliermi.
Veðrið í morgun.
Hili i Reyk javík 3 st., Vestm.-
eyjum 4, Grindavík 3, Stykkis-
hólmi 2, ísafirði 2, Akureyri 3,
Grímsstöðum -4- 2, Raufarhöfn
2, Seyðisfirði 2, Hólum í Horna-
firði 2, pórshöfn í Færeyjum 6,
Jan Mayen 0 st. Loftvog lægst
fyrir sunnan land, breytingar-
lítil. Austlæg átt; hvöss á Suð-
urlandi. Horfui’: Sama vind-
staða.
Guðmundur B. Vikar,
klæðskeri, liefir legið hátt á
þriðja mánuð, en er nú kom-
inn á fætur og farinn að vmumu
]?eir sem hafa átt föt í xibwbM;':
lijá honum, geta fundið
þeiin viðyikjandi.
Eimskipai'élagið
hefir fengið skeyti frá Aa«p—
mannahöfn, þess efnis, að sanu-
ingarnir við hafnarverkamaBSÉ
hafi farið út um þúfur, e»
sé búist við, að viimuveitendwPí
og verkamenn verði kallaðir aft-
ur á fund til nánari samninga-
umleitana. — t skeytinu segprj
ennfremur, að rigning sé kem-
in og horfur á að lagísinn f*ri
að leysa.
Gamla Bíó
sýnir þcssi kvöldin góða rmjmd
seni heitir „Ástfangnir pUtor'*.
Myndin, lýsir lífinu í námukam-
um Nome i Alaska.
Nýja Bíó
sýnir enn þá sögu Borgarærtt-
arinnar.
Kosningaúrsht
í Suöur-Þingeyjarsýslu utöw
þau, aö Ingólfur Bjarnasou vag
kosinn, nieö 801 atkv. SteingríKute;
Jónsson. bæjarfógeti fékk 4&f
atkv.
í kvöld kl. 8»/2
heldur SálarrannsóknaféfagíS
f und í Bárubúð. Mag. art. JafeéV
Jóh. Smári flvtur erindi.
Nýdáinn
er merkur maður í þingeyj-
arþingi, ]?órarinn Jónsson bÓHdí
á Halldórsstöðum i LaxárdaL
Hann lésl um síðustu helgi eftíg
all-löng vanheilindi af brjóst-
tæring. Mun hann hafá veri®
í’úmt fimtugur að aldri. — J>ón-
arinn var systursonur Magnás-
ar pórarinssonar á Halldórsstöð-
um, jþorbergs hreppstjóra a
Sandhólum á Tjömesi og Jóbs
að Langavatni, sem allir enÉ
danir, merkir mætismenn. Iians
var bræðrungur Friðriks Jóns-
sonar pósts á Helgastöðum og Sig-
tryggs Helgasonar bónda á Hall-
bjarnarstöðmn í Reykjadalí
stóð'11 því að honum tápmenn &
tvær hendur. — þórarinn var
maður skarpgreindur, rökm*
sjálfstæður i skoðunum og stað-
fastur, kallaður af ýmsum nokfc-
uð einþykkur og sérlundaðuri
vel máli farinn og ritfær ef £
reyndi, en beitti sér minna eri
skyldi. Eindregiim landvamaar-
inaður og sjálfstæðismaður. —>
Hann var hár vexti, svipmikiH;*
bar yfirbragðið vitni um maoo-
rit og einbeitta skapsmuni.