Vísir - 09.03.1922, Qupperneq 2
I
KIBIB
Höfum fyrirliggjandi:
ílaframjöL
Maismjöl,
Libbyamjólk,
Fáam með Gllfoss:
K.OX „Lunch ©g Snowflaka"
Hcilau Mais,
Hœnauabygg o. íl.
Símskeytl
frf fréttaritara lVísí*.
Khöfn 8. mars.
Uppreisnin í Fiume.
Símað er frá Belgrad, að upp-
reisnarmennirnir í Fiume hafi
lagt borgina undir yfirráð Italíu
en Júgóslavía hafi mótmælt því
hjá bandamönnum.
Samsteypustjórnin og Lloyd
George.
Deila sú, sem verið liefir inn-
an' samsteyijuflokkanna á Bret-
landi, virðist nú hafa verið jöfn-
uð og á samsteypustjórnin að
fara með völd og Ll. George að
vera forsætisráðherra eins og
áður.
issjóöur launi; frv. ákveður ekki
a'ð ööru leyti, hver ætti aö kosta ,
byggingu skólahúss og rekstur j
skólans, en í athugasemdum sin- j
um gera rá'öunautar stjórnarinnar j
ráö fyrir því, aÖ samninga verði j
leitað við Reykjavíkurbæ um að
ærinn greiði hálfan byggingar-
kostnað, og launi að sinum hluta
sem aðra barnakennara þá kenn-
ara, sem þyrfti við æfingaskólann,
auk forstöðumanns hans, og kenn-
araefnanna, en að öðru leyti ann-
ist og kosti rikið rekstur skólans.
Ráðuneytinu til aðstoöar við yf-
irstjórn skólans sje skipað skóla-
ráð, og eigi þar sæti skólameistari
kennaraskólans og tveir skóla-
fróðir menn.
Ýmsar smærri breytingar eru ;
: bein afleiðing þessara, svo sem
| aukning kenslunnar í einstökum
; greinum og fjölgun námsgreina
! m. m.
Ejnar Nielsen staðinn að
svikum.
Rannsóknarnefnd Kristjaníu-
háskóla hefir rannsakað hinn
þekta, danska miðil, Ejnar Niel -
sen, án þess að fá útfrymi (tele-
plasma) framleitt. Samtímis
hefir nefnd Sálarrannsóknafé-
lagsins (norska) staðið hann að
svikum.
(Fregn þessi er vafalausl liöfð
eftir Kaupmannahafnarblöðum,
en j>au eru yfirleitt fjandsamleg
„spiritisma“, og er því engan
veginn víst, að fregiiin sé óyggj-
andi).
KeDDaraskóUnn-
Mentamálanefnd (Þorst. M. J.,
Jón Þorl., G. Sig. og Sv. Ól.) hefir
birt svolátandi nefndarálit um
stjórnarfrumvarpiö unt kennara-
skóíánn:
„Nefndin hefir athugað frumv.
þetta, og eru laðalbrey.tingarnar,
sem það fer fram á, þessar:
Námstíminn við skólann verður
4 skólaár, 714 mán. hvert, i stað
’þess, að hann er nú 3 skólaár, 6
mán. hvert.
Ætlast er til, aö sjerstakur
barnaskóli til kensluæfinga sé reist-
ur í sambandi viö kennaraskólann,
og sjeu í honum aö minsta lcosti
6 ársdeildir, þ. e. sá skóli rúmi a.
m. k. 180 börn. Þessi barnaskóli
hafi sjerstakan skólastjóra, er rík-
Nefndarmenn eru sammála um,
að ekki sje tímabært aö láta þetta
frv. ná fram að ganga að þessu
sinni, þótt skoðanir þeirra um
málið sjeu að öðru leyti skiftar.
Sumir hta svo á, að rjettara sje
að auka kröfurnar um kunnáttu
við inntöku i skólann, jaínvel
heimta gagnfræðapróf til inntöku
í kennaraskólann, fremur en að
lengja námstímann í skólanum.
Aðrir nefndarmenn líta svo á, að
með frv. sje stefnt inn á í-jetta
braut, og beri að velja þá leiðina
þegar fært þyki að gera strangari
kröfur um mentun kennaraefna en
nú.
Nefndin hefir leitað upplýsinga
hjá skólastjóra kennai'askólans
um ýms atriði, er málið snerta.
Samkvæmt þeim telur nefndin, að
breytingin muni útheimta einn
fasta kgnnara auk þess kennara-
fjölda, sem nú cr, og yrði þaö ann-
aðhvort . forstöðumaður æfinga-
skólans eða kennari við kennara-
skólann sjálfan. í skólanum eru
nú 4 kenslustofur, og mundi mega
bjargast við þær, þótt námstím-
inn yrði lengdur upp í 4 ár, en þá
er tilfinnanleg vöntun á húsnæði
fyrir lcsstofu og bókasafn til af-
nota fyrir nemendur. Loks hefir
skólastjórinn tjáð nefndinni, að l
hann telji mjög hæpið, að nægileg
aðsókn verði að skólanum meðan
núverandi dýrtíð helst, ef skóla- j
vistin er lengd svo, sem frv. gerir !
ráð fyrir. Hefir hann leitað fyrir 1
sjer hjá núverandi nemendum skól-
ans um það, hve margir þeirra
mundu hafa treyst sjer til að sækja
skóiann, ef Iengd væri skólavistin
eftir frv., og mikill meiri hluti
þeirra látið í ljós, að þeir mundu
þá ekki hafa treyst sjer til að
sækja skólann. Telur hann þetta
eðlilegt, þar sem flestir nemend-
ur sjeu fátækir alþýðumenn úr
sveitum, er lifi mestmegnis á sum-
arvinnu sinni, og mundi því verða
óhjákvæmilegt, að auka náms-
styrki við skólann að miklum mun.
ef frv. ætti fram að ganga eins og
nú stendur.
Auk þessara erfiðleika fyrir fá-
tæka nemendur, þykir nefndinni
og sýnt, að frv. mundi hafa í för
með sjer talsvert mikinn kostnað-
arauka fyrir ríkissjóð, ef það yrði
að lögum og kæmi til fram-
kvæmda. Samkv. frv. hlyti ríkis-
sjóður einn að kosta æfingaskól-
ann, ef ekki næðist samkomulag
við Reykjavíkurbæ um þátttöku
í kostnaðinum, og þykir ekki lík-
legt, að allur rekstur þeirrar stofn-
unar mundi kosta mikið minna en
rekstur kennaraskólans nú, er til-
lit er tekið til hækkaðs byggingar-
kostnaðar, og þótt vitanlega spar-
aðist þar á móti hluti ríkissjóðs
af Iaunum nokkurra kennara við
barnaskóla Reykjavíkur, vegna
fækkunar á börnum þar, þá yrði
aukakostnaðurinn ávalt töluverð-
ur. Einnig innan sjálfs kennara-
skólans mundi breytingin væntan-
lega hafa nokkurn útgjaldaauka í
för með sjer, og þar sem einsætt
þykir, að hlífa ríkissjóði eins og
nú stendur, við nýjum útgjöldum,
eftir því sem mögulegt er, þá legg-
vr nefndin til, að málið sje afgreitt
með svo feldri „Rökstuddri dag-
skrá“: Með því að ekki þylcir
tímabært, vegna yfirstandandi dýr-
tíðar og þröngs fjárhags, að gera
þær breytingar á kennaraskólan-
um, er frv. á þskj. 8 fer fram á,
tekur deildin fyrir næsta mál á
dagskrá."
Föstuguðsþjónusía
í fríkirkjunni í Hafnarfirði á
morgun, kl. 6J4> síðd. Síra 01-
Ólafsson prédikar.
Jarðarför
frú Margrétar Magnúsdóttur
Ólsen fór fram í gær við mikið
fjölmenni. Prófessor Haraldur
Níelsson í'lutti húskveðju en síra
Bjariii Jónsson likræðu i dóm-
kirkjunni. Embætlismenn Stór-
stúku Islands baru kistuna í
kirkjuna, en læknar báru hana
út úr kirkjunni. ,
Dánarfregn.
Látin eru merkishjónin Guð-
xriundur hreppstjóri Erlendsson
og Ingibjörg Sigurðardóttir í
Mjóadal i Austur-Húnavatns-
sýslu. Banamein beggja lungna-
bólga. Lögðust þau sama dag
bæði og andaðist hann 2. þ. m.
en hún 6. þ. m. Áttu þau þrjú
börn á hfi: Sigurð skólameist-
ara 'á Akureyri og húsfrúmar
Elísabetu í Mjóadal og Ingi-
björgu í Síðumúla.
Gamla Bíó
sýnir þessi kvöldin ágæta
mynd, bæði fallega og vel leikna
— sérstaklega eru þó mörg leik-
sviðin framúrskarandi falleg,
og auðséð að til myndarinnar
hefir verið vandað hið mesta.
— Myndin lýsir lifnaðarháttunr
i kvennabúri soldáns í Mikla-
garði.
Eimreiðln, 12. irg. óskast. Afgr. v. á.
Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir eina
af hinum ágætustu og best
leiknu myndum, sem hingað
hafa borist. Sýnir hún ungan
visindamann, sem finnur upp
lyfsamsetningu til þess að skilja
að hið illa og góða, sem í hon-
um býr. Lifir hann svo eftir það
ýmist sem góður maður eða sem
„manndýr“ og að lokum verð-
ur þó „manndýrið.“ sem fær yf-
irhöndina og myrðir góðmenn-
ið. Má af myndinni læra margt
gott og hún getur gefið ungum
sem eldri umhugsunarefni; þá
yngri varar hún við að byrja
á því illa, sem þeir eru ekki
menn til að yfirvinna þegar til
lengdar lætur, og þá eldri, að
halda ekki í hugsunarleysi
freistingum að þeim yngri, sem
getur svo orðið þeim að ofjarli
og gert að engu tilfinningu
þeiiæa fyrir hinu góða og sanna.
— Farið í Nýja Bíó að sjá þessa
mynd, ykkur til uppbyggingar,
Bió-gestur.
Ný skóverslun
var opnuð í morgun i húsi frú
M. Zoéga í Austurstræti.
Dansleik
ætlar Iþróttafélag Reykjavik'
ur að halda 11. þ. m. Sjá augl,
Frá Englandi
komu í gær Vínland og Gylfi.
Af veiðum
eru nýkomnir Leifur heppni
(með 115 tn. lifrar) og Hilmir
með 85 tunnur.
Til veiða
fór Skallagrímur í gærkveldi,
en porsteinn Ingólfsson og Skúlí
fógeti í fyrradag.
Signe,
norska skipið, sem kom með
steinolíufarminn til H. I. S., fór
héðan i gærkveldi áleiðis til
Vestmannaeyja með nokkuð af
farminum.
Travemiinde,
þýski botnvörpungurinn, sem
Geir dró Iiingað frá Vestmanna-
i