Vísir - 27.05.1922, Side 2
V 1S I R
Höfum nú fyrirliggjaadi:
Ttrslega géAar partégalskar
Sardinur,
Símskeytf
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn 26. mai.
Lloyd George skýrir þinginu frá
Genúa-ráðstefnunni.
Lloyd Georgc hefir nú skýrt frá
störfum Genúa-ráSstéfnunnar, i
neSri deild breska þingsins. Mót-
stööumenn stjórnarinnar hafa
fundið aö úrslitum málanna.
Þýskaland fær lán?
Þa'ð orð leikur á, a$ Londonar-
bankar hafi útvega'ö Þýskalandi
lán til þess að það geti staðiö í
skilum við bandamenn 31. maí.
Samningur Rússa og ítala.
Verslunarsamningur hefir ver-
ið gerður milli Rússland og ítalíu.
Frá GeBöa.
Eftir J. M. Keynes.
Niðurl.
lfver verbur að öbru.leyti á-
rangur þessara samningsumleit-
ana? Þess er ekki krafist, að Rúss-
land greiði neitt eða geri nokkuð
nú þegar. !ín það verður að gang-
ast undir skulda-arf zar-stjórnar-
iri'nar og viðurkenna þær skuld-
bindingar, sem á henni hvíldu, og
verður þá sú skuld þess við út-
lönd um þúsund miljónir sterlings-
punda að tíu árum liðnum.
Þessir skilmálar mega heita svo
vægir sem framast má verða, ef
ekki er farið út fyrir gruridvöll
■þann, sem lagður var með yfirlýs-
ingunum i Cannes. En ef reynt
verður af alhug að greiða skuld
irnar og skaðabæturnar, þá er hér
itin þunga b)rrði að ræða á ókonm-
um árum. Bolshvikingar telja sig
ekki bundna neinum siðfcrðileg-
um skuldbindingum. f’eir ganga
því að eins að þessu, að þeir sjái
sér hag í því. En í hverju, ætti sá
hagur að vera fólginn ?
Fyrst og fremst hafa þeir ' á-
drátt urn lánstraust. Rússland á \
að fá vildarkjör hjá Alþjóða-
vérslunarfélaginu, að minsta kosti 1
frá Bretlands hálfu, bæöi fyrir-
greiðslu i viðskiftum og Ián til
irihkaupa, En hin ráðgerða hjálp
þessa félags hefir orðið öðrum
löndum til svo lítils gagns, að
RúSsland getur ekki vænst veru-
Tegs styrks frá því, þó að það vildí
láta starfsemi sína ná til Rúss-
lands. Ef Rússland kynni á næstu
árum að fá þar lánstraust er næmi
5 til 10 miljónum sterlingspunda,
alls og alls, þá mætti það mikið
heita, en vel gæti svo farið, að
það fengi alís ekkert.
En þetta er hið eina, sem vér
bjóðum þeim, auk vinjamlegra
ummæla. Sumir bæta því við, að
Chicherin muni einkum gangast
fyrir því, að hann geti fengið lán
hjá einstökum mönnum eða stofn-
unum, ef hann gangi að boðurn
vorum. En eg er sannfærður um,
að þessu er ekki svo farið. Ein-
stakir lánveitendur sætta sig ekki
við það eitt. að Chicherin gangist
undir einhver loforð: þeir vilja
sjá, að hin nýja rússneska stefna
beri sig í framkvæmdinni. áður en
þeir taka upp ný viðskifti.
Ein mikilsverð ívilnun er hvergi
nefnd af vorri háifu í þessu nýja
sáttaboði. Þar er hvergi minst
einu orði á viðurkenning rúss-
nesku ráðstjórnarinnar að lögum
(de jure), þó að öll löndin, nema
Frakkland og Belgía, sé fáanleg til
a'ð veita slíka viðurkenningu.
Næsta skrefið í þessum samning-
um verður þá það, að Chicherin
hlýtur að ganga úr skugga um
það, hvort stjórnirnar ætli að við-
urkenna stjórn hans, ef hann við-
urkenrii skuldirnar, og því næst
munu Bretar eyða' heilli viku til
þess að fá samþykki Frakka til
þess að mega svara játandi.
Þegar þvi er lokið mun Chi-
cherin verja öllum sínum kröft-
um til þess að afia sér láns og til-
trúar. Og eins og eg hefi frá upp-
hafi fullyrt, þá veltur alt á því,
hve mikið vér viljum lána og með
hverjum kjörum.
Eg hefi áður látið þá skoðun í
ljós, að Stór-Bretaland mundi
vinna sér og öllum gagn, ef stjórn-
ir veitti Rússlandi tiltrú, sem um
munaði. Talið er, að Lloyd Ge-
orge sé hliðhollur þeirri stefnu,
t n fjármálaráðherra hans því ger-
samlega andvígur, — og ef til vilí
alt ráðuneytið.
Þessi hluti málsins verður þess
vegna að útkljást í London. Ef
íhaldsmenn leyfa ekki Lloyd Ge-
orge að veita Chicherin frekari á-
drátt um lán en orðið er, þá muri
þess vissulega langt að bíða, a'ð
hann komist að samningum við
Chicherin.
Ef ekkert lán býðst, þá getur
þó Chicherin haldið heim með
fullri sæmd og betri fótfestu en
áðtir. Hann hefir trygt samning
við Þýskaknd og reynst öðrum
stjórnmálamönnum álfunnar hygg-
biireiðapmml i liger:
28 x 3
30 X 3lA
31 X 4
33 X 4
32 X 4í4
All Weather Tread
— Cord
— Cord
34 X 4}4 —
35 X 5 —
765 X 105 —
880 X 120 —
— — CorÆ
— — CordL
— — Cordí'
Jéh ðiiisioa k Co.
Reykjavlk
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að konan min
elskuleg, Andrea Þuríður Jónsdóttir, andaðist að heimili sínu,
Vestra-Gíslholti, föstud. 26. þ. m. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Fyrir hönd. mína og harna minna.
Ingibergur ólafsson.
Bastn þafefeir fyrir auösýnda hlutiekningu við jarðarför
móður minnar.
Jennina Hendriksdóttir.
inn .og- ráðsliugur, en engu fóm-
að á altari hins hataða auðvalds.
liann mtiri þá líka. geta gert sér
nokkrar vonir' um að gera, áður
mjög langt líður, sérstaka samri-
inga við önnur ríki, á svipaðan
liátt eins og hann samdi við
Þýskaland.
Enn er órætt um friðarsáttmál-
ann, (sem Lloyd George vildi láta
Evrópu-þjóðirnar gera með sér).
Þar munu einkum tvö mikilvæg
atriði koma ti! umræðu : — Landa-
mæri Póllands og réttur Frakka
til að ráðast að vild með her
manns inn í Þýskaland. Þeir sem
híut eiga að máli virðast ekki ó-
fúsir til að ræða fyrra atriðið hér
í Genúa. Hið síðara er sennilega
vonlaust um. Ef ráðið yrði fram
úr öðru hvoru, þá hefði ráðstefn-
an, í Genúa orðið gagnleg. En ef
bæði verða óútkljáð, þá verður
einu viðfangsefninu fleira, þar
sem friðarsáttmálinn er, og það
‘getur þá orðið tilefni kurteislegra
umræðna síðar.
(Hvorugt þetta mál varð til
lykta leitt á ráðstefnunni, svo að
kunriugt sé, en samningunum við
Rússa verður haldið áfram á sér-
stakri ráðstefnu í Haag, svo sem
frá hefir verið skýrt í símskeyt-
um).
Bnjarfrétlir.
1
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra Jóh.
Þorkelsson. Engin síðdegisguðs-
þjónustá, en safnaðarfundur verð-
ur haldinn kl. 5 síðd. í kirkjunni.
í Landakotskirkju: Hámessa
kl. 9 árd. og kl. 6 síðdegisguðs-
þjónusta með prédikun.
í fríkirkjunni kl. 5 sí'ðd. Prófes-
sor síra Haraldur Níelsson. Engin
árdegismessa.
Prestskosning
frikirkjusafnaðarins lauk laust
eftir kl. 10 í gærkveldi, en taln-
ing atkvæða var lokið skömmu
eftir miðnætti. Cand. theol. Áxni
Sigurðsson hlaut kosningu með
j 248 atkvæðum. Síra Eiríkur Al-
bertsson fékk 401 atkv., ógildir
voru 14 seðlar.
Uppboð
verður haldið í Breiðholti á
mánudaginn og þar selt: búsáhöld,
fénaðarhús, heyhús, skepnur og
fleira. Byrjar klukkan eitt, mið-
degis.
Veðrið í morgun.
Hiti í Rvík 6 st., Vestmanna-
eyjum 5, Grindavík 6, Styklcis-
hólmi 6, ísafirði 4, Akureyri 5,
Grímsstöðum o, Raufarhöfn 2.
Seyðisfirði 7, Þórshöfn í Færeyj-
um 6, Kaupmh. 12, Bergen 7,
Tynemouth 9, Leirvík 8, Jan May-
en frost 1 st. — Loftvog há fyrir
suntaan land. Norðvestlæg átt á
norðausturlandi. Kyrt annarsstað-
ar. Horfur: Suðlæg átt.
Gísli Oddsson
skipstj. á e.s. Leif heppna hefir
skýrt frá, að hinn 23. þ. m. kl.
10% árd. hafi skipshöfnin á skip-
inu séð tundurdufl á reki á móts
við Austurhom. Það var fretnur
stórt, með 4 löngum tökkum, og
koparkúlu á mið.ri bungtmni
Tundurduflið mun hafa verið á
breiddargr. 64° 15’-N breiddar, og
140 20’ W lengdargr. Stormur var
á austan og talsverður sjór, og
þykir skipsmönnum ekki ósenní
legt að það reki í vesturátt.
Til Þi.ngvalla
fór fyrsta bifreið á þessu sumri
síðastliðinn fimtudag, — frá Stein-
dóri. Flutti hann Rosenberg gest-
gjafa austur, og mun hann hafa
í hyggju að taka á móti gestrnn
í Valhöll um Hvífasunnu.