Vísir - 12.07.1922, Side 2
)) NarmM i Q
Höfum fyrirliggjsndi:
Hðggíufó Melis
StejttaBo Meií«
Kíindis
Plórsykm*.
Húgmjöl — Hriegrjón — Haframjöl — Hveiti — 8ago —
Hrísmjöi — Maismjöl — beilann Mai« — Sóda — ®legs6da —
Kaffi — Expertbaífi — Cocoa - Chocolade—Rútíriur — Sveskj-
ur — Epli þurkuð - T .1 >>V>y«inj|<Snig — Ávexti
niður*oðna — Sardinur — Umbúðapappir — Fappirspoba —
Skógarn — Uilarbaila — Hcsaian — o. ro. fl.
hann gengur inn kirkjugólfið. Ó-
sjálfrátt nemur keisarinn staöar á
miöju gólfi og litast um. Stór-
Imenni ríkis hans lúta honum, en
augu keisarans nema ekki staöar á
lotningarmerkjum þeirra né skrú'ö-
klæöum. En hvaö kirkjan er stór
og svipmikil! Háloftiö er svo hátt
uppi — 56 metra frá gólfi, — a'ö
fullerfitt er aö greina gullna stein-
tiglaskrautið þar, en marmarasúl-
urnar og purpurasteinsstólparnir
vekja athygli hundruðum saman
og margháttaö er marmaraskraut
veggjanna. Dyrustafirnir við að-
aldyrnar eru komnir pustan úr álfu
og munnmælin segja, að þeir hafi
fyrrum verið í örkinni hans Nóa.
Þar eru og hurðir úr hreinu silfri,
en a'ðrar hurðir eru lagðar fila-
beini og sedrusviði. En yfir kirkj-
unni geislar silfurkross; á hann að
vprM cnnn lítrincr krnssitis á frol-
Vatn! Vatn!
Alt af þjakar vatnsleysið okk-
ur, sem ofarlega búum á Skóla-
vörðuhæðinni, og eru margir, sem
finst þetta ástand óþolandi og eru
undrandi yfir því, hve lengi er
spyrnt á móti broddunum með að
útvega bænum nóg vatn.
Það er verið að káka smávegis
við vatnsleiðsluna, mæla og gera
við og reyna að sannfæra okkur
um, að vatnið hljóti að vera' nóg
eftir danskri og annari reynslu.
En þegar enginn dropi kemur úr
krananum er gróflega lítið gagn
að öllu þessu, og það er sú reynd-
in, sem raean verða að beygja sig
fyrir. Vatnið er of lítið. Við erum
vatnslausir, stundum allan daginn
og æfinlegá mestan part dagsins.
En þetta hvorugt á að vera. Við
viljum hafa vatn ávalt þegar við
þurfum á því að halda. Við borg-
r.m vatnsskatt, sem miðaður er við .
það, og við viljum hafa vatn.
Það er skárra en ekkert, áð hafa
vatn dálitla stund að morgni, en í
það er ófullnægjandi. Og það er j
óþolandi að vera vatnslaus allan ■
daginn, þó að ekki sé nema stund- i
um.
Við förum að taka okkur saman j
og neita algerlega að borga það, ;
sem við fáum annaðhvort ekki eða
illa útilátið.
Við neitum að borga, og látum
bæinn svo krefja inn með hörðu
borgun fyrir það, sem hann hefir
svikist um að láta af hendi. Það
gengur aldrei.
Og við heimtum þá að fá að
minsta kosti brunna og pósta upp
á gamla móðinn, og 'borgum okk-
ar peninga þeim, sem koma virki-
lega með vatn til okkar, en ekki
fyrir það að hafa málamyndar
vatnspípur inn í húsið, sem sjaldan
fæst deigur dropi úr.
Það er undarlegt, að bæjar-
stjórnin skuli ekki sjá það fyrir
tómum vitsmunum og erlendri
reynslu, að það er ekkert, sem úr
þessu bætir annað en meira vatn,
ný leiðsla við hlið þeirrar eldri eða
víðari vatnspípur. Þetta ætti að
vera búið að framkvæma fyrir
Iöngu.
Það kostar fé, en eg verð að
segja, að af öllum framkvæmdum
sé þessi allra nauðsynlegust, að út -
vega bænum nóg vatn. Það er
undirstaða alls daglegs lífs, nóg
vatn og gott vatn.
Sumir tala um að takmarka
vatnsausturinn x bænum, en það er
ekkert vit. Það þyrfti einmitt að
;auka hann, meðal annars með þvi
að fyrirskipa vatnssalerni í hverju
hús;, því að það er ómynd rneiri
en með orðum verði lýst, að þurfa
enn að sjá og finna þefinn af því,
þegar verið er að hreinsa gömlu
salernin, úti og inni. 7
Það ætti líka að hvetja menn til
þess að hafa meira af baðklefum
í húsum en nú er o. f 1., o. fl.
Mikið vatn er skilyrði fyrir
þrifnaði alment.
En vatns-skortur er alveg óþol-
andi, hversu stutta stund sem er.
Hér á að heita að sé vatnsveita.
Og svo eru það þúsundir manna
hér, sem búa við það, að verða
að borga vatnsskatt, en verða dag-
lega að hlaupa með kyrnur og föt-
ur hús úr húsi til þess að sníkja
vatnsdropa. Og þó enn fleiri, sem
verða að geyma vatnið í ílátum,
þar sem þeir þó eiga heimting á
því allan daginn.
Vei-ði þetta hummað svona á-
fram er engin vegur annar, en að
bærinn verður að verða af vatns-
skatti, þar senx hann getur ekki
látið af hendi vatn eftir þörfum.
Bæjarfélagið má ekki ganga á
undan í því að selja hlut, sem það
lætur ekki af hendi.
Á þessu skal nú alið og ekki lint
meðan ólagið helst.
Einn af mörgum.
Soíiokirtjan.
Vígsludagurinn.
Það var 548 árum eftir fæðingu
Krists, sem Sofíukirkjan var full-
smíðuð. Fjöldamargir frægustu
húsasmiðir i Litlu-Asíu höfðu
unnið að henni með 10 þúsund
verkamönnum i 16 ár. Keisarinn,
Jústinían I., lagði til féð, og kom
oft sjálfur til að líta eftir, hvernig
verkið gengi. — En nú var hún
loks fulfsmíðuð og var mesfia og
dýrðlegasta guðshús þess tírna, er
jafnan skyldi síðan vera kend við
helga visku eða nefnast Hagia
Sofiia.
Keisarinn kemur sjálfur í skraut-
vagni og æðsti biskup Austurrík-
isins er í fylgd með honum, þegar
gata.
Keisarinn verður gagntekinn af
auðmýkt gagnvart guði, gengur
að sæti sínu og varpar sér biðj-
andi á kné:
„Guði sé lof og dýrð, sem taldi
mig liæfan til að framkvæma ann-
að eins verk. Eg hefi sigrað þig,
Salómon!“
Þá hófst dýrðleg vígsluathöfn.
Og að henni lokinni bauð keisar-
inn stórmenni sínu til 14 daga
veislufagnaðar. Jafnframt lét hann
aka silfri í tunnum um strætin til
úthlutunar meðal almennings. All-
ur borgarlýður skyldi halda veisl-
ur og keisarinn borga reikning-
ana.
Kirkjan svívirt.
Það voru liðin meira en þúsund
ár.. Kynslóð eftir kynslóð hafði
hlýtt á lofsöngva og kristilegar
ræður í þessari frægustu kirkju
Austurlanda, og flestir höfðu bú-
ist við, að svo mundi enn verða
um rnörg hundruð ár. En nú er
runninn óhamingjudagurinn mikli,
29. maí árið 1453. Skelfingarfregn
fer óðfluga um borgina: „Umsát-
ursher Tyrkja er kominn inn í
borgina!“ Karlar og konur, börn
og gamalmenni, verða frávita af
skelfingu og þjóta svo hratt sem
auðið er frá heimilum sínum, ef
verða mætti, að þeir fyndu ein-
hverja undankomu. En hvar er
griðastaður kristnum mönnum,
þegar ofstækisfullir Tyrkir vaða
fram?
„Hagia Sofia, Hagia Sofia! hiki
þeir ekki við að svívirða hana með
manndrápum, þá er öll von úti.“
Þannig hugsuðu margir og þús-
undum saman streymdu flótta-
mennirnir inn í Sofiukirkjuna. Svo
er öllum hurðum lokað eins ram-
byggilega og hægt er, en biskupar
og lderkar ganga fyrir ölturu.
Örstutt stund líður, von og kviði
vegast á, en þá dynja högg Tyrkja
á kirkjuhurðirnar. Angistaróp
beyrast um kirkjuna. Mæður
þrýsta að sér börnum sínum. Hjón
lcveðjast í hinsta sinn. Hurðirnar
hrökkva upp eða fara í mola, blóð-
þyrstir Janitschanar æða inn með
blóðug sverðin. Spámaður þeirra
hefir skipað þeim að útbreiða trú
sina með eldi 0g sverði, svo að
þeir þykjast geta unnið hermdar-
verk sín í nafni trúarinnar. Villu-
.dýr eru ekki óseðjandi, en grimrn-
ir hermenn eru verri en villudýr.
-----Blóðið rann í Iækjum eftir
kirkjugólfinu, en surhir voru þó
reknir bundnir út til þrælkunar.
Heilar lestir úlfalda og múlasna
voru teymdar inn á kirkjugólf og
hlaðið á þær ránsfengnum, alskon-
ar dýrgripum kirkjunnar. í tryltu
ofstæki rak einn hermaðurinn húfu
sína yfir þyrnikransinn á dýrðlegu
Krists-líkneski og hrópaði: „Sjá-
ið guð kristinna manna!“
Biskupinn hafði alt til þessa tón-
að bænir uppi við háaltarið, til
huggunar deyjandi mönnum, en nú
hætti hann, tók kaleikinn og hrað-
aði sér upp stigana bak við altarið.
Tyrkir hlupu á eftir honum og óðu
að honum með brugðnum sverðum,
þegar hann kom upp á kirkjuloft-
iö. En þá, — segja munnmælin,
— opnaðist múrinn, biskup hvarf
inn i hann og jafnskjótt lukust
dyrnar aftur svo að Tyrkir sáu
ekkert annað en heilan múr, sem
livergi bifaðist við högg þeirra.
— Meir en hálf fimta öld er
liðin síðan atburðir þessir gerð-
ust. En þó er það enn þá alþýðu ■
trú með Grikkjum, að þegar
lcristnir menn nái Sofíukirkjunni
aftur frá Tyrkjum, muni múrinn
opnast á sama stað og fyrri, bisk-
upinn koma út þögull en glaður
á svip, ganga með kaleikinn að
háaltarinu og ljúka við að tóna
bænina, sem hann, varð að hætta
við forðum.----En hvað sem því
liður, munu það verða fleiri en
Grikkir, sem fagna þeirri stundu,
er kristnir lofsöngvar fá að hljóma
í þessari fornhelgu kirkju í ann-
að sinn og krossmarkið fær að
vera óáreitt þar sem það var sett
í öndverðu.
Önnur frásögn bendir til að
Tyrkir hafi sjálfir eitthvert hug-
boð um, að musterið verði aftur
kristin kirkja. — Á einum veggn-
um var máluð Kristsmynd mikil
.0g fögur, sem Tyrkir kölkuðu yf-
ir, svo að hún skyldi ekki sjást.
En þegar sólargeislarnir leika um
vegginn, má enn sjá móta fyrir
myndinni. Er mælt, að þá sé orð-
tak Tyrkja: — „Þarna sjáið þið,
hann kemur aftur.“
(Að mestu leyti úrSv. Hedins
„Fra Pol til Pol“).
Símskeytf
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn ir. júlí.
Morgans-nefndin.
í sambandi við þessa uppástungn
Lloyd Georges kemur Morgans-
nefndin bráðlega saman í Berlín.
Þýsk stjórnmál.
Meiri hluta j afnaðarmennirnir
hafa hótað að ganga úr stjórninni
eí Alþýðuflokkurinn komi inn.
Endurskoðun
V ersala-samninganna.
Frá London er símað: Lloyd
George stingur upp á þvi, að allir
þeir, sem undir Versalá-samning-
ana skrifuðu, komi saman hið
I ráðasta til þess að ræða fjárhags-